Tíminn - 05.10.1978, Page 9
Fimmtudagur 5. október 1978
9
anna á garðyrkju
að aukast
Gubrún Gu&mundsdóttir að spila
„Emil I Kattholti” við dóttur slna,
Fjólu Grétarsdóttur. Bak við þaer
y er heljar gúmmlplanta.
iðjunni og til hægri sést eitt gróðurhúsa skólans. Mynd: Róbert.
ATA — Rétt fyrir ofan
Hveragerði er Garð-
yrkjuskóli rikisins.
Skólinn verður 40 ára
á næsta ári og þvi
fannst blaðamönnum
ekki úr vegi að kynna
sér starfsemi hans
ofurlitið, er þeir áttu
leið um Hveragerði
fyrir skömmu. ■
Skólastjórinn, Grétar Unn-
steinsson, var ekki heima er
blaðamenn knúöu dyra i
skólastjórabústaðnum, en
eiginkona hans, Guðrún Guð-
mundsdóttir, var fús til að
fræða okkur um skólann.
— Það er mikil aðsókn i
skólann ogumsóknum fjölgar
ár frá ári. 1 ár sóttu til dæmis
50 um skólavist en við getum
ekki tekið nema imesta lagi 35
nemendur i einu. Við tökum
inn f skólannannaðhvertár en
eins og fyrr segir ekki fleiri en
35. Fjöldinn takmarkast af þvi
að heimavistin tekur ekki
nema 26-27 nemendur. Auk
þess höfum við getað útvegað
vist i heimahúsum i Hvera-
gerði. Núna er i undirbúningí
að stækka heimavistina,
þannig að í framtiðinni verður
e.t.v. hægt að taka við fleiri
nemendum.
— Yngstu nemendurnir eru
18 ára en sá elsti var fertugur.
Við höfum inntökupróf i skól-
— Litíð við í
Garðyrkjuskóla
ríkisins I
Hveragerði
ann, nemendur þurfa að hafa
lágmarkskunnáttu er þeir
hefja nám. Fyrir inntökupróf-
iðerum við með undirbúnings-
námskeið, sem væntanlegum
nemendum gefst kostur á að
taka þátt i. Slikt undir-
búningsnámskeið hófst hjá
okkur þann 26. september og
stendur i hálfan mánuð. Skól-
inn s jálfur byrjar ekki fyrr en
um miðjan mánuöinn.
— Námsgreinarnar eru
margvíslegar, t.d. bókfærsla,
stærðfræði, eðlisfræði og
tungumál, auk ýmissa garð-
yrkju- og jarðvegsfræða.
Strax i upphafi skiptist námiö
i þrjár brautir: Skrúðgarð-
yrkju, ylrækt og skógrækt.
Siöasttalda námsbrautin er
nýjung.
— Hverjar eru svo fram-
tiðarhorfur þeirra, sem út-
skrifast?
— Hingað til hafa þær veriö
mjöggóðar. Allir þeir, sem út-
skrif ast hafa komist beint út á
vinnumarkaðinn enda hefur
verið meiri eftirspurn en
framboð eftir garðyrkju-
mönnum. Ahugi manna á
garðrækt er lika alltaf að
aukast. Sú aukning er sérstak-
lega áberandi úti á lands-
byggðinni.
— Með þvi að útskrifast úr
skólanum hérna opnast einnig
góðir möguleikar á fram-
haldsmenntun erlendis, til
dæmis á tækninámi. Tækni-
skólar á Norðurlöndum standa
þessum nemendum opnir og
þess eru einnig dæmi, að nem-
■ endur hafi komist beint inn I
háskóla.
— Hvernig likar þér að búa I
Hveragerði?
— Mér likar mjög vel hér.
Ég er annars borin og barn-
fædd í Reykjavik en flutti
hingað með manni minum
fyrir tólf árum, er hann varð
skólastjóri. Hér er meira næði
en i borginni og minni streita.
Samt er borgin nærri, ef
maður þarf að sækja eitthvað
þangað, sagði Guðrún
Guðmundsdóttir.
A HONDA _____
ÆCORD1979
í-----------^
Peir sem hafa lagt inn pant-
anir eru vinsamlega beðnir
að hafa samband við umboðið
eru komnar
til landsins
bifreiðar
árgerð
1979
Nokkrum bílum
óráðstafað
v_________________________)
á Islandi
Suðurlandsbraut 20, sími 38772, Reykjavík