Fréttablaðið - 29.09.2006, Side 34
2 29.09.06 FÖSTUDAGUR [14°] LAUGARDAGUR [10°] SUNNUDAGUR [7°]
3
��������������������������������������������������������������
������������������
� ����
���������������
�����������������
���� ������������ ���
�����������������
���������������������
���������������
��������������
�������������������
�������������� ���
�
����������������
�����������������
�����������������
Hinn 31 árs gamli Michael
Baumgartner braust inn í
verslunarmiðstöð á dögunum
en lögreglan kom að
honum við verknað-
inn. Náði Michael að
stinga lögregluna af
en festi giftingarhring-
inn í járngirðingu sem hann
stökk yfir á flóttanum. Var
hann á svo mikilli hraðferð
að baugfingur varð eftir á girð-
ingunni.
Lögreglan var því ekki í nein-
um vandræðum með að ná í
fingrafar og fletti stráknum
einfaldlega upp í gagnasafni
sínu.
Þegar hann fékk svo fingurinn
aftur var of langur tími liðinn til
þess að hægt væri að græða
puttann aftur á. Það er því
nokkuð ljóst að Michael verð-
ur að finna nýjan stað fyrir
hringinn, svo frú Baumgartner
verði ekki trítilóð.
Síða 8 - Ívar Örn
Kolbeinsson úr
hljómsveitinni Dr.
Mister og Mr.
Handsome flutti til
New York 17 ára
gamall. Þar seldi
hann lög í auglýsing-
ar og fékk þrjár
milljónir fyrir. Fyrir
peningana keypti hann sér meðal annars
græjur til að búa til meiri músík.
Síða 12 - Tom Cruise
hefur bannað fólki að
kalla unnustu sína Katie
Holmes sínu rétta nafni.
Stúlkan er nú ekki
kölluð neitt annað en
Kate Holmes að beiðni
unnustans. Svona er þetta
Hollywood-lið klikkað.
Síða 14 - Hún Dilana ætlar að spila á
fernum tónleikum með Á móti sól um
helgina. Mikil vinátta
myndaðist á milli
hennar og Magna í
þáttunum Rockstar
Supernova og
hjálpaði Magni henni
oftar en ekki að glíma
við álagið sem fylgir
því að vera stjarna.
HLUTIR SEM SIRKUS
VISSI EKKI FYRR EN NÚ
SIRKUS
Útgáfufélag: 365 prentmiðlar
Útgefandi: Helgi Hermannsson
Ritstjórn: Andri Ólafsson, Breki
Logason, Dröfn Ösp
Snorradóttir, Helga
Ólafsdóttir, Símon Örn
Birgisson,
Auglýsingar: Gréta Karen Grétars-
dóttir, 5505865
gretakaren@frett.is,
Sirkusblaðið
Skaftahlíð 24
105 Rvk,
Sími 550 5000
Forsíðumyndina tók Heiða Helgadóttir
af Ívari Erni Kolbeinssyni
ÞETTA HEYRIRÐU EKKI Á HVERJUM DEGI ...
Fingralangur innbrotsþjófur
Flott par. Jón Felix Sigurðsson var í sigurliði Heimdalls í
síðustu viku. Fylkingin sem hann var í, blátt.is, sigraði
glæsilega í ungliðakosningum Sjálfstæðisflokksins.
Segja kunnugir að sá listi hafi verið skipaður betra fólki
og er það ekki síst hinum hæfileikaríka Jóni Felix að
þakka. Hann er Hagkaupserfingi enda sonur Sigurð-
ar Gísla Pálmasonar og þykir efnilegur pólitíkus sem
talar um fátt annað en stjórnmál og pólitík. Einnig er
hann nemi í verkfræði við Háskóla Íslands.
Kærasta Jóns Felix er enginn önnur en Stuðmanna-
barnið Bryndís Jakobsdóttir. Foreldrar hennar eru
Ragnhildur Gísladóttir og Jakob Frímann Magn-
ússon. Hafa þau verið saman í nokkurn tíma og
búa meira að segja saman. Eins og flestir vita er
hún efnilegur tónlistarmaður sem syngur og
semur sína eigin tónlist. Jón Felix deilir hins
vegar ekki pólitískum skoðunum með tengda-
föður sínum, enda Jakob Frímann annálaður
Samfylkingarmaður.
Sirkusinn kynntist
heitasta gæjanum á
Íslandi í dag í vikunni.
Ívar Örn Kolbeinsson,
betur þekktur sem Dr.
Mister spjallaði við mig.
Tónlistin sem þeir
strákar búa til hefur
heldur betur slegið í
gegn og stemningin á
tónleikum minnir á
Bítlaæðið á sínum tíma.
Sirkusinn er hins vegar
ekki hrifinn af þeim
lífsstíl sem Ívar fylgir. Ég vil að
það sé á hreinu að Sirkus mælir á engan hátt
með því að fólk noti fíkniefni. Ég held að Ívar
gæti gert enn betri hluti ef hann tekur sig saman
í andlitinu og hættir þessu sukki. Enda drekkur
Sirkusinn bara diet kók.
Bara diet kók
Það besta við að vera nemi í Listaháskóla
Íslands er að enginn hefur rétt fyrir sér. Síð-
ustu helgi fór ég og sá sýningu nemendaleik-
hússins Hvíta kanínu. Varð ekkert sérstak-
lega hissa, miðað við allt og allt, þegar kom í
ljós að það er ekkert leikið í sýningunni -
nema leikararnir séu að leika sig sjálfa.
Eiginlega eru áhorfendur í aðalhlutverki í sýn-
ingunni. Maður fær kandý floss í boði hússins
og spjallar meira að segja við leikarana í upp-
hafi sýningar.
Gagnrýnendur hafa auðvitað hakkað sýning-
una í sig. Einn sagði það ömurlegt að þurfa
að standa heila leiksýningu, annar sagði
engan tilgang með leikhúsi ef leikararnir eru
ekki að leika.
Það besta við gagnrýnendur er að þeir hafa
alltaf rangt fyrir sér. Ég hef til dæmis gagn-
rýnt fólkið sem vill bjarga Kárahnjúkum og
sagt að það ætti að finna sér vinnu og ég hef
gagnrýnt fólkið sem sofnar ekki öðruvísi en
með Draumaland Andra Snæs á náttborðinu.
Á þriðjudaginn tók ég svo þátt í magnaðri
leiksýningu þegar þúsundir manna gengu
niður Laugaveginn með Ómari Ragnarssyni.
Söng Ísland ögrum skorið og táraðist yfir
myndum af Jöklu sem er nú horfin.
Og í kvöld ætla ég að kaupa mér Drauma-
landið og rölta upp á Esjuna og horfa á
Reykjavík myrkvast. Gjörningur ársins í boði
alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar og hugsandi
fólks.
Ég mun svo bíða spenntur eftir því hvort
gagnrýnendur hakki ekki í sig stjörnubjartan
himininn, óríon og öll hin stjörnumerkin sem
eru þau sjálf og ekkert annað. Sjálfur sætti
ég mig við skort á hægindastólum á toppi
Esjunnar, enda listnemi og geri ekki
miklar kröfur.
Símon segir: Við erum öll hvítar kanínur!
Símon Birgisson Gerðist umhverfis-
verndunarsinni og ætlar að ganga á Esjuna.
STUÐMANNABARNIÐ BRYNDÍS JAKOBSDÓTTIR
Á föstu með Hagkaupserfingja
úr Heimdalli
Hagkaupserfinginn og
Stuðmannabarnið
Jón Felix Sigurðsson er sonur
Sigurðar Gísla Pálmasonar og
þykir efnilegur í pólitíkinni.
Bryndís Jakobsdóttir er dóttir
Röggu Gísla og Jakobs Frímanns.
Hún þykir efnileg í músíkinni.