Tíminn - 18.02.1979, Síða 22
22
Sunnudagur 18. febrúar 1979
Hrynþursahark á
Norðurlöndunum
— við góðar undirtektír þarlendra
Mick Jagger — Abþrengdur úr öllum
kringum gullkáifinn rétt ný haf inn.
áttum, enda
dansinn
Eins og aikunna er þá héldu
Þursaflokkurinn og Islenski
dansflokkurinn nýlega utan til
Norðurlandanna, þar sem
flokkarnir buðu frændum vor-
um upp á ekta Islenska list af
bestu gerð.
Komu flokkarnir yfirleitt
fram saman, en þó voru Þurs-
arnir meö nokkra sjálfstæða
tónleika og tókust þeir mjög vel
sem og ferðin i heild.
Að sögn Asgeirs óskarssonar
trommuleikara Þursanna voru
undirtektir áhorfenda yfirieitt
með miklum ágætum og virtust
þeir vel kunna að meta hina
„ramm fsiensku og þrælmögn-
uöu” tónlist sem boöið var upp
á.
Sagöi Asgeir að þessi ferð
hefði sannað þaö, að islenskar
hijómsveitir gætu vei ef viljinn
væri fyrir hendi lagt land undir
fót og haldiö utan til hljómleika-
halds, a.m.k. til Norðurland-
anna án þess að eiga á hættu
fjárhagslegt hrun, en peninga-
hliðin hefur gjarnan viljaö vefj-
ast fyrir mönnum þegar rætt
hefur verið um ferðir sem
þessa. —ESE
heilsu.
Nútimamynd Trygj
Fjallhress
eftir fjórar vikur
Þaö er ekki hægt aö segja
annað en aö hann Mickie Gee,
plötusnúðurinn breski sem
þessa dagana keppir að þvi að
setja nýtt heimsmet I maraþon
plötusnúningi, hafi veriö fjall-
hress er biaöamenn Nútimans
litu inn hjá honum i vikunni sem
leiö. Ekki voru nokkur þreytu-
merki sjáanleg á kappanum,
sem á morgun hefur verið fjórar
vikur samfleytt við fóninn, og ef
honum heiisast eitthvað likt á
næstunni þá er heimsmetiö
bráðfeigt.
Eins og kunnugt er þá stendur
Gee ekki aðeins i þessari þol-
raun til þess að auglýsa sig,
heldur safnar hann um leið pen-
ingum I sjóð tii styrktar
„Gleymdum börnum” og er hér
með athygli á þvi vakin að enn
er tækifæri til þess að láta fé af
hendi rakna tii styrktar góðu
málefni.
—ESE
Köld eru
kvennaráð
— Mick Jagger lögsóttur
úr öllum áttum
Sjaidan er ein báran stök og
köld eru kvennaráö.eru máltæki
sem sannast hefur illilega á hin-
um 34 ára gamla breska popp-
söngvara Mick Jagger.
Eins og greint var frá i Nú-
timanum fyrir hálfum mánuði,
þá komst dómstóll einn I Banda-
rikjunum aö þvf fyrir skömmu
aö Jagger væri faöir aö barni
söngkonunnar Marsha Hunt, en
það er nú átta ára. Var Jagger
að sjálfsögðu gert aö greiöa
himinhá meðlög langt aftur i
timann, auk þess sem aö hann
mun greiöa með barninu þar til
að það nær 21 árs aldri.
En það er ekki nóg með það,
þvi að ekki var þessi dómur fyrr
fallinn, en Bianca Jagger, sem
fékk lögskilnað frá söngvaran-
um i siöustu viku, fór fram á að
fá eins og heiminginn af þeim 25
milljónum doilara sem hún seg-
ir að Jagger hafi þénað frá þvi
að þau giftu sig áriö 1971.
Bianca lét ekki þar við búið
sitja heldur fór hún einnig fram
á eins og 10 þúsund dollara á
mánuði i „spanderi”, 4 þúsund
dollara á mánuði fyrir dóttur
þeirra, Jade og 75 þúsund doll-
ara til viöbótar.
Stefndi Bianca Mick Jagger
fyrir dómstólunum og kraföist
þessara fjármuna sem hún taldi
að henni bæru með réttu.
Er sfðast fréttist var búið að
fresta réttarhöldum I málinu en
þau Bianca og Mick Jagger sest
við samningaboröiö ásamt lög-
fræðingum sinum — og ekki er
að efa að Bianca verður búin að
mata krókinn laglega er upp
veröur staðið, hvenær svo sem
það veröur. —ESE
Fiðlu-
konsert
Mik Kaminski, fiöluleikari
Eletric Light Orchestra hefur
nú stofnað sina eigin hljóm-
sveit sem hann nefnir
Violinski.
Auk Kaminski eru i hijóm-
sveitinni þeir John Hodgson,
fyrrverandi trommuleikari
meö Rick Wakeman, John
Marcangelo, sem sér um á-
slátt og hljómborð, Baz
Dunnery, gitar og söngur, og
Robert Brady, gitar og söng-
ur, en hann hefur áöur leikið
meö hljómsveitunum Fairport
Convention og Wizzard.
Þó aö Kaminski hafi þarna
stofnaö sina eigin hljómsveit
er ekki þar meö sagt aö hann
sé hættur I ELO, þvert á móti
mun hann halda þar áfram
likt og aðrir ELO meölimir,
sem á næstunni munu hver um
sig hljóðrita lög scm þeir hafa
samið sjáifir.
Allir þeir, sem eru með
Kaminski i nýju hljómsveit-
inni, hafa unnið meö honum
meira og minna s.l. tvö ár.
Umsjón:
Eiríkur S. Eiríksson
UTIMi'"
VERULEIKI
ÞOKKABÚTAR
Hljómplötuvertíöin
anno 1979 er hafin, þvi aö
nú rétt fyrir helgina sendi
Þokkabótarf lokkurinn
frá sér nýja hljómplötu,
hina fjórðu frá upphafi
og nefnist hún „I veru-
leik".
Útgefandi plötunnar er Fálk-
inn h.f. og viröist sem svo að
þeim Fálkamönnum sé það ljúft
að vera fyrstir af stað, þvi að i
fyrra sendi Fálkinn einmitt frá
sér fyrstu plötu ársins „A
ströndinni” með Herbert Guö-
mundssyni.
Svo að vikið sé nánar að
Þokkabót þá skipa nú hljóm-
sveitina þeir Ingólfur Steinsson,
Halldór Gunnarsson og Lárus
Grimsson og nutu þeir við gerð
plötunnar dyggrar aðstoðar
ýmissra þekktra hljóðfæraleik-
ara, sérstaklega þeirra Asgeirs
Óskarssonar og Haraldar
Þorsteinssonar, sem lögðu hönd
á plóg I öllum lögunum.
A fundi sem haidinn var I til-
efni þessarar útgáfu kom það
fram, að Þokkabót hyggst
fylgja plötunni eftir mcö tón-
leikahaldi á skemmtistöðum og
i skólum landsins á næstunni og
væntanlega út marsmánuö.
Með Þokkabót i förum á þess-
um uppákomum verður I þokka-
bót hljómsveitin Eik.sem nýlega
hefur veriö endurreist og mun
Eikin flytja nýtt frumsamið efni
við þessi tækifæri. Hljómsveit-
ina skipa nú Lárus Grimsson,
sem einnig er I Þokkabót,
Haraldur Þorsteinsson, Sigurö-
ur Karlsson, Björgvin Glslason
og Pétur Hjaltested.
—ESE
Hljómsveitirnar Eik og Þokka-
bót — (Talið frá neðstu tröppu
og upp) Björgvin Glslason,
Halldór Gunnarsson, Lárus
Grimsson, Haraldur Þorsteins-
son, Ingólfur Steinsson (t.v.),
Pétur Hjaltested og Siguröur
Karlsson
Nútimamynd Tryggvi