Tíminn - 03.01.1979, Blaðsíða 2
2
Miövikudagur 3. janúar 1979
Stjórnarmyndimarsamningur keisarans og Baktiar:
Baktiar myndar stj órn
og keisarinn fer úr landi
Teheran/Reuter — Stjórnarmyndunartilraunir
Shapur Baktiar, fyrrum stjórnarandstöðuleiðtoga, i
íran ganga að sögn ágætlega en litlar vonir eru
sagðar á þvi að ástandið i landinu batni — að ráði þó
honum takist að koma saman nýrri stjórn.
Óeirðir voru viða i Iran i gær en
þó hvergi eins miklar og I
iönaðarborginni Qazvin þar sem
óstaðfestar fréttir herma að milli
50 og 60 manns hafi falliö i götu-
bardögum i gær. Sömu heimildir
herma að allt að 100 manns hafi
fallið i þessari sömu borg i fyrra-
daj.
Ýmis vestræn lönd svo sem
Bandarikin, Kanada, Belgia og
Nýja Sjáland skipuleggja nú sér-
stakar flugferðir til Iran til að
koma úr landi þeim borgurum
þessara rikja sem vilja yfirgefa
iran.
Ráöuneytistalsmenn I Banda-
rikjunum upplýstu i gær að um
fjögur þúsund Bandarikjamanna,
einkum starfsmenn stjórnarinnar
bandarisku en einnig ferðamenn
og bandariskir innflytjendur I
Iran, mundu yfirgefa Iran á
næstu dögum með tilstyrk Banda-
rikjanna.
Verkfallsmenn á flugvöllum og
flugstjórn i Iran hafa fallist á að
hleypa þessum vélum i gegn og
afgreiða þær en setja það skilyröi
að þær komi tómar og sinni ekki
öðrum erindum en þeim að sækja
þegna annarra rikja I Iran.
Eins og áður segir reynir
Shapur Bakitar nú stjórnarmynd-
Fer keisarinn úr landi?
un i Iran og hefur velgengni hans
vakið bjartsýni hjá sumum en
óstaðfestar fréttir herma að sam-
kvæmt samningi Baktiar við
Iranskeisara verði hinn siðar-
nefndi aö fara úr landi um
stundarsakir innan tiðar til að
auðvelda Baktiar að koma á ró I
landinu. Haft var eftir keisaran-
um I gær að hann yrði þvi
fegnastur að komast i fri. óstað-
Framhald á bls. 19.
Hess fái
að deyja
frjáls
„Kuldaboli” í Evrópu
Neytir blóðs
sér til
London/Reuter — Mikið vetrarriki hefur verið
meginlandi Evrópu og Bretlandseyjum að undan-
förnu og dauðsföll af þess völdum þegar orðin fjöl-
mörg.
A Bretlandseyjum, Frakklandi og 'v-Þýskalandi höfðu i gær 23
látið lifið á einn eða annan hátt af
völdum vetrarveðranna og þar af
fimm á N-Þýskalandi af völdum
eldingar.
Vegir hafa mjög viða teppst
Framhald á bls. 19.
gamans
Frankfurt/Reuter — Tuttugu
og tveggja ára gamall v-
þýskur námsmaöur sem
handtekinn var fyrir skömmu
vegna ásakana um aö hann
gæfi skólastúlkum inn eitur-
lyf, viöurkenndi i gær aö sögn
lögreglunnar að hann heföi
þaö að tómstundagamni að
drekka maunsblóð.
Á heimili hans fundust
fjórar flöskur meö mannsblóði
i, sláturhnifur, sprautur og
ýmsar eiturlyfjategundir.
Hefur hann siðan viðurkennt
að neyta sér til gamans blóðs
úr sjálfum sér og vinum
sinum.
Nýsjálensk herþota
fljúgandi furðuhluta
Wellington/Reuter — Miklum sögum hefur undanfarna
daga farið af fIjúgandi furðuhlutum á Nýja-Sjálandi og
eru það ekki síst lögreglumenn og f lugumferðarstjórar
sem tilkynnt hafa um slíka hluti en nýsjálenska flug-
hernum hafa síðastliðna tvo daga borist 20 slíkar til-
kynningar.
1 gær var svo gripiö til þess ráðs
aö senda eina flugvél hersins I leit
aö þessum furðuhlutum en eftir
nokkurra klukkustunda leit lenti
hún að nýju án þess að hafa
fundið nokkuð grunsamlegt.
Visindamenn hafa sagt að lang-
liklegast sé aö fólk sjái Venus og
ekki fljúgandi furðuhluti en birtu-
stig Venusar er nú með mesta
móti.
Flugumferöarstjórar á Nýja
leitaði
Sjálandi hafa þó þvertekið fyrir
að þeir rugli saman Venusi og
fljúgandi furðuhlutum eöa þá
ljósbjarma frá skordýrum eins og
öörum visindamönnum þykir lik-
legast. Segja flugumferðarstjór-
arnir að þeir hafi bæöi séö Venus
á lofti og fljúgandi furðuhlut og að
minnsta kosti sé ekki við þvi að
búast að Venus komi fram á
radar hjá þeim eins og umrætt
óþekkt fyrirbæri geröi. Visinda-
menn svara þvi aftur til aö radar-
truflanir séu allþekkt fyrirbæri.
Það er ekkert útlit fyrir að mál
fljúgandi furöuhlutanna leysist á
næstunni.
Þinginu slitið og tveir
menn myrtir á Spáni
— þingkosningar fara fram 1. mars
Madrid/Reuter — Spænskur lögreglumaður og major I
hernum voru fyrstu fórnarlömb hryðjuverkamanna
Baska á Spáni á nýhöfnu ári.
Majorinn var skotinn niöur með
vélbyssu er hann var að stiga inn I
bil sinn en lögreglumaðurinn lést
er hann var aö reyna aö gera
sprengju óvirka og hún sprakk.
Samkvæmt upplýsingum yfir-
valda á Spáni létust alls 91 á ný-
liönu ári á Spáni af völdum póli-.
tiskra óeiröa og hryðjuverka.
Þá tilkynnti Adolfo Suarez for-
sætisráöherra fyrir helgina aö
boöað yrði til kosninga i landinu
og var þingi landsins slitið i gær
en það haföi samið hina nýju
stjórnarskrá iandsins. Þingkosn-
ingar veröa svo haldnar 1. mars
næstkomandi og sveita- og
borgarstjórnarkosningar hinn 3.
april.
ERLENDAR FRETTIR
Umsjón:
Kjartan Jónasson
Suarez hefur nú rofiö þing
V-Berlin/'Reuter — Fyrrver-
andi umsjónarmaður Spand-
aufangelsisins i V-Berlin sendi
Sovétieiðtoganum Brésnjef nú
um áramótin skeyti þar sem
hann skoraöi á hann að veita
samþykki sitt og lands sins til
þess að Rudolf Hess staðgeng-
ill Hitlers á sinum tfma verði
látinn laus úr Spandaufang-
elsinu þar sem hann hefur
setið inni slöan 1947 og einn
fanga i 600 klefa fangelsi I 12
ár nú.
Sovétmenn, Bandarikin,
Bretland og Frakkland hafa
yfirumsjón með Spandaufang-
elsinu sameiginlega og hafa
Sovétmenn nú um nokkurn
tima verið þeirrar skoðunar
að framfylgja skuli lifstiðar-
fangelsisdómi Hess en hin rik-
in þrjú hafa viljað sleppa hon-
um lausum sakir þess hversu
gamall hann er orðinn, og I
fyrrnefndu skeyti umsjónar-
mannsins sagði: ,,gefiö þess-
um garnla manni sem enga
pólitiska þýðingu hefur lengur
kost á þvi að deyja frjáls”.
Hess hefur nýlega verið flutt-
ur úr fangelsinu á spitala
vegna minni háttar hjarta-
áfalls.
Kambódía
kærir
Vietnam og
Sovét fyrir
Sameinuöu
þjóðunum
Sameinuðu þjóöirnar/Reuter
— Aöstoðarforsætisráðherra
og utanrikisráöherra
Kambodiu sendu I gær
öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna skeyti þar sem aöstoöar
samtakanna var óskað til að
stöðva bardaga milli
Kambodiu og Vietnam og voru
bæöi Sovétrlkin og Vietnam i
skeytinu sökuð um grófa
árásar- og útþenslustefnu.
I skeytum ráðherranna var
fullyrt að bæði Vietnamar og
Sovétmenn væru potturinn og
pannan I innrásum I
Kambódiu og innanlands-
óeirðum sem kambódiskum
skæruliðum hafa verið
kenndar af Vietnömum. Var
meðal annars fullyrt aö MIG-
þotur sem notaöar hefðu verið
til árása á landið væri stjórnað
af sovéskum flugmönnum.