Fréttablaðið - 30.10.2006, Page 75

Fréttablaðið - 30.10.2006, Page 75
MÁNUDAGUR 30. október 2006 35 KÖRFUBOLTI Forseti Boston Celtics og fyrrum þjálfari liðsins, Red Auerbach, lést á laugardaginn, 89 ára að aldri. Auerbach vann alls níu meistaratitla á sínum þjálfaraferli hjá Boston og þar af átta titla í röð á sjötta og sjöunda áratugnum. Auerbach þótti harður í horn að taka og var mikill leiðtogi en hann leiddi Boston-liðið tíu sinnum til sigurs í austurdeildinni á þeim sextán árum sem hann var við stjórnvölinn. Auerbach var einungis 48 ára þegar hann hætti að þjálfa. - dsd Fyrrum þjálfari Boston: Red Auerbach er látinn AUERBACH Var alltaf með vindil. FÓTBOLTI Rafa Benitez, fram- kvæmdastjóri Liverpool, hefur neitað þeim sögusögnum að Steven Gerrard, fyrirliði liðsins, sé óánægður og vilji fara frá félaginu. „Það er alveg á hreinu að ég er ekki að að fara að selja fyrirlið- ann minn. Það kemur mér alltaf á óvart að lesa eitthvað sem er ekki satt. Ég hef verið i viðræðum við Gerrard og mér finnst hann vera mjög einbeittur og staðráðinn í að standa sig vel fyrir félagið,“ sagði Benitez en Gerrard hefur verið orðaður við Real Madrid. - dsd Benitez um Gerrard: Okkur kemur vel saman STEVEN GERRARD Ekki óánægður. NORDIC PHOTOS/GETTY FIMLEIKAR Norðurlandamót drengja, 13-16 ára, var haldið í Stokkhólmi um helgina og þar fór Ármenningurinn Bjarki Ásgeirs- son mikinn en hann vann yfir- burðasigur á bogahesti en Bjarki sigraði í sömu grein fyrir tveim árum. Hann hafnaði síðan í öðru sæti í fjölþraut. Bjarki keppti til úrslita á öllum sex áhöldunum og vann alls til fimm verðlauna. Hann varð annar á gólfi, í hringjum, á tvíslá og í stökki. Íslenska drengjalandsliðið varð síðan í fjórða sæti. - hbg NM í fimleikum: Bjarki Norður- landameistari FÓTBOLTI Hinn skrautlegi eigandi skoska liðsins Hearts, Vladimir Romanov, hótaði leikmönnum liðsins því að þeir yrðu seldir til Dunfermline eða álíka liða ef þeir myndu ekki sigra Dunfermline síðasta laugardag. Hótunin virkaði ekki því leiknum lyktaði með jafntefli, 1-1, en ekkert hefur heyrst frá Romanov og enginn leikmaður er kominn á sölulista. - hbg Leikmenn Hearts: Fóru ekki á sölulista HANDBOLTI Valur endurheimti í gær efsta sætið í DHL-deild kvenna í handbolta þegar liðið vann nokkuð öruggan sigur á Akureyri, 27-20. Það var þó enginn glæsibragur yfir þessum sigri Valsstúlkna sem virkuðu hálf kærulausar í leik sínum en Akur- eyri barðist vel allan leikinn. Eini leikmaður Vals sem spilaði á eðlilegri getu var Hildigunnur Einarsdóttir sem skoraði tíu mörk í jafnmörgum tilraunum. Leikurinn fór rólega af stað en þegar sex mínútur voru liðnar af leiknum var staðan 0-1, gestunum í vil. Valsstúlkur tóku þó fljótt yfirhöndina og náðu mest fjögurra marka forskoti í fyrri hálfleik, en þeim gekk þó illa að hrista bar- áttuglaðar Akureyrarstúlkur af sér. Akureyri náði að minnka mun- inn í tvö mörk áður en flautað var til hálfleiks og staðan í hálfleik var 11-9 fyrir Val. Markverðir beggja liða voru að spila vel í fyrri hálfleiknum en það verður að játast að Valsstúlk- ur fóru oft illa að ráði sínu og klúðruðu ófáum hraðaupphlaup- um. Valur jók forystu sína jafnt og þétt í síðari hálfleik en það verður ekki tekið af Akureyri að baráttan var til staðar í liðinu. Um miðjan hálfleikinn var Valur komið með öruggt forskot og eingöngu spurn- ing um hve stór sigurinn yrði. Valsstúlkur náðu mest tíu marka forskoti en Akureyri náði þó að klóra aðeins í bakkann í lokin og lokatölur urðu 27-20 fyrir heimamenn. Hildigunnur Einarsdóttir var langbest í liði Vals og skoraði tíu mörk í tíu skotum. Hjá Akureyri var Ester Óskarsdóttir langat- kvæðamest en hún skoraði rúm- lega helming marka liðsins, eða ellefu talsins. Einnig var Sigur- björg Hjartardóttir að verja vel í markinu hjá Akureyri. Þrátt fyrir sigurinn var Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, ekki sáttur við spilamennsku liðsins. „Þetta eru bara tvö stig unnin og ekkert umfram það. Við vorum bara að spila illa og hugarfarið var lélegt. Við erum klárlega með betri hóp en Akureyri, án þess að ég sé að gera lítið úr þeim, en því miður þá mættum við ekki vel undirbúin fyrir leikinn. Við vorum vissulega með yfirhöndina allan tímann en engu að síður er þetta langt frá því að vera ásættanleg frammistaða,“ sagði Ágúst eftir leikinn en hann bætti því við að hann hefði ekki stórar áhyggjur af þessu slæma hugarfari sem hann talaði um. „Fyrri hálfleikurinn var ágæt- ur hjá okkur en við byrjum síðari hálfleikinn ekki nógu vel. Sofnuð- um á verðinum og við höfum ekki efni á því að gera það. Við erum ekki með sterkasta liðið í deild- inni, okkur vantar meiri breidd í hópinn. Stór hluti liðsins er ungl- ingar. Við bara náðum ekki að nýta okkur mistök Valsliðsins í síðari hálfleik en það sem okkur vantar fyrst og fremst er reynsla,“ sagði Haddur Stefánsson, þjálfari Akur- eyrar, en félagið er enn án sigurs eftir sjö fyrstu leikina. - dsd Valur komst í gær í efsta sæti DHL-deildar kvenna með sigri á Akureyri: Hildigunnur átti stórleik fyrir Val OG ÞAÐ VAR MARK Hildigunnur er hér í þann mund að skora eitt af tíu mörkum sínum í leiknum í gær, en hún var nýverið valinn í landsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.