Tíminn - 14.10.1978, Page 6

Tíminn - 14.10.1978, Page 6
6 Laugardagur 14. október 1978 iútgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjór-n og' auglýsingar Síöumúla 15. Slmi 86300. ; ' ^ Kvöldslmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir ki. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 110.00. Askriftargjald kr. 2.200 á' mánuöi. Blaöaprent h.f. V______________________________________________________________J Erlent yfirlit Bömer getur orðið arftaki Schmidts Dregger ekki lengur hættulegur Kohl Sundurlyndið í Sjálf- stæðisflokknum Blöð Sjálfstæðismanna með Mbl. i fararbroddi gera sér tiðrætt um, að stjórnarflokkarnir séu ekki nægilega á einu máli og þvi sé framtið rikis- stjórnarinnar óráðin. Af hálfu stjórnarflokkanna er ekki neitt gert til að leyna þessu. Þetta sama hefur gilt og gildir um allar samsteypustjórnir. Það er ekki hægt með réttu að krefjast þess, að ólikir flokkar verði sammála um alla hluti, þótt nauðsyn krefji að þeir vinni saman um stund, einkum þó þegar vandi þjóðarinnar er slikur, að hún þarf á samstöðu sem flestra flokka að halda, ef ekki á þvi verr að fara. Það er hins vegar venja undir slikum kringum- stæðum, að stjórnarandstaðan sé laus við þann ágreining, sem fylgir stjórnarsamstarfinu. Nú gerist hins vegar það furðulega, að stjórnarand- staðan virðist margklofin enda þótt hún sé öll að nafninu til i einum flokki. Sjálfstæðisflokkurinn er nú margklofinn flokkur og er klofningurinn ekki minnstur innan sjálfs forustuhópsins og mið- stjórnarinnar. Svo mikill er ágreiningurinn, að flokkurinn hefur orðið að biðja um að fresta nefndakosningum á Alþingi sökum ósamkomu- lags. Þingflokkurinn er enn ekki búinn að kjósa sér formann, en venja er að gera sllkt á fyrsta degi þingsins. Gunnar Thoroddsen mun vilja halda for- mennskunni i þingflokknum áfram en getur frekar hugsað til þess, að hann hætti sem varaformaður flokksins. Sterk öfl innan flokksins virðast standa gegn þvi, að hann verði formaður þingflokksins áfram. Til þess að leysa forustuvandamálin i flokknum, virðast nú uppi alls konar hugmyndir og virðist sú helzt eiga fylgi að fagna, að tekið sé upp sama fyrirkomulag og hjá Alþýðubandalaginu, þar sem formannsstöðunni er þrískipt, þ.e. formaður flokksins, formaður þingflokksins og formaður framkvæmdastjórnar. Jafnvel mun rætt um að hafa formennina fleiri. Þetta getur blessazt, þegar sæmilegt andrúmsloft rikir i flokki, en þegar sundurlyndi rikir, eru margir formenn ekki til annars liklegir en að auka það. Sundurlyndi i flokki fylgir venjulega það, að stefnan verður óviss og reikul og einstakir fulltrúar flokksins fara sitt á hvað i afstöðu sinni. Þetta kemur nokkuð ljóst fram hjá Sjálfstæðis- mönnum, sem mynda nú i fyrsta sinn stjórnarand- stöðuna i borgarstjórn Reykjavikur. Meðan þeir réðu þar lögum og lofum máttu þeir ekki heyra það nefnt, að starfsfólk fengi að hafa áheymar- fulltrúa með tillögurétti á stjórnarfundum hjá borgarfyrirtækjum. Þegar hinn nýi borgar- stjórnarmeirihluti hyggst framkvæma þetta, bregzt Sjálfstæðisflokkurinn þannig við, að hann vill láta þessa fulltrúa einnig fá atkvæðisrétt. Ef nokkurt samræmi væri væri i þessari afstöðu, hlýtur Sjálfstæðisflokkurinn að taka upp baráttu fyrir þvi, að starfsfólk fái einnig fulltrúa með atkvæðisrétti i stjórn einkafyrirtækja. Eða þvi skyldu starfsmenn þar vera réttminni en hjá opin- berum fyrirtækjum? Fróðlegt verður að fylgjast með þvi, hvort Sjálfstæðisflokkurinn gerir þetta að almennu baráttumáli. Eða er sundurlyndið I flokknum orðið svo mikið, að hann fylgi éinu hér og öðru þar? Eins og ástandið er nú I flokknum, er næsta erfitt að átta sig á þvi, hver stefna hans er eða verður i framtiðinni. Þ.Þ. ÞAÐ voru ekki aöeins leiötog- ar stjórnarflokkanna I Bonn, sem önduðu léttara eftír aö úr- slit fylkiskosninganna i Hessen voru kunn siöastl. sunnudags- kvöld. Helmut Kohl, leiötogi kristilegra demókrata (CDU), mun einnig hafa andað léttara. Ef flokkur hans heföi unniö i fylkiskosningunum I Hessen, heföi foringi hans þar, Alfred Dregger, getaö orðiö Kohl hættulegur keppinautur sem kanslaraefni flokksins. Því er nú haldiö fram i vaxandi mæli, að Kohl sé ekki nógu litrikur persónuleiki tíl þess að geta orö- iö Helmut Schmidt hættulegur keppinautur i næstu kosningum, en skoöanakannanir benda til, aö Schmidt njóti miklu meira fylgis en flokkur hans. Dregger er ótvirætt miklu meiri per- sónuleiki. Hann er mun mælsk- ari og ákveðnari ræöumaður en Kohl og kemur betur fyrir bæöi á mannamótum og i sjónvarpi. Fyrir 10 árum, þegar Dregger varö forustumaöur kristilegra demókrata i' Hessen, höföu þeir ekki nema 26% atkvæöa aö baki sér (úrslit fylkiskosninganna 1966), en voru komnir upp i 47% undir forustu Dreggers i fylkis- kosningunum 1974. Þá fengu kristilegir demókratar 53 þing- sæti, sósialdemókratar 48 og frjálslyndir demókratar 9. Sósialdemókratar, sem höföu fariö meö stjórnarforustu I Hessen frá striöslokum, héldu henni áfram meö stuöningi frjáislyndra demókrata. Verulegar likur bentu til þess nú, að hin skelegga forusta Dreggers gæti tryggt kristileg- um demókrötum meirihluta á fylkisþinginu, en þaö heföi jafn- framt tryggt þeim stöövunar- vald í efri deild sambandsþings- ins i Bonn. Þaö var þvi mikið i húfi fyrir sósialdemókrata og frjálslynda demókrata aö halda velli. Þaö. styrkti sigurvonir Dreggers, aö hneykslismál höföu oröiö þess valdandi, aö forsætisráöherrann, sem var úr hópi sósialdemókrata, haföi oröiöað láta af störfum, og um- hverfisverndarmenn höföu boö- iö fram sérstaklega, en þeir gátu orðiö frjálslyndum demó- krötum hættulegir. ÚRSLIT kosninganna I Hess- en uröu á þann veg, aö stjórnar- flokkarnir héldu velli. Kristileg- ir demókratar fengu áfram 53 þingsæti, en nokkru lakari at- kvæðatölu (46% 1 staö 47.3%). Sósialdemókratar bættu við sig einu þingsæti, fengu 50, og aö- eins fleiri atkvæöi (44.3% I stað 43.3%). Frjálsir demókratar töpuöu einu þingsæti, fengu 8 og nokkru færri atkvæöi (6.6% i staö 8%). Óbreytt stjórn verður þvi i Hessen. Margar ástæöur eru taldar hafa ráöiö þessum úrslit- um.Stjórnarflokkarnir reyndu ekki aöeins aö láta kosningarn- arsnúast um fylkismálin, held- ur engu aö siöur um landsmálin, sökum þeirra áhrifa, sem úrslit- ingátu haft á skipan efri deildar Bonnþingsins. Þá var lofi þvi, sem kristilegir demókratar heldu uppi um Dregger, mætt með harðri gagnsókn. Dregger hefur skipaö sér langt til hægri hjá kristilegum demókrötum og deilt hart á róttæka vinstri menn. Þá haföi hann varið Fibiger fyrrv. forsætisráöherra i Baden-Wiirttemberg.Andstæð- ingarnir héldu þvl fram, aö Dregger nálgaöist það aö vera nazisti, og dugöu tæpast þær yfirlýsingar hans, aö hann væri jafn haröur gegn nazistum og kommúnistum. Undir lokin var honum orðiö ljóst, aö hann hafði gengiö helzt til langt i hægri- sinnuöum áróöri og reyndi þvi að draga úr honum, en þaö virö- ist ekki hafa borið árangur. Siöast.en ekki sizt, mun þaö svo hafa haft veruleg áhrif á úr- slitin, aö Holger Börner, sem tók viö forsætisráöherraemb- ættinu i Hessen fyrir tveimur árum, hefur getíðsérgott orö og aflað sér hylli með alþýðlegri framkomu sinni. Hann er fyrr- verandi byggingaverkamaöur, 47 ára gamall, og þykir nú sennilegt, aö hann eigi eftir að koma meira við sögu. Sumir fréttaskýrendur eru farnir að ræða um hann sem hugsanlegt kanslaraefni sósialdemókrata, þegar Schmidt dregur sig i hlé. Eins og er, eiga vestur-þýzkir sósialdemókratar nú engan krónprins. A MORGUN munu fara fram fylkiskosningar I Bæjaralandi og beinist athyglin nú mjög að þeim. 1 siðustu fylkiskosningun- um þar fékk flokkur Franz Josef Strauss, CSU, milli 62-63% greiddra atkvæöa. Flokkurinn hefur ákveöiö aö frumkvæöi Strauss, aö hann taki viö for- sætisráðherraembættinu i Bæj- aralandi aö kosningunum lokn- um og hætti þá þingsetu i Bonn. Fyrir Strauss skiptir nú miklu, aö flokkurinn fái nú ekki lakari útkomu en slðast. Þaö yröi tal- inn persónulegur ósigur fyrir hann. CSU hefur nú samvinnu viö flokk kristilegra demókrata á þann veg, aö hann býöur ekki fram I Bæjaralandi, en CSU býöur ekki fram annars staöar. Strauss hefur lengi gengiö meö þær hugmyndir, aö rjúfa þetta samstarf og láta flokk sinn bjóöa fram I öllum fylkjum. Hann hefur nú lýst yfir þvi, að hann muni ekki hreyfa þvi máli fyrr en lokiö er fylkiskosning- um, sem fara fram næsta vor. Kosningarnar til sambands- þingsins I Bonn eiga aö fara fram 1980. Þaö gæti haft ófyrir- sjáanleg áhrif á vestur-þýzk stjórnmál, ef kristilegir demó- kratar skiptust i tvo flokka, sem kepptu hvor við annan. Flestir foringjar kristilegra demókrata munu andvigir þvi. Þ.Þ. Börner átti vlöa fylgismenn

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.