Fréttablaðið - 30.10.2006, Page 6
6 30. október 2006 MÁNUDAGUR
PRÓFKJÖR 10.846 manns kusu í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík um helgina, en 21.317
voru á kjörskrá þegar kosningu
lauk. Prófkjörsreglur Sjálfstæðis-
flokksins mæla svo fyrir að hafi
kjörsókn verið yfir 50 prósent sé
kjörnefnd skylt að leggja það fram
við fulltrúaráðsfund sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík að niður-
staða prófkjörsins verði bindandi.
Samkvæmt því mun Geir H.
Haarde, formaður flokksins, taka
1. sæti á lista í öðru hvoru Reykja-
víkurkjördæmanna, en Guðlaugur
Þór Þórðarsson alþingismaður,
sem lenti í 2. sæti í prófkjörinu,
mun leiða listann í hinu kjördæm-
inu. Geir fékk 9.126 atkvæði í 1.
sætið, en 1.655 kjósendur vildu
ekki að hann mundi leiða annan
hvorn listann.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra lenti í þriðja sæti í prófkjör-
inu, sem þýðir að hann mun, að
öllu óbreyttu, taka 2. sæti á fram-
boðslista í öðru hvoru kjördæm-
inu. 3.257, eða um þriðjungur kjós-
enda, vildi ekki að Björn sæti á
framboðslista flokksins í komandi
þingkosningum. Hann fékk hins
vegar 360 atkvæði, næstflest á
eftir Geir Haarde, í 1. sæti.
Guðfinna S. Bjarnadóttir, rekt-
or Háskólans í Reykjavík, lenti í 4.
sæti í prófkjörinu og mun því
skipa 2. sætið á öðrum hvorum
listanum. Ásta Möller, eina konan
sem nú er í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins, lenti í 7. sæti í prófkjör-
inu og mun því skipa 4. sætið í
öðru hvoru kjördæminu. Konur
lentu í 10., 11. og 12. sæti í próf-
kjörinu. Fái Sjálfstæðisflokkurinn
jafn marga þingmenn í alþingis-
kosningunum í vor og hann fékk
árið 2003, mun þingflokkur hans
verða skipaður sjö karlmönnum
og tveimur konum.
Pétur Blöndal alþingismaður,
sem sóttist eftir 2.-3. sæti í próf-
kjörinu, lenti í 6. sæti. 2.599 kjós-
endur vildu ekki að hann tæki sæti
á lista fyrir þingkosningarnar.
Dögg Pálsdóttir lögmaður lenti
í 1l. sæti, eða 7 sætum neðar en
hún hafði óskað. Birgir Ármanns-
son þingmaður lenti fjórum sætum
neðar en hann hafði sóst eftir. Sig-
ríður Á. Andersen hlaut 10. sætið
en hafði óskað eftir 5.-7. sæti. Sig-
urður Kári Kristjánsson var tvö-
falt neðar en hann hafði sóst eftir,
eða í 8. sæti.
steindor@frettabladid.is
KJÖRKASSINN
Guðlaugur Þór Þórðarsson hlaut rúmlega 1.400 fleiri atkvæði en Björn Bjarnason:
Yfir 3.000 kjósendur vildu Björn burt
RÖÐ FRAMBJÓÐENDA
EFTIR ATKVÆÐAFJÖLDA
1. Geir H. Haarde 9.825
2. Guðlaugur Þór Þórðarson 8.428
3. Guðfinna S. Bjarnadóttir 8.297
4. Illugi Gunnarsson 8.187
5. Ásta Möller 8.153
6. Sigurður Kári Kristjánsson 7.888
7. Birgir Ármannsson 7.746
8. Pétur Blöndal 7.683
9. Björn Bjarnason 7.025
10. Sigríður Á. Andersen 6.328
11. Dögg Pálsdóttir 5.991
12. Grazyna M. Okuniewska 3.514
„Ég get ekki sagt neitt um
prófkjörið í sjálfu sér, það er ekki
mitt verkefni að ráða því hvernig
sjálfstæðis-
menn haga
sínum málum,“
segir Jón
Sigurðsson,
formaður
Framsóknar-
flokksins.
„Ég hef fyrst
og fremst
áhuga á því að
framsóknarmenn hafi sterkan
lista. Ég óska bara sjálfstæðis-
mönnum til hamingju með listann
og vona að þeir séu ánægðir með
hann. Þetta eru ágætis samstarfs-
menn mínir í ríkisstjórninni sem
ég ber virðingu fyrir. Ég hef
unnið mörg ár með Guðfinnu
Bjarnadóttur og Illugi er ágætis
maður sem ég hef þekkt um
skeið,“ segir Jón. ■
Jón Sigurðsson:
Ber virðingu
fyrir þessu fólki
„Það eru að sjálfsögðu nokkur
tíðindi að Björn þurfi að láta í
minni pokann fyrir yngri manni,
maður sem er
ráðherra og í
forystusveit
flokksins,“
segir Stein-
grímur J.
Sigfússon,
formaður
Vinstri grænna.
„Það má líka
segja að
núverandi þingflokkur Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík fái ekki
sérstaklega góða útkomu þarna.
Það er að koma frambærilegt nýtt
fólk inn, en sumir þingmannanna,
jafnvel þeir reyndari, fá slæma
kosningu,“ segir Steingrímur.
„Hlutur kvenna er ívið skárri en
var slakur síðast. En þrír efstu
menn eru karlar, svo það er varla
hægt að tala um breytingar.“
„En auðvitað skilja svona átök
alltaf eftir sig sár og menn eyddu
óhugnanlegum fjármunum í slag
við félaga sína um sæti. ■
Steingrímur J. Sigfússon:
Prófkjörsslagur
skilur eftir sár
Guðjón Arnar Kristjánsson,
þingflokksformaður Frjálslynda
flokksins, vildi lítið tjá sig um
úrslit prófkjörs
sjálfstæðis-
manna, annað
en að greinilegt
væri að
sjálfstæðisfólk
væri að velja
nýtt fólk í
fremstu
víglínu. „Ég
óska bara sigur-
vegurunum í þessu prófkjöri til
hamingju og vona að þeir reynist
þjóðinni vel.“
Aðspurður um útkomu Björns
Bjarnasonar sagði Guðjón að
flokksmenn hefðu líklega verið að
senda ákveðin skilaboð um að
endurnýjunar hafi verið þörf í
forystusveitinni, með því að kjósa
hann í þriðja sætið. ■
Guðjón A. Kristjánsson:
Skilaboð um
endurnýjun
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
telur hlut kvenna í prófkjöri
sjálfstæðis-
manna ansi
rýran. „Þetta er
gömul saga og
ný í Sjálfstæð-
isflokknum hér
í Reykjavík að
konur bera þar
jafnan skarðan
hlut frá borði.“
Ingibjörg
telur skýringuna hljóta að liggja í
hugmyndum flokksmanna um
jafnréttismál. „Þegar þetta gerist
æ ofan í æ er ekki hægt að sjá
það öðruvísi en að flokksmenn
leggi litla áherslu á jafnréttismál.
Það er ekki hægt að segja að ekki
hafi verið góðra kvenna völ,“
segir Ingibjörg en óskar þó
sjálfstæðismönnum til hamingju
með að hafa fengið Guðfinnu S.
Bjarnadóttur í raðir sínar. ■
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Rýr hlutur sjálf-
stæðiskvenna
PRÓFKJÖR Björn Bjarnason telur
sig hafa unnið góðan varnarsigur í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík um helgina. Á heima-
síðu sinni, bjorn.is, skrifar hann
pistil um
prófkjörið, þar
sem kemur
fram að hann
hafi fundað með
Guðlaugi Þór
Þórðarsyni, sem
hlaut 2. sætið í
prófkjörinu,
áður en
Guðlaugur hafði
skilað inn framboði.
Björn sagði Guðlaugi að átök
„gætu orðið flokknum hættuleg“
og að „andstæðingar flokksins
myndu leitast við að færa sér þau
í nyt til að ýta undir flokkadrætti“.
Björn segir að atlaga andstæð-
inga flokksins hafi orðið til þess að
hann og Geir H. Haarde, formaður
flokksins, hafi haldið sameiginleg-
an fund um öryggismál.
Björn segir að á kjörtímabilinu
hafi hann velt fyrir sér að hætta
beinum stjórnmálaafskiptum og
snúa sér að öðru. Helsta ástæðan
hafi verið brottför varnarliðsins.
Hann hafi þó verið sáttur við
þriðja sætið, það sæti sem hann
hafi fengið í öllum prófkjörum
síðan hann hafi fyrst gefið kost á
sér árið 1990, og sérstaklega hafi
stuðningur lögreglumanna glatt
hann. - sgj
Björn Bjarnason:
Bað Guðlaug
um að bakka
BJÖRN BJARNASON
STJÓRNMÁL Hlutur kvenna að loknu prófkjöri
sjálfstæðismanna í Reykjavík er ekki góður
að mati Gunnars Helga Kristinssonar,
prófessors í stjórnmálafræði, sem telur
niðurstöðurnar að einhverju leyti skýrast
af því að konur styðja Sjálfstæðisflokkinn í
minna mæli heldur en karlar og eru færri
meðal kjósenda flokksins.
„Og það má kannski gera ráð fyrir að
það séu fleiri karlar en konur í flokknum
sem taka þátt í prófkjörum. Ég myndi telja
líklegra að konur kjósi kynsystur sínar í
meira mæli.“
Af þeim sjö konum sem buðu sig fram í
prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavíkur-
kjördæmunum sitja þrjár í tíu efstu
sætunum. Alls buðu 19 manns sig fram. Á
Alþingi sitja nú níu þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins úr Reykjavíkurkjördæmunum.
Í aðdraganda þingkosninganna árið 2003
buðu 126 frambjóðendur sig fram hjá
Sjálfstæðisflokknum og voru konur þar af
tæplega helmingur eða 47 prósent. Af þeim
23 þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sem
sitja nú á Alþingi eru sjö konur eða um 30
prósent þingflokksins.
Gunnar Helgi segir úrslitin í seinustu
kosningum hafa verið reiðarslag fyrir konur
í Sjálfstæðisflokknum. „Og þó ég myndi
ekki segja að þetta hafi verið stórkostleg
framför hjá konum í þessu prófkjöri þá eru
þessi úrslit heldur betri.“ - sdg
GUNNAR HELGI KRISTINSSON PRÓFESSOR Í
STJÓRNMÁLAFRÆÐI Segir ákveðna slagsíðu í
kynjahlutföllum einkenna Sjálfstæðisflokkinn.
Þrjár konur í tíu efstu sætum að loknu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:
Hlutur kvenna er ekki góður
Úrslitin í prófkjöri sjálfstæðismanna hafa vakið mikla athygli. Fréttablaðið leitaði eftir áliti formanna
stjórnmálaflokkanna um úrslitin í prófkjörinu.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
Tókst þú þátt í prófkjöri sjálf-
stæðismanna í Reykjavík?
Já 18,6%
Nei 81,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú lent í árekstri?
Segðu skoðun þína á visir.is
FORSÆTISRÁÐHERRA OG DÓMSMÁLARÁÐHERRA Björn Bjarnason mun ekki leiða
lista í Reykjavíkurkjördæmi eins og hann hafði vonast til.