Fréttablaðið - 30.10.2006, Side 66

Fréttablaðið - 30.10.2006, Side 66
 30. október 2006 MÁNUDAGUR26 menning@frettabladid.is ! Sýnt í Iðnó Frumsýning Uppselt 28. okt. Laugardagur 4. nóv. Sunnudagur 5. nóv. Föstudagur 10. nóv Laugardagur 11. nóv Laugardagur 18. nóv Sunnudagur 19. nóv Miðasala er opin virka daga frá kl. 11-16 og 2 tímum fyrir sýningar. Sími 5629700 www.idno.is Sýningar kl. 20 ��������������������������������� ��������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� �������������������������� ������������ �������������� �� ����������� ��������������������� ������������������������������������������������� ������������ ���������������������������������������������� ������������������ ������������������� ������������������������������ ����������������������������� ���������������������������� ��������������������������������� ����������������� STÓRA SVIÐIÐ kl. 20:00 Þjóðleikhúsið fyrir alla! Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00. STÓRFENGLEG eftir Peter Quilter 4. sýn. lau. 4/11 örfá sæti laus, 5. sýn. sun. 5/11 örfá sæti laus, 6. sýn. lau. 11/11 örfá sæti laus, 7. sýn. sun. 12/11 örfá sæti laus, 8. sýn. lau. 18/11 örfá sæti laus. SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson. Sun. 5/11 kl. 14:00 uppselt, lau. 11/11 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 12/11 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 18/11 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 19/11 kl. 14:00 uppselt, fös. 29/12 kl. 20:00, lau. 30/12 kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 14:00. PÉTUR GAUTUR eftir Henrik Ibsen. Leikgerð Baltasar Kormákur. Fim. 2/11 örfá sæti laus, fös. 3/11 örfá sæti laus, fim. 9/11 uppselt, fös. 10/11 örfá sæti laus, fim 16/11, fös. 17.11. SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ aðalbyggingu Lindargötumegin, kl. 20:00 SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur. Lau. 4/11 kl. 11:00 uppselt og kl. 12:15 uppselt, sun. 5/11 kl. 11:00 uppselt og kl. 12:15 uppselt, lau. 11/11 kl. 11:00 uppselt og kl. 12:15 uppselt, sun. 12/11 kl. 11:00 uppselt og kl. 12:15 uppselt. LEIKHÚSLOFTIÐ aðalbyggingu, kl. 11:00 og 12:15 UMBREYTING – brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Lau. 4/11 örfá sæti laus, sun. 5/11 kl. 17:00, sun. 12/11 kl. 17:00. KÚLAN Lindargötu 7, kl. 20:00 PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker. Lau. 4/11, sun. 5/11, fös. 10/11 örfá sæti laus. Gjafakort í Þjóðleikhúsið opnar ævintýraheim! Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is JPV útgáfa hefur gengið frá samningi við frönsku útgáfuna Gaïa éditions um útgáfu á bókinni Tröllakirkja eftir Ólaf Gunnarsson. Sagan kom upphaflega út árið 1992, hlaut einróma lof gagnrýnenda og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna það árið. Síðar var gert leikverk eftir sögunni og flutt í Þjóðleikhúsinu. Kvikmyndagerðarmenn hafa haft leyfi til að vinna kvikmynd eftir henni um nokkurt skeið. Ensk útgáfa bókarinnar var tilnefnd til IMPAC verðlaunanna í Dublin. Tröllakirkja var gefin út á þýsku síðastliðið haust og vakti mikla athygli í þýsku pressunni. Í dagblaðinu Frankfurter Allgemeine Zeitung var sagt til dæmis að Ólafur Gunnarsson sé sá íslenskra samtímahöfunda, „sem hefur með einna áhrifamestum hætti tekið upp þráðinn frá honum mikla starfs- bróður sínum, Halldóri Laxness“. Áður hefur Tröllakirkja komið út í Bretlandi og útgáfan gekk nýverið frá samningi við tékkneskan útgefanda. Forlagið Gaïa éditions gefur út fjöldann allan af bókum ár hvert en fyrirtækið var upphaf- lega stofnað í þeim tilgangi til að koma verkum danska verðlaunahöfundinum Jørn Riel á framfæri. Frakkar komast í Tröllakirkju HÖFUNDUR- INN ÓLAFUR GUNNARSSON 17.15 Hinn dáði veðurfræðingur Trausti Jónsson heldur fyrirlestur um veðrið í Öskju, Náttúrufræðahúsi Há- skólans, sem hann nefnir: Veður- farsbreytingar – hækkun hita eða eitthvað meira? Trausti kann öðrum mönnum betur að gera hið sígilda umræðuefni þjóðarinnar að djúpu athugunarefni og skoðar spár manna um veðurfarsbreytingar betur í dag. > Dustaðu rykið af Ljóðabókum Einars Más Guðmundssonar ef þú varst svo heppinn að kaupa þær á sínum tíma af skáldinu á götuhorni: Er nokkur í kórónafötum hér inni?, Sendisveinninn er einmana, og Róbinson Krúsó snýr aftur. Ef ekki þá eru þær allar í safni hans frá 2002 – Ljóð 1980-1995. Ný bók er að koma í versl- anir í vikunni svo gott er að skoða piltinn frá byrjun. Einar er jú fyrst og fremst ljóðskáld. Þess er nú minnst að Elías Mar gaf út sína fyrstu bók fyrir sextíu árum, Eftir örstuttan leik. Hann var 22 ára gamall, borgarbarn, og ekki stóð að honum borg- araskapurinn heldur fólk sem stóð lágt á strái. Hann var sprottinn úr lágstétt bæjar, sem ekki var hægt að kalla borg með nokkru móti, þótt byggð- in hefði breiðst út og þést með braggahverfum erlends setuliðs. Fyrsta skáldsaga Elíasar var gefin út 1946 í par hundruðum ein- taka á forlagi Helgafells í ríki smjörlíkiskóngsins og menningar- forkólfsins Ragnars Jónssonar í Smára. Á næstu fimmtán árum var Elías afkastamikill sagnahöfund- ur: Man ég þig löngum (1949), Vögguvísa (1950) og Sóleyjarsaga í tveimur hlutum 1954 og 1959. Hann beinir í þessum sögum sínum athyglinni að borgarbörn- unum, ungum karlmönnum í reiði- leysi næturlífsins, unglingum í krimmagengjum, og ungri konu og umhverfi hennar í bragga- hverfunum. Og hann er ekki einn: svipuð og keimlík jaðarefni bæjar sem er að breytast í borg koma upp í textum eftir Ástu Sigurðar- dóttur, Jökul Jakobsson, Agnar Þórðarson. Þetta eru tímar óvissu og dauðageigs. Engar af bókum Elíasar eru fáanlegar á markaði í dag: lengst af var hægt að komast yfir seinni hluta Sóleyjarsögu, en hitt allt rétt eins og smásagnasöfnin hans var erfitt að ná í nema á almennings- söfnum. Að vísu var Vögguvísa gefin út í skólaútgáfu 1979 með neðanmálsskýringum á tuttugu ára gömlu slangri Reykjavíkur, en að öðru leyti er skáldskapur Elíasar ófáanlegur á markaði. Og þar með vantar lesendur stóran hlekk í samhengi bókmennta um miðja öldina, rétt eins og það sé hagsmunamál menningarinnar á Íslandi að gleyma, þurrka út það sagnaskáld Reykjavíkur sem gleggst skráði tilurð borgarinnar. Hjálmar Sveinsson útvarps- maður kallar þetta skandal í Les- bók Morgunblaðsins á laugardag. Með því vísar hann til þess vanda sem er að verða æ alvarlegri í íslensku bókmenntalífi: við viljum ekki, kunnum ekki að meta eldri verk höfunda okkar. Svo hefur nýjungagirnin leikið okkur. Oft hafa áhugamenn um bók- menntir hugleitt hvers vegna rödd Elíasar Mar hljóðnaði. Reyndar gaf hann út sögur og ljóð eftir sinn árangursríka tíma við sagnaskáld- skapinn frá tvítugu til þrjátíu og fimm ára aldurs. En hann var búinn að skila sínu. Módernisminn var að hvolfast yfir sagnaskáldin og tískan heimtaði aðra og nýrri spámenn. Sumir hafa kennt um óblíðum viðtökum sem síðari hluti Sóleyj- arsögu hafi fengið hjá gagnrýn- endum. Víst er að skáldskapur Elíasar Mar passaði illa inn í þá mynd sem Viðreisn og stjórn Reykjavíkurborgar vildu hafa uppi um svip höfuðborgarinnar. Elías var vinstrisinnaður og fór ekki dult með kynvitund sína. Hann var jaðarmaður og brátt leið að því að inn á veginn sem hann hafði farið, gengu Steinar Sigur- jónsson, Guðbergur Bergsson, Dagur og Megas. Leiðin kven- skálda var önnur og hópurinn ekki stór og misleitur. Því er hollt að minnast þeirra tímamóta sem Elías Mar lýsti best í sögu borgarinnar og þjóðlífsins. Þess vegna er brýnt að koma skáldsögum hans aftur á prent. Ef einhver útgefandinn þorir. - pbb Gleymt borgarskáld BÓKMENNTIR Elías Mar, frumkvöðull í sögum bæjar að breytast í borg. Al la r n ýj us tu up pl ýs in ga r o g fr ét tir á en sk u á ve fn um re yk ja vi k. co m og í bl að in u Re yk ja vi km ag

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.