Fréttablaðið - 29.09.2006, Síða 12
12 29. september 2006 FÖSTUDAGUR
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingarinn-
ar, segir það ekki sinn stíl að
kvarta undan körlum.
Tilefnið eru orð Haraldar Bene-
diktssonar, formanns Bændasam-
takanna, í Fréttablaðinu í gær en
hann sagði Ingibjörgu hafa kvartað
svolítið undan talsmönnum Bænda-
samtakanna vegna viðbragða
þeirra við tillögum Samfylkingar-
innar um lækkun matvælaverðs.
„Mér finnast þetta furðuleg
ummæli hjá Haraldi og held að
þau séu sakir æsku og reynslu-
leysis. Það er ekki minn stíll að
kvarta undan körlum,“ segir Ingi-
björg Sólrún.
Bændaforystan fundaði með
þingmönnum Samfylkingarinnar
á miðvikudag. Ingibjörg segir
fundinn hafa verið hluta af því
samráðsferli sem haft verði við
bændur um útfærslu tillagna
flokksins. „Það er fjölmargt sem
hægt er að skoða sem orðið getur
til að bæta kjör og aðstöðu bænda
þrátt fyrir að farið sé í að skapa
atvinnufrelsi í landbúnaði eins
og í öðrum greinum. En við
stöndum fast við þær þrjár meg-
inleiðir að fella niður vörugjald,
lækka virðisaukaskatt og fella
niður tolla í áföngum,“ segir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
- bþs
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar:
Kvartar ekki undan körlum
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR For-
maður Samfylkingarinnar.
FANGELSISMÁL Ný meðferðar- og
vistunaráætlun Fangelsismála-
stofnunar var kynnt fjölmiðlum
í fyrradag. Í máli Snjólaugar
Birgisdóttur félagsráðgjafa
sem kynnti áætlunina, kom
fram að eitt af helstu markmið-
um hennar sé að draga úr þeirri
óvissu sem oft skapast á meðan
fólk situr í fangelsi. Þá verður
aukin áhersla lögð á að afplánun
og reynslulausn verði eitt og
sama ferlið.
„Í þessari áætlun er meðal ann-
ars að finna mat á stöðu fanga
við komuna í fangelsið og áætl-
un um að nýta þau úrræði sem
þeim standa til boða þegar þang-
að er komið. Markmiðið með
þessu er að gefa fanganum tæki-
færi til að aðlagast samfélaginu
betur þegar afplánun lýkur.“
Áætlunin á að vera greining-
artæki sem ætlað er að bera
kennsl á þau vandamál sem við-
komandi fangi á við að glíma og
koma með tillögur að hugsan-
legum úrbótum. Að sögn Snjó-
laugar eru fangaverðir lykilað-
ilar í því að þessar umbætur
skili árangri. „Þeir munu vera
stuðningsaðilar fyrir fangana
og leiðbeina þeim sem þurfa. Án
þátttöku fangavarða yrði verk-
efnið til lítils. Við sjáum fyrir
okkur ákveðnar áherslubreyt-
ingar og að hlutverk fangavarða
skerpist frá því sem verið
hefur.“ - þsj
Ný meðferðar- og vistunaráætlun Fangelsismálastofnunar kynnt:
Föngum hjálpað að aðlagast samfélaginu
FANGAKLEFI Áætlun fangelsis-
málastofnunar er ætlað að hjálpa
föngum að fóta sig á ný í lífinu.
í Vetrargarðinum í Smáralind
laugardaginn 30. september kl. 11–18
sunnudaginn 1. október kl. 13–18
Kíktu á Ostadaga 2006 og kynntu þér
íslenska ostaframleiðslu. Nýjungarnar
í ár eru svo sannarlega spennandi!
Nýr ostavefur opnaður. Happdrætti með
ferðavinningi fyrir tvo frá Iceland Express.
Kokkalandsliðið sýnir listir sínar og veitir
ráðgjöf. Verðlaunaostar, Skólahreysti,
uppskriftir og margt, margt fleira.
Hver er besti osturinn 2006? Hver verður
ostameistari Íslands 2006? Svalaðu for-
vitninni og kitlaðu bragðlaukana um helgina.
Það kostar ekkert!
Allir velkomnir
Komdu,
smakkaðu og
upplifðu!
DYFLINNI, AP Bertie Ahern,
forsætisráðherra Írlands, liggur nú
undir ámæli vegna enn eins
hneykslisins. Ráðherrann hefur
játað að hafa þegið leynilegan
fjárstyrk frá nokkrum þekktum
kaupsýslumönnum fyrir þrettán
árum. Styrkurinn hljóðaði upp á
næstum fjórar og hálfa milljón
króna og heldur forsætisráðherr-
ann því fram að þetta hafi verið lán
með vöxtum. Hann hafi hins vegar
ekki fengið að greiða lánið til baka.
Ahern kallar lánardrottnana
„nána vini“, sem hafi hjálpað sér í
gegnum „myrka tíma“, þegar hann
mátti greiða upp skuldir eftir
skilnað sinn. - kóþ
Forsætisráðherra Írlands:
Viðurkennir að
hafa þegið fé
ATVINNUMÁL Um 42 prósent stjórn-
enda vilja meira frí en aðeins
færri, eða um 40 prósent, vilja
hærri laun. Þetta kom fram í
könnun sem VR gerði meðal um
þrettán hundruð stjórnenda á
íslenskum vinnumarkaði.
Aldur hefur einnig áhrif á
hvort svarendur kjósi launa-
hækkun eða meira frí. Þannig
vilja fleiri í yngri hópnum
launahækkun en þegar aldurinn
færist yfir verður frí eftirsóknar-
verðara. - hs
Könnun VR meðal stjórnenda:
Frí frekar en
launahækkun
255 á biðlista
Enn bíða 255 börn þess að komast
að á frístundaheimilum í Reykjavík
en 2.170 eru komin inn. Enn vantar
36 starfsmenn til starfa á frístunda-
heimilin.
FRÍSTUNDAHEIMILI
HAUSTLITIR Regnbogi fegraði haustlit-
ina í Wisconsin í Bandaríkjunum fyrr í
vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP