Fréttablaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 67
MÁNUDAGUR 30. október 2006
HERRA KOLBERT
Leikfélag Akureyrar
Höfundur: David Gieselmann Þýðing:
Bjarni Jónsson Leikstjórn: Jón Páll
Eyjálfsson Leikmynd og búningar: Íris
Eggertsdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn
Guðmundsson Tónlist og hljóðmynd:
Hallur Ingólfsson Gervi: Ragna Foss-
berg Leikendur: Guðjón Davíð Karls-
son, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Edda
Björg Eyjólfsdóttir, Gísli Pétur Hinriks-
son, Ólafur Steinn Ingunnarson
Það var dimmt yfir í aðfluginu á
laugardag er komið var að Akur-
eyrarflugvelli. Túnin voru með
klakaskán og blautt yfir svo dauf
speglun var á öllu. Það var að
kólna með kvöldinu og fólk hélt
um sig flíkum á hlaupum í skjól.
Það var ekki mikið skjól sem
David Gieselmann bauð persón-
um sínum uppá í lífinu í leiknum
síðar um kvöldið. Þær voru nán-
ast á berangri og vissu ekki hvert
átti að halda í lífinu. Þeim leidd-
ist svo í allsnægtum og hvað er
þá betra en leggjast í smástríðni,
skapa einhver læti, koma óróa af
stað.
Ralf og Sara eiga von á gest-
um heim til sín í hvíta speisið
sem þau kalla heimili. Þar er allt
uppá stælinn og stílinn. Naum-
hyggjan hefur verið ráðandi svo
lengi að híbýli eins og þau sem
Íris Eggertsdóttir býður upp á
er okkur flestum kunn þótt eng-
inn vildi búa í þeim. Þau eru svo
kuldaleg. Ralf er kaosfræðingur
en Sara vinnur í bókhaldsfyrir-
tæki, skilst manni. Þau eru bæði
grönn og smart og hress og
skemmtileg og staðráðin í að
leika sér svolítið með gestina
sem eru að koma: Elínu sem
vinnur með Söru og mann henn-
ar, sem þau hafa aldrei hitt,
Bastían arkitekt.
Og svo koma gestirnir. Þetta
virðist við fyrstu kynni vera
gamansamt verk um nútímafólk
með skarpri skynjun á lífshátt-
um ungs fólks. Það er fyndið og
víða hlegið og krakkarnir fjórir
sem eru á sviðinu mest allan tím-
ann eru geðfelld. Sumir soldið
bráðir og það er sagt meira og
spunnið er skynsamlegt er. Það
er pöntuð pitsa því gestgjafarnir
elda aldrei og verður úr mikið
klúður og skemmtilegt. Aum-
ingja sendillinn fær sitt.
David Gieselmann hefur
skrifað býsna gott leikrit um sið-
leysi okkar tíma, lífsleiða og
blekkingu undir velsæmi og yfir-
borði borgaralegra hátta. Það er
undra skarpt í greiningu sinni á
persónunum, mest þremur,
minna tveimur, og þegar á hólm-
inn er komið er höfundurinn
algerlega miskunnarlaus.
Það var fjári gaman á frum-
sýningunni: hlegið dátt og inni-
lega á mörgum stöðum, misjafn-
lega hátt og lengi en víða kitlaði
textinn og leikurinn svipbrigði
manna. Svo þegar gamanið tók
að kárna sveiflaðist salurinn
milli undrunar, furðu, ofboðs og
hláturs aftur. Á örskoti var
manni hent hornanna á milli.
Það er semsagt ekki allt sem
sýnist hjá hjónunum ungu og
gestum þeirra. Má ekki segja
meira og allt það.
Sviðsetning Jón Páls Eyjólfs-
sonar á þessu nýlega megin-
landsverki er vel unnin í þaula.
Búningar, gervi, lýsing og leik-
mynd – allt er þetta fyrsta flokks
og við hæfi. Tónlistarmillikaflar
eru notaðir af hugviti og keyra
atburðarásina upp.
En það sem gerir þessa kvöld-
stund að eftirminnilegri reynslu,
svo að maður er á háskalegri egg
hláturs og ... dapurleika, er frá-
bær leikur leikaranna fimm sem
þarna eru í miklu návígi allan
tímann. Víst hefur leikstjórinn
sýnt þeim þann sóma að vinna
með þeim í þaula þessar persón-
ur, en kvöldið var sannarlega
þeirra. Þau hafa misjafna
reynslu, persónulegan stíl, sum
jafnvel komin með kæki, en Jón
Páll hefur stillt þau saman í öfl-
uga vél.
Það er fyrst til að telja fram-
sögnina á textanum, hraða og
hæga með fínum blæbrigðum
þar sem margt getur verið á
kreiki í senn. Í annan stað reynir
sýningin mikið á líkamlegt
atgervi og það er í henni eitthvað
hikleysi sem er í senn hættulegt
og lifandi. Í þriðja stað er þetta
ósýnilega sem svo erfitt er að
festa reiður á í leik án hlés í eina
og hálfa klukkustund: hvernig
leikarinn byggir allt saman í
boga frá upphafi til enda: þar
skín Edda Björg Eyjólfsdóttir
skærast enda gefið það hlutverk
sem býður uppá glæstast boga-
smíð í verkinu, hlutverk Elínar.
Skapgerð og athafnir Gísla
Péturs kalla á brattari ris og
meiri stökk í hinum bráða arki-
tekt en hann er afbragð, háska-
legur í ofbeldinu, yndislega
hvekktur þegar á hann er leikið.
Andstæða hans er hinn sið-
blindi kaosfræðingur. Guðjón
Davíð er illa haldinn einkennum
hins félagslega pata: sjarmerandi
og elskulegur og fær í hvaða ill-
virki sem er. Unnur Ösp er
honum hæf sem frú Makbeð –
nema hér er allt gert til leiks.
Ólafur er sendillinn umkomu-
lausi og gerir úr litlu afar athygl-
isverða mannsmynd.
Herra Kolbert er glæsilega
unnið sviðsverk með skínandi
beittan brodd í umbúðum smart-
heita og fáránlegrar skemmtun-
ar. Starfshópurinn allur hefur
skilað frábæru verki og illa er ég
svikinn ef norðanmenn og
nágrannar þyrpast ekki í sam-
komuhúsið til að sjá þessa fínu
vinnu. Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða Frábær skemmtun – alvöru
hrollur. Flott verk, flottur leikur, flott sýning.
JÓLAHLAÐBORÐ
Í MIÐBORGINNI
LÍDÓ VEISLUSALUR
Fyrir þá sem vilja njóta jólastemningarinnar
í miðbænum til fullnustu er Lídó spennandi,
nýr valkostur. Lídó er glæsilegur veislusalur
á horni Ingólfsstrætis og Hallveigarstígs sem
býður ómótstæðilegt jólahlaðborð.
ALLIR FARA GLAÐIR HEIM
Á Lídó gengur þú ekki bara að góðum mat og
þjónustu vísri heldur einnig skemmtiatriðum sem
enginn verður svikinn af. Jóhannes Kristjánsson
eftirherma sér um gamanmál eins og honum
einum er lagið, og Svitabandið heldur uppi fjörinu
af alkunnri snilld.
Dekraðu við þig á aðventunni og pantaðu
jólahlaðborð á Lídó!
Verð 6.700 kr. á mann.
JÓHANNES KRISTJÁNSSON OG SVITABANDIÐ SKEMMTA!
Nánari upplýsingar og borðapantanir í síma 517 5020 www.idusalir.is
Leikir og gleði á
Akureyri
HERRA KOLBERT Í upphafi kvölds þegar allir eru settlegir, sumir vilja vín, aðrir
ekki. GRÍMUR BJARNASON/LA