Fréttablaðið - 30.10.2006, Page 71
Strandvörðurinn geðþekki,
David Hasselhoff, stendur í
erfiðum skilnaði við eigin-
konu sína Pamelu Bach og
ásakanirnar ganga á víxl.
Paul McCartney og Heather Mills
eru ekki einu stjörnurnar sem
standa í ströngu um þessar mund-
ir því David Hasselhoff á í mikilli
deilu við fyrrum eiginkonu sína
Pamelu Bach og virðist standa
höllum fæti.
The Sun birti fyrir skömmu
ítarlega úttekt á skilnaðinum.
Samkvæmt Bach á strandvörður-
inn að hafa lamið hana og drukkið
oft svo ótæpilega að hann hafi átt
það til að væta buxurnar sínar. Þá
heldur Bach því fram í málskjöl-
unum að Hasselhoff hafi smitað
sig af kynsjúkdóminum herpes á
brúðkaupsnóttina en þau hafi
ákveðið að halda því fyrir sig.
Ennfremur heldur eiginkonan
fyrrverandi því fram að Hassel-
hoff hafi svívirt sig opinberlega
og meðal annars boðið kirkju-
ræknum félaga sínum að stunda
hópkynlíf með sér og Bach.
Hasselhoff og Bach voru gift í
sextán ár en ef marka má þær 66
síður sem hefur verið lekið til fjöl-
miðla er ljóst að hjónabandið
hefur verið helvíti á jörðu. The
Sun greinir ennfremur frá því að
Hasselhoff hafi platað Bach til að
skrifa undir kaupmála hálftíma
fyrir brúðkaupið, hann hafi lagst
nakinn við hlið dætra þeirra og
uppnefnt þær öllum nöfnum.
„Einu sinni varð ein dóttir okkur
svo hrædd að hún hringdi á lög-
regluna,“ segir Bach en þá hafði
Hasselhoff beitt hana miklu
ofbeldi.
David Hasselhoff hefur stað-
fastlega neitað því að hann eigi við
drykkjuvandamál að stríða þótt
margt bendi vissulega til annars.
Strandverðinum var meðal annars
vísað frá flugvél á Heathrow-flug-
velli og var frekar þvoglumæltur
á GMTV-hátíðinni fyrir skömmu.
Hann sagði meðal annars að Bach
hefði verið full í sextán ára afmæli
yngri dóttur þeirra og hún hringdi
meira en tuttugu sinnum í hann á
dag þrátt fyrir nálgunarbann. Þá
fannst kókaín í blóðinu hjá Pamelu
en Bach vísar öllu á bug og segir
ásakanirnar bera vott um sjúkan
huga Hasselhoff. Lögfræðingur
Davids, Melvin Goldsman, sagði
að hann væri undrandi á þessum
leka til fjölmiðla. „Hann myndi
aldrei segja neitt sem myndi særa
stelpurnar tvær.“
Strandvörður í vandræðum
SKELFILEGT HJÓNABAND Ef marka má 66 síðna málskjöl hefur hjónaband Davids
Hasselhoff og Pamelu Bach verið hreinasta helvíti fyrir Bach. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
George Clooney hefur verið kos-
inn besti fulltrúi karlkynsins af
notendum AskMen.com-vefj-
arins en alls voru fjörutíu og
níu „karlmenni“ nefnd til sög-
unnar. Jay-Z fylgdi fast á
hæla Clooney en skammt
undan voru ofurmillj-
arðamæringurinn
Richard Branson og
fatahönnuðurinn
Tom Ford. Meðal
annarra á listanum
má nefna Bill Clin-
ton, Tiger Woods og
írska rokkdverginn
Bono. Sjónvarpsferða-
langurinn Anthony Bour-
dain lenti í 19. sæti og sagðist hann
ætla að skjóta einhverja hluti,
grilla nokkrar steikur, drekka
smá bjór og horfa á vel skipu-
lagða íþróttagrein í sjónvarp-
inu.
Þátttakendur voru
beðnir um að kjósa þann
mann sem þeir teldu að
yrði besti sendiherra
karlkynsins og var
tekið tillit til greind-
ar, heiðarleika og
persónuleika.
Clooney mesta karlmennið
SENDIHERRA KARLMANNA
George Clooney þótti skara fram úr sem
fyrirmynd annarra karlmanna.
JAY-Z Rappstjarnan
þykir vera mikið
karlmenni.
Höfundum South Park
teiknimyndanna, Trey Par-
ker og Matt Stone, hefur
tekist að gera allt vitlaust
enn eina ferðina. Í næsta
South Park- þætti, sem
sýndur verður í Banda-
ríkjunum á miðvikudag,
kemur ástralski dýravin-
urinn Steve Irwin við sögu,
en hann lést fyrir aðeins
tveimur mánuðum þegar
stingskata stakk hann í
hjartastað.
Í þættinum segir frá
því þegar Kölski heldur grímuball
í helvíti. Meðal gesta er
fólk á borð við Díönu
prinsessu, Adolf Hitler og
síðast en ekki síst Irwin,
sem mætir með stinginn
úr skötunni í hjartastað.
Honum er hins vegar
vísað úr veislunni fyrir að
vera ekki í grímubúningi.
Talsmenn fjölskyldu
Irwins segja að ekkja
hans og börn séu í upp-
námi yfir þessu og að
smekkleysi Stone og
Parkers taki nú yfir allan
þjófabálk.
Irwin í South Park
IRWIN AÐ HÆTTI
SOUTH PARK
Fjölskyldu Irwins er
stórlega misboðið.
[KVIKMYNDIR]
UMFJÖLLUN
Martin Scorsese er í toppformi í
The Departed sem er tvímæla-
laust langbesta glæpamynd sem
ratað hefur í kvikmyndahús í háa
herrans tíð. Hún þolir vel saman-
burð við bestu glæpamyndir leik-
stjórans, Goodfellas, Casino og
Taxi Driver, og er hársbreidd frá
því að standa jafnfætis þeim.
Það klikkar þó ekkert í The
Departed. Sagan er áhugaverð og
spennandi, leikurinn í flestum til-
fellum frábær, tónlistin vel valin
og kvikmyndatakan eins og best
verður á kosið.
Handritið byggir á Hong Kong
myndinni Infernal Affairs og
áhrifin eru augljós og hin sérstaka
austræna byssubófastemning
nýtur sín lygilega vel í vestrænu
dulargervi í Boston þar sem írsk-
og ítalskættaðar löggur og bófar
berast á banaspjót.
Glæpaforinginn Frank Costello
(Jack Nicholson) er prímusmótor
myndarinnar. Atburðarásin hverf-
ist um hann og Nicholson, sem er í
miklum jötunmóð, keyrir mynd-
ina áfram. Hann á fyrstu setning-
ar myndarinnar, grípur áhorfand-
ann strax traustataki og myndin
rígheldur frá fyrsta ramma.
Costello er útsmoginn og
ofbeldisfullur siðblindingi sem
kemur ungum manni úr sínum
röðum, Colin Sullivan (Matt
Damon), fyrir innan sérsveitar
lögreglunnar sem einbeitir sér að
því að koma lögum yfir hann. Á
sama tíma plantar lögreglan sínum
manni, Billy Costigan (Leonardo
DiCaprio), við hlið Costigans.
Báðir hópar komast að því að svik-
ari er meðal þeirra og ungu upp-
ljóstrararnir tveir eiga allt undir
því að afhjúpa hvor annan, þar
sem sá sem fyrr verður flett ofan
af mun ekki þurfa að kemba hær-
urnar.
DiCaprio er að verða óskabarn
Scorseses, rétt eins og Robert De
Niro á árum áður, og það er sláttur
á drengnum í hlutverki löggunnar
sem sogast dýpra og dýpra ofan í
heim glæpa og ofbeldis. Damon
gefur honum lítið eftir sem svik-
arinn innan lögreglunnar en sá
dagfarsprúði piltur verður æ
ógeðfelldari eftir því sem á líður.
Það er einnig völlur á gömlu
brýnunum Martin Sheen og Alec
Baldwin sem standa sig býsna vel.
Þá er Mark Wahlberg hörkugóður
og þrælskemmtilegur í hlutverki
geðstirðrar löggu og breski nagl-
inn Ray Winstone skautar í gegn-
um rullu ofbeldisfauta.
Matreiðsla Scorseses á rudda-
legu ofbeldi og drápum er sem
fyrr til hreinnar fyrirmyndar en
rétt eins og í lífinu sjálfu blossar
ofbeldið upp óvænt og hefur
ógeðslegar afleiðingar. Ofbeldis-
atriðunum er slengt framan í
áhorfendur sem komast ekki hjá
því að þjást með persónunum.
Scorsese hefur alla þræði í
styrkri hendi, fléttar þá saman í
firnasterka og áhrifaríka heild og
skilar fyrsta flokks glæpamynd
sem heldur áhorfandanum við
efnið hverja mínútu og fylgir
honum í það minnsta alla leiðina
heim. Þórarinn Þórarinsson
Fínn ruddakrimmi
THE DEPARTED
LEIKSTJÓRI: MARTIN SCORSESE
AÐALHLUTVERK: JACK NICHOLSON,
LEONARDO DICAPRIO, MATT DAMON, RAY
WINSTONE
Niðurstaða: The Departed flokkast með bestu
myndum Scorseses. Hér klikkar ekkert í firna-
sterkri glæpamynd sem rígheldur frá fyrsta
ramma. Frábær leikur, spennandi saga, svik,
ofbeldi og þjáning. Þetta verður ekki mikið
betra. Toppmynd.
Munið afsláttinn
www.haskolabio.is
Stórmynd sem lætur engan ónsnortin.
Þegar hættan steðjar að ... fórna þeir öllu
Varðveitt líf mitt
fyrir ógnum óvinarins
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
20% AFSLÁTTUR FYFIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG
PLATINÍUM GLITNIS MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK
ARNALDAR INDRIÐASONAR
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
FRÁBÆR GRÍNTEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDNA
Jackass
number two
BESTA MYND MARTINS
SCORSES TIL ÞESSA
�����
V.J.V. TOPP5.IS
����
T.V. KVIKMYNDIR.IS
SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR
HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍM.
Sýnd í í SAMbíóunum Kringlunni
Ekki missa af kraftmestu spennumynd ársins.
Frá leikstjóra “The Fugitive”
UPRUNALEGU PARTÝDÝRIN ERU MÆTT
HAGATORGI • S. 530 1919
/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI/ KEFLAVÍK/ KRINGLUNNI
THE DEPARTED kl. 5 - 7 - 8 - 10:10 B.i. 16
THE DEPARTED VIP kl. 5 - 8
BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal kl. 4 - 6 Leyfð
BARNYARD M/- Ensku tal kl. 4 - 8 - 10:10 Leyfð
THE GUARDIAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12
MATERIAL GIRLS kl. 6 Leyfð
JACKASS NUMBER TWO kl. 3:40-5:50-8-10:10 B.i. 12
ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal kl. 4 Leyfð
THE DEPARTED kl. 5:30-8:30-10 B.i. 16
BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal kl. 6 Leyfð
THE GUARDIAN kl. 10:10 B.i. 12
MATERIAL GIRLS kl. 8 Leyfð
BEERFEST kl. 8 B.i. 12
THE THIEF LORD kl. 6 Leyfð
MÝRIN kl. 8 B.i. 12
GUARDIAN kl. 10:10 B.i. 12
THE TEXAS CHAIN... kl. 10 B.i. 18
DEVIL WEARS PRADA kl. 8 Leyfð
THE DEPARTED kl. 8 B.i. 16
BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal kl. 6 Leyfð
MATERIAL GIRLS kl. 6 Leyfð
THE GUARDIAN kl. 8 B.i. 12
BESTA MYND MARTINS
SCORSES TIL ÞESSA
�����
V.J.V. TOPP5.IS
����
T.V. KVIKMYNDIR.IS
SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR
HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍM.
����� ��� ���� �������������
�������������������
*í bíófyrir2 1 �������������� �����*
MÝRIN kl. 5:50-7-9-10:15 B.i. 12
BÖRN kl. 10:10 B.i.12
HINIR TAPSÁRU kl. 8 B.i.16
HINIR TAPSÁRU
ÖRFÁAR
SÝNINGAR!
THE DEPARTED kl. 6 - 9 B.i. 16
WORLD TRADE CENTER kl. 8 - 10:30 B.i. 12
THE QUEEN kl. 5:50 - 8 B.i. 12