Fréttablaðið - 30.10.2006, Qupperneq 8
8 30. október 2006 MÁNUDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
Dögg Pálsdóttir
www.dogg.is
Kæru sjálfstæðismenn
í Reykjavík.
Ég þakka kærlega
fyrir frábæran
stuðning í prófkjöri
okkar um helgina.
Með kærum kveðjum,
1 Hvaðan er stjórnmálakonan
sem hlaut tólfta sætið í próf-
kjöri sjálfstæðismanna?
2 Hvaða rómaði karlakór fagn-
aði 90 ára afmæli um helgina?
3 Hversu gömul er Dómkirkjan
í Reykjavík?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
FJÁRLÖG Fjárframlög til Útlend-
ingastofnunar miðast við aðstæð-
ur sem hér ríktu árið 1999. Þá
veitti Útlendingastofnun um 4.576
dvalarleyfi til útlendinga. Það sem
liðið er af þessu ári hafa verið
útgefin tæplega 10.500 leyfi. Að
auki hefur stofnunin þurft að veita
fé til umönnunar hælisleitenda
sem hingað koma og borið nokk-
urn kostnað af erlendum refsi-
föngum.
Hildur Dungal, forstjóri
Útlendingastofnunar, neitar því
ekki að stofnunin sé í mikilli fjár-
þörf. „Árið 1999 voru verkefni
vegna útlendinga tiltölulega lítil
en síðan hefur þessi málaflokkur
stækkað gífurlega. Lítið samræmi
hefur verið á milli fjárframlaga
og gífurlegrar fjölgunar umsókna
og annarra verkefna sem tengjast
stækkandi innflytjendasamfé-
lagi.“
Samkvæmt fjárlögum 2007 eru
165,8 milljónir ætlaðar í Útlend-
ingastofnun. Hildur telur að stofn-
unin þurfi minnst fimmtíu millj-
ónir til viðbótar til að halda höfði
og undirstrikar að stofnunin leit-
ist ekki við að endurnýja tækni-
búnað eða slíkt, heldur einfaldlega
að hafa mannskap til að sinna hlut-
verki sínu. „Þetta er stofnun sem
þarf 30 starfsmenn, en þeir verða
23 í lok þessa árs.“
Mikilvægustu málin sitja á hak-
anum vegna þessa, segir Hildur.
„Við berum allan kostnað af umönn-
un þeirra sem leita hælis á landinu,
hvort sem þau mál eru hjá okkur
eða ekki og í fyrra þurftum við til
dæmis að taka um 30 milljónir úr
okkar rekstri í þau. Okkur skortir
því svigrúm til að leggja áherslu á
þau atriði sem skipta mestu máli,
það er sjálfa ákvarðanatökuna við
leyfisveitingar og að kanna gildi
þeirra gagna sem eru lögð fram í
umsóknum. Einnig fjölgar ýmsum
afleiddum verkefnum við það að
útlendingasamfélagið stækkar, til
dæmis vegna erlendra refsifanga.
Það var ekki hugsað út í þessi mál
við fjárlagagerð. Það þarf því í
raun að endurskoða þann grunn
sem fjárframlögin byggja á,“ segir
Hildur.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra staðfesti í gær að málefni
Útlendingastofnunar væru í skoð-
un hjá dómsmálaráðuneytinu, en
vildi lítið tjá sig að öðru leyti.
klemens@frettabladid.is
Mikilvæg mál-
efni út undan
Fjárframlög til Útlendingastofnunar eru ekki í sam-
ræmi við gjörbreyttan veruleika innflytjendamála.
Stofnunina skortir minnst fimmtíu milljónir.
BIÐRÖÐ Í ÚTLENDINGASTOFNUN Verkefni stofnunarinnar eru mun viðameiri en
fjárlög gera ráð fyrir og vantar um sjö starfsmenn til að hún geti sinnt þeim öllum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DANMÖRK Um þúsund leigubíl-
stjórar í Kaupmannahöfn ætla að
loka öllum leiðum að Ráðhústorg-
inu og Bella Center ráðstefnu-
höllinni þegar tónlistarhátíð
MTV-sjónvarpsstöðvarinnar fer
þar fram á fimmtudag. Eru
bílstjórarnir ósáttir við að fá
engin verkefni í tengslum við
hátíðina þar sem allur akstur
verður í höndum bílstjóra sem
ekki hafa leyfi til að starfa sem
slíkir.
Samkvæmt frétt á vefsíðu Pol-
itiken í gær hefur stéttarfélag
leigubílstjóranna einnig uppi
áform um samskonar aðgerðir
við Kastrup-flugvöll. - ks
Danskir leigubílstjórar:
Setja MTV-há-
tíðina í herkví
ÍSRAEL, AP Forseti Ísraels, Moshe
Katsav, ætti að segja af sér tíma-
bundið meðan á meðferð saka-
mála hans stendur, en hann hefur
verið sakaður um nauðganir og
fleiri glæpi. Þetta kom fram í
máli ríkissaksóknara Ísraels í
gær.
Saksóknarinn lét orð sín falla
fyrir hæstarétti Ísraels, en hann
hafði verið beðinn um að segja
álit sitt á málinu. „Það er rangt og
óviðeigandi“ að Katsav haldi
áfram að starfa sem forseti undir
þessum kringumstæðum, að sögn
Meni Mazuz, ríkissaksóknara.
Katsav, sem er sextugur, hefur
verið sakaður um að hafa nauðg-
að konum sem unnu fyrir hann og
hefur rannsóknarlögreglan lagt
til að hann verði ákærður fyrir
þessa meintu glæpi. Eins hefur
lögreglan sagt að Katsav skyldi
ákærður fyrir fjársvik, embætt-
isafglöp og ólöglegar hleranir.
Sjálfur hefur forsetinn neitað
allri sök og sagt samsæri vera í
gangi gegn sér.
Lítið vald fylgir forsetaemb-
ættinu í Ísrael en ríkisstjórnin
getur skipað honum að segja af
sér sé talin þörf á. Mælti Mazuz
með því að hún gerði það, sjái
Katsav ekki að sér og láti tíma-
bundið af störfum vegna þessa
máls. - smk
Forseti Ísraels sætir hörðum ásökunum vegna meintra nauðgana:
Kasav ætti að segja af sér
MOSHE KATSAV Forseti Ísraels hefur
verið sakaður um alvarlega glæpi, meðal
annars nauðganir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
RÚSSLAND, AP Samstarfsmenn rúss-
neska rannsóknarblaðamannsins
Önnu Politkovskaju, sem myrt
var við heimili sitt í Moskvu fyrr í
mánuðinum, birtu á
fimmtudag sextán síðna
aukablað tileinkað minn-
ingu hennar. Nutu þeir
stuðnings rússneska blaða-
mannasambandsins og
erlendra fjölmiðla við
verkið.
Í hinu sextán síðna
aukablaði Novaja Gazeta
eru minningargreinar um
Politkovskaju og sýnis-
horn af verkum hennar,
auk lista með nöfnum
þeirra 211 blaðamanna sem látið
hafa lífið með voveiflegum hætti í
Rússlandi síðan árið 1992.
Einnig er í blaðinu viðtal við
móður blaðakonunnar þar sem
haft er eftir henni að hún hafi
grátbeðið dóttur sína að sýna
meiri aðgætni í starfi sínu.
Politkovskaja gat sér einkum
orð fyrir að vekja athygli
á pyntingum, mannrán-
um og öðrum mannrétt-
indabrotum í Tsjetsjen-
íu, en með því bakaði
hún sér óvild ráða-
manna. Í aukablaðinu er
sett ofan í við Vladimír
Pútín Rússlandsforseta,
sem á útfarardegi Polit-
kovskaju gerði lítið úr
áhrifum hennar á stjórn-
málalíf í Rússlandi.
Þessi ummæli hans eru
hrakin með því að benda á að
nærri 40 sakarannsóknir hafi
verið hafnar á grundvelli upplýs-
inga sem Politkovskaja kom á
framfæri í greinum sínum. - aa
Aukablað gefið út um Önnu Politkovskaju:
Sett ofan í við Pútín
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Fram-
kvæmdasvið Reykjavíkurborgar
hefur samþykkt stöðubann á
nýrri hjólarein milli Eskitorgs
og Lönguhlíðar í Reykjavík.
Stöðubannið tekur gildi þegar
lögreglan hefur samþykkt það og
auglýst það í Stjórnartíðindum.
Stefán Finnsson, deildarstjóri
hjá framkvæmdasviði, segir að
stöðubannið þýði að hjólareinin
sé ekki ætluð sem bílastæði. Þeir
sem leggi þar bílum fái sekt
eftir að viðeigandi skilti hafi
verið sett upp. - ghs
Langahlíð:
Stöðubann
samþykkt
VLADIMÍR PÚTÍN
Gerði lítið úr áhrif-
um blaðakonunnar.
Okkur skortir svigrúm
til að leggja áherslu á
þau atriði sem skipta mestu máli.
HILDUR DUNGAL
FORSTJÓRI ÚTLENDINGASTOFNUNAR
Forsetinn endurkjörinn
Georgi Parvanov, forseti Búlgaríu,
var endurkjörinn í embættið í seinni
umferð forsetakosninga landsins í
gær. Samkvæmt útgönguspám fékk
Parvanov tæp 80 prósent atkvæða.
BÚLGARÍA