Fréttablaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 10
10 30. október 2006 MÁNUDAGUR
SKIPULAGSMÁL „Þær tillögur sem nú liggja
fyrir munu gera allt starf okkar til þessa að
engu, því samkvæmt þeim mun rísa háhýsi
við lóð okkar sem kæfir garðinn,“ segja
Jóhannes Ágústsson og Lárus Jóhannesson,
eigendur hljómplötuverslunarinnar 12 Tóna.
12 Tónar eru á Skólavörðustíg 15. Þar
fyrir neðan hafa lóðirnar númer 13 og 13a
verið sameinaðar í eina lóð. Gera á húsin
tvö þar að einni byggingu og reisa auk þess
nýja þriggja hæða viðbyggingu á baklóðinni
að hluta til yfir bílastæðið aftan við SPRON.
Viðbyggingin er Jóhannesi og Lárusi mikill
þyrnir í augum.
„Við eigendur 12 Tóna höfum tekið þátt í
því undanfarin ár að byggja upp, ásamt ná-
grönnum okkar og borgaryfirvöldum, Skóla-
vörðustíginn sem mestu ferðamannagötu
Reykjavíkur. Allt okkar kynningarstarf,
sem byggist meðal annars á staðfestu
skipulagi frá árinu 2003, hefur gengið út frá
notkun á þeirri aðstöðu sem við keyptum
hér á sínum tíma. Þar er garðurinn okkar
stór hluti og laðar að sér fjölda manns á
tónleika og ýmsar uppákomur sem við
stöndum reglulega fyrir,“ segja Jóhannes og
Lárus í yfirlýsingu sem þeir sendu Frétta-
blaðinu eftir að blaðið leitaði viðbragða
þeirra við framkvæmdunum fyrirhuguðu á
nágrannalóðinni.
Eigandi Skólavörðustígs 13 er fjárfest-
ingafélagið Eyrir ehf. sem er félag feðg-
anna Þórðar Magnússonar og Árna Odds
Þórðarsonar. Arkitektastofan Argos hefur
hannað teikningar að breytingum á húsun-
um og viðbyggingunni.
„Það sem skiptir aðalmáli er að yfirbragð
götunnar mun taka stakkaskiptum,“ segir
Stefán Örn Stefánsson, arkitekt hjá Argos.
„Húsið verður fallegra og það kemur meiri
heildarsvipur. Ég held að allir muni hafa
gott af því.“
Þeir Jóhannes og Lárus hafa formlega
mótmælt fyrirhugaðri byggingu. Það gerðu
líka fleiri nágrannar við Skólavörðustíginn
sem óttuðust meðal annars að verða af góðu
útsýni. Forsendur að því leyti hafa þó breyst
því hætt hefur verið við að hækka efra húsið
um tæpa tvo metra eins og til stóð.
Eigendum 12 Tóna var boðið á fund hjá
Argos til að skoða nýja hönnun arkitektanna.
„Það er allt í góðu bróðerni,“ segir Stefán.
„Við höfum talið að hljómburðurinn verði nú
ekki lakari á eftir heldur myndi frekar
batna.“
En Jóhannes og Lárus segja að þrátt fyrir
breytingu á fyrri tillögu standi allar þeirra
athugasemdir óbreyttar.
„Við trúum því ekki að það verði algjör
viðsnúningur hjá borgaryfirvöldum og þau
muni halda áfram að efla sérstöðu Skóla-
vörðustígsins. Það sjá allir sem horfa
hlutlaust á málið hve tillagan er í hrópandi
ósamræmi við umhverfi sitt.“
Tillögur Argos arkitekta eiga enn eftir að
hljóta afgreiðslu hjá borgaryfirvöldum. - gar
Háhýsi byggt við 12 Tóna
Jóhannes Ágústsson og Lárus Jóhannesson, eigendur verslunarinnar 12 Tóna á Skólavörðustíg, eru afar
ósáttir við byggingu nýs húss við lóðamörkin. Feðgarnir Þórður Magnússon og Árni Oddur Þórðarson í
fjárfestingafélaginu Eyri hyggjast stækka skrifstofur sínar. Nýbyggingin er til skoðunar hjá borginni.
ARKITEKTARNIR Stefán Örn Stefánsson og Grétar Mark-
ússon eru samstarfsfélagar á arkitektastofunni Argos.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BAKGARÐURINN HJÁ 12 TÓNUM Jóhannes Ágústsson og Lárus Jóhannesson eiga verslunina 12 Tóna. Byggja á nýtt
hús í framhaldi af rauða húsinu á myndinni. Í mótmælabréfi til borgaryfirvalda segja þeir að nýja húsið verði til
þess að verðfella þeirra eigið hús. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
LÆKNARANNSÓKNIR Algengt afbrigði
af ákveðnu geni eykur til muna lík-
urnar á því að fólk fái fullorðins-
sykursýki, að því er kemur fram í
nýrri breskri rannsókn.
Fólk sem fær genið TCF7L2 frá
báðum foreldrum sínum er tvisv-
ar sinnum líklegra til að greinast
með týpu II sykursýki en þeir sem
ekki hafa genið, að því er segir í
niðurstöðum rannsóknarinnar og
greint er frá á fréttavef BBC.
„Þetta gen fannst fyrst í Íslend-
ingum, en þessi rannsókn sýnir að
það er til um allan heim,“ segir
Simon Howell, prófessor við Kings
College í London.
Hingað til hefur offita verið
talin aðalorsakavaldur fullorðins-
sykursýki, en að sögn vísinda-
mannanna er þessi genasamsetn-
ing jafn líkleg til að valda
sjúkdómnum.
„Þetta gen virðist valda jafn
mörgum tilfellum af sykursýki í
Bretlandi og offita gerir,“ segir
Steve Humphries, hjartasjúk-
dómaprófessor við University
College í London. Hann bætir við
að um 40 prósent Breta hafi eitt
slíkt stökkbreytt gen, en um 10
prósent hafi tvö.
Sé sykursýki ekki stjórnað rétt,
getur hún valdið óafturkræfum
skaða á augum, nýrum, taugum,
hjarta og slagæðum. - smk
Genarannsóknir Íslendinga teknar lengra í Bretlandi:
Gen veldur fullorðinssykursýki
BLÓÐSYKUR MÆLDUR Ný bresk rann-
sókn sýnir að gen skipta jafn miklu máli
og offita þegar kemur að fullorðinssyk-
ursýki. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
VELFERÐ Á 41. þingi Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja, sem
lauk í fyrradag, var samþykkt að
láta rannsaka áhrif einkavæðingar
á þjónustu og starfsemi íslenskra
almannafyrirtækja og stofnana.
Fá á hæfa aðila til verksins.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segir markmið rannsóknar-
innar að skera úr um hvort íslensk-
ur raunveruleiki samræmist nið-
urstöðum erlendra rannsókna á
þessu sviði. „Umræðan hefur verið
frasakennd og þeirri staðhæfingu
haldið fram að hlutafélaga- og
einkavæðing sé til góðs. Við viljum
rökræða kosti og galla með hlið-
sjón af reynslunni.“
Spurður um hvaða þættir
almannaþjónustunnar verði skoð-
aðir staldrar Ögmundur við þrjú
atriði. „Síminn var gerður að hluta-
félagi og svo seldur. Hlutar heil-
brigðiskerfisins hafa verið færðir
út á markaðstorgið og raforkugeir-
inn er á leiðinni þangað. Við viljum
vita hvað hefur breyst með þess-
um aðgerðum.“
Í ályktun þingsins um almanna-
þjónustu er kveðið skýrt að orði
um að BSRB leggi áherslu á að
nýsköpun innan almannaþjónust-
unnar fari stöðugt fram. Lýsir
bandalagið fullum vilja til sam-
starfs við stjórnvöld um þau mál.
- bþs
Þing BSRB vill samstarf við stjórnvöld um nýsköpun almannaþjónustunnar:
Áhrif einkavæðingar rannsökuð
ÖGMUNDUR JÓNASSON Formaður BSRB. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
NOREGUR Norskri konu brá heldur
betur í brún þegar hún ætlaði á
salernið í Kristiansand í síðustu
viku. Það lá nefnilega kyrkislanga
ofan í skálinni.
„Ég ætlaði að setjast á
klósettið og opnaði lokið og þá lá
þar eitthvað stórt og þykkt,“
hefur fréttavefur Aftenposten
eftir Bente Mørch.
Hún kallaði á lögregluna sem
fjarlægði tveggja metra langa
pýtonslönguna.
Líklegast þykir að slangan hafi
komið upp í klósettið í gegnum
skolpræsakerfið, en hvaðan hún
kemur er óljóst. - smk
Óþægileg upplifun:
Kyrkislanga í
klósettinu
PÝTONSLANGA Það var slanga sem
þessi sem birtist í salerni í Kristiansand í
síðustu viku. NORDICPHOTOS/AFP
BEÐIÐ FYRIR FRIÐI Búddískir lýð-
veldissinnar í Mjanmar hófu í gær
vikulanga bænavöku þar sem beðið
verður fyrir frelsi pólitískra fanga og
friðsamlegri lausn ýmissa vandamála
landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PRÓFKJÖR Níu manns, þrjár konur
og sex karlar, hafa boðið sig fram
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Norðausturkjördæmi sem fram
fer laugardaginn 25. nóvember.
Annar núverandi þingmaður
kjördæmisins, Arnbjörg Sveins-
dóttir þingflokksformaður, gefur
kost á sér, en Halldór Blöndal
hyggst láta af þingmennsku.
Utankjörfundaratkvæða-
greiðsla hefst mánudaginn 13.
nóvember, en í prófkjörinu eru
allir félagsbundnir sjálfstæðis-
menn í Norðausturkjördæmi
atkvæðisbærir, hafi þeir náð 16
ára aldri á prófkjörsdaginn. - sgj
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins:
Níu fram í Norð-
austurkjördæmi
PÓLLAND, AP Á Póllandsþingi var á
fimmtudag tekin til umræðu
tillaga eins stjórnarflokksins um
að breyta stjórnarskránni þannig,
að enn yrði hert á gildandi lögum
um fóstureyðingar. Framvegis
skuli fóstureyðingar líka vera
bannaðar, þótt fóstrið sé til komið
eftir nauðgun eða sifjaspell.
Það er Bandalag pólskra
fjölskyldna, einn flokkanna í
samsteypustjórninni sem Lög og
réttlæti, íhaldsflokkur forsætis-
ráðherrans Jaroslaws Kaczynski
fer fyrir, sem leggur tillöguna
fram. Litlar líkur eru taldar á að
hún verði samþykkt þar sem tvo
þriðju meirihluta þarf á þingi til
að samþykkja stjórnarskrár-
breytingar. - aa
Tillaga á Póllandsþingi:
Hert lög gegn
fóstureyðingum
SVÍÞJÓÐ Nýi menningarmálaráð-
herrann í Svíþjóð, Lena Adelsohn
Liljeroth, er fáklædd júlístúlka á
dagatalinu 2006 sem kvennasam-
tök hafa gefið út til stuðnings
rannsóknum á heilsu kvenna. Í
Aftonbladet kemur fram að
ráðherrann telji það alls ekki
vinna gegn sér.
Lena Adelsohn Liljeroth tekur
við ráðherraembættinu af Ceciliu
Stegö Chilo, sem sagði af sér
meðal annars vegna þess að hún
hafði ekki greitt afnotagjöld
ríkisútvarpsins. Adelsohn
Liljeroth er nær heyrnarlaus og
með heyrnartæki í báðum eyrum.
Hún ætlar að láta auka textun í
sænska sjónvarpinu. - ghs
Menningarráðherra Svíþjóðar:
Fáklædd júlí-
stúlka á dagatali
MENNTAMÁL Ný rannsókn sýnir að
skipulögð fræðsla um samkyn-
hneigð og tvíkynhneigð gerir
viðhorf grunnskólakennara til
samkynhneigðar og tvíkynhneigð-
ar jákvæðari. Þetta kemur fram í
rannsókn Kristínar Elvu Viðars-
dóttur, sem kannaði málið fyrir
meistaraprófsritgerð sína við
Kennaraháskóla Íslands.
Um samanburðarrannsókn var að
ræða og tóku grunnskólakennarar
í þremur skólum á landinu þátt í
henni. Hluti þátttakenda fékk
skipulagða fræðslu og hluti ekki.
Niðurstöður sýndu að þekking
þeirra sem fengu skipulagða
fræðslu jókst markvisst. Engar
breytingar í þekkingu eða
viðhorfum kom fram hjá þeim
sem enga fræðslu fengu.
Kristín Elva hefur fengið
verðlaun fyrir ritgerð sína hjá
Kennaraháskólanum. - ghs
Meistaraprófsritgerð:
Fræðsla gerir
viðhorf jákvæð