Fréttablaðið - 29.10.2006, Side 11
SUNNUDAGUR 29. október 2006 11
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda
okkur línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar
og bréf skulu vera stutt og gagn-
orð. Eingöngu er tekið á móti efni
sem sent er frá Skoðanasíðunni
á visir.is. Þar eru nánari leiðbein-
ingar. Ritstjórn ákveður hvort efni
birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða
í báðum miðlunum að hluta eða
í heild. Áskilinn er réttur til leiðrétt-
inga og til að stytta efni.
UMRÆÐAN
Menntamál
Það eru merkileg tíðindi að á örfáum árum skuli Íslendingar
hafa farið fram úr Norðmönnum
og Dönum og náð Svíum þegar
kemur að fjölda ungmenna sem
stunda háskólanám. Í nýjasta hefti
Norrænna hagtalna kemur fram
að árið 2000 hafi 10,5% Íslendinga
á aldrinum 20-40 ára stundað
háskólanám. Árið 2004, einungis
fjórum árum síðar, var þetta hlut-
fall komið upp í 15%. Háskóla-
nemum hefur enn haldið áfram að
fjölga frá árinu 2004 en við eigum
þó nokkuð í land með að ná Finn-
um þar sem hlutfallið er tæp 20%.
Þegar norrænu hagtölurnar eru
skoðaðar sést einnig að hlutfalls-
lega margir Íslendingar stunda
nám utan heimalandsins og
íslensku námslánin eru hærri en
gengur og gerist annars staðar á
Norðurlöndunum.
Ef við skoðum aldurshópinn 15-
74 ára sést að hvergi eru hlutfalls-
lega fleiri skráðir í einhvers konar
nám en á Íslandi. Hér er hlutfallið
19,9% en næstir koma Finnar með
18,5%. Lægst er hlutfallið í Dan-
mörku eða 13,2%.
Við sjáum þessa miklu mennta-
sókn einnig endurspeglast í
íslenskum hagtölum um útgjöld til
menntamála. Á dögunum kynnti
Hagstofa Íslands uppfærðar tölur
fyrir síðustu ár þar sem í fyrsta
skipti er tekið mið af samevrópsk-
um staðli við framsetningu slíkra
talna.
Í þessum tölum
kemur fram að árið
1998 voru útgjöld til
fræðslumála 6,56% af
vergri landsframleiðslu
en þetta hlutfall er
komið upp í 7,56% árið
2005 þrátt fyrir mikla
aukningu á landsfram-
leiðslu á sama tímabili.
Það má því segja að á
sama tíma og þjóðarka-
kan stækkar hratt sker-
um við einnig hlutfalls-
lega sífellt stærri sneið
af henni til menntamála.
Þá kemur einnig fram að
útgjöld til háskólamála voru
1,59% af vlf. á síðasta ári. Hafa
þau verið að vaxa jafnt og þétt
hlutfallslega þrátt fyrir mikinn
hagvöxt. Má nefna
sem dæmi að hag-
vöxtur nam 7,7% árið
2004 og 7,5% árið
2005.
Aðrir útreikningar
sýna aukninguna
betur. Hagstofan
reiknar líka þróun
útgjalda til háskóla-
stigsins á mann á
verðlagi ársins 2005.
Sá samanburður er
gagnlegur því að
mannfjöldaþróun er
ekki eins miklum sveiflum háð
og landsframleiðsla. Í ljós kemur
að útgjöld á mann til háskóla árið
2003 námu 50.700 kr. en voru
komin upp í 54.300 kr. árið 2005.
Þessar tölur sýna svo ekki
verður um villst þá miklu áherslu
sem lögð hefur verið á menntun
undanfarin ár. Menntun sem mun
skila þjóðinni ómældum ávinn-
ingi á næstu áratugum.
Því má þó ekki gleyma að
aukin fjárframlög ein og sér
tryggja ekki árangur. Samhliða
því sem við aukum fjármagn til
menntamála verður að efla
áherslu á gæði og eftirlit með
kennslu og rannsóknum í skóla-
kerfinu. Á næstu árum er mikil-
vægt að áfram verði haldið á
þessari braut, til að festa árang-
urinn í sessi og tryggja að Ísland
verði eitt helsta þekkingarþjóð-
félag veraldar.
Höfundur er
menntamálaráðherra.
Einstök menntasókn
ÞORGERÐUR KATRÍN
GUNNARSDÓTTIR
Þessar tölur sýna svo ekki verð-
ur um villst þá miklu áherslu
sem lögð hefur verið á mennt-
un undanfarin ár.
UMRÆÐAN
Meintar hleranir
Umræður um hleranir hafa yfirskyggt pólitíska umræðu
að undanförnu. Sagnfræðingar
hafa komist í skjöl um hleranir
fyrr á árum og hafa þær upplýs-
ingar vakið mikla athygli. Er hér
einkum um að ræða hleranir á
símum forustumanna Sósialista-
flokksins og
Alþýðubanda-
lagsins. En einn-
ig hefur komið
fram, að sími
Jóns Baldvins
Hannibalssson-
ar fyrrum utan-
ríkisráðhera,
hafi verið hler-
aður á meðan
hann var utan-
ríkisráðherra.
Það þykir ekki miklum tíðindum
sæta, að símar forustumanna Sós-
ialistaflokksins hafi verið hleraðir
en hitt eru miklar fréttir, að sími
Jóns Baldvins hafi verið hleraður
á meðan hann var utanríkisráð-
herra. Þessi mál þarf að rannsaka
öll ofan í kjölinn og er eðlilegast,
að þingnefnd á vegum Alþingis
rannsaki málið. Á meðan mál þessi
eru ekki fullrannsökuð þýðir ekk-
ert að ræða um að stofna íslenska
leyniþjónustu eða eftirlitsstofnun.
Umræðan um hleranir hefur vald-
ið miklum taugatitringi í Sjálf-
stæðisflokknum. Böndin hafa bor-
ist að Sjálfstæðisflokknum í þessu
máli. Upplýst hefur verið, að tveir
dómsmálaráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins létu hlera síma þing-
manns Alþýðubandalagsins. En
ekki er vitað enn hver lét hlera
síma Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar. Fróðlegt verður að frétta hver
þar var að verki.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Hleranir
afhjúpaðar
BJÖRGVIN
GUÐMUNDSSON
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI