Tíminn - 05.10.1978, Side 8
8
Fimmtudagur 5. október 1978
á víðavangi
Þar sem hinir mörgu
dýrka hina fáu
t Fagblaðinu í gær birtist
grein eftir Sigurð E. Guð-
mundsson, þar sem hann
hreyfir mjög þörfu máli er
hann ræðir um fjáraustur
opinberra aðila i iþróttamann-
virki fyrir þá fáu sem setja,
eða reyna að setja einhver
met, meðan framkvæmdir
fyrir fjöldann, sem stundar
hverskonar iþróttir og útilif i
þvi skyni að bæta andlega og
likamlega heilsu sina eru látn-
ar sitja á hakanum. Sigurður
segir m.a.:
Almenningur borgar
brúsann
„Höfundur þessa greinar-
korns hefur stundum leyft sér
að gagnrýna þá stjörnuiþrótt-
astefnu, sem gegnsýrir allt
iþróttalif hér á landi og annars
staðar, jafnt austantjalds sem
vestan. 1 fáum orðum sagt
miðar hún fyrst og sfðast að
þvi að stofna til sifelldra
keppnisleikja með
einstaklingum og keppnisliö-
um þar sem verðlaunin eru
frægð og hylli viðrómuð i fjöl-
miðlum. Allar byggingar
iþróttamannvirkja miða öðru
fremur að þessu markmiði,
yfirleitt eru þau vettvangur
þar sem hinir afar mörgu dá
afrek og dýrka hina fáu út-
völdu. Vitaskuld er það al-
menningur sjálfur sem borgar
brúsann, en ekki þeir tiltölu-
lega fáu, sem mannvirkin nota
sjáifum sér til dýröar.
Sjálfstæðisíþróttamenn
hafa ráðið stefnunni
Þaö gerist bæði vegna þess,
að allir stjórnmálaflokkarnir
eru undirlagðir af stjörnu-
dýrkunarviöhorfinu i iþrótta-
málum og eins vegna hins, að
iþróttaforingjarnir hafa
margir hverjir verið ötulir i
valdabaráttunni og komizt til
mikilla áhrifa i sumum flokk-
anna. 1 þvi efni hefur þeim
einkum orðið ágengt i Sjálf-
stæðisflokknum og með þvi
móti ráðið mestöllu um
stefnumótunina i iþróttamál-
um hins opinbera. Afleiðing
þess hefur orðið sú m.a., að
stórkostlegu fjármagni hefur
um langt skeið verið veitt til
ma nn v irkja gerðar fyrir
keppnisiþróttirnar, fyrst og
fremst, en aðstaöa fyrir al-
menningsiþróttirnar hefur
veriö látin sitja á hakanum.
Stórfé í stúkur en sturt-
ur of fáar
Skýrt dæmi um þetta er sú
staðreynd, að nú er búið að
verja 150 millj. króna til bygg-
ingar iþróttavallar i Laugar-
dal (þar af 58 millj. króna i
sérstakt gerviefni á hlaupa-
brautir) á sama tima og al-
mennir baðgestir, sem koma
þúsundum saman á ári hverju
til sundiökana i sundlauginni i
Laugardal, veröa að láta sér
nægja árum og áratugum
saman 10-15 sturtublöð og
verða að þurrka sér á salern-
inu. A sinum tima var ekkert
fé fyrir hendi, virðist manni,
til þess að búa sómasamlega
að þessu leytinu til um al-
menna baðgesti en hins vegar
var hægt að verja stórfé (tug-
um eða hundruðum milljóna
króna á nútima verðlagi) til að
byggja áhorfendastúku þar
sem hrifnir aðdáendur mættu
dá og dýrka sundstjörnurnar á
hinum sárafáu sundmótum
ársins.
Ekkert lát virðist vera á
austri stjórnmálamannanna á
almannafé i stjönumannvirki
hinna fáu útvöldu.
Lítiö bólar enn á skauta-
svelli
A sama tima og unnt er aö
verja 150 millj. króna til að
byggja nýjan iþróttavöll þar
sem annar fullnægjandi var
fyrir (eftir þvi sem best
verður séð) er ekki unnt að
verja grænum eyri til aö koma
upp sæmilegu skautasvelli
fyrir almenning, þar sem
þúsundir manna gætu notiö
hollrar hreyfingar og ómetan-
legrar útivistar mestallan vet-
urinn. Athafnamaðurinn Þórir
Jónsson hristi að visu slikt
svell fram úr erminni einn
veturinn fyrir nokkru en
Stjörnuiþróttaráð Reykjavfk-
urborgar hefur verið að gaufa
við undirbúning sliks svells
um margra ára skeið og engar
horfur eru á að það verði til
fyrr en eftir 10-20 ár, i fyrsta
lagi. Ekki stóð á Borgarsjóði
að leggja fram 58 millj. króna
til að setja gerviefni á hlaupa-
braut svo að hinir fáu útvöldu
gætu ef til vill bætt met sin um
Sigurður Guðmundsson
nokkur sekúndubrot, en það er
af og frá að græn króna hafi
fengist til þess að undirbúa
gerð sjóbaðstaðar, sem
þúsundir manna gætu sótt á
ári hverju sér til heilsubótar
og upplyftingar.
Hér er þó nóg af hreinum sjó
og heitt vatn i ríkum mæli. En
met yrði sennilega erfitt að
setja þar — og þar af leiöandi
kemur sjóbaðstaður ekki til
greina. Hjólreiðabrautir og
trimmbrautir I hinum ýmsu
hverfum koma að sjálfsögðu
heldur ekki til greina, þar er
ekki hægt að setja met.
Bætir nýi meirihlutinn
fyrir íhaldsyfirsjónirn-
ar?
A seinni árum hefur al-
mannavaldið sýnt nokkra
viðleitni til þess að sinna ósk-
um almennings um aðstöðu til
hollra iþróttaiðkana.
Sundlaugarnar tvær i borginni
hafa verið merk spor i rétta
átt og sömuleiðis skiðaiþrótta-
svæðið i Bláfjöllum. Þessu
fráviki frá stjörnuiþrótta-
stefnunni hefur almenningur
tekið fádæma vel og hagnýtir
sér til hins itrasta. En betur
má ef duga skal og þess er að
vænta að hinn nýi borgar-
stjórnarmeirihluti félags-
hyggjumanna i Reykjavik
bæti nú fyrir hinar miklu og
stóru vanrækslusyndir liðinna
ára og áratuga i þágu stjörnu-
iþróttastefnunnar. Það má
ekki minna vera en hinn nýi
meirihiuti ákveði að al-
menningsiþróttirnar sitji við
sama borð um byggingu
iþróttamannvirkja og stjörnu-
iþróttirnar gera. Það er sjálf-
sögð sanngirniskrafa að hinir
mörgu fái aðstöðu til eölilegra
iþróttaiðkana i staö þess að
geta fátt annaö hafst að en
borgað mikilfengleg og rándýr
stjörnuiþróttamannvirki
hinna fáu útvöldu”.
Skal hér tekið undir þessi
orð Sigurðar. Ekki er þó neitt
verið að amast við keppnis-
iþróttum sem slikum, en
meöan fé til iþróttamála er af
skornum skammti hlýtur það
alltaf að verða vandasamt
matsatriði hvaða mannvirki
eiga að sitja I fyrirrúmi og hér
virðast þau hafa einskorðast
nokkuð mikið við stjörnurnar.
HEI
^■1......................■■■■...... ■ ■■ i i V
Gróðurhús Garöyrkjuskóla rfkisins. Mynd: Róbert
Til vinstri er skólastjórabústaður Garðyrkjuskólans, heimavistin
Hús Hraunprýöi og Fiskakletts: i þvf er góð aðstaða fyrir björgunar-
sveit Fiskakletts en einnig er þar góð aðstaða fyrir alla félagsstarf -
semi slysavarnardeildanna.
Slysavarnardeildirnar i Hafnarfirði:
Nýja húsið vígt
Dagur Leifs Eiríkssonar
hátiðisdagur um öll
Bandaríkin
SJ — Carter Bandarlkjaforseti
hefur lýst dag Leifs Erikssonar,
9. október, hátiðisdag i gervöllum
Bandarikjunum. Draga ber fána
að hún á stjórnarbyggingum og
Bandarikjaþegnar eru hvattir til
aö heiðra minningu Leifs Eiriks-
sonar með viðeigandi samkomu-
haldi um landið allt.
1 yfirlýsingu Carters um þetta
efni segir m.a.: „Afrek Leifs
Eirikssonar að finna og kanna
Norður-Ameriku var árangur
starfs manna, sem i sannleika
réöu höfunum. Sjóferð hans
vikkaöi sjóndeildarhring mann-
kynsins og visaði eftirkomend-
unum veginn vestur”.
„1 dag heiörum viö Leif Eiriks-
son og meö þvi að heiðra hann
heiðrum við einnig imyndunarafl,
hugrekki og úthald það, sem ein-
kenndu menn hans og Banda-
rikjamenn af norrænum uppruna
enn þann dag I dag.”
1 september 1964 heimilaði
Bandarikjaþing forsetanum að
lýsa 9. október ár hvert dag Leifs
Eirikssonar.
Dagurinn hefur um árabil verið
haldinn hátíðlegur i rikjunum
Minnesota og Wisconsin.
*L
H.R. — S. 1. sunnudag
var hús slysavarnar-
deildanna Fiskakletts
og Hraunprýði i
Hafnarfirði vigt við há-
tíðlega athöfn. Sóknar-
presturinn i Hafnar-
fjarðarprestakalli sr.
Gunnþór Ingason
framkvæmdi vigsluna.
Að þessu tilefni var boðið til
kaffisamsætis þar sem for-
maöur SVFI Gunnar Friöriks-
son og forseti bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar Stefán Jónsson
voru meöal gesta. Undir
boröum hélt Einar Sigurjónsson
formaður Fiskakletts ræðu þar
sem hann rakti byggingarsögu
hússins. Þar kom fram að
byrjað var á byggingunni
áriðl973og siðla árs 1976 var svo
fyrsti hluti þess tekinn i notkun.
S.l. vor var siðan allt húsið
tekið i notkun.
Þaö kom fram i ræðu Einars
að húsið hefur að mestu verið
byggt I sjálfboðavinnu.
Samkvæmt brunabótamati er
húsið nú metið á 40. millj.kr. en
útlagður kostnaður er rúml. 8.
millj kr. Hefur þeirra fjármuna
m.a. verið aflað með flugelda-
sölu, en kaupmenn i Hafnarfirði
hafa látiöbjörgunarsveit Fiska-
kletts eftir alla þá sölu.
Við athöfnina á sunnudag
afhenti Einar Sigurjónsson for-
manni SFVI Gunnari Friöriks-
syni lykla hússins, en hann
afhenti siðan formönnum slysa-
varnardeildanna i Hafnarfirði
hvorum sinar 500 þúsundirnar
sem gjöf frá SFVI.
I hinu nýja húsi eru geymslur
fyrir björgunarútbúnað björg-
unardeildarinnar, en einnig eru
rúmgóðog smekklega innréttuð
húsakynni fyrir fundi og sam-
komur.
Eins og áður sagði er for-
maður Fiskakletts Einar Sigur-
jónsson, en formaður kvenna-
deildarinnar Hraunprýði er
Hulda Sigurjónsdóttir.