Fréttablaðið - 06.09.2006, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 06.09.2006, Blaðsíða 82
38 6. september 2006 MIÐVIKUDAGUR FÓTBOLTI Í gær voru veittar viður- kenningar fyrir umferðir 8-14 í Landsbankadeild kvenna; síðari hluta Íslandsmótsins. Lið umferð- anna var valið og einnig voru veitt- ar viðurkenningar fyrir leikmann umferða 8-14, þjálfara umferða 8- 14 og stuðningsmannaverðlaun umferða 8-14. Lið umferða 8-14 er þannig skipað: Í markinu er Guðbjörg Gunnarsdóttir (Val). Varnarmenn eru Ásta Árnadóttir (Val), Guð- laug Jónsdóttir (Breiðabliki), Guðný B. Óðinsdóttir (Val) og Ólína G. Viðarsdóttir (Breiða- bliki). Miðjumenn eru Erna B. Sig- urðardóttir (Breiðabliki), Fjóla Dröfn Friðriksdóttir (KR), Hólm- fríður Magnúsdóttir (KR) og Katr- ín Ómarsdóttir (KR). Framherjar eru Margrét Lára Viðarsdóttir (Val) og Nína Ósk Kristinsdóttir (Keflavík). Margrét Lára Viðarsdóttir var valin leikmaður umferðanna og er vel að þeirri viðurkenningu komin. „Þetta er alveg frábært. Ég hef aldrei fengið þessa viðurkenn- ingu,“ sagði Margrét Lára. Mar- grét Lára setti markamet í sumar en hún skoraði 35 mörk í deildinni og hefur átt frábært sumar með Val. En er Margrét á leið út í atvinnumennsku? „Já, ég ætla að reyna að fara út í haust. Ég held að það sé bara nauðsynlegt fyrir mig sjálfa að komast út og spila í sterkari deild þar sem maður fær kannski að finna meira fyrir því. Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir mig og líka íslenska landsliðið. Ég er rosa- lega spennt að geta farið að skoða mín mál,“ sagði Margrét Lára. Bikarúrslitaleikurinn er um næstu helgi þegar Valur mætir Breiða- bliki og menn eru greinilega með hugann við það. „Við þurfum bara að fara að koma okkur niður á jörðina. Það eru allir leikmenn klárir á því að við ætlum að vinna leikinn á laugardaginn og það tekst ekki með einhverri 90 pró- senta getu, við þurfum að vera 100 prósent klárar í verkefnið,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir. Elísabet Gunnarsdóttir, þjálf- ari Vals, var valin þjálfari síðari hluta Íslandsmótsins. „Það er allt- af gaman að fá viðurkenningu. Árangurinn hefur verið mjög góður hjá liðinu og það að einhver úr liðinu fái viðurkenningu er bara gott fyrir alla,“ sagði Elísabet. Hún sagði að undirbúningur fyrir bikarleikinn væri nokkuð hefð- bundinn. „Við ætlum að vera eitthvað saman á föstudaginn og laugar- dagsmorguninn en fólk sefur bara heima hjá sér,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir. Ólína G. Viðarsdóttir var ánægð með viðurkenninguna. „Það er alltaf gaman að fá viðurkenningu fyrir það sem maður er að gera ef maður er að leggja sig fram,“ sagði Ólína. Hún bætti því líka við Breiðablik stefndi á að ná fram hefndum gegn Val í bikarúrslitun- um um næstu helgi. „Það er ekk- ert annað en sigur sem kemur til greina í úrslitaleiknum. Báðir leik- ir liðanna í sumar hafa verið hörkuleikir, Valur unnið einn og Breiðablik einn. Þetta verður mjög spennandi leikur,“ sagði Ólína G. Viðardóttir, fyrirliði Breiðabliks. dagur@frettabladid.is Það er nauðsynlegt að komast út Margrét Lára Viðarsdóttir var valin besti leikmaður umferða 8-14 í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Elísabet Gunnarsdóttir var valin þjálfari umferðanna og stuðningsmenn Vals fengu einnig verðlaun. LIÐ UMFERÐA 8-14 Efri röð frá vinstri: Katrín Ómarsdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Nína Ósk Kristinsdóttir, Ólína Guðrún Viðarsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Guðný Björk Óðinsdóttir, Fjóla Dröfn Friðriksdótt- ir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Ásta Árnadóttir, Erna Björk Sigurðardóttir. Á myndina vantar Hólmfríði Magnúsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON DROTTNINGIN Margrét Lára Viðarsdóttir er drottningin í íslenskri kvennaknattspyrnu í dag og hefur verið best allra leikmanna í deildinni í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÖRFUBOLTI Ísland mætir í dag Finnum í fyrsta leik liðsins í B- deild Evrópukeppninnar í körfu- bolta. Finnar hafa á að skipa sterku liði og sigruðu t.d. Austur- ríkismenn með 27 stiga mun á heimavelli um síðustu helgi. Það er því ljóst að íslenska liðið þarf að taka á honum stóra sínum í kvöld og þar kemur stuðningur áhorfenda inn í. Jón Arnór Stefánsson býst við mjög erfiðum leik. „Það er mjög góð stemning í hópnum og vonandi fáum við góðan stuðning, það skapar meiri stemningu hjá okkur. Ég held að það sé okkar möguleiki á að vinna leikinn. Það er rosalega mikilvægt fyrir íslenskt landslið, svona litla þjóð, að skapa mikla stemningu, hafa gaman af þessu og berjast alveg eins og ljón. Þá getur allt gerst. Þeir eru kannski með meiri hæfileika en við og meiri hæð þannig að þessi barátta skiptir öllu máli fyrir okkur,“ sagði Jón Arnór. Jón Arnór sagði að ástandið á hópnum væri gott og engin alvar- leg meiðsli. „Það eru kannski ein- hver lítil hnémeiðsli hér og þar en við erum bara vel stemmdir og hópurinn er heill. Við erum bara mjög spenntir og getum ekki beðið eftir því að byrja að spila,“ sagði Jón Arnór Stefánsson en það er vonandi að fólk fjölmenni af Laugardalsvellinum og upp í Laugardalshöll í kvöld. Ísland er eitt af fjórtán liðum í B-deild Evrópukeppninnar sem berjast um tvö laus sæti í A-deild- inni. Ísland er í riðli með Finnlandi, Georgíu, Austurríki og Lúxem- borg en hvert lið leikur fjóra leiki nú í september og fjóra leiki í september á næsta ári. Leikurinn í kvöld er í Laugardalshöllinni og hefst kl. 20.30. Næsti leikur liðsins er síðan gegn Georgíu ytra. - dsd Ísland mætir í dag Finnum í Evrópukeppni karla í körfubolta, B-deild: Við verðum að berjast eins og ljón gegn Finnum JÓN ARNÓR STEFÁNSSON Íslenska liðið þarf á miklum stuðningi að halda í kvöld þegar Finnar koma í heimsókn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Ítalski varnarmaðurinn Marco Materazzi hefur loksins rofið þögnina um viðskipti sín við Zinedine Zidane í úrslitaleik HM. Þá skallaði Zidane Materazzi í bringuna eftir að Ítalinn hafði sagt eitthvað við hann sem ekki hefur enn verið greint frá en Materazzi sagði sína sögu í ítölskum fjölmiðlum um helgina. „Ég var að toga í skyrtuna hans og þá sagði hann við mig að ef mig langaði svona í skyrtuna hans þá myndi hann gefa mér hana eftir leikinn. Ég sagðist þá frekar vilja fá systur hans,“ sagði Materazzi. „Þetta er kannski ekki fallega sagt, ég geri mér grein fyrir því. En það eru samt sagðir miklu verri hlutir á vellinum en þetta. Það má reyndar geta þess að ég vissi ekki einu sinni hvort hann ætti systur þegar ég sagði þetta.“ - hbg Marco Materazzi: Rýfur þögnina SKALLINN FRÆGI Materazzi fellur hér með tilþrifum eftir skallann í Berlín. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Það varð allt vitlaust á Englandi á mánudag þegar Chelsea gaf út yfirlýsingu um William Gallas en í yfirlýsing- unni kom meðal annars fram að Gallas hefði hótað að skora sjálfsmark ef Chelsea hefði neytt hann til að spila með liðinu í upphafi leiktíðar. Eins og búast mátti við vísaði Gallas ásökun- unum á bug í gær. „Ég er hissa og hreinlega í áfalli yfir þessum ásökunum. Ég sagðist aldrei ætla að skora sjálfsmark ef ég þyrfti að spila aftur fyrir Chelsea. Ég var ákveðinn í því að komast frá félaginu, það er satt, og ég mun greina frá því síðar af hverju, en ég gekk aldrei svona langt. Ef fólk vill fela sig bak við falskar ásakanir til að róa stuðningsmenn sína þá verður að hafa það,“ sagði Gallas og hélt áfram: „Þetta er allt frekar lélegt hjá Chelsea. Engu að síður koma viðbrögð stjórnar félagsins mér ekki á óvart því þótt félagið eigi nóg af peningum vantar stjórn- armenn félagsins alla reisn.“ - hbg William Gallas: Hafnar ásökun- um Chelsea WILLIAM GALLAS Er í stríði við Chelsea. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Bandaríski milljarða- mæringurinn Randy Lerner mun líklega ganga frá kaupum á öllum hlutabréfum í Aston Villa síðar í þessum mánuði en hann á nú 85,5 prósenta hlut í félaginu. Lerner þarf að eignast 90 prósenta hlut í félaginu fyrir 18. september til að yfirtakan geti átt sér stað en fram að því situr núverandi stjórn áfram í brúnni. - dsd Aston Villa: Lerner kaupir allt félagið GOLF Lengi getur gott batnað stendur einhvers staðar og það á svo sannarlega við í tilviki kylf- ingsins Tigers Woods sem er enn að bæta sig þótt hann hafi fyrir verið miklu betri en allir keppi- nautar hans. Á mánudag gerði hann sér lítið fyrir og vann sitt fimmta mót í röð en það hefur Tiger aldrei tekist áður á sama tímabili. Slíkur stöðugleiki þekk- ist heldur ekki í golfsögunni. Hann var nokkrum höggum á eftir efsta manni, Vijay Singh, fyrir lokadaginn en tveir ernir á fyrstu sjö holunum gerðu það að verkum að lokadagurinn var ekki einu sinni spennandi. Fimmti sigurinn í röð staðreynd og hans sjöundi í fjórtán mótum á þessu ári. „Það var ótrúlegt að fylgjast með Tiger spila,“ sagði Singh, sem átti sér ekki viðreisnar von en sjálfstraust hans hrundi þegar hann fylgdist með Tiger. „Það er mjög gaman þegar maður kemst á slíkt skrið,“ sagði Tiger brosandi eftir mótið en hann hefur mest unnið sex mót í röð. Sá sem hefur unnið flest mót í röð er Byron Nelson með 11 sigra í röð árið 1945. Næstir á eftir koma Tiger og Ben Hogan með sex sigra. „Í dag, miðað við hve sterk mótaröðin er, er nán- ast ekki hægt að vinna ellefu mót í röð. Það yrði kannski hægt ef margir kylfingar hættu við að spila,“ sagði Tiger og hló. Sigurganga Tigers hófst á Opna breska í júlí, sem var fyrsta mótið sem Tiger vann eftir að faðir hans lést. Hann hefur ekki horft um öxl síðan. Hann hefur nú unnið 53 mót á ferlinum, sem er fimmti besti árangur sögunnar. Sam Snead situr þar á toppnum með 82 sigra en Jack Nicklaus er annar með 73. - hbg Tiger Woods heldur áfram að heilla golfunnendur: Ekkert fær stöðvað Tiger ÓSTÖÐVANDI Tiger Woods er búinn að vinna fimm golfmót í röð og þar af eru tvö stórmót. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.