Fréttablaðið - 30.10.2006, Side 12

Fréttablaðið - 30.10.2006, Side 12
12 30. október 2006 MÁNUDAGUR FJÁRVEITINGAR Samkvæmt fjárlaga- frumvarpi ársins 2007 lækka fram- lög til Skógræktar ríkisins um tíu milljónir króna miðað við þetta ár og um 24 milljónir frá árinu 2005. Jón Loftsson skógræktarstjóri segir ekki aðra leið færa en að mæta nið- urskurðinum með uppsögnum. Í fjárlagafrumvarpinu eru Skóg- ræktinni ætlaðar 232 milljónir króna og áætlaðar sértekjur eru 125 milljónir. „Fari þetta svona þarf ég að segja upp fólki,“ segir Jón. „Við höfum getað varist niðurskurði undanfarin ár með því að ganga á uppsafnaðan höfuðstól en nú er hann búinn.“ Á milli 70 og 80 ársverk eru unnin hjá Skógræktinni og falla sumarstörf þar undir. Á næsta ári verða liðin eitt hundrað ár síðan sett voru lög um skógrækt í landinu. Jón segir þetta kaldar kveðjur á afmælisári. „Ég ætlaði að horfa bjartur fram á veg- inn á hundrað ára afmælinu og taldi ástæðu til að fagna þeim árangri sem hefur náðst.“ Að sögn Jóns er viðhorf Íslend- inga til skógræktar mjög jákvætt en samkvæmt könnun sem gerð var fyrir tveimur árum fer meðal Íslendingurinn fjórtán sinnum í skóg á ári – oftar en í bíó og leik- hús. Forsvarsmenn Skógræktarinnar ræða málið við fjárlaganefnd Alþingis í byrjun næstu viku. - bþs Skógræktarstjóri segir erfitt að bregðast við hagræðingarkröfu stjórnvalda: Uppsagnir á afmælisári JÓN LOFTSSON Skógræktarstjóri. EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Evrópusam- bandið vinnur nú hörðum höndum að því að leysa Kýpurdeiluna til þess að hún verði ekki til þess að aðildarviðræður við Tyrkland stöðv- ist. „Ég vona að sanngjörn lausn finnist, og ég vona að hún finnist nú í haust,“ sagði Matti Vanhanen, for- sætisráðherra Finnlands, á Evrópu- þinginu í síðustu viku. Hann bætti því við að hann væri bjartsýnn á lausn deilunnar. Undanfarið hefur Evrópusam- bandinu hins vegar lítið orðið ágengt í því að fá Tyrki til þess að opna hafnir sínar og flugvelli fyrir skipum og flugvélum frá Kýpur, en Tyrkir telja sig með því óbeint vera að viðurkenna sjálfstætt ríki Kýpur- Grikkja. Tyrkland er ekki í stjórn- málasambandi við gríska hluta eyj- unnar, sem þó er eina ríkið á eynni sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenn- ingar og er sem slíkt aðildarríki ESB. Tyrkland er hins vegar eina ríki heims sem viðurkennir lýðveldi Kýpur-Tyrkja norðan til á eyjunni. Tyrkir hafa lengi verið í tolla- bandalagi við Evrópusambandið og undirrituðu á síðasta ári samkomu- lag um að veita ríkjunum tíu, sem árið 2004 fengu aðild að samband- inu, þar á meðal gríska hlutanum á Kýpur, aðgang að flugvöllum og höfnum í Tyrklandi eigi síðar en núna í árslok. Bæði Grikkland og Kýpur hafa hótað því að stöðva aðildarviðræður Tyrklands við Evr- ópusambandið standi Tyrkir ekki við þetta. Vanhanen sagði Evrópusam- bandið nú vera með „nýja tegund af lausn“ í huga til þess að komast út úr þessari pattstöðu, en lét þó ekk- ert uppi um í hverju sú lausn væri fólgin. Hann sagði hins vegar að lausn þessarar deilu yrði erfiðasta viðfangsefni sitt nú fram til ára- móta meðan Finnland fer með for- mennsku í Evrópusambandinu. Finnar komu nýverið með tillögu að málamiðlun sem fælist í því að Tyrkland myndi opna aðgang fyrir Kýpur-Grikkjum gegn því að Kýpur-Grikkir myndu aflétta þeirri efnahagslegu einangrun sem þeir hafa beitt tyrkneska hlutann á Kýpur. Deila Tyrklands við Evrópusam- bandið um þessi mál hefur meðal annars orðið til þess að allar við- ræður um sameiningu gríska og tyrkneska hlutans á Kýpur hafa orðið erfiðari. Eyjan hefur verið klofin allt frá því tyrkneski herinn gerði þar inn- rás árið 1974 eftir að grískir Kýpur- búar, sem vildu að eyjan sameinað- ist Grikklandi, gerðu þar tilraun til valdaráns. gudsteinn@frettabladid.is Reynt til þrautar að leysa Kýpurdeiluna Evrópusambandið, með forsætisráðherra Finnlands í fararbroddi, leggur nú allt kapp á að fá Tyrkland til þess að opna flugvelli sína og hafnir fyrir Kýpur- Grikkjum. Að öðrum kosti eru aðildarviðræður Tyrklands við ESB í uppnámi. FRANSKUR LISTDANS Þetta franska par dansaði af mikilli list og náði þriðja sæti í ísdanskeppni sem hald- inn var í Bandaríkjunum um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SAMRÆMDU PRÓFIN Kolbrún Albertsdóttir, móðir stelpna í sjöunda og tíunda bekk, gagnrýnir próf fjórðubekkinga í íslensku í haust og telur svívirðilegt að láta krakka lesa smásögu um kennderí músa og svara spurningu um það hvað hófleg drykkja merki, eins og gert var. „Sumir eiga kannski erfitt heima og þá ýfir þetta upp vanlíðan. Sumir þekkja alls enga drykkju. Mér finnst þeir sem búa til svona próf ekki starfi sínu vaxnir,“ segir hún. Kolbrún er mótfallin samræmdum prófum og gagnrýnir skólayfirvöld og kennara fyrir að setja pressu á krakkana. Hún bendir á að sum börn hafi slæman prófkvíða og ekki bæti úr skák ef kennarar hræða börnin og gefi skilaboð sem megi skilja þannig að ekkert líf sé eftir samræmdu prófin. Það sé ekki rétt. „Stelpan mín hefur verið á lyfjum í tvö ár vegna magabólgu út af prófkvíða. Strax í sumar var hún komin með kvíða fyrir prófunum sem verða ekki fyrr en næsta vor. Þetta liggur eins og mara á henni,“ segir Kolbrún og bendir á að skólarnir bjóði upp á fjölmarga möguleika fyrir alla krakka. Það sé víst líf eftir samræmdu prófin. - ghs KOLBRÚN AÐALSTEINSDÓTTIR „Sumir eiga kannski erfitt heima og þá ýfir þetta upp vanlíðan,“ segir Kolbrún Aðalsteinsdóttir, móðir og kennaranemi, um spurningu um hóflega drykkju í íslenskuprófi níu ára barna nýlega. Móðir gagnrýnir samræmdu prófin og telur pressuna á börnin of mikla: Víst er líf eftir samræmdu ALMANNATRYGGINGAR Eiginmaður konu sem haldin er MS-sjúkdómi má velja hvort hann fær maka- bætur eða ellilífeyri. Maðurinn sótti um ellilífeyri þegar hann varð 67 ára. Við það lækkuðu bætur til þeirra hjóna um 40 þúsund krónur á mánuði. Tryggingastofnun neitaði manninum um að fá að breyta aftur yfir í makabætur. Hann kærði til úrskurðarnefndar almannatrygginga. Hann sagðist hafa fengið þær upplýsingar frá Tryggingastofn- un að bæturnar myndu ekki skerðast við breytinguna. Úrskurðarnefndin segir manninn eiga rétt á að að velja hærri bæturnar. - gar Eiginmaður MS-sjúklings: Makabætur eða ellilífeyri © GRAPHIC NEWS EDS -- DATA CORRECT AS AT 12:00GMT, JANUARY 31, 2006 CurrentAffairs POL,OVR :Politics CYPRUS: EU-Turkey trade-off Duncan Mil, Phil Bainbridge, Jordi Bou, Mario Lendvai, Mike Tyler, Julie Mullins (research) GRAPHIC NEWS Adobe Illustrator version 8.01 2 columns by 152mm deep 25/10/2006 Wire agencies 20258 CATEGORY: IPTC CODE: SUBJECT: ARTISTS: ORIGIN: TYPE: SIZE: DATE: SOURCES: GRAPHIC #: STANDARD MEASURES (SAU) Picas 12p5 25p7 38p9 52p 65p1 78.p3 millimetres 52.3 107.7 163.2 219.0 274.4 329.7 © Copyright 2006 Graphic News. Reprint by permission only. The credit “GRAPHIC NEWS” must appear with all uses of this graphic image. 8 Ely Place, London EC1N 6RY, United Kingdom. Tel: +44 (0)20 7404 4270. Fax: +44 (0)20 7404 4290 Width 1 col 2 col 3 col 4 col 5 col 6 col Kýpur-deila Tyrklands og Evrópusambandsins Tillögur frá Finnlandi til þess að bjarga aðildarviðræðum Tyrklands við Evrópusambandið hafa leitt af sér nýjar deilur um framtíðarstöðu Kýpur. Stjórn Kýpur-Grikkja hafnar helstu kröfum Kýpur-Tyrkja og hóta því að beita neitunarvaldi til þess að koma í veg fyrir að Tyrkland fái aðild að Evrópusambandinu. Myndir: Associated Press TYRKNESKA LÝÐVELDIÐ Á NORÐUR-KÝPUR Forseti er Mehmet Ali Talat Hersetið af Tyrkjum frá 1974 – um 160,000 Kýpur-Grikkir voru fluttir nauðugir til suðurhlutans LÝÐVELDIÐ KÝPUR Forseti er Tassos Papadopoulos D e i l u m á l i n Efnahagur Fullveldi FAMAGUSTA VAROSHA ERCAN ESB krefst þess að Tyrkland opni flugvelli og hafnir fyrir umferð frá aðildarríkinu Kýpur fyrir lok þessa árs. ESB vill að Kýpurstjórn aflétti einangrun Tyrkneska lýðveldisins á Norður-Kýpur Papadopoulos segir að viðskipti ESB við N-Kýpur grafi undan tilkalli suðurhlutans til yfirráða yfir allri eyjunni. Tyrkland – eina ríkið sem viðurkennir ríki Kýpur-Tyrkja – neitar að viðurkenna stjórn Kýpur-Grikkja í suðurhlutanum. Tillögur Finna gera ráð fyrir að bein viðskipti milli Kýpur-Tyrkja og Evrópusambandsins fari um afgirta höfn sem verði undir eftirliti S.Þ. Papadopoulos vill að að þessi yfirgefni ferðamannabær verði á ný afhentur Kýpur-Grikkjum Ali Talat vill að í bráðabirgða- samkomulagi felist að flugvöllurinn í Ercan verði opnaður á ný fyrir ferðamenn. Papadopoulos vill ekki opna Ercan-flugvöll. Ali Talat neitar að afhenda Kýpur-Grikkjum Varosha og Famagusta á ný nema sem hluta af víðtæku friðarsamkomulagi. Herstöðvar Breta - Dhekelia SBA - Akrotiri SBA Hlutlaust svæði S.Þ. T r o o d o s - fj ö l l Miðjarðarhafið 25 km Kyrenia Famagusta Varosha Ercan Nikosia Limassol Larnaca Paphos FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VA LLI SVÍÞJÓÐ Um þriðjungur Svía telur Bandaríkin vera hættulegust heimsfriðinum. Þetta kom fram í skoðanakönnun sem sjónvarps- stöðin Axess lét gera og fjallað var um á fréttavef Dagens Nyheter í gær. Eitt þúsund Svíar voru spurðir hvaða lönd þeir töldu hættulegust heimsfriði, og 29 prósent svöruðu Bandaríkin en 28 prósent töldu Norður-Kóreu háskalegasta. Átján prósent töldu hins vegar mestu hættuna stafa af Íran. Eingöngu þrjú prósent töldu Rússland ógna heimsfriðinum mest allra landa. Athygli vakti að því yngra sem fólkið var, því hættulegara taldi það Bandaríkin vera. - smk Ný sænsk skoðanakönnun: Bandaríkin ógna heimsfriði GEORGE W. BUSH Svíar telja Bandaríkin hættulegust heimsfriðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVEITARSTJÓRNARMÁL Júlíus Vífill Ingvarsson er ekki vanhæfur til að gegna formennsku í mennta- ráði Reykjavík- ur þótt hann sé formaður skólanefndar í tónlistarskóla. „Í ljósi þess að málefni tónlistarskól- anna teljast tæplega meginverkefni menntaráðs, sem og þess að ekki er hægt að fullyrða um vanhæfi formanns menntaráðs þegar málefni tónlistarskólanna eru almennt til umfjöllunar í ráðinu, verður ekki séð að það valdi almennu vanhæfi formanns menntaráðs að hann sé jafnframt formaður skólanefndar eins af tónlistarskólunum,“ segir í svari Gunnars Eydal, skrifstofu- stjóra borgarstjórnar, vegna fyrirspurnar frá borgarráðsfull- trúum Samfylkingarinnar. - gar Formaður menntaráðs: Ekki vanhæfur JÚLÍUS VÍFILL INGV- ARSSON SVEITARSTJÓRNIR Veitt verða verðlaun fyrir sex milljónir króna í arkitektasamkeppni um skipulag miðsvæðisins á Álfta- nesi. Dómnefnd keppninnar má verja 750 þúsund krónum að auki til kaupa á öðrum tillögum. Minni- hluti sjálfstæðismanna í bæjar- stjórn segir verða mjög erfitt að sannfæra íbúa sveitarfélagsins um réttmæti þess að fimm manna dómnefnd velji lokatillöguna í stað íbúanna sjálfra eins og áður hafi verið lofað. Meirihluti Álftaneshreyfingar- innar segir hins vegar að ákvæði um sjónarmið dómnefndar sé í samræmi við óskir þorra Álftnesinga um uppbyggingu svæðisins. - gar Samkeppni á Álftanesi: Sex milljónir í verðlaun ÁLFTANES Skipuleggja á miðsvæði Álftaness. KJARAMÁL Launanefnd sveitarfé- laganna og Félag grunnskóla- kennara hafa haldið nokkra árangurslausa fundi þar sem efni greinar í kjarasamningi grunn- skólakennara hefur verið rætt. Í greininni kemur fram að taka skuli upp viðræður fyrir 1. september 2006 til að meta hvort almenn efnahags- og kjaraþróun gefi tilefni til viðbragða. Stjórn og samninganefnd FG vilja meina að rík ástæða sé til að bregðast við því sem gerst hefur í almennri efnahags- og kjaraþró- un í landinu og benda meðal annars á bætt kjör annarra hópa eins og leikskólakennara og þroskaþjálfa. - hs Félag grunnskólakennara: Rík ástæða til viðbragða KAUPMANNAHÖFN, AP Tveir þeirra sjö manna sem handteknir voru í Óðinsvéum í Danmörku í september vegna gruns um að þeir áformuðu hryðjuverk voru látnir lausir á föstudag, en þeir liggja þó enn undir grun í málinu. Stjórnvöld telja sig hafa afstýrt stórvægilegum hryðjuverkum með handtökunni, og sagði dómsmálaráðherrann Lene Espersen að málið væri það stærsta á valdatíð hennar. Ekki var vitað hversu langt undirbún- ingur mannanna var á veg kominn, en talið er víst að hryðjuverkin hafi átt að eiga sér stað í Danmörku. - sun Áformuðu hryðjuverk: Tveimur mönn- um sleppt

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.