Fréttablaðið - 30.10.2006, Page 25
MÁNUDAGUR 30. október 2006
Uppþvottavélin er af mörgum
talin einn þarfasti heimilis-
þjónninn enda spara hún
tíma og hlífir mörgum við því
heimilisverki sem þeim finnst
leiðinlegast af öllu. Ekki er þó
sama hvað og hvernig er sett í
uppþvottavél svo vel sé.
Flestir eru að flýta sér þegar á að
setja í uppþvottavélina enda er
hún eitt aðal tímasparnaðartæki
heimilisins. Smá tími í skipulag
kemur hins vegar í veg fyrir að
við þurfum að þvo aftur það sem
kemur úr vélinni og fer auk þess
betur með borðbúnað og hnífapör.
Best er að raða hlutum skipu-
lega í vélina og hér eru nokkrar
leiðbeiningar að farsælli upp-
þvotti með vél:
■ Raðið hnífapörum þannig í
hnífaparakörfuna að þau snúi til
skiptist upp og niður.
■ Setjið diska í neðri
skúffuna og látið stóra
og litla diska til skipt-
is. Raðið pottum og
pönnum meðfram
hliðunum.
■ Raðið bollum og
glösum á efri hill-
una á milli teinanna
sem stundum standa
upp úr skúffunni en
ekki yfir þá. Skálar eiga
að fara í miðjuna á efri skúff-
unni.
■ Veljið stillingu á uppþvotti með
tilliti til þess hvað á að þvo, pottar
og pönnur þurfa lengri
þvott en fínn borð-
búnaður.
■ Skolið létt af öllu
áður en það er sett
í vélina, þá er hægt
að bíða lengur með
að þvo án þess að
komi vond lykt af
skemmdum mat.
Eftirfarandi á helst ekki að
fara í uppþvottavél:
álbakkar
teflonpönnur,
tréskurðarbretti
gamlir diskar
silfurborðbúnaður
eldhúsáhöld með tréskafti
kökuform
eldhúshnífar
kristall
málað eða gullhúðað postulín
Ef þessum leiðbeiningum
er fylgt verður uppþvottavélin
þinn þarfasti þjónn og engin þörf
á að bölsótast yfir illa þvegnu leir-
taui eða skemmdu postulíni.
Umgengni við
þarfasta þjóninn
Þarfasti þjónninn.
Postulínsdiskar geta farið
illa í uppþvottavélum.
Uppvask er mörgum þyrnir í augum en góð uppþvottavél leysir þann vanda.
Plastbretti
fara vel í
uppþvotta-
vélum en
trébretti eiga
hins vegar ekki
heima þar.
Inn með kerin
ÞAR SEM VETUR ER Í NÁND Á
OKKAR NORÐLÆGU SLÓÐUM ER
VISSARA AÐ KIPPA BLÓMAKERJ-
UM Í HÚS.
Sumarblómin hafa lokið sínu
hlutverki þetta árið og þar með
líka ílátin sem þau standa í. Þeir
sem ekki hafa þegar tekið inn
kerin úr garðinum, pallinum
eða svölunum ættu að
drífa í því. Sum þeirra
þola illa frost og það
er lítið gaman að tína
upp brotin. Bílskúrar
og geymsluskot ættu
að verða heimkynni
blómapottanna í vetur og
þá verða þeir til taks þegar
vorið brosir við að nýju.
Vissara er
að taka
blómakerin
inn yfir
veturinn.