Fréttablaðið - 30.10.2006, Síða 68
30. október 2006 MÁNUDAGUR28
Á dögunum var opnaður nýr veit-
ingastaður sem ber nafnið Deco.
Veitingastaðurinn er til húsa í
Austurstræti 12 og því nýjasta
viðbótin í þessari götu en stöðugur
uppgangur er í þessu hjarta mið-
borgarinnar. Mikill fjöldi gesta
var staddur á opnuninni og munu
eflaust enn fleiri forvitnir reka
inn nefið á næstu dögum til að
kynna sér matseðil staðarins.
Fjöldi manns fagnaði opnun Deco
EIGENDURNIR Þeir Vésteinn, Einar, Magnús og Geir, eigendur staðarins, voru ánægðir
með útkomuna.
LÉTU FARA VEL UM SIG Jóhann Alberts-
son, Margrét Stefánsdóttir, Magdalena
Kristinsdóttir og Ingi Björn Albertsson
létu fara vel um sig í horni staðarins.
SÆTAR Í SÓFANUM Þær Begga, Hulda
og Rán voru hressar í opnunarteiti Deco.
FLOTTUR Staðurinn er fallegur ásýndar
og var almenn ánægja gesta með hann.
Húsvíski trúbadorinn Helgi
Valur hefur ákveðið að
venda kvæði sínu í kross og
hella sér út í rappið.
„Ég hef mikla ástríðu fyrir hip-
hop-tónlist,“ segir Helgi Valur
sem vinnur nú að sinni fyrstu
rappplötu. Helgi Valur er hvað
þekktastur sem trúbador og vann
meðal annars trúbadorakeppni
Rásar tvö um árið. Hann sannaði
hins vegar svo um munaði á Air-
waves-hátíðinni að hann á auðvelt
með að flakka milli strauma og
stefna. Hingað til hefur hann
komið einn fram en mætti í Þjóð-
leikhúskjallarann á dögunum með
fullskipaða hljómsveit. Framan af
hélt hann sig við léttleikandi popp-
lög en um miðbik tónleikanna vatt
hann kvæði sínu í kross og hóf að
rappa af miklum móð, til dæmis
lagið Gin&Juice eftir Snoop Dogg.
„Þetta er alls ekkert grín,“
áréttar Helgi Valur. „Sumum
kemur það kannski spánskt fyrir
sjónir að ég skuli vera hugljúfur
trúbador eina stundina og harður
rappari þá næstu, en þetta er
afsprengi póstmódernismans. Það
eru ekki lengur nein landamæri
innan tónlistarinnar og allt er
leyfilegt. Ég vil ekki binda mig við
ákveðna kví.“
Helgi Valur byrjaði að hlusta á
hiphop-tónlist fyrir röskum ára-
tug og annað komst ekki að næstu
fjögur árin. Mest dálæti hefur
hann á Tupac Shakur og hefur
meira að segja látið húðflúra nafn
rapparans sáluga á brjóst sitt.
„Tupac var stórkostlegur lista-
maður, ekki síst sem textasmiður,
og hefur oft veitt mér innblástur.“
Helgi vinnur nú að plötunni
The Black Man is God, the White
Man is the Devil en þar er á ferð
trúbadorskotin rappplata. „Ég var
orðinn hundleiður á síbylju á borð
við James Blunt og ákvað að fara
nýjar leiðir. Þannig að á þessari
plötu er ég með gítarinn en í stað
þess að syngja þá rappa ég.“
bergsteinn@frettabladid.is
Helgi Valur gerir rappplötu
HELGI VALUR Er með nafn rapparans
sáluga Tupac Shakur húðflúrað á brjóst
sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Rod Stewart lýsti því yfir í útvarpsviðtali
við Chris Evans að þótt McCartney hefði
tekið inn ólögleg vímuefni væri hann ekki
maður sem lemdi konuna sína. Heather Mills
væri bara lygari og að McCartney ætti ekki
að gefast upp fyrir henni. „Hann á að berjast
fyrir því að endurheimta heiður sinn,“ sagði
Stewart.
Fjöldi fólks hefur kvatt sér hljóðs í þessu
mikla fjölmiðlafári og sagði leikarinn Victor
Spanetti, sem lék meðal
annars í bítlamyndinni A
Hard Day‘s Night, að
Heather hefði markvisst
reynt að komast
uppá milli Pauls
og stjúpdóttur
hans, Heather
Louise, en hún er
dóttir Lindu McCartney
af fyrra hjónabandi. „Ég
held að Heather hafi hald-
ið að Paul myndi láta
undan fyrir rest og hún
yrði við stjórnvölinn en
Paul hefur sitt stolt,“
sagði Victor í samtali við
breska blaðið The Sun.
ROD STEWART Styður sinn
mann Paul McCartney
og segir að hann
sé ekki þannig
manngerð að
hann myndi
lemja konuna
sína.
PAUL MCCARTNEY
Á stuðning flestra í Bretlandi
en hefur sjálfur lítið tjáð sig
um málið fyrir utan yfirlýsingar
í gegnum lögfræðinga sína.
HEATHER MILLS
Að öllum líkindum hataðasta
manneskjan í Bretlandi og
verður forvitnilegt að sjá
hvernig réttarhöldin þróast en
þau hefjast í byrjun næsta árs.
Stjörnuparið Angelina Jolie og
Brad Pitt eru nú að íhuga að ætt-
leiða eitt barn í viðbót og frá Ind-
landi í þetta skiptið. Parið á fyrir
tvö ættleidd börn, Maddox sem er
frá Kambódíu og Zahara frá
Eþíópíu ásamt því að eiga hina
nýfæddu Shiloh saman. Sam-
kvæmt blaðinu Globe Magazine
eru Pitt og Jolie búin að leggja inn
beiðni til að fá að ættleiða barn frá
Indlandi en parið er statt þar á
landi þessa dagana við upptökur á
myndinni „A Mighty Heart“ þar
sem Jolie leikur aðalhlutverkið og
að Pitt framleiðir myndina.
Brad Pitt mun víst hafa óskað
eftir því að fá lítinn indverskan
strák en Angelina segist ekki
getað lofað honum að hún muni
ekki vilja litla stelpu.
Pitt og Jolie
ættleiða á ný
STÓR FJÖLSKYLDA Angelina Jolie og
Brad Pitt eru greinilega miklir barnavinir
því nú ætla þau að ættleiða í þriðja sinn
og mundi það verða fjórða barn þeirra
skötuhjúa.
Nýtt lag með Sálinni hans Jóns
míns, Þú trúir því, er komið í
útvarpsspilun. Lagið er eftir Guð-
mund Jónsson og Stefán Hilmars-
son og syngur Stefán lagið ásamt
Þóru Gísladóttur úr Gospelkór
Reykjavíkur.
Lagið var einmitt frumflutt á
vel heppnuðum tónleikum Sálar-
innar og Gospelkórsins í Laugar-
dalshöll fyrir rúmum mánuði
ásamt öðru nýju lagi.
Verið er að leggja lokahönd á
upptökur frá tónleikunum og
koma þeir út á plötu og mynddiski
um miðjan næsta mánuð.
Sálin með
nýtt lag
SÁLIN Í HÖLLINNI Nýja lagið var frum-
flutt á tónleikum Sálarinnar og Gospel-
kórs Reykjavíkur í Laugardalshöll.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Leikkonan Kate Winslet segist
aldrei líða verr en þegar hún þarf
að koma nakin fram á hvíta tjald-
inu. Winslet þarf að gera það í nýj-
ustu mynd sinni „Little Children“
og segist hún hafa vaknað með
hræðilega tilfinningu daginn sem
taka átti atriðið upp. „Ég er búin
að lofa sjálfri mér að núna ætli ég
ekki að koma nakin fram aftur.“
Kate Winslet hefur þó berað sig
í nokkrum kvikmyndum, meðal
annars Titanic, Holy Smoke og
Heavenly Creatures þannig að það
má eiginlega segja að þetta séu þó
nokkur nýmæli af hálfu Winslet.
Ekki nakin
KATE WINSLET Segist aldrei ætla að
koma nakin fram á hvíta tjaldinu aftur.
Leikkonan unga Lindsay Lohan
hefur nú þegar lent í deilum við
nágranna sína, jafnvel þótt hún sé
ekki einu sinni
flutt inn. Lohan
festi nýlega kaup
á íbúð í Sierra
Towers í Holly-
wood og eru íbúar
blokkarinnar
ekki par ánægðir
með nýjasta með-
lim blokkarinnar.
Einn íbúinn sagði
við bandaríska
slúðurblaðið Life
and Style Magasine að þau vildu
ekki fá Lohan inn í blokkina með
papparazzi ljósmyndara og partí-
stand sitt. „Hennar líferni passar
ekki við aðra íbúa hússins,“ sagði
nágranninn en meðalaldur lúxus-
blokkarinnar er um 60 ár. „Við
vonum að hún hætti bara við að
flytja inn,“ segir íbúinn vongóður.
Strax komin
í vandræði
LINDSAY LOHAN
Stewart styður McCartney