Tíminn - 05.10.1978, Side 11
tnffímm icelmEíL
ssfysrí
rsss*1
Fimmtudagur 5. október 1978
Fimmtudagur 5. október 1978
Flugleiðir í Luxemborg:
Vélar Flug^a
Einar Aakrann var ungur
maöur þegar þetta var. Hann
haföi áöur starfaö fyrir flug-
félagiö Braathens SAFE i Noregi
en Loftleiöir réöu hann til þess aö
veita forstööu skrifstofum
félagsins I Luxemborg þegar
starfsemin hófst þar. Umboös-
svæöi hans náöi þá til mikils hluta
Evrópu og allra Austurlandanna.
Aakrann hefur siöan starfaö
óslitiö fyrir Loftleiöir og þá Flug-
leiöir og á hann nú aö baki nær 24
ára starf.
Aakrann haföi boöiö undirrituö-
um út aö boröa en undirritaöur
blaöamaöur var staddur I
Luxemborg i boöi Flugleiöa i til-
efni fimm ára afmælis þess á ár-
inu og honum gefinn kostur á aö
kynna sér starfsemi félagsins i
landinu. Viö boröuöum dásam-
lega góöan mat I óaöfinnanlegu
umhverfi. Þjónarnir geröu auö-
sjáanlega sitt besta. Ég haföi aö
visu ekki reynt þá af ööru, en
Aakrann á sæti i stjórn hótelsins
enda Flugleiöir eigendur þess aö
fjóröu hluta. Þaö heitir Aerogolf
og staösett viö Findel flugvöllinn i
Luxemborg. Þetta er reisulegt
hótel, kyrrlátt, „continental” og
maturinn, maöur lifandi....
Óttinn við einokun
Viö Aakrann skröfuöum margt
yfir þri- eöa fjórréttuöu boröinu,
röbbuöum um Noreg, lsland,
feröamál og starfsemi Flugleiöa.
A Islandi var ný stjórn i buröar-
liönum og nýjustu fréttir af Flug-
leiöum voru kaupin á hlutafé i Air
Viking. Þaö voru fréttir fyrir
Aakrann sem var aö koma úr
sumarfrii frá Noregi og haföi ekki
tekiö upp póstinn sinn á skrifstof-
unni i Luxemborg. Hann haföi þó
heyrt eitthvaö um þetta talaö en
ekkert ákveöiö.
Aakrann kvaöst muna þegar
Loftleiöir og Flugfélag
tslands sameinuöust aö boriö
heföi á ótta meöal íslendinga
vegna einokunaraöstööu. Hann
kvaöst skilja þennan ótta hjá hin-
um almenna borgara og þá lika
nú þegar Flugleiöir og Air Viking
sameinuöust. Þaö væri þó aug-
ljóst aö þegar samkeppnin i heimi
flugsins væri jafn gifurleg og nú
gæti litiö land eins og tsland tæp-
lega staöiö i rekstri margra flug-
félaga, auk þess sem litil flugfé-
lög stæöu varla undir sér lengur.
Hann minnti einnig á aö samein-
ing Loftleiöa og Flugfélags ts-
lands heföi ekki reynst lslending-
Skrifstofan I Fendelflugstööinni.
Söluskrifstofan I Luxemburg.
lráFlndei-nu*venl-
Mr Bahtt»a 04
um illa á nokkurn hátt, heldur
vel, enda heföi samkeppni þess-
ara félaga áöur fyrr oft birst á
grátlegan hátt, stundum i tómum
vélum 1 áætlunarflugi.
Þaö var greinilegt aö Aakrann
var trúr starfsmaöur Flugleiöa
en gat lika rætt af hreinskilni við
blaöamann um vandamálin og
þau mál er sneru aö neytandan-
um. Um þaö er heldur engum
blööum aö fletta aö flugmála-
stefna Cartersstjórnarinnar i
Bandaríkjunum hefur sett mörg
gróin flugfélög I vanda á Noröur-
Atlantshafsflugleiöinni og þess
hafa sést merki i rekstri Flug-
leiða, þó aö, eins og Aakrann
sagöi, viö þeim vanda yröi ekki
brugöist ööru visi en meö þraut-
seigju og bjartsýni sem hefur
raunar einkennt sögu flugsins á
Islandi.
Þegar þetta var haföi Flugleiö-
um ekki borist tilboö um kaup
DCIO þotunnar sem siöan hefur
veriö sagt frá I fréttum. Miöaö viö
venjulegan afgreiöslutima á slik-
um þotum þyrfti aö panta þær
einu og hálfu ári áöur en þær
kæmust i notkun. Aakrann kvaöst
raunar biöa spenntur eftir
ákvaröanatöku uppi á tslandi, en
aö henni hlyti aö vera komiö, þvi
félagiö þyrfti nauösynlega aö fá
slika vél I flotann fyrir 1980. Eftir
siöustu fréttum aö dæma gæti hún
raunar komiö um jólin.
220 þúsun
farþegar
einu ári
— ávöxtur 23 ára
starfsemi í
Luxemborg
A Findelflugvelli. önnur fer til New York, hin til Chicago, báöar um Keflavikurflugvöli.
rabbað við Einar
Aakrann forstöðu-
mann Flugleiða
í Luxemborg
Eina Atlantshafsflugið
Svo aftur sé vikiö aö starfsemi
Flugleiöa I Luxemborg er sjálf-
sagt aö minna á aö frá Luxem-
borg er ekki flogiö Atlantshafs-
flug á vegum annarra en Flug-
leiöa.ilnnlenda flugfélagiö Luxair
flýgur aöeins áætlunarflug innan
Evrópu og um 40% af öllum flug-
farþegum til og frá Luxemborg
eru á vegum Flugleiöa og Air
Bahama, sem Loftleiðir eignuö-
ust 1969, og nú er aö fullu I eigu
Flugleiöa.
Flugleiöir eiga auk þess hiö
vaxandi vöruflutningaflugfélag
Cargolux á móti Luxemborgar-
mönnum og sænsku skipafélagi.
Starfsemin I Luxemborg hefur
þó ekki alltaf veriö dans árósum.
Aakrann tjáöi blaöamanni aö
reksturinn heföi gengiö nokkuö
brösótt allt til ársins 1061, er Loft-
leiöir auglýstu lágu fargjöldin
meö Dc 6 vélunum. Eftir það fór
aö ganga mikiö betur og hefur
haldist I hendur viö bættan flug-
vélakost. A eftir sexunum komu
Rolls Royce skrúfuþoturnár og
loks DC átturnar. Aakrann segir
augljóst aö nú kalli þróunin á
breiöþotur og viö þvi veröi brugö-
ist innan skamms.
220 þús. farþegar
Það er svolitið gaman aö skoöa
farþegaskýrslur I gegnum árin en
af þeim má meöal annars sjá aö á
fyrsta ári Loftleiöaflugsins til og
Einar Aakrann á skrifstofu sinni.
frá Luxemborg fóru 922 farþegar
um Luxemborg á vegum félags-
ins. A siöasta ári hinsvegar fóru á
vegum Flugleiöa um Luxem-
borgarflugvöll hvorki meira né
minna en 220 þúsund farþegar.
I samræmi viö þetta er önnur
starfsemi I Luxemborg. Fyrstu
sex árin hans Aakranns I Luxem-
borg haföi hann tvo til þrjá menn
á skrifstofu hjá sér. Undir hans
stjórn starfa nú 80 manns þar.
Skrifstofa hans nær auk þess til
Hollands, Grikklands, Tyrklands,
Mið-Austurlanda, Arabarikja,
Hong Kong og fjarlægra Austur-
landa. Hann ætti þvi aö hafa I
nógu aö snúast.
Aakrann hefur mikinn hug á aö
■1
--
auka enn farþegastrauminn frá
Evrópurikjum um Luxemborg til
Islands og Bandarikjanna. Lágu
farþegagjöldin hjá Flugleiðum
eru vel kynnt en þau má jafnvel
kynna enn betur. Til marks um
þessi fluggjöld má nefna aö þaö
kostar iviö meira aö fljúga meö
Luxair frá Luxemborg til Rómar
heldur en meö Flugleiöum frá
Luxemborg til New York. Þó er
flugtiminn átta klukkustundir til
New York en aðeins ein og hálf til
Rómar.
Fyrsta ferðin
I dag tekur rétt rúma þrjá tima
aö fljúga meö Flugleiöum frá ts-
landi til Luxemborgar. En þetta
hefur ekki alltaf veriö svo. Viö
skulum aö lokum láta fylgja hér
lýsingu á fyrsta fluginu til
Luxemborgar úr fréttabréfi
Flugleiða:
„Það var laugardagsmorgun-
inn 21. mai 1955 sem Skymastar-
flugvél Loftleiöa, EDDA, lagöi
upp frá Reykjavik. Feröinni var
heitiö til Luxemborgar. Meöal
farþega voru Ingólfur Jónsson
samgönguráöherra, Agnar Ko-
foed-Hansen flugmálastjóri,
Kristján Guðlaugsson stjórnar-
formaöur Loftleiöa, Siguröur
Helgason varaformaöur, Alfreö
Eliasson forstjóri og Siguröur
Magnússon blaöafulltrúi. I för
meö þeim voru fjórir blaðamenn
frá Luxemborg og sex Islenskir
blaöamenn. Flugstjóri I þessari
sögulegu ferö var Kristinn Olsen.
1 fyrsta áfanga var flogiö til
Gautaborgar en siöan áfram til
Hamborgar. A flugvellinum i
Hamborg tók sendiherra tslands,
Vilhjálmur Finsen, á móti flug-
vél, farþegum og áhöfn og í Ham-
borg var gist næstu nótt.
Sunnudaginn 22. mai var flogið
til Luxemborgar. Múgur og
margmenni var á flugvellinum,
þvi fjölmiðlar höföu sagt frá
komu flugvélarinnar og þeim
timamótum, sem þetta fyrsta
áætlunarflug olli: Flugsamband
var komið á milli Lúxemborgar,
tslands og Bandarikjanna. Meöal
þeirra sem tóku á móti Islending-
unum voru Vicyot Bodson flug-
málaráöherra Luxemborgar,
Pétur Benediktsson sendiherra,
Pierre Hamer stjórnarfulltrúi
(flugmálastjóri), Fernand
Loesch forseti Luxair, fulltrúar
blaöa, útvarps o.fl. í aöalsal flug-
hafnarinnar var efnt til móttöku
og þar fluttu ræöur, Victor Bod-
son og Ingólfur Jónsson flug-
málaráöherra Islands.
Victor Bodson sagöi I ræöu sinni
aö þessi dagur væri eftirminni-
legur I sögu sambúðar tveggja
smáþjóöa, þvi á honum heföi
veriö komiö á flugsambandi milli
Reykjavikur og Luxemborgar.
Nú væru aöeins 8 klukkutimar
milli höfuöborganna.
1 ræöu sinni sagöi Victor Bod-
son ennfremur aö i sambandi viö
undirritun loftferöasamnings
i Reykjavik, heföi hann kom-
ið til tslands. Hann dásamaöi
náttúrufegurö landsins,
sem heföi mikla möguleika til
pess aö veröa fjölsótt feröa-
mannaland. Vonandi yröi hin
nýja flugáætlun snar þáttur I
auknum ferðalögum milli landa,
en einmitt þetta skiptir miklu
fyrir þau tvö lönd sem hér eiga
hlut aö máli. Bodson sagöi enn-
fremur aö Luxemborg heföi alltaf
veriö fylgjandi þvi aö flugfélög
heföu sem frjálsastar hendur og
hann lauk ræöu sinni á þessum
oröum: „Ég vil aö lokum óska
þess einlæglega aö flugáætlunin
Reykjavik/Luxemborg gangi
sem allra best. Þaö mun sanna
öllum heiminum aö smáþjóöir
eru fyllilega samkeppnisfærar á
sviöi flugsins”.
tJt úr einangrun
Ingólfur Jónsson flugmálaráö-
herra flutti þvi næst ræöu. Kvaöst
fyrir hönd islensku stjórnarinnar
og tslands i heild lýsa ánægju
sinni yfir þessu nýja áætlunar-
flugi milli tslands og Luxemborg-
ar. Hann ræddi þá einangrun,
sem Islendingar heföu átt viö aö
búa, en sem orðið heföi til þess aö
tunga þjóöarinnar haföi varö-
veitst á sögueyjunni um aldir.
..S.l. lOár hafa tslendingar haldiö
uppi flugferöum til annarra
landa.Segja má aö samgöngur
viö erlend riki seu nú orönar
ágætar. tslensk flugfélög halda
nú uppi reglulegum flugferöum til
Noregs, Sviþjóöar, Danmerkur,
Þýskalands, Skotlands, Eng-
lands, Bandarikjanna og Luxem-
borgar”. Hann kvaö tslendinga
hafa fulla ástæbu til aö fagna
þessu beina sambandi viö
Luxemborg. Þessar tvær þjóöir
eiga margt sameiginlegt. Bábar
eiga aö baki merkilega sögu,
mikinn menningararf frá liönum
öldum og stórstlgar framfarir á
siöustu áratugum. Báöar búa
þjóöirnar viö lýöræöi og eru aöil-
ar aö samtökum frjálsra þjóöa.
Hann sagöi tslendinga og Luxem-
borgarmenn starfa ötullega ab
þvf aö bæta afkomu almennings I
löndum sinum, og þeim heföi tek-
ist þaö. Þaö má segja um Island
eins og Luxemborg, sagöi Ingólf-
ur, þar er fátt rikra manna, en
þar er litið um fátækt og eymd.
Ingólfur Jónsson flugmálaráö-
herra lauk máli sinu meö óskum
um aö flugferöir milli landanna
yröi til þess aö efla vináttu og
gagnkvæman skilning milli
Luxemborgar og Islands.
Eftir nokkurra klukkustunda
viðdvöl i Luxemborg, hélt Sky-
masterflugvélin EDDA af staö
noröur á bógin og flaug til
Reykjavikur meö viökomu i
Hamborg. Fyrsta áætlunarflugi
Loftleiöa til Luxemborgar var
lokiö”.
KEJ
Hótel Aerogolf, aö fjóröa hluta I eign Flugleiða.
Aakrann fyrir framan aöalskrifstofuna I Luxemburg.
Dregið hefur verið í happdrætti
Fulltrúaráðs Framsóknar-
félaganna í Reykjavík
Vinningar hafa verið innsiglaðir.
Vinsamlega gerið skil á heimsendum miðum sem fyrst.
Hringið í happdrættið í síma 24480.