Fréttablaðið - 30.10.2006, Side 16

Fréttablaðið - 30.10.2006, Side 16
 30. október 2006 MÁNUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ F í t o n / S Í A Landbúnaðarháskólinn á Hvann- eyri tekur þátt í Evrópuverkefn- inu Building Brigdes þar sem ætlunin er að koma upp öflugu tenglaneti kvenna í landbúnaði og bjóða upp á ýmis námskeið. Á fundarferð um landið kom upp úr kafinu að það sem konur til sveita voru spenntastar fyrir var að fá námskeið í meðferð búvéla. „Konur eru oft ragar við að taka þátt í bústörfunum og stundum þegar veikindi koma upp á þarf að kaupa vinnukraft á býlin því konan treystir sér ekki til verkanna þótt hún hafi svo sem alveg tíma,“ segir Ásdís Helga hjá endurmenntunardeild Landbúnaðarháskólans. „Því voru konur æstar í að læra á traktor og aðrar búvélar og vildu fyrst og fremst fá frið og næði til að þjálfa sig án þess að húsbóndinn eða sonurinn væri gargandi yfir þeim.“ Því var riggað upp tveggja daga námskeiði í síðustu viku sem átti að vera í höndum Grétars Einarssonar bútæknifræðings. „Því miður varð þátttakan ekki næg og við hættum við námskeiðið,“ segir Ásdís. „Bæði var tímasetningin slæm og einnig var þetta námskeið alltof fræðilegt: Kom inn á vélahlutaþekkingu og öryggismál. Konurnar hafa mestan áhuga á að keyra og tengja og þessum verklegu hlutum öllum. Því erum við núna að undirbúa einfaldara námskeið sem ætti að höfða betur til áhuga kvennanna. Við stefnum á að bjóða upp á það bráðlega.“ Hjá endurmenntunardeild Landbúnaðarháskólans eru ýmis forvitnileg námskeið í boði. Eitt það skrítnasta er fjarnám í tamningu fjárhunda sem verður kennt tölvuleiðis frá Danmörku. „Við erum mjög spennt að sjá hvernig það heppnast,“ segir Ásdís. - glh Konum býðst námskeið í meðferð búvéla: Æstar í að læra á traktor ÁSDÍS HELGA BJARNADÓTTIR STERKLEG KONA Á TRAKTOR Vill læra án þess að hafa karlinn gargandi yfir sér. Atlantsolía hefur um nokk- urt skeið boðið þeim sem sækja um dælulykil hjá fyrirtækinu að snúa lukku- hjólinu. Viðskiptavinir eru ánægðir með framtakið og sumir detta í lukkubensín- pottinn. „Ég væri örugglega efnamesti maður landsins ef auðæfi væru talin í lukkuhjólum,“ segir Hugi Hreiðarsson hjá Atlantsolíu, „Við erum með fjögur hjól samtals. Tvö eru í samfelldri notkun í Smára- lind og Kringlunni, en hin tvö drög- um við fram þegar mikið liggur við á sýningar og svoleiðis. Við erum eingöngu með mannlausar bensínstöðvar svo við höfum ekki sama aðgang að viðskiptavinum okkar og hin olíufyrirtækin. Því má kannski segja að Smáralind og Kringlan séu okkar hjartastöðvar þaðan sem við reynum að dæla út jákvæðum straumum til fólks.“ Þeir sem fá sér dælulykil Atl- antsolíu í stóru verslunarmið- stöðvunum fá að snúa lukkuhjól- inu. „Fyrsti ávinningurinn er ódýrara bensín sem lykillinn veitir en svo eru helmingslíkur á að fá glaðning. Þú getur unnið lottóröð eða bensín, 10, 15 eða 20 lítra, ef þú ert heppinn, en svo er núll í ann- arri hverri rauf.“ Hugi segir þeim alltaf fjölga sem fá sér dælulykillinn og að lukkuhjólið eigi ekki síst þátt í því. „Þess má geta að öll lukkuhjól- in eru endurnýtt. Eitt var notað í þættinum Bingó lottó með Ingva Hrafni hérna á síðustu öld en hin koma úr happdrættum DAS og Háskólans.“ Brynja Sigur- mundsdóttir stend- ur vaktina í Smára- lind og segir hjólið vekja mikla athygli. „Ég myndi nú segja að það sé ágætis tímakaup fyrir fólk að fá 20 lítra af bensíni fyrir að snúa lukkuhjóli,“ segir hún. „Sérstak- lega þar sem það felst engin skuld- binding í því að fá sér dælulykil og það er ekkert nema ávinningur og þægindi samfara þessu.“ Brynja segir viðmót fólks jákvætt og að mörgum finn- ist gott hjá Atlantsolíu að standa upp í hárinu á olíu- risunum. „En það eru nú nánast allir löngu búnir að gleyma þessu verðsamráðs- máli þarna um árið. Þú veist hvernig Íslend- ingar eru: Við erum fljót að gleyma, kannski stundum sem betur fer.“ gunnarh@frettabladid.is Bingó lottó gengur aftur í Smáralind HUGI HREIÐARSSON Markaðsstjóri Atlantsolíu. BRYNJA SIGURMUNDSDÓTTIR Í SMÁRA- LIND Allir búnir að gleyma verðsam- ráðinu. BANKAHJÓLIÐ Þú stofnar nýjan reikning og færð að snúa lukkuhjóli. Meðal vinninga: ■ Yfirdráttarheimildin hverfur! ■ Bankinn borgar Visa-reikninginn í febrúar! ■ Vaxtakjör eins og best gerist erlendis! ■ Gróði bankans síðasta klukkutímann beint í vasann þinn! KIRKJUHJÓLIÐ Þú mætir í messu utan háannatíma og færð að snúa lukkuhjóli. Meðal vinninga: ■ Syndaaflausn! ■ Flaska af messuvíni! ■ Sálmur sunginn að þínu vali! ■ Ókeypis jarðarför! SKATTHJÓLIÐ Þú skilar skattskýrslunni á réttum tíma og færð að snúa lukkuhjóli. Meðal vinninga: ■ Skattleysi! ■ Borgar bara tekjuskatt eins og allt alvöru fólk! ■ Þú ræður hvert skatturinn þinn rennur! ■ Öll kosningaloforðin rætast í skattframtalinu þínu! Margir mættu taka sér lukkuhjól Atlantsolíu til fyrirmyndar: ÖNNUR LUKKUHJÓL „Það er allt frábært að frétta,“ segir Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir sellóleikari. „Ég var að koma til Sví- þjóðar og er búsett hérna núna. Bý við hliðina á vatni í miðbæ Stokkhólms og horfi á bátana sigla hjá út um glugg- ann – mjög rómantískt. Hér er öllu rólegra en á Íslandi, minni þeytingur í kringum æfingar og tónleika og meiri tíma í sólódútl sem er ofsalega fínt í bland. Platan mín (Lost in Hildurness - Mount A) kom út á afmælisdaginn minn 4. september og ég hef verið að stússast í kringum hana. Er til dæmis á leiðinni á túr með Tilraunaeldhúsinu. Ég stefni á að halda útgáfutónleika á Íslandi, veit ekki alveg hvenær en allavega áður en næsta plata kemur út. Næstu mánuðina verð ég á miklu flakki og ég er að spila með ýmsum. Í vikunni fer ég til Grikklands með Pan Sonic. Það eru finnskir raftónlist- armenn sem ég hef verið að spila mikið með. Þá er fyrirhugað að ég fari með Múm á tónleikaferðalag. Þar að auki eru ýmis verkefni í deiglunni sem er of snemmt að tala um. Það eru bara rosalega spennandi tímar framundan. Maður þarf svo alltaf að æfa sig á sellóið. Það þarf að halda sér í formi til að geta spilað á þetta hljóðfæri.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HILDUR INGVELDARDÓTTIR GUÐNADÓTTIR SELLÓLEIKARI Spennandi tímar framundan ■ Google Earth forritið hefur slegið í gegn. Með því má skoða jörð- ina alla með hjálp gervi- hnatta- og loftmynda. Ýmsar sér- kennilegar loftmyndir hafa komið í ljós við notkun forritsins. Meðal annars lítur fjallgarður í Alberta- fylki í Kanada út eins og indjáni að hlusta á iPod. Þegar betur er að gáð er „snúran“ bílvegur og „heyrnartólið“ olíulind. Forritið er ókeypis. FURÐUR: INDJÁNI MEÐ IPOD Asnalegar aðferðir „Kannski hefur aðferð mín að hringja ekki í fólk ekki átt upp á pallborðið, en ég breyti varla mínum aðferð- um, mér finnst asnalegt að hringja í fólk.“ PÉTUR BLÖNDAL ALÞINGISMAÐUR SEM SAGÐI ÞAÐ ÁKVEÐIN VON- BRIGÐI AÐ HAFA HAFNAÐ Í SJÖTTA SÆTI Á LISTA SJÁLFSTÆÐISFLOKKS EFTIR PRÓFKJÖRIÐ. Fréttablaðið 29. október Heiladauðir alþingis- menn „Það er sorglegt, en því mið- ur virðist það vera satt, en hjá sumum flokkum virðist það vera kostur og jafnvel skilyrði að menn sem gefa kost á sér til setu á alþingi séu heiladauðir.“ EINAR ÞORBERGSSON KENNARI SEM VILL LÁTA RÁÐAMENN BERA ÁBYRGÐ Á GJÖRÐUM SÍNUM. Morgunblaðið 29. október Erpur Eyvindarson var skráður í Sjálfstæðisflokkinn eftir vinahrekk fyrir fjórum árum. Þrátt fyrir að hann sé genginn úr flokknum hefur hann ákveðnar skoðanir á prófkjörsmálum hans. „Ég vil nú ekki segja að ég hafi mikla trú á Sjálfstæðisflokknum svona almennt, en það hlýtur að vera gott fyrir hann að fá þessa endurnýjun. Mér fannst hún bráðnauðsynleg. Það er óhollt fyrir flokkinn að hafa þarna menn sem eru skaðbrenndir af kalda stríðinu og eru með fullan haus af fáránlegum hugmyndum og samsæriskenningum. Þeir félagar úr Sjálfstæðisflokknum sem ég ræði við eru yfirleitt með mikla orðræðu um frelsi og lýðræði. Ef þeir ætla að halda þeirri orðræðu áfram geta þeir ekki verið með einhverja gæja á listanum sem eru liggjandi á línunni og hlerandi eins og einhverjir pervertar. Það er ekkert sem réttlætir hleranir af þessu tagi hér á landi, það er ekki eins og menn hafi verið myrtir hér í pólitík. Það hlýtur að vera gott fyrir flokkinn að fá Guðlaug Þór inn. Nú er Björn Bjarnason ein seinasta risaeðlan á listanum.“ SJÓNARHÓLL PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Björn ein síðasta risaeðlan ERPUR EYVINDARSON Tónlistarmaður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.