Fréttablaðið - 06.09.2006, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 06.09.2006, Qupperneq 50
Fischer Partners var stofnað árið 1984 í Stokkhólmi og var upphaf- lega ætlað að selja útlendingum sænsk verðbréf. Karl Otto Eidem segir Fischer Partners hafa verið brautryðjanda á þessu sviði. „Á þessum tíma var mjög lítið um erlenda fjárfesta í Svíþjóð og Fischer því nánast einráðir á markaðnum fyrst um sinn. Þetta gekk mjög vel og önnur sænsk verðbréfafyrirtæki fylgdu í kjöl- farið. Í dag er mikið af erlend- um fjárfestum, bæði í Svíþjóð og Noregi.“ Fischer Partners er nú fimmti stærsti hlutabréfa- miðlarinn í norrænu kauphöll- unum með 5,1 prósent af sam- anlagðri veltu og er aðili að kauphöllunum í Stokkhólmi, Helsinki, Ósló, Kaupmannahöfn og Eystrasaltslöndunum, auk afleiðumarkaðarins Eurex í Þýskalandi. Fyrirtækið er með skrifstofur í Stokkhólmi og Ósló. Eidem segir sænskan verð- bréfamarkað mjög skiptan og að sérhæfing sé mikil; sum fyrir- tæki einblíni á innlenda fjárfesta meðan önnur þjónusti útlendinga. Þannig komi áttatíu til níutíu prósent allra viðskipta Fischer Partners í Svíþjóð að utan. Fischer er í dag með tæplega 5,5 prósenta markaðshlutdeild í Svíþjóð, þá fjórðu mestu. „Svíþjóð er okkar stærsti markaður. Hraðasti vöxt- urinn hefur hins vegar verið í Noregi.“ Eidem vill þó ekki meina að með kaupum Glitnis á Fischer hafi fylgt meiri áhersla á norsk- an markað, þar sem stór hluti af starfsemi Glitnis fer fram. Hann segir hátt olíuverð og mikla veltu á norska markaðnum leiða kúnn- ana þangað. „Norski markaðurinn hefur gefið góða ávöxtun á undan- förnum misserum. Við fylgjum í rauninni bara kúnnanum, ef hann vill til Noregs förum við þangað.“ Eidem segir þess gæta í vax- andi mæli að talað sé um sam- norrænan markað. Fjárfestar skilgreini markaði nú frekar eftir svæðum en einstökum lönd- um. Þannig sé gjarnan vísað til Norðurlandanna sem eins mark- aðssvæðis og Eystrasaltsríkjanna sem annars. „Með kaupunum á Fischer Partners varð Glitnir alvöru þátttakandi á þessum sam- norræna verðbréfamarkaði. Ég held að Glitnir hafi verið í þrí- tugasta sæti á Norðurlöndunum hvað varðar markaðshlutdeild fyrir kaupin á Fischer, en er í dag númer fimm.“ ÞJÓNUSTA EKKI ÞJÓÐERNI Nafnbreyting Glitnis fyrr á árinu vakti talsverða athygli, enda Íslandsbankanafnið rótgróið í vitund Íslendinga. Eidem telur þó ekki að nafnið og tengslin við Ísland hafi verið bankanum fjöt- ur um fót erlendis. Hann telur þó hafa sýnt sig að betra sé að hafa nafn sem ekki er beintengt við land eða þjóð og bendir á að Glitnir hafi breytt nafni Norse Securities í Glitnir Securities eftir kaup á fyrirtækinu. Glitnir sé þannig alls ekki að slíta öll tengsl við heimalandið og upprunann. „Viðskiptavinirnir horfa fyrst og fremst á þjónust- una sem við veitum. Glitnisnafnið gefur okkur þó einstakt tæki- færi á að byggja upp nýtt og spennandi vörumerki.“ Í kjölfarið berst talið að Óslóarmaraþoninu sem Glitnir styrkir næstu árin. Eidem segir það einmitt lið í því að festa vörumerki Glitnis í vit- und Norðmanna. „Glitnismerkið er vissulega þekkt á ákveðnum sviðum í Noregi en er ekki enn í almannavitund, ef svo má að orði komast. Ég held að með því að styrkja Óslóarmaraþonið fáum við jákvæða umfjöllun og þar með auglýsingu. Síðan virð- ast Norðmenn vera að fá áhuga á víðavangshlaupum á ný.“ Eidem segist heldur ekki telja að neikvæð umræða um íslenskt viðskiptalíf hafi haft teljan- leg áhrif á starfsemi Fischer Partners. „Viðskiptavinir okkar sáu strax að um traustan kaup- anda var að ræða með gott láns- hæfismat. Svo lengi sem kúnnar okkar fá þá þjónustu sem þeir eru vanir spyrja þeir einskis. Þetta eru fagmenn sem stjórnast af beinhörðum staðreyndum.“ Karl Otto Eidem er þaulvan- ur að vinna með Íslendingum og segir reynslu sína mjög jákvæða. Íslendingarnir séu gjarnan ungir, jákvæðir, opnir fyrir hugmyndum og fljótir að vinna. Hann segir fjármálaum- hverfið í Svíþjóð fremur íhalds- samt. „Menn kynnu kannski að búast við einhverju menning- arsjokki þegar Íslendingarnir mæta til Svíþjóðar. Ég hef ekki orðið var við það en það kann að vera vegna þess að Fischer hefur alltaf verið talið mjög framsækið fyrirtæki á sænskan mælikvarða.“ Eidem segir heldur ekkert sem bendir til þess að Glitnismenn falli undir þá mynd sem erlendir fjölmiðlar, þá sérstaklega dansk- ir, hafa dregið upp af hinum dæmigerða íslenska fjárfesti. „Ég hef ekki orðið var við að menn fari of geyst. Norski bank- inn BN Bank sem Glitnir keypti í fyrra hefur raunar ávallt verið álitinn fremur íhaldssamur banki með rótgróinn viðskiptagrunn. Glitnir hefur vaxið jafnt og þétt og gerir það vonandi áfram.“ 6. SEPTEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR16 MARKAÐURINN F Y R I R T Æ K I Stórir á samnorrænum verðbréfamarkaði Glitnir keypti á vordögum sænska verðbréfafyrirtækið Fischer Partners. Fyrirtækið er nú fimmti stærsti hlutabréfamiðlari á Norðurlöndum. Karl Otto Eidem, starfandi framkvæmdastjóri Fischer, var staddur hér á landi á dögunum og spjallaði við Jón Skaftason. Karl Otto telur neikvæða umfjöllun um íslenskt efnahagslíf ekki hafa haft áhrif á starfsemi Fischer og segir Glitni hafa einstakt tækifæri á að byggja upp nýtt og spennandi vörumerki á Norðurlöndum. KARL OTTO EIDEM, FRAMKVÆMDASTJÓRI FISCHER PARTNERS Eidem segir nú tíðkast í auknum mæli að tala um markaðssvæði fremur en einstök lönd. Með kaupunum á Fischer hafi Glitnir þannig orðið alvöru þátttakandi á samnorrænum verðbréfamarkaði. „Ég held að Glitnir hafi verið í þrítugasta sæti á Norðurlöndunum hvað varðar markaðshlutdeild fyrir kaupin á Fischer, en er í dag númer fimm.” FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR „Viðskiptavinir okkar sáu strax að um traustan kaupanda var að ræða með gott lánshæfismat. Svo lengi sem kúnnar okkar fá þá þjónustu sem þeir eru vanir spyrja þeir einskis. Þetta eru fagmenn sem stjórnast af beinhörðum staðreyndum.“ Vantar diskapláss? Þessi er 2 Terabyte og stækkanleg í 42 ! Tölvuþjónustan SecurStore - 575 9200 Hitachi Tagmastore WMS100 iSCSI - Single Controller - 2 x 2 ISCSI interfaces með 2 GigE ports. - 2 TB SATA diskar (4 x 500 GB) stækkanleg í 42 Tb - 512 MB Cache - 12 mánaða viðhaldssamningur iSCSI sameinar tvo samkiptastaðla (SCSI og TCP/IP) sem gerir þér kleift að tengja diskastæður við netkerfi þitt á einfaldan og hagkvæman hátt og nýta þar með núverandi fjáfestingu í netkerfi fyrirtækisins betur. Hitachi Data Systems hafa undanfarin ár verið leiðandi framleiðandi á diska- stæðum fyrir stórfyrirtæki. Nú hefur fyrirtækið einbeitt sér að lausnum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem sameina háþróaða tækni, stækkanleika, hátt þjónustustig og gott verð. Afhendingartími á lausnum frá Hitachi er mjög skammur (oftast innan við vika) og 12 mánaða viðhaldssamningur er alltaf innifalinn. HDS framleiðir diskastæður sem henta öllum stærðum fyrirtækja. Nánari upplýsingar eru á: www.hds.com eða í síma 575 9200. Verð 833.222* m.vsk * Verð sem m iðast við gengi D KK þann 24.08.06. Athugið að 19" skápur sem sýndur er á m ynd er ekki innifalinn í verði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.