Tíminn - 18.02.1979, Side 25
Sunnudagur 18. febrúar 1979
25
Ingólfur Davíösson:
Oft er spurt um hvenær fyrst
hafi verið ræktuð gluggablóm á
Islandi og einnig hvenær byrjað
hafi veriö aö rækta laukblóm,
t.d. túlipana, innanhúss að
vetrarlagi. Ekki kann undir-
ritaður viöunandi skil á þessu,
en mun þó leitast viö að rekja
málið að nokkru. Skýringar og
viðbætur þakksamlega þegnar.
Þekking Islendinga á ræktun
inniblóma mun aðallega komin
frá Danmörku og Noregi, bæði
með námsmönnum og þó aðal-
lega með útlendum f jölskyldum
sem settust hér að. Islenskar
heimildir eru fáorðar um þetta
efni áfyrri öldum, aðþvi ég best
veit, og liklega meiri fræðslu að
fá i ferðabókum útlendinga.
Þannig ritar t.d. Dufferin
lávarður, árið 1856, að potta-
blóm blasi við i gluggum i
Reykjavik. Einhvers staðar
hefur undirritaður lesið að
pottablóm hafi verið um borð i
skipi frá Flatey á öldinni sem
leið. Um aldamótin 1900 eru
blóm ræktuð á allmörgum
heimilum bæði i kaupstöðum og
til sveita. Árið 1880 skrifar
Schierbeck landlæknir i ársrit
Hins islenska garðyrkjufélags:
„Þaö er mjög ánægjulegt að lita
ræktuö blóm, hvort heldur i
garðinum eða glugganum hjá
fólki, og gleðiefnið er annaö og
meira en ilmur blómanna, þvi
aö ræktun og aðhlynning þeirra
ber vott um rækt við heimilið og
einhverja viðleitni aö gera þaö
þægilegt og skemmtilegt. Og
þaö vantar ekki að á Islandi er
töluverður áhugi á blómrækt.
Ég veit ekki hvað oft ég hef
veriðspurður ráða i þeirrigrein
á Islandi, og það var þá vana-
lega kvenfólkið, sem hafði huga
á þvi, og langt upp til sveita hef
ég á ferðum minum séö blóm i
gluggunum, reyndar stundum
mjög fátækleg”.
Schierbeck ritar leiðbeininga-
grein um ræktuninaoggetur um
pelagoniur, fúksiur, rósir o.fl. 1
skýrslu i Tfinariti Bókmennta-
félagsins 1886 segir einnig:
Darwin-túlipan (Couleur
Cardinal)
„Þær jurtir sem tiðast eru
ræktaöar i Ibúðarhúsum hér á
landi, eru rósir, nellikur, pela-
góniur, fúksiur, amaryllis,
levkoj, gullinlakk, hortensiur og
bergfiéttur. A einstöku stöðum
má jafnvel sjá dáh'tinn pálma,
araha eöa ficus elastica, af
laukjurtum eru mest ræktaðar
hyacintur og túlipanar. Þá hef
ég einnig séð bæði crocus,
páskaliljur og hinar litlu bláu
scilla”. Liklega hefur Schier-
beck séð laukjurtirnar úti i
görðum, a.m.k. aðallega þær,
þó ekki sé loku fyrir þaö skotiö
að þær hafi einstöku sinnum
verið ræktaðar inni. Arið 1890
bætir Schierbeck við: „Auk
krukkujurta, sem ég hef nefnt
1886, þrifast margar sigrænar
jurtir ágætlega hér á landi,
þannig hin almenna Myrta,
Ecualyptus, Ilex og beinviður
og t.d. Immantophyllum,
Agapanthas, og Calla
palustris”. Sést af þessu að
snemma hafa verið til duglegar
blómakonur hér á landi.
Arið 1916 gaf Einar Helgason
garðyrkjustjóri út inniblóma-
bókina Rósir og bætti úr brýnni
nauðsyn um leiðbeiningar.
Tegundir inniblóma voru þá
orðnar allmargar og áhugi fór
mjög vaxandi. Nýr þáttur i
ræktun inniblóma hefst svo eftir
aö gróðurhús komu til sög-
unnar, — aðallega um og eftir
1940.
Ragnar Ásgeirsson ráðunaut-
ur ritar áriö 1948 i Garðyrkju-
ritið fróðlega grein „Fyrsta
ræktun vetrarblóma á Islandi”.
Segir þar m.a.: „Fyrir 1922 var
Reykjavik blómalaus bær að
vetrarlagi. —
Einn þáttur islenskrar garð-
yrkju er óskráður enn, og
verður hklega seint frá honum
gengið úr þessu. Hann er um
blómarækt islenskra hús-
mæðra, ræktun stofublómanna
þeirra. Ef húsmæðurnar vildu
prýða hibýh sin meö blómum,
þá var aðeins ein leið fær: að
rækta þau sjálfar. Þær höfðu
aðeins gluggana fýrir blómin
sin og þær voru eins og gerist og
gengur misjafnlega duglegar
viö þetta starf. En þær voru ekki
fáar sem voru sannkallaðar
blómakonur. Stofúblómin voru
aðalprýði margra heimila. Ég
undraðist oft hve sumar þeirra
voru lagnar við að hugsa um
blómin og uppfylla þarfir
þeirra, koma til græölingum af
ýmsum tegundum o.s.frv. Mikið
var þá ræktaö af rósum og
nokkrar af þessum ágætu
biómakonum höfðu dálitlar
tekjur af blómagluggum sinum
með þvi aö selja útsprungin
rósablóm. La france rósin var
lengi i háum metum, Snjó-
drottningin og margar fleiri.
Þessar blómakonur höfðu til út-
sprungnar rósir náttúrlega
snemmaávorin—-ogallt fram i
nóvember. Eftirspurnin var oft
mikil, þvi notkun þeirra var þá
á sama veg og nú, við öll hátið-
leg tækifæri, ýmist i gleði eða
sorg — þvi margt er þaö sannar-
lega sem segja má með blóm-
unum. En háveturinn var
óhjákvæmilega blómalaus timi.
Blómvendir og blómsveigar
voruekki til um þaö leyti ársins,
allra sist á jólunum”.
Ragnar Asgeirssonnam garð-
yrkju i Danmörku og var um
skeið kennari við garöyrkju-
skólann „Vilvarde” i
Charlottenlund aö loknu námi.
Einn vetur vann hann i Gentofte
við ræktun blómlauka. Kom svo
heim til Islands, kvæntur
danskri konu, og fór að búa i
Gróðrarstöðinni viö Laufásveg.
Ragnar heldur áfram frásögn
sinni: „Fyrsti veturinn þar var
blómalaus. Mér datt þá i hug að
gaman væri að reyna að fá
nokkra lauka til að blómgast
næsta vetur, og sumarið eftir
pantaði ég nokkur hundruð
lauka, aðallega túlipana og hya-
cinthur. Setti þá siöast i ágúst i
kassa, eins og ég hafði lært hjá
Jensen Lundeby i Gentofte og
gróf þá á hentugum stað. Þeir
mynduðu góðar rætur og þegar
10 dagar voru liðnir af
nóvember tók ég 4 kassa inn,
sem ég ætlaöi að reyna að koma
til fyrir jólin. Með leyfi hús-
móðurinnarbjóégtilgrind, sem
ég fékk að hafa i eldhúsinu, þó
litið væri, — á henni mátti hafa
12 kassa i þremur röðum,
hverja yfir annarri, og gat ég
breitt þar klæði yfir til þess aö
útiloka birtuna fyrsta kastið. I
eldhúsinu var miðstöðvarelda-
vél, vist ein sú fyrsta sem
hingað fluttist, og var þvi vel
mögulegt að hafa næga hiýju i
þessum fyrsta innigróöurreit
fyrir blómlauka á Islandi. Spir-
urnar hækkuðu smátt og smátt
ogþað var 12. eða 13. desember
1922, sem fyrstu túlipanarnir
sprungu út og tóku á sig lit. Það
voru Duc van Thell túlipanar,
hvitir og rauðir. Það urðu
nokkrir túlipanar sem sprungu
fyrstu vikuna. Þeir komu i
góðar þarfir við jaröarfarir,
sem fram fóru rétt fyrir jólin:
þeir allra fyrstu á kistu gam-
Goðalilja (Hyacynthia)
allar vinkonu minnar, Krist-
bjargar Einarsdóttur, er andað-
ist 12. des. ogvar grafin þann 17.
Hin var jarðarför Hannesar
Hafstein skálds, fyrrv. ráð-
herra.
Svo héldu túlípanarnir áfram
að springa út og ég setti þá i
smápotta ogskreytti með greni-
kvistum,'fýrstu jólablómin á Is-
iandi — og fengu þau vist færri
en vildu. Miili jóla- og nýárs
bættust svo við Brilliant starog
Prosperhinatúlipanar, rétt eftir
hinir gulu Mon tresor, og i janú-
ar febrúar og marz ýmislegt
enn fallegra og fjölbreytilegra.
Man ég ekki heiti þeirra ailra,
en þar voru Rose gris de lin.La
Reine, Prins van Osterréich,
Murillo, Therose, Turnesoll,
Cardinal og siðast hinn dökk-
rauði Rex ruborum. Af hya-
cinthum haföi ég hinar venju-
lega snemmvöxnu, hvitar, bláar
rauöar og rósrauöur. Enda
þótt ég byrjaði þessa blóm-
laukaræktun engan veginn i
gróðaskyni, þá kom fljótt i ljós
að i Reykjavik var full þörf og
góður markaður fyrir vetrar-
blóm. Ég jók þvi blómlauka-
radctina næsta vetur i eidhúsinu,
en það var auðséð að þriðja vet-
urinn var engin leið að vera þar
með þessa starfsemi, senda þótt
samkomulagið við húsmóðurina
og vinnukonuna væri gott. Ég
gekk þá i samband við góðan vin
minn Carl Olsen konsúl, sem
hafði erföafestuland inni við
þvottalaugar og nýbýli þar, er
hann nefndi Austurhlíð. Byggði
hann þar lftið gróðurhús yfir
hitavatnsleiðsl'unni frá þvotta-
laugunum til sundlauganna,
Framhald á bls. 31
Rósir ofar, Borbónrós neðar
gróður og garðar
Hjólbaröasólun, hjólbarðasala
og öll hjólbarða-þjónusta
CUMMI
wiMywil
VINNU
STOFAN
Fljot og gód
þjónusta
Mjög
HF
Skiphott 35
105 REYKJAVÍK
slmi 31055
gott
verð
POSTSENDUM UM LAND ALLT
Nu er rétti tíminn til
að senda okkur
hjólbarða til
sólningar
Eigurn fyrirlÍRgjandi
flestar stœrdir
hjólbaróa,
sólaða og
Alternatorar
1 Ford Bronco,"
Maverick,
Chevrolet Nova,
Blaser,
Dodge Dart,
Playmouth.
Wagoneer
Land-Rover,
Ford Cortina,
Sunbeam,
Fiat,
Datsun,
Toyota,
VW, ofl. ofl.
Verð frá
/ kr. 17.500.-.
Einnig:
Startarar,
Cut-Out,
Anker,
Bendixar,
; Segulrofar,
M iös töð v a m ó tor a r
ofl. i margar
teg. bifreiöa.
Póstsendum.
Bílaraf h.f.
S. 24700.
Borgarlúni 19.
SANSO PA ÍOO
er sjálfvirk, fyiúrferðalitil
japönsk vatnsdæla með inn-
byggðan 220 volta rafmótor
ásamt álagsrofa, þrýsti-
rofa, einstrey misloka,
loftskammtara og þenslu-
kút.
Lyftigeta 14 m. afköst 760 1.
á kl.st.
Verð með sölusk. kr. 74.960,-
Stærri gerð væntanleg að vori.
ZSTáÉSS iCH
U/OUUöf
LAGMÚLI 5, SlMI 81555
Framsóknar-
VI$T
OG DANS
framsóknarvist að
Hótel Sögu, Súlnasal
22/2 - 8/3 - 22/3
Heildarverðlaun fyrir 3 kvöld
100 þús. kr. vöruúttekt
A'ik þess verða veitt góð kvöldverölaun.
Ilúsið opnai k!. 20
Anægjuleg kvöldskemmtun Ijiir aúa fjöl-
skvlduna
Framsóknarfélag Reykjavíkur