Fréttablaðið - 30.10.2006, Síða 62
30. október 2006 MÁNUDAGUR22
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
MERKISATBURÐIR
1611 Karl IX, konungur
Svíþjóðar, andast.
1796 Dómkirkjan í Reykjavík
er vígð. Hún var átta
ár í smíðum og síðar
endurbyggð árið 1848.
1811 Bók Jane Austen, Sense
and Sensibility, er gefin
út í Englandi.
1934 Fyrri hluti sögunnar
Sjálfstætt fólk eftir
Halldór Kiljan Laxness
kemur út.
1998 Vegurinn yfir Gilsfjörð er
formlega opnaður fyrir
umferð.
2001 Körfuboltahetjan Michael
Jordan snýr aftur í NBA
deildina eftir að hafa
hætt spilamennsku
rúmum þremur árum
fyrr.
Sjálfboðaliðahópur á vegum
Rauða krossins mun á næst-
unni hefja reglulegar heim-
sóknir til hælisleitenda hér
á landi einu sinni í viku. Um
er að ræða nýtt verkefni
innan heimsóknarþjónustu
samtakanna og mun Hafnar-
fjarðardeild hennar hafa
verkefnið á sinni könnu.
Hugmyndin er runnin undan
rifjum Toshiki Toma, prests
innflytjenda, og hóps áhuga-
fólks um málefni hælisleit-
enda á Íslandi.
Rauði krossinn hefur um
árabil komið að málefnum
hælisleitenda á Íslandi og sá
um umönnun þeirra frá
árinu 1999 þar til Útlend-
ingastofnun gerði samning
þar að lútandi við Reykja-
nesbæ árið 2003. Samning-
urinn felur í sér að veita
hælisleitendum húsnæði,
fæði og ýmsa aðstoð.
Hælisleitendur búa á
gistiheimili í Njarðvík á
meðan á málsmeðferð stend-
ur. Reykjanesbær býður
þeim upp á ýmiskonar
afþreyingu eins og frían
aðgang að listasöfnum,
bókasafni og sundlaugum.
Þó er talin þörf á því að auka
félagsleg samskipti hælis-
leitenda á meðan á dvöl
þeirra í Njarðvík stendur.
Toshiki mun leiða heim-
sóknavinahópinn til að byrja
með og er gert ráð fyrir að
heimsóknir hefjist í nóvem-
ber.
RKÍ heimsækir
hælisleitendur
TOSHIKI TOMA, PRESTUR INN-
FLYTJENDA
Karlakórinn Fóstbræður fagnar 90 ára
afmæli á árinu og stígur í tilefni þess á
stokk í Háskólabíói í kvöld ásamt Sin-
fóníuhljómsveit Íslands.
Aðalsteinn Guðlaugsson er starfs-
aldursforseti Fóstbræðra, en hann
hefur sungið með kórnum frá 1951.
Aðalsteinn hefur á áttugasta aldursári
fært sig yfir í þá deild Fóstbræðra sem
kallast Gamlir Fóstbræður. Þeir æfa
sjaldnar en aðalkórinn en koma þó oft
fram með honum, eins og í kvöld.
„Ég söng síðasta vorkonsertinn með
kórnum í vor,“ sagði Aðalsteinn í sam-
tali við Fréttablaðið. „Ég hef verið við-
loðandi Gamla Fóstbræður lengi, en
það tók mig tíma að taka endanlega
skrefið,“ sagði Aðalsteinn sem ætlar
þó ekki að hætta söngnum í bráð: „Ég
verð hér á meðan ég hef heilsu til.“
Aðalsteinn segir mikinn tíma hafa
farið í sönginn og mikinn félagsskap
hafa hlotist af kórstarfinu. „Það gerir
þetta enginn nema hann hafi stuðning
frá fjölskyldunni, eins og ég hef notið,“
sagði hann.
Á 55 ára söngferli Aðalsteins eru
ýmsir hápunktar. „Rétt eftir að ég
steig mín fyrstu skref með Fóstbræðr-
um var ég valinn í sextán manna hóp
til að syngja í Rigoletto, sem var fyrsta
óperan sem sýnd var á Íslandi. Ég söng
svo með Þjóðleikhúskórnum í fjögur
ár eftir það,“ sagði hann. Aðalsteini
eru einnig minnisstæðir þættir Svav-
ars Gests á sunnudagskvöldum, en þar
söng hann með hópnum Fjórtán fóst-
bræður. „Þeir gáfu út einar fjórar plöt-
ur og þetta var mjög vinsælt. Hefðu
menn verið búnir að finna upp gull-
plötuna hefði hún örugglega fallið
þeim í skaut,“ sagði Aðalsteinn. Kór-
ferðalögin standa jafnframt upp úr, en
Fóstbræður hafa ferðast víða og unnið
til verðlauna á þeim þremur kóramót-
um sem þeir hafa farið á. Aðalsteinn
sagðist þakklátur þeim sem hann hefur
sungið með og vill þakka öllum söng-
stjórum sínum fyrir að þola hann svo
lengi. „Árni Harðarson er stórgóður
stjórnandi og ég vil óska honum alls
góðs í framtíðinni,“ sagði Aðalsteinn.
Hann sagðist vera á því að söngur sé
mannbætandi: „Fyrir sál og líkama.
Einhver spekingurinn sagði líka að
vondur maður geti ekki sungið,“ sagði
hann. Aðspurður hvort hann hljóti þá
ekki að vera orðinn óskaplega góður
maður eftir svo langan starfsaldur
skellti Aðalsteinn upp úr. „Það er
kannski ástæðan fyrir því hvað ég hef
lifað lengi,“ sagði hann svo hugsi.
KARLAKÓRINN FÓSTBRÆÐUR: NÍUTÍU ÁRA STARFSAFMÆLI Í ÁR
Vondir menn syngja ekki
AÐALSTEINN GUÐLAUGSSON Starfsaldursforseti Fóstbræðra segist ekki hafa haft hug á öðru félagslífi en Fóstbræðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓSTBRÆÐUR NÍUTÍU ÁRA Efnisskrá tónleik-
anna í kvöld er mjög fjölbreytt.
Á þessum degi árið 1938
fylltist bandaríska þjóðin ofsa-
hræðslu þegar Orson Welles
flutti leikritið Innrásin frá mars
í útvarpinu. Orson Welles var
aðeins 23 ára þegar Mercury
leikhúsið ákvað að endurvekja
sögu H.G. Wells um innrásina
frá mars í útvarpinu. Þá hafði
Welles þegar starfað í útvarpi
í nokkur ár en það var hvorki
ætlun hans né nokkurs annars
að plata íbúa landsins.
Leikritið var flutt á besta
tíma, klukkan átta um kvöldið
þegar milljónir manna sátu og
hlustuðu grannt. Hins vegar
misstu flestir af byrjun leikrits-
ins þar sem spennandi þætti á
annarri útvarpsstöð lauk ekki
fyrr en rúmlega átta.
Mikil skelfing greip um sig
um gervöll Bandaríkin þegar
sannfærandi rödd Welles lýsti
því hvernig geimverur væru að
leggja undir sig borgir lands-
ins. Í New Jersey myndaðist
umferðarteppa þegar ofsa-
hræddir íbúar reyndu að flýja
borgina undan Marsbúum.
Fólk grátbað lögreglumenn
um gasgrímur og bað rafveitur
um að taka rafmagnið af til að
geimverurnar sæju ekki ljósin.
Þegar fréttirnar bárust á
útvarpsstöðina rauf Welles
útsendinguna stutta stund
til að minna fólk á að engin
alvara væri að baki.
ÞETTA GERÐIST: 30. OKTÓBER 1938
Marsbúar ráðast á jörðina
ORSON WELLES
MÖRÐUR ÁRNASON ALÞINGIS-
MAÐUR ER 53 ÁRA Í DAG
Ég er farinn að meta
kostina við að fullorðn-
ast. Hér áður var
maður eiginlega
smeykur að verða
þrítugur og fertugur en
núna er ég alveg sáttur.
Stofnað hefur verið í Vestmannaeyj-
um félag sem hefur það að markmiði
að setja á laggirnar og reka setur sem
byggir á sögu Tyrkjaránsins í Vest-
mannaeyjum árið 1627.
Setrinu er ætlað að vera miðstöð
rannsókna og fræðslu um Tyrkjaránið
sem og að vera liður í menningar-
tengdri ferðaþjónustu í Vestmanna-
eyjum. Verður öllum þeim sem hafa
áhuga gefinn kostur á að gerast stofn-
félagar á næstu vikum.
„Við sjáum mikla möguleika í sam-
bandi við að virkja söguna. Þetta er
einn liðurinn í því að sækja fram,“ segir
Þórður Svansson, formaður félagsins.
„Við vildum gera eitthvað sjálf, enda
kemur ekki allt upp í hendurnar á
okkur. Sagan er svo mögnuð. Ég hef
verið að skoða í kringum landið þessi
setur eins og á Siglufirði og Hofsósi og
þetta ætti alveg eins að vera hægt í
Vestmannaeyjum,“ segir Þórður.
Setrið þar sem starfsemin mun fara
fram nefnist Dalabú. Er það bóndabýli
í suðurjaðri Vestmannaeyjabæjar,
skammt norðan við flugvöllinn. Til að
hægt verði að halda þar úti sýningum,
þar á meðal þrælatorgi, allan ársins
hring þarf að ráðast í endurbætur og
munu þær verða unnar í skrefum
næstu fimm árin.
Á næsta ári verða 380 ár liðin frá
Tyrkjaráninu. Af því tilefni er stefnt
að því að bjóða upp á viðamikla og fjöl-
breytta dagskrá frá maí og fram í
ágúst, þar sem Tyrkjaránssetrið mun
gegna lykilhlutverki. - fb
Tyrkjaránssetur í Vestmannaeyjum
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur hlýhug og samúð vegna
andláts og útfarar
Halldórs Þorvaldar
Ólafssonar
Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahjúkrunar,
Landspítala og á K1 á Landakoti fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingibjörg Aðalheiður Gestsdóttir.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Í HLÖÐUNNI Í DALABÚI Setrið um Tyrkjaránið
verður í bóndabýli í suðurjaðri Vestmanna-
eyjabæjar. MYND/KUBBZI