Fréttablaðið - 30.10.2006, Qupperneq 72
32 30. október 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Kvennaknattspyrnan á
langt í land á Íslandi. Það eru fá
góð lið í íslensku deildinni, áhorf-
endur á leikjum eru ekki margir
og yfir höfuð virðist ekki vera
mikil virðing borinn fyrir íslensku
knattspyrnustúlkunum eins og
mátti til að mynda sjá á umgjörð
fyrsta leiks Íslandsmeistara Vals í
sumar.
Knattspyrnusamband Íslands,
KSÍ, hefur stært sig af því að hafa
rétt hlut íslenskra knattspyrnu-
kvenna með því að jafna verð-
launaféð í efstu deildum karla og
kvenna meðal annars.
Svo virðist sem viðleitnin til
jafnréttis nái ekki lengra hjá
knattspyrnuforystunni því mun-
urinn á þeim greiðslum sem lands-
liðsmenn karla og kvenna fá frá
KSÍ er hreint sláandi og það á
tímum þar sem KSÍ græðir millj-
ónir á ári hverju. Hagnaðurinn
fyrir rekstarárið 2005 var 27 millj-
ónir króna. Eigið fé KSÍ var í árs-
lok sama árs 197,4 milljónir
króna.
Strákarnir fá bónus
Leikmenn A-landsliðs karla fá
allir greidda dagpeninga sem er
eingreiðsla fyrir hvern leik. Hún
er 40 þúsund krónur en oftar en
ekki spilar landsliðið tvo leiki í röð
og þá fær hver leikmaður greidd-
ar 80 þúsund krónur í dagpeninga.
Liðið er venjulega saman í 3-4
daga í hverju verkefni.
Karlalandsliðið er einnig með
árangurstengd laun sem eru að
fara í 40-50 þúsund krónur á stigið
í núverandi undankeppni en samn-
ingar eru í gangi á milli leikmanna
og KSÍ.
Sigurleikur mun því gefa hverj-
um landsliðsmanni 120 eða 150
þúsund krónur í vasann sam-
kvæmt nýju samningunum þar
sem þrjú stig fást fyrir sigur. Liðið
hefur verið að fá um 100 þúsund
krónur fyrir sigur til þessa. Þessi
árangurstengdu laun eru greidd
út í lok hverrar keppni. Ekki eru
greiddir bónusar fyrir vináttu-
landsleiki.
Bara dagpeningar erlendis
Leikmenn A-landsliðs kvenna bera
mjög skarðan hlut frá borði í sam-
anburði við strákana. Þær fá, líkt
og strákarnir, greidda dagpeninga
fyrir hvert verkefni en eingöngu
þó fyrir leiki á erlendri grundu.
Dagpeningar kvennalandsliðsins í
Portúgal á dögunum var 100 evrur
eða 8.700 kr. Liðið var úti í fjóra
daga sem gerir 2.175 kr. á dag.
Það var óvenju há upphæð þar
sem stelpurnar fá venjulega ekki
meira en 7.000 kr. fyrir verkefnið.
Annars er misjafnt hvað stelpurn-
ar fá en mest hafa þær fengið
15.000 krónur fyrir verkefni.
Engir dagpeningar eru greiddir
fyrir vináttulandsleiki.
Eins og áður segir greiðir KSÍ
stelpunum ekki krónu fyrir heima-
leikina en vinnutap stúlknanna í
heimaleikjum er það sama enda
gista þær á hóteli dagana fyrir
leikinn, æfa alla daga og geta því
ekki stundað vinnu.
Mikið vinnu- og sumarleyfistap
Flestir leikmenn íslenska kvenna-
landsliðsins spila hér heima en því
er öfugt farið með karlaliðið, þar
eru flestir leikmenn atvinnu-
menn.
Strákarnir sem spila hér heima
þurfa venjulega að taka sumar-
leyfisdaga þegar þeir fara í verk-
efni með landsliðinu og því koma
þessar greiðslur upp í vinnutapið.
Stelpurnar þurfa að gera það
sama en munurinn er sá að þær
fá engar bætur fyrir vinnutapið
og standa oft eftir með fáa sum-
arleyfisdaga. Þess má síðan geta
að leikmenn kvennalandsliðsins
fengu engar greiðslur fyrir þátt-
töku sína í landsliðinu fyrr en
rétt fyrir aldamótin síðustu.
Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, staðfesti í
samtali við Fréttablaðið að bæði
karla- og kvennaliðið fengju
greidda dagpeninga sem og að
kvennaliðið fengi engar árang-
urstengdar greiðslur. Geir vildi
ekki gefa upp hversu háar þessar
greiðslur væru.
„Þetta eru sáralitlar greiðslur.
Upphæð greiðslnanna eru trún-
aðarmál en ég get þó sagt að þetta
eru ekki háar greiðslur. Það er
fyrst og fremst sjálfboðavinna að
spila fyrir landsliðið,“ sagði Geir
við Fréttablaðið.
Engin samninganefnd hjá konun-
um
Þar sem ekki var hægt að fá þess-
ar tölur frá KSÍ hafði Fréttablað-
ið samband við reynda leikmenn
landsliðanna sem sáu enga
ástæðu til að halda tölunum
leyndum.
Konurnar sögðust vera mjög
óánægðar með sitt en viður-
kenndu að hafa ekkert gert til
þess að rétta sinn hlut. Karlarnir
töldu greiðslurnar eðlilegar enda
kæmu þær á móti vinnutapi sem
og sumarleyfisdögum sem væri
fórnað fyrir landsliðið. Þeir
græddu samt ekki á að vera í
landsliðinu.
Það er einnig áhugavert að
karlalandsliðið er með samninga-
nefnd sem í sitja meðal annars
Hermann Hreiðarsson og Jóhann-
es Karl Guðjónsson. Engin slík
nefnd er hjá kvennalandsliðinu.
Þessi ótrúlegi munur á greiðsl-
um til karla og kvenna sést einna
best ef við setjum upp einfalt
dæmi:
Það er oft svo að landsliðin
spila tvo leiki í röð. Segjum að
bæði karla- og kvennaliðið vinni
báða sína leiki.
Karlarnir labba þá heim með
380 þúsund krónur í vasanum en
konurnar geta í besta falli fengið
um 17 þúsund krónur, miðað við
síðustu greiðslu, og þá yrðu báðir
leikir kvennalandsliðsins að vera
á útivelli. Annars fengju þær
bara um 8.000 kr.
Strákarnir í landsliðinu fá greitt
en stelpurnar greiða með sér
Himinn og haf eru á milli þeirra greiðslna sem landsliðsmenn karla og kvenna í knattspyrnu fá frá KSÍ. Á
meðan laun landsliðskarlanna hækka fá konurnar tæpar níu þúsund krónur á landsliðsverkefni og ekki
krónu fyrir heimaleiki þótt vinnutapið sé það sama og í útileikjunum.
ENGIN HAMINGJA HJÁ LANDSLIÐSSTELPUNUM Leikmenn kvennalandsliðsins fá mjög takmarkaðar greiðslur frá KSÍ fyrir þátttöku
sína í landsliðinu þótt þær fórni launum og sumarleyfisdögum. „Munurinn er að við erum ekki með typpi,“ sagði ein landsliðs-
konan í samtali við Fréttablaðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TÖLURNAR
Dagpeningar vegna heimaleiks:
Karlar: 40.000 kr.
Konur: 0 kr.
Dagpeningar vegna útileiks:
Karlar: 40.000 kr.
Konur: 8700 kr.
Bónusar á stig:
Karlar: 40-50.000 kr.
Konur: 0 kr.
Hæsta mögulega greiðsla í tveggja
leikja hrinu:
Karlar: 380.000 kr.
Konur: 17.400 kr.
ÍÞRÓTTALJÓS
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
henry@frettabladid.is
Gylfi Einarsson, knattspyrnumaður hjá Leeds á Englandi, hefur
ekkert getað leikið með liðinu á tímabilinu vegna meiðsla, en Leeds
kom sér úr fallsæti á laugardaginn með góðum sigri á Southend, 2-
0. Leeds réð á dögunum Dennis Wise í starf framkvæmdastjóra, en
Wise átti skrautlegan feril sem leikmaður á sínum tíma.
„Ég fór í aðgerð fyrir sjö vikum síðan, á mjöðminni á mér.
Það þurfti að fjarlægja eitthvert brjósk sem var að angra mig
og ég er bara búinn að vera í endurhæfingu síðan. Það geng-
ur bara vel. Læknarnir sögðu að ég yrði frá í þrjá mánuði en
ég er jafnvel að búast við að ég geti farið að æfa í næstu
viku,“ sagði Gylfi í samtali við Fréttablaðið í gær.
Eins og áður sagði er Dennis Wise nýráðinn fram-
kvæmdastjóri hjá Leeds, en hann tók við því starfi í
síðustu viku. Wise hefur lengi haft það orð á sér að
vera léttgeggjaður. „Ég er búinn að hitta hann aðeins og
mér líst bara vel á hann. Maður hefur heyrt að hann sé
léttur á því en ég held að maður þurfi að vera það til að
ná einhverjum árangri. En það er allavega almenn
ánægja með hann það sem af er,“ sagði Gylfi.
Leeds hefur farið illa af stað í deildinni en þetta forn-
fræga félag er sem stendur í fjórða neðsta sæti deildarinnar.
„Það þurfti að fá einhvern svona nagla þarna inn. Nauð-
synlegt að fá nýtt blóð til að rífa þetta aðeins upp.
Það var hræðilegt að horfa upp á gengið á liðinu
áður en hann tók við en auðvitað gerist allt í einu,
það þarf að gefa honum tíma til að ná árangri.“
„Það verður bara að koma í ljós seinna hvort
hann sé eins ruglaður og sögur segja en það er
bara vonandi að maður fái að sjá eitthvað af
þessu sem maður er búinn að lesa um hann
frá því að maður var polli. Wise var auðvitað í
þessu fræga „crazy gang“ hjá Wimbledon, ásamt
Vinny Jones og félögum. Hann hlýtur að luma á
einhverju, en hann hefur samt væntanlega róast eitthvað
með árunum,“ sagði Gylfi léttur í bragði.
„Við unnum í gær og náðum okkur þar með úr fallsæti.
Ég held að leiðin liggi bara upp á við hér eftir.“
GYLFI EINARSSON: FÓR Í AÐGERÐ FYRIR UM SJÖ VIKUM EN HANN FÉKK NÝJAN STJÓRA Á DÖGUNUM TIL LEEDS:
Get vonandi byrjað að æfa í næstu viku
GOLF Heimsmeistaramót áhuga-
manna í golfi fór fram í Suður-
Afríku síðustu daga og þar stóð
íslenska karlalandsliðið sig
nokkuð vel og hafnaði í 35. sæti af
70.
Magnús Lárusson lék best á
lokahringnum eða á einu höggi
undir pari en Ísland lék loka-
hringinn á 3 höggum yfir pari.
Sigmundur Einar Másson lék á 4
yfir pari og Stefán Már Stefáns-
son kom í hús á 5 yfir pari.
Stefán Már varð þó efstur
Íslendinganna í einstaklings-
keppninni en hann hafnaði í 79.
sæti á 8 höggum yfir pari.
Magnús Lárusson varð að gera
sér sæti númer 101 að góðu og
Sigmundur Einar kom skammt á
eftir í 107. sæti.
Holland sigraði á mótinu,
Kanada varð í öðru sæti og
Bandaríkjamenn þriðju. - hbg
HM í golfi:
Ísland í 35. sæti
MAGNÚS LÁRUSSON Lék vel á loka-
hringnum.
TENNIS Tenniskappinn Arnar
Sigurðsson fer víða þessa dagana
og keppir grimmt. Hann tók um
helgina þátt í móti sem haldið var
í Monterrey í Mexíkó. Þar gerði
Arnar fína hluti og komst í 16 liða
úrslit í einliðaleik.
Arnar sigraði aftur á móti
tvíliðaleikinn ásamt Bretanum
Simon Childs. - hbg
Arnar Sigurðsson:
Datt út í 16 liða
úrslitum
ARNAR SIGURÐSSON Gerir það gott
þessa dagana.
BADMINTON Íslandsmeistarinn
Ragna Ingólfsdóttir stóð sig mjög
vel á alþjóðlega ungverska
meistaramótinu sem haldið var í
Búdapest.
Þar varð Ragna önnur en hún
tapaði í úrslitum fyrir stúlku frá
Japan, Chie Umezu, 9-21 og 15-21.
- hbg
Ragna Ingólfsdóttir:
Önnur á móti í
Búdapest
> Ásthildur varð þriðja markahæst
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir varð
þriðja markahæst í sænsku úrvalsdeildinni sem lauk í
gær. Ásthildur skoraði 19 mörk en Lotta Schelin varð
markahæst með 21 mark og hin brasilíska Marta varð
næstmarkahæst með 20 mörk.
Malmö, lið Ásthildar og
Dóru Stefánsdóttur, steinlá
í lokaumferðinni, 4-0, fyrir
meisturum Umea. Malmö
varð í fjórða sæti í deildinni
og Mallbacken, lið Erlu
Steinu Arnardóttur, varð
neðst og féll úr deildinni.