Fréttablaðið - 30.10.2006, Síða 65
MÁNUDAGUR 30. október 2006 25
Mickey Rourke hefur lýst því yfir
að Hollywood hampi hæfileika-
lausum leikurum sem komist á
forsíður slúðurblaðanna fyrir ást-
arsambönd sín frekar en hæfi-
leikaríku fólki. Það séu glysgjarn-
ar stjörnur sem fái öll bestu
hlutverkin í nýjustu myndunum.
„Þetta snýst ekki lengur um að
leika heldur markaðssetningu,“
sagði Rourke. „Allt hringsnýst í
kringum hvaða fífl er með hverju
fífli, hvaða asni á hvaða barn með
hverjum,“ bætti leikarinn. „Kvik-
myndaiðnaðurinn verður að gera
sér grein fyrir því að fólkið í raun-
veruleikanum á líka börn og að
það er ekkert merkilegt út af fyrir
sig.“
Hæfileika-
leysinu
hampað
MICKEY ROURKE Segir kvikmynda-
iðnaðinn vera heltekinn af slúðri og
barneignum.
Ný plata með rapparanum Tupac
Shakur, Pac´s Life, er væntanleg
20. nóvember. Platan hefur að
geyma lög sem aldrei áður hafa
heyrst með kappanum. Er þetta
áttunda platan sem kemur út með
Tupac eftir að hann var skotinn til
bana árið 1996.
„Tupac skildi eftir sig efni sem
ekki hefði verið hægt að gefa út ef
allir þessir tónlistamenn, upptöku-
stjórar og allir hinir hefðu ekki
lagt sitt að mörkum,“ sagði Afeni
Shakur, móðir rapparans. Á meðal
þeirra sem koma fram á plötunni
eru Snoop Dogg, Ludacris og T.I.
Ný plata
með Tupac
TUPAC Pac´s Life er áttunda plata Tupac
eftir að hann dó.
Gamanleikarinn Will Ferrell hefur
tekið að sér hlutverk í myndinni
Semi-Pro. Fjallar hún um mann
nokkurn sem á og leikur með
körfuboltaliði sem á erfitt upp-
dráttar í bandarísku ABA-deild-
inni.
Woody Harrelson leikur einnig
í myndinni en margir muna eftir
honum úr körfuboltamyndinni
White Men Can´t Jump þar sem
hann lék á móti Wesley Snipes.
Scot Armstrong, sem átti þátt í
handritinu að Old School, skrifaði
einnig handritið að þessari mynd.
Semi-Pro verður fjórða íþrótta-
myndin sem Ferrell leikur í á
skömmum tíma. Fyrst lék hann
fótboltaþjálfara í myndinni Kick-
ing and Screaming, síðan kapp-
akstursmann í Talladeda Nights
og loks listskautakappa í mynd-
inni Blades of Glory, sem enn á
eftir að frumsýna.
Ferrell í Semi-Pro
WILL FERRELL Gamanleikarinn vinsæli
hefur tekið að sér hlutverk í Semi-Pro.
Anna Rakel Róbertsdóttir Glad
mun ferðast með starfsmönnum
KPMG til Frankfurt um næstu
helgi, þar sem hún verður plötu-
snúður á árshátíð endurskoðun-
arfyrirtækisins. „Ég fer út á
föstudegi og kem á sunnudegi,
þetta er algjört „jetset“-djobb,“
sagði Anna Rakel kát í samtali
við Fréttablaðið. „Þetta kom til á
týpískt íslenskan hátt, maður
þekkti mann sem benti á mig.
Það var búið að bóka einhvern
annan til að fara með þeim, en
svo var ég svo heppin að komast
að,“ sagði hún, en alls fara um
tvö hundruð manns frá KPMG til
Frankfurt.
Anna Rakel kom fyrst fram á
sjónarsviðið í líki plötusnúðs
fyrir rúmum tveimur árum, en
fyrir það var hún þekkt fyrir
störf sín sem þáttastjórnandi og
fyrirsæta. „Ég hef spilað bæði
ein og með öðrum á þessum
tíma,“ sagði Anna Rakel, en hún
segist alltaf hafa haft mikinn
áhuga á tónlist. „Leyndi draum-
urinn minn er að vera gítarleik-
ari og rokkstjarna í amerískri
rokkhljómsveit á áttunda ára-
tugnum. Ég er svona skápa-
hippi,“ sagði hún. - sun
Spilar á árshátíð í Frankfurt
ANNA RAKEL VIÐ STÖRF PLÖTU-
SNÚÐARINS Finnst skemmtilegt
að spila með öðrum: „Maður
heldur ekki partí einsamall.“
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, sími: 471 2954
Opið virka daga: 10-18 og laugardaga: 11-16
Glæsilegur tilboðspakki
fylgir hverju Sealy rúmi.
���������������
10-40% afsláttur af
svefnsófum og hvíldarstólum
frá Lane.