Fréttablaðið - 29.09.2006, Side 20
29. september 2006 FÖSTUDAGUR20
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.336 +0,33% Fjöldi viðskipta: 654
Velta: 20.067 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 67,40 +0,60% ... Alfesca
5,12 +0,00% ... Atlantic Petroleum 582,00 +0,17% ... Atorka
6,44 +0,31% ... Avion 29,60 +1,72% ... Bakkavör 58,10 -1,02%
... Dagsbrún 5,07 +0,80% ... FL Group 23,20 -2,11% ... Glitnir
20,40 +0,49% ... KB banki 849,00 -0,12% ... Landsbankinn 27,00
+0,75% ... Marel 77,50 -0,64% ... Mosaic Fashions 17,80 -0,56% ...
Straumur-Burðarás 17,80 +0,00% ... Össur 127,00 -0,39%
MESTA HÆKKUN
Avion +1,72%
Dagsbrún +0,80%
Landsbankinn +0,75%
MESTA LÆKKUN
FL Group -2,11%
Bakkavör -1,02%
Marel -0,64%
Útreikningar vegna lóns
Í gær var tekið að hleypa vatni á Hálslón við
Kárahnjúka og bein útsending í fréttum Stöðvar
tvö af því tilefni. Þar var rætt við Sigurð Arnalds,
upplýsingafulltrúa hjá Landsvirkjun og eins Ómar
Ragnarsson sem vill að hætt verði við að fylla lónið.
Ómar var að vonum sorgmæddur og taldi kostnað
við að hætta við verkið ekki óyfirstígan-
legan. „Þetta er einn sígarettupakki á
dag fyrir meðalfjölskyldu í fimm ár.
Það er nú allt og sumt,“ sagði hann.
Kosti sígarettupakki 600 krónur á dag
kostar dagneysla í fimm ár 1.095.000
krónur. Ef svo er slegið á að í fjölskyldu
séu að jafnaði fjórir og fjölskyldur
landsins 75.000 er heildarkostnað-
urinn því rúmir 82 milljarðar
króna. Hvort allir eru sammála
þeim útreikningi er svo annað
mál.
Vangaveltur um DB
Dagsbrún, sem á Fréttablaðið, hefur verið að rétta
hlut sinn eftir að markaðurinn refsaði henni hark-
alega fyrir „óvænt og ömurlegt“ uppgjör eins og
blaðamaður einn orðaði það af sinn alkunnu hóg-
værð. Gengi hlutabréfa DB er nú komið yfir fimm
og hefur hækkað um tæpan fimmtung á einni
viku. Þetta gerist án þess að nokkrar fréttir
hafi borist til Kauphallar þannig að einungis
tómar getgátur geta skýrt þennan viðsnúning.
Sumir telja að fjárfestar hafi séð tækifæri í
bréfunum eftir mikla lækkun að undanförnu.
Aðrir segja að fjárfestar horfi til uppskiptingar
félagsins í tvö félög og renni þar hýru auga til
fjarskiptahlutans í Teymi. Þá kann að skýra
þessa hækkun að stutt er eftir af þriðja árs-
hluta en það kemur stundum fyrir á
íslenska markaðnum að gengi
félaga fer upp á við fyrir lok
uppgjörstímabils.
Peningaskápurinn ...
Promens hf. hefur ákveðið að
reisa nýja hverfisteypuverk-
smiðju í Póllandi til framleiðslu á
vörum úr plasti. Bygging verk-
smiðjunnar hefst innan fárra
vikna og tekur hún til starfa um
mitt næsta ár.
„Verksmiðjan verður byggð á
5,6 hektara lóð á nýju iðnaðar-
svæði í Miedzyrzecz þar sem
Bonar Polska Sp. Z oo, dótturfyrir-
tæki Promens, hefur starfrækt
verksmiðju frá árinu 2001. Upp-
hafleg stærð verksmiðjunnar
verður um 9.000 fermetrar en
mögulegt er að rúmlega tvöfalda
stærð hennar,“ segir í tilkynningu
Atorku Group sem á Promens og
tekið er fram að framleiðslugeta
fyrirtækisins í Póllandi aukist við
þetta umtalsvert. „Verksmiðjan er
byggð til þess að mæta vaxandi
markaði fyrir hverfisteyptar
vörur bæði í Austur- og Vestur-
Evrópu, markaði sem Promens
hefur sterka stöðu á og sér mikil
tækifæri til frekari vaxtar,“ segir
þar einnig. Núna eru starfsmenn
Bonar Plastics Polska 90 talsins og
framleiðir fyrirtækið vörur fyrir
viðskiptavini í bæði Austur- og
Vestur-Evrópu.
Promens er stærsta fyrirtæki
heims á sviði hverfisteyptra
plastvara og rekur 21 verksmiðju
í tíu löndum, með um 1.600 starfs-
menn. -óká
HORNSTEINN LAGÐUR Tomasz Dyszkant,
framkvæmdastjóri í Póllandi og Geir A.
Gunnlaugsson, stjórnarformaður Promens.
Promens reisir nýja
verksmiðju í Póllandi
TEIKNING AF NÝRRI VERKSMIÐJU Svona mun nýja verksmiðjan sem Promens er að
reisa í Póllandi koma til með að líta út. Í fyrstu verður hún 9.000 fermetrar, en hægt
að stækka hana um helming. MYND/ATORKA
Jafet S. Ólafsson, stofnandi og
framkvæmdastjóri VBS fjárfest-
ingarbanka, hefur selt 24 prósent
hlutafjár í VBS til Fjárfestingar-
félags sparisjóðanna (FSP) sem er
í eigu tuttugu sparisjóða.
Jafet, sem heldur eftir smáhlut,
ætlar að halda utan um stjórnar-
taumana fram til fyrsta nóvember
en sest þá í stjórn fyrirtækisins.
„Maður er að fara á hliðarlínuna
eins og það kallast í boltanum. Ég
verð ekki lengur í sókninni.“ Ekki
hefur verið gengið frá ráðningu
eftirmanns hans en stefnt er að
því að ráða Jón Þórisson, sem fer
fyrir fyrirtækjasviði VBS, til
starfa.
Jafet segir að VBS hafi vaxið
um fimmtíu prósent árlega frá því
að Verðbréfastofan var stofnuð
fyrir áratug. „Við byrjuðum með
þrjá starfsmenn og erum 24 í dag.“
Fyrirtækið hagnaðist um fjögur
hundruð milljónir króna í fyrra.
Hann býst ekki við stórvægilegum
breytingum en telur að FSP, með
sína sterku bakhjarla, gefi VBS
færi á frekari landvinningum.
Eftir kaupin verður FSP leið-
andi hluthafi í VBS með 37 pró-
senta hlut en samanlagt eiga spari-
sjóðir tæpan helmingshlut í
bankanum þar sem SPM og Spari-
sjóðurinn í Vestmannaeyjum eiga
beinan eignarhlut. Jafet telur ekki
ólíklegt eftir eigendaskiptin að
horft verði á samþættingu milli
reksturs VBS og Verðbréfaþjón-
ustu sparisjóðanna. - eþa
JAFET ÓLAFSSON Tekur sæti í stjórn VBS
þegar hann lýkur störfum þann 1. nóvem-
ber næst komandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tekur sér stöðu á
hliðarlínunni
Jafet Ólafsson selur 24 prósent í VBS til Fjárfestingarfé-
lags sparisjóðanna. Jón Þórisson líklegur arftaki Jafets.
MARKAÐSPUNKTAR
Bandaríska Dow Jones hlutabréfavísi-
talan fór í 11.724,86 stig í gærmorgun
og sló þar með sögulegt met. Vísitalan
hefur ekki náð viðlíka hæðum síðan
í janúar árið 2000. Metið stóð ekki
lengi því gengið dalaði lítillega eftir
því sem leið á daginn.
Hagvöxtur jókst um 2,6 prósent í
Bandaríkjunum á öðrum ársfjórðungi.
Þetta er nokkuð undir væntingum en
spáð var 2,9 prósenta hagvexti.
Greiningardeild Glitnis segir útlit fyrir
0,4 prósenta hækkun vísitölu neyslu-
verðs á milli september og október.
Muni verðbólgan lækka vegna þessa
úr 7,6 prósentum í 7,4 prósent í
september.
Eimskip hefur gengið frá
kaupum á meirihluta í
finnska skipafélaginu
Containerships. Félögin
taka höndum saman um
að mynda eitt stærsta
flutningabandalag Evr-
ópu í styttri siglingum.
Eimskip, dótturfélag Avion Group,
hefur gengið frá kaupum á 65 pró-
senta hlut í finnska skipafélaginu
Containerships. Stofnað hefur
verið til nýs félags, Container-
ships Group, þar sem einnig er
innanborðs litháenska skipafélag-
ið Kursiu Linija sem Eimskip
keypti fyrr á árinu. Með samstarf-
inu mynda fyrirtækin eitt stærsta
flutningabandalag Evrópu í styttri
siglingum, með 41 skip og hafa
yfir þrjátíu þúsund gámaeining-
um að ráða.
Að ósk seljenda finnska félags-
ins er kaupverðið ekki gefið upp,
en kaupin eru fjármögnuð með
eigin fé og lánsfé. Þau 35 prósent
sem eftir eru í Containerships
Group verða í eigu Container Fin-
ance Ltd. Oy og hefur Eimskip
kauprétt að hlutnum innan tveggja
til þriggja ára. „Það sem í raun
gerist er að við kaupum þennan 65
prósenta hlut í Containerships,
sem á móti kaupir af okkur Kursiu
Linija og það verður dótturfélag.
Þannig samþættum við starfsemi
þessara tveggja félaga sem bæði
hafa mjög sterka stöðu á Eystra-
saltssvæðinu, annað mjög sterkt í
Finnlandi og í Sankti Pétursborg
og hitt sunnan megin,“ segir Bald-
ur Guðnason, forstjóri Eimskips.
Hann segir kaupin styrkja stöðu
félagsins á ört vaxandi markaði
þar sem spáð sé fimmtán til tut-
tugu prósenta vexti næstu árin.
Baldur segir verða að koma í
ljós hvort félagið nýti sér kauprétt-
inn á því sem eftir standi í Contain-
erships. „Ljóst er að mikil verð-
mæti eru í þessum partnerum
okkar. Sama fjölskyldan hefur
rekið þetta frá upphafi og fyrir-
tækið fagnar fjörutíu ára afmæli í
desember. Síðan er þetta aðalgáma-
skipafélagið í Finnlandi, svona
hálfgert Eimskip þeirra þar.“
Tveir lykilstarfsmenn Eim-
skipa hverfa til starfa hjá Contain-
erships Group, Sigurjón Markús-
son sem um áramót tekur við
starfi forstjóra félagsins og Hilm-
ar Pétur Valgarðsson sem stýrt
hefur bókhaldi og hagdeild Eim-
skipa. „Við leggjum áherslu á að
setja þarna inn öfluga menn til
liðs við það góða fólk sem þar er
fyrir,“ segir Baldur.
Ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um hvort til greina komi að
sameina starfsemi skipafélaganna
undir einu merki þegar fram líða
stundir. „En auðvitað kemur allt
til greina í því,“ segir Baldur.
Kimmo Nordström, forstjóri
Containerships sem verður stjórn-
arformaður nýja félagsins um ára-
mót, segir ákvörðunina um þátt-
töku í samstarfinu ekki hafa verið
léttvæga. „En Eimskip hefur hins
vegar sannfært okkur um virðis-
aukann sem af því hlýst.“ Hann
bendir á að reksturinn gangi betur
en nokkru sinni. „Áherslur á heild-
arlausnir fyrir viðskiptavini
okkar, ásamt miklum fjárfesting-
um í Rússlandi, hafa reynst réttar.
Fjölskyldurekið fyrirtæki hefur
hins vegar takmarkaðar auðlindir
fjárhagslega. Með Eimskipum
verður Containerships betur í
stakk búið til að fjárfesta í vexti
og viðhalda útrás okkar.“
Containerships Group koma til
með að reka ellefu skip á Eystra-
saltssvæðinu, með 200 milljón
evra veltu, sex prósent í EBITDA
og rúmlega 500 starfsmenn. Höf-
uðstöðvarnar verða í Helsinki í
Finnlandi. olikr@frettabladid.is
BALDUR GUÐNASON FORSTJÓRI EIMSKIPA Baldur segir ekkert hafa verið ákveðið
um hvort starfsemi skipafélaganna muni síðar meir verða sameinuð undir einu
vörumerki, það verði tíminn að leiða í ljós. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Eimskip kaupir finnska
félagið Containerships
Vöruskiptahallinn í ágúst var 3,2
milljörðum króna lægri en í ágúst
árið 2005. Fluttar voru út vörur
fyrir 16,6 milljarða og inn fyrir
28,2 milljarða króna samkvæmt
tölum sem Hagstofa Íslands birti í
gær. Vöruskiptin voru því óhag-
stæð um 11,6 milljarða króna sam-
anborið við 14,8 milljarða króna á
föstu gengi í fyrra.
Hallinn er þó 31,2 milljörðum
króna lakari nú í ár en í fyrra
þegar litið er á fyrstu átta mánuði
ársins. Nemur hann nú 94,6 millj-
örðum en á sama tíma árið áður
voru vöruskipti óhagstæð um 63,4
milljarða. Verðmæti vöruútflutn-
ings fyrstu átta mánuði ársins var
8,3 milljörðum, eða 5,9 prósentum,
meira en árið áður. Mesta breyt-
ingin liggur í útflutningi á iðnað-
arvörum. Eru þær nú 38 prósent
alls útflutnings og var verðmæti
þeirra 19,4 prósentum meira en á
sama tíma árið áður, aðallega
vegna hækkandi álverðs. Sjávar-
afurðir voru 55,1 prósent alls
útflutnings. Verðmæti vöruinn-
flutnings fyrstu átta mánuðina var
39,5 milljörðum, eða 19,2 prósent-
um, meira en árið áður. Rúman
helming má rekja til aukins inn-
flutnings á fjárfestingarvöru sem
jókst um 45,8 prósent. - hhs
VERKAMENN HJÁ NORÐURÁLI Verðmæti
iðnaðarvara í útflutningi er nú 19,4 pró-
sentum meira en á sama tíma árið áður,
aðallega vegna hækkandi álverðs.
Halli í ágústmánuði
minnkar milli ára Tískuverslunarkeðjan Mosaic
Fashions hagnaðist um 630 millj-
ónir króna á öðrum ársfjórðungi
og alls um 740 milljónir á fyrri
hluta rekstrarársins. Afkoma á
öðrum ársfjórðungi hækkaði um
107 prósent á milli ára.
Uppgjörið er undir vænting-
um markaðsaðila sem höfðu spáð
um 890 milljóna króna hagnaði.
Stjórnendur Mosaic benda á að
aðstæður á breskum smásölu-
markaði hafi verið erfiðar en eru
þokkalegir sáttir.
Af einstökum tískumerkjum
jókst velta innan Coast mest eða
um 25 prósent á milli ára, um 16
prósent hjá Karen Millen en sala
hjá Oasis dróst saman um fjögur
prósent.
Á fyrri hluta ársins voru 52
nýjar verslanir opnaðar innan
samstæðunnar, ýmist í eigu Mos-
aic eða sérleyfishafa.
- eþa
Mosaic undir
væntingum