Tíminn - 11.03.1979, Qupperneq 6
6
Sunnudagur 11. mars 1979.
r
V
Útgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Síöumúla 15. Slmi
86300. — Kvöldsímar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 150.00. Askriftargjald kr.
3.000.00-á mánuði. Blaðaprent
Erlent yfirlit
Ljubicic er llklegur
eftirmaður Títós
Almenningur vill að
stjórnin haldi áfram
Það var ekki ofmælt, sem Ingvar Gislason sagði
i útvarpsumræðunum um þingrofstillögu Sjálf-
stæðismanna, að hún væri ótimabær og órökstudd.
1 framhaldi af þvi sagði Ingvar:
,,Það er út af fyrir sig rétt að stjórnarsamstarfið
hefur að ýmsu leyti verið misbrestasamt, en þvi
fer fjarri að það hafi misheppnazt. Þvert á móti
verða leidd að þvi rök, að rikisstjórnin hefur náð
þeim markmiðum, sem hún stefndi að i fyrstu lotu.
En á hitt ætla ég ekki að draga dul, aðóvissa rikir
um hinar siðari lotur stjórnarsamstarfsins. Þótt
svo sé, þá er of snemmt að ræða um stjórnarslit,
hvað þá þingrof og kosningar. Ég held, að ráð-
legast sé fyrir núverandi stjórnarflokka að halda
áfram samstarfi sinu. Ég álit, að með þvi væri
hagsmunum þjóðarinnar bezt borgið. Sannleikur-
inn er sá, að þessi rikisstjórn á almennu fylgi að
fagna meðal þjóðarinnar. Það er meirihlutafylgi i
landinu fyrir stjórnarsamstarfi þeirra flokka, sem
nú fara með völdin. Fólk er almennt þeirrar skoð-
unar, að rikisstjórn, sem nýtur stuðnings þessara
þriggja flokka, sé hæfust til þess að ráða fram úr
vanda efnahagsmálanna til nokkurrar frambúðar.
Forystumenn stjórnarflokkanna eiga að setjast
niður og ræða i hreinskilni þá misbresti, sem kom-
ið hafa fram i stjórnarsamstarfinu og verða ásátt-
irum að eyða þeim. Almenningur i landinu vill, að
stjórnarsamstarfið haldi áfram. Okkur ber skylda
til að taka tillit til almenningsálitsins i þessu efni.
En ef þetta stjórnarsamstarf á að halda áfram,
þá þarf ýmsu að breyta i sambúðarháttum
stjórnarflokkanna, eins og þeir hafa verið til
þessa. Sannleikurinn er sá, að hinn málefnalegi
ágreiningur hefur ekki valdið mestum erfiðleikum
i stjórnarsamstarfinu, heldur liggur beinast við að
tala um ,,hegðunarvanda”, svo að gripið sé til
orðalags, sem oft heyrist i umvöndunarræðum
uppeldisfræðinga og skólastjóra. Alþýðuflokkur-
inn hlaut mikla fylgisaukningu i siðustu kosn-
ingum með þvi að beita lýðskrumsaðferðum. Þvi
miður er lýðskrumið enn i hávegum haft hjá viss-
um öflum i þessum flokki, og það gerir samvinnu
við Alþýðuflokkinn erfiða og e.t.v. ómögulega, ef
haldið verður áfram á sömu braut.”
Ingvar Gislason vék siðan að stjórnarflokkunum
og sagðist á þessa leið:
,,Það er hins vegar þakkarvert, að Alþýðu-
flokkurinn hefur fallizt á stefnu Framsóknar-
flokksins i efnahagsmálum og er fús til þess að
hlita leiðsögu okkar Framsóknarmanna um efna-
hagsúrræði til frambúðar, ekki sizt hvað varðar
visitölumál og fyrirkomulag verðlagsbóta á laun,
svo og vaxtamál og verðtryggingu sparifjár og út-
lána. Við Framsóknarmenn teljum það mikilvæg-
an ávinning, að okkur skyldi heppnast að fá
Alþýðuflokkinn, — sem hélt uppi hatursáróðri
gegn okkur fyrir kosningar, — til þess að fallast á
grundvallaratriði i efnahagsmálastefnu okkar.”
Ingvari Gislasyni fórust svo orð um afstöðu
Alþýðubandalagsins, að enn hefði ekki tekizt að
sannfæra leiðtoga þess um villu sins vegar.
„Kommarnir eru nokkuð seigir undir tönn,” sagði
hann. Þó væri engan veginn vonlaust um að beina
mætti þeim einnig inn á réttar brautir. Meðan svo
stæði, væri með öllu ótimabært að tala um þingrof.
Sjálfstæðisflokksmenn ættu lika sizt að krefjast
þess, þvi að þeim veitti ekki af að taka til i sinu
eigin húsi áður en til kosninga kæmi.
Þ.Þ.
Hann hefur verið æðsti maður hersins i 12 ár
SA orörómur hefur veriö á
kreiki aö undanförnu og nokkuö
veriö rætt um hann af frétta-
skýrendum, aö RUssar hafi flutt
talsvert herliö til BUlgarfu.
RUssar hafa ekki haft herliö i
BUlgariu áður, en sennilega
myndu búlgörsk stjörnarvöld
leyfa dvöl nokkurs rússnesks
herliðs, ef fariö væri fram á þaö,
þvi aö lengi hefúr verið vingott
miili Búlgara og Rússa og eru
Búlgarar að þvi leyti undan-
tekning meðal Balkanþjóða.
Þaö veröur hins vegar aö teljast
mjög óliklegt aö Rússar hafi
óskaö eftir aö fá aö hafa herlið i
Búlgariu, þvi aö þaö gæti oröiö
þeim til álitshnekkis á sama
tima og þeir telja sig vera aö
berjast fyrir slökunarstefnu i
Evrópu.
Umræddur orðrómur mun þvi '
tæpast á rökum reistur, en lik-
legt er aö hann reki rætur til
bollalegginga um framvindu
mála i Júgóslaviu eftir fráfall
eða brottför Tltós. Titó er nú
kominn talsvert á niræöisaldur
oghlýtur þvi aö fara aö styttast
i valdaferli hans, þótt hann sé
enn viö furðugóða heilsu. Marg-
ir fréttaskýrendur spá þvi aö al-
varlegt og tvisýnt ástand geti
skapazt i Júgóslaviu viö fráfall
Titos. M.a. geti þaö komið til
greina að rikiö liöist i sundur
vegna þjóðernislegs ágreinings
milli þeirra þjóðahópa, sem
byggja landiö. Undir þeim
kringumstæðum geti Rússar
haft áhuga á aö gripa inn I og þá
gæti veriö æskilegt fyrir þá aö
hafa herliö til taks i Búlgarfu.
Enn sem komiö er er hér þó
fyrst og fremst um bollalegg-
ingar og ágizkanir aö ræða.
ÞAÐ ER merki þessað Titó er
enn I fullu f jöri, að hann hélt ný-
lega i feröalag til Vestur-Asiu og
heimsótti þarm.a. Kuwait,Sýr-
land, Irak og Jórdaniu. Þetta
ferðalag hans varö styttra en
hann haföi fyrirhugaö þvi aö
áöur en þvi lauk andaöist
nánasti samverkamaöur hans
um langt skeiö, Edvard Kardelj
og hélt Titó heimleiöis fyrr en
ella til þess aö veröa viö jarðar-
för hans. Um alllangt skeiö
haföi Kardelj veriö talinn lik-
legasti eftirmaöur hans en hann
var talsvert yngri en Ti'tó. Fyrir
nokkrum misserum geröist
Kardelj heilsuveill, og var þá
farið aö ræöa um ýmsa aöra
sem hugsanlega arftaka Titós.
Meöal þeirra sem oft hafa veriö
nefndir I seinni tfö, er Branko
Mikulic sem var meö Titó i
áöurnefndu feröalagi hans.
Branko Mikulic sem er 51 árs og
Bosniumaður aö uppruna hefur
veriö talinn eins konar hægri
hönd Titós siöustu misserin.
Eins og er, þá er Mikulic for-
maöur framkvæmdanefndar
Kommúnistaflokksins en þeirri
stööu gegnir hann ekki nema
fram á næsta haust. Titó ákvaö
fyrir nokkru aö koma á þeirri
skipan aö enginn gegndi neins
konar formannsstarfi innan
Nikola Ljubicic
flokksins nema i eitt ár. Til-
gangurinn meö þessu var sá, aö
formennska i nefndum eöa
félögum yrði ekki til þess að
koma fótum undir of mikiö for-
mannavald. Þaö var Mikulic
sem fékk þaö hlutverk hjá Titó
aö koma fram þessari breytingu
Iflokkskerfinu og stjórnkerfinu.
Ýmsir fréttaskýrendur töldu
aö þessari breytingu heföi m.a.
veriö beint gegn Stane Dolanc
sem einnig er nefndur sem lik-
legur eftirmaöur Titós, Dolanc
sem er 54ára ogSlöveniumaöur
aö þjóöerni, er nú ritari eöa
framkvæmdastjóri fram-
kvæmdanefndar flokksins og
var um skeið formaöur hennar
einnig. Ýmsir töldu aö þaö hafi
m.a. verið gert til að skerða
völd Dolanc aö tekin var upp
reglan aö enginn mætti vera
formaöur lengur en i eitt- ár.
Samkvæmt henni varð Dolanc
aö láta af formennskunni á
siöasta ári og tók Mikulic þá viö
henni. Dolanc hélt þó áfram
ritarastarfinu, en þvi fylgir aö
koma I verk öllum ákvöröunum
fra mkvæmdanefndarinnar.
Hann er þvi valdamikill áfram.
TVÆR rikisstofnanir hafa
verið undanþegnar þeirri
breytingu að enginn megi gegna
þar lengur formennsku en i eitt
Dolanc og Mikulic
ár. Þessar stofnanir eru
öryggislögreglan og herinn.
Þetta hefur beint aukinni at-
hygli aö hermálaráðherranum,
Nikola Ljubicic, sem margir
fréttaskýrendur telja liklegast-
an til þess aö taka viö af Titó.
Ljubicic virðist njóta óbilandi
trausts Titós. eins og m.a. sést á
þvi aö hann er búinn að vera
hermálaráðherrasiöan 1967 eða
itólfár.Siöanhefur veriöskipt i
öllum ráðherraembættum
öðrum samkvæmt þeirri reglu
Titos, að menn af öllum
þjóöernum skiptist á um að
gegna helztu trúnaöarstörfum
rikis og flo ldcs. Þessi regla he fur
ekki náö til Ljubicic sem er Ser-
biumaður og tilheyrir þvi
stærsta þjóöflokknum. Ljubicic
sem er 63ára gamall er kominn
af fátækum bændaættum og
haföi fyrir nokkru lokiö námi
viö landbúnaðarskóla, þegar
hann gekk i skæruliöasveitir
kommúnista 1941. Hann gat sér
frægðarorð sem skæruliöi á
heimsstyrjaldarárunum. Aö
styrjöldinni lokinni gekk hann I
herforingjaskóla og hlaut strax
að námi loknu áhrifastööu innan
hersins. Hann hélt svo áfram að
hækka i tign unz Titó geröi hann
að hermálaráöherra fyrir 12 ár-
um.
Ljubicic er eini herforinginn
sem á sæti i framkvæmdanefnd
flokksins. Hins vegar eiga 22
herforingjar sæti I 144-manna
miöstjórn flokksins og geta þeir
haft veruleg áhrif þar. Senni-
lega verður það hún, sem velur
eftirmann Titos, þegar þar að
kemur.
I þessu sambandi er ekki úr
vegi aöminna á nýlokiöforseta-
kjör i Alsir. Ýmsir þóttu koma
þartil greina, en endalokin uröu
þau aö valiö féll á þekktan hers-
höföingja sem hafði ekki
ósvipaöa aöstööu og Ljubicic I
Júgóslaviu. Þaö kæmi ekki á
óvart, þótt hann yröi hlut-
skarpastur þeirra manna, sem
liklegir eru taldir tfl aö erfa sæti
Titos.
Þ.Þ.