Fréttablaðið - 30.10.2006, Page 18
30. október 2006 MÁNUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
> Einkaneysla heimilanna
Heimild: Hagstofa Íslands
1990
28
5.
59
5
39
9.
96
7
48
6.
55
1
28
6.
65
9
1995
Í milljónum króna á föstu verðlagi
2000
2005
FRÉTTASKÝRING
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
bjorn@frettabladid.is
Því hefur verið haldið fram að
Íslendingar séu á ,,elliveiðum“ því
hvalirnir sem veiddir hafa verið séu
allir á sjötugsaldri.
Eru Íslendingar á elliveiðum?
Í Alþjóðahvalveiðiráðinu voru
ásakanirnar þær að við værum
að veiða ung dýr, því við hefðum
drepið öll gömlu dýrin síðast þegar
við stunduðum hvalveiðar, en það
virðist ekki alveg standast.
Hversu gamlar eru hvalirnir þrír
sem Íslendingar hafa veitt?
Það vitum við ekki enn. 70 feta
hvalurinn gæti verið svona gamall,
en hinir eru væntanlega yngri.
Er kjötið ætt af svona gömlum
dýrum?
Japanirnir éta þetta með góðri lyst,
en þeir borða nú líka gömul hross
– og það hrá. Kjöt af svona gömlum
dýrum hefur ekki verið markaðssett
hér því það þykir of gróft, og þegar
hrefnurnar eru veiddar reyna
veiðimennirnir yfirleitt að skjóta ung
dýr fyrir innanlandsmarkað.
SPURT & SVARAÐ
HVALVEIÐAR ÍSLENDINGA
Gamalt
hvalkjöt er
gróft
ÞORVALDUR GUNNLAUGSSON
Sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun.
Köldu stríði Björns Bjarna-
sonar og Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar um forystu-
sæti sjálfstæðismanna í
Reykjavík lauk með örugg-
um sigri Guðlaugs. Staða
Björns innan Sjálfstæðis-
flokksins er nú metin veik-
ari en áður. Björn íhugaði
að hætta í stjórnmálum
eftir þetta kjörtímabil en
brottför Bandaríkjahers
varð til þess að hann ákvað
að halda áfram. Björn
kveðst hafa unnið varnar-
sigur.
Slagorð Björns Bjarnasonar –
samstaða til sigurs – varð hálf
merkingarlaust þegar fyrstu tölur
í prófkjöri sjálfstæðismanna voru
kynntar í Valhöll klukkan sex á
laugardagskvöld. Samstaða hans
með öðrum frambjóðendum var
ekki meiri en svo að hann var fjar-
staddur. Björn hélt sig á kosninga-
skrifstofu sinni við Skúlagötu á
meðan flestir sem stefndu á efstu
sætin voru saman í Valhöll. Dögg,
Pétur, Birgir, Ásta, Guðfinna og
Guðlaugur áttu erfitt með að leyna
spennunni sem greinilega ólgaði í
æðum þeirra en Geir Haarde var
rólegur að vanda.
Við Skúlagötuna hefur væntan-
lega brotist út gleði þegar fyrstu
tölur voru lesnar því samkvæmt
þeim var annað sætið Björns. Að
sama skapi fengu tölurnar á Guð-
laug Þór. Pétri Blöndal og Dögg
Pálsdóttur var augljóslega brugð-
ið en Guðfinna Bjarnadóttir ljóm-
aði af gleði.
Hálftíma síðar náði Guðlaugur
aftur vopnum sínum enda hafði
hann tekið forystu í kapphlaupinu
mikla. Forskot hans jókst svo eftir
því sem leið á kvöldið og sigur
hans var afgerandi.
Gríðarleg átök
Einar Mar Þórðarson stjórnmála-
fræðingur metur úrslitin sem pól-
itískt áfall fyrir Björn og telur
stöðu hans innan Sjálfstæðis-
flokksins veikari á eftir. Hann sé
til dæmis ekki jafn sjálfsagt ráð-
herraefni og áður. „Þegar farið
verður að útdeila ráðherraemb-
ættum er Guðlaugur kominn fram-
ar í röðina,“ segir Einar.
Sumir stjórnmálaskýrendur
hafa sagt baráttu Björns og Guð-
laugs ekki einvörðungu keppni
tveggja manna heldur miklu held-
ur keppni tveggja arma. Einar er
þeirrar skoðunar. „Það voru ekki
bara tveir menn sem tókust á og
þrátt fyrir að þetta hafi virst fara
vel fram á yfirborðinu voru gríð-
arleg átök á milli fylkinga.“ Hann
segir sömu fylkingar hafa tekist á
nú og í prófkjöri sjálfstæðismanna
vegna borgarstjórnarkosning-
anna. Þar hafði Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson betur gegn Gísla Mart-
eini Baldurssyni. “„Sami armur
vann nú og þá,“ segir Einar.
Miklar breytingar hafa orðið á
Sjálfstæðisflokknum á skömmum
tíma. Nýr formaður var kjörinn á
Landsfundi fyrir ári og nú á haust-
dögum var tilkynnt um fram-
kvæmdastjóraskipti. Einar segir
ásýnd flokksins vera allt aðra en
áður og metur sigur Guðlaugs yfir
Birni sem lokakafla breyting-
anna.
Af öðrum tíðindum prófkjörs-
ins segir Einar athyglisvert að
Guðfinna og Illugi skuli skjóta
vönum þingmönnum aftur fyrir
sig. Ásta Möller, Pétur Blöndal,
Sigurður Kári Kristjánsson og
Birgir Ármannsson höfnuðu öll
neðar en þau.
Þó Pétur hafi verið nokkuð
fjarri markmiði sínu segir Einar
það ekki til merkis um að hann
njóti minni vinsælda en áður.
„Bæði varð hann á milli fylkinga í
baráttunni um annað sætið og eins
var uppi krafa um að hlutur
kvenna á listanum yrði í lagi. Þetta
er ekki merki um að honum hafi
verið hafnað.“
Þá telur Einar það ákveðið áfall
fyrir þingmennina Birgi Ármanns-
son og Sigurð Kára Kristjánsson
að ná ekki hærra og hafnar neðar
en nýliðinn Illugi Gunnarsson.
Varnarsigur
Björn Bjarnason var fámáll við
fjölmiðla á laugardagskvöldið –
hann vildi sem minnst segja áður
en endalegar niðurstöður lægju
fyrir.
Í grein á heimasíðu sinni sem
birtist í gær kemur upp úr dúrn-
um að Björn telur sig hafa unnið
varnarsigur. „Eftir margra ára
árásir andstæðinga og geysiharða
atlögu innan flokks, þar sem
hvorki var sparað fé né fyrirhöfn,
fékk ég mjög örugga kosningu í
þriðja sætið og raunar mjög mik-
inn stuðning í annað sætið,” segir
Björn í greininni.
Þar getur hann þess raunar líka
að hann hafi velt fyrir sér á þessu
kjörtímabili að hætta í stjórnmál-
um. Meginástæða þess að hann
ákvað að halda áfram var ákvörð-
un Bandaríkjamanna að flytja her-
lið sitt frá Íslandi. Sér sé mikið í
mun að Sjálfstæðisflokkurinn
haldi forystu við stefnumótun á
sviði varnar- og öryggismála.
Þá greinir Björn frá því að eftir
að fréttir bárust af hugsanlegri
sókn Guðlaugs Þórs í annað sætið
í prófkjörinu hafi hann stofnað til
fundar með Guðlaugi og sagt
honum þá skoðun sína að átök sem
þar með yrðu gætu orðið flokkn-
um hættuleg.
Köldu stríði um annað sætið lokið
Dagblöð í Chile sögðu frá því í síðustu viku
að hershöfðinginn Augusto Pinochet, fyrrum
einræðisherra í landinu, ætti gullstangir sem
vega níu tonn í banka í Hong Kong. Andvirði
gullsins er talið vera um 127 milljón evrur
eða tæplega 11 milljarðar íslenskra króna.
Hver er Pinochet?
Pinochet framdi valdarán í Chile árið 1973
þegar hann kom lýðræðislega kjörinni
ríkisstjórn sósíalistans Salvadors Allende frá
völdum. Pinochet stjórnaði landinu með
harðri hendi til ársins 1990.
Málaferli hafa verið höfðuð gegn Pino-
chet á liðnum árum vegna glæpa sem hann
framdi í stjórnartíð sinni. Talið er að Pinochet
hafi staðið fyrir pyntingum og morðum á
mörg hundruð pólitískum andstæðingum
sínum í Chile á þessum árum. Hann hefur
enn ekki verið dæmdur fyrir glæpi sína.
Málflutningurinn gegn Pinochet
Í fyrra hófst málflutningur gegn Pinochet
í Chile þar sem sakarefnin eru fjár- og
skattsvik. Málaferlin hófust vegna þess
að árið 2004 var komist að því að
Pinochet átti rúmlega 26 milljónir evra,
eða rúmlega 2,2 milljarða íslenskra
króna, á nokkrum bankareikningum í
Bandaríkjunum.
Nefnd sem vinnur að rannsókn
málsins komst á snoðir um gulleign
Pinochets í Hong Kong og er
fundur þess talin vera frekari
sönnun fyrir þeim mikla
fjárdrætti sem einræðis-
herrann stundaði meðan
hann var við völd í Chile.
Lögmenn Pinochets neita því að hann eigi
gullið, og vísa til þess að eina gull einræðis-
herrans fyrrverandi ,,sé giftingarhringurinn á
fingri hans“. Aðstandendur Pinochets segja að
hann hafi borist í bökkum fjárhags-
lega á liðnum árum og hafi þurft
að selja orðurnar sínar til að draga
fram lífið.
Gullið í bankanum í Hong Kong
var hins vegar skráð á nafni
Pinochets og þykir ekki leika
nokkur vafi á því að hann hafi
átt það, og er spurning
hvort fundur þess leiði
til að að hann verði loks
dæmdur fyrir einhverja af
þeim glæpum sem hann
framdi gegn chilesku
þjóðinni í valdatíð sinni.
FBL-GREINING: GULLIÐ HANS PINOCHETS
Á níu tonn af gulli í Hong Kong
RÝNT Í TÖLUR Guðlaugur Þór Þórðarson, Ásta Möller og Birgir Ármannsson skoða tölur í Valhöll á laugardagskvöld. Þau eru öll þing-
menn Sjálfstæðisflokksins og hlutu öll kosningu í örugg sæti að telja má.
BJÖRN BJARNASON Dómsmálaráðherra mætti ekki í Valhöll til að hlýða á úrslit próf-
kjörsins. Hann hélt sig á kosningaskrifstofu sinni á laugardagskvöld.EINAR MAR ÞÓRÐARSON Úrslitin eru
pólitískt áfall fyrir Björn Bjarnason, segir
Einar.