Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 65
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGjuM FRÉTTIR SMáAuGLýSINGASÍMINN ER 550 5000 Fyrir merkilega fáum árum þótti ekkert athugavert við að reykja hvar sem var. Um það leyti sem ég vann fyrstu alvöru launa- vinnuna var fullkomlega eðlilegt að svæla við skrifborðið og það í virðulegri stofnun eins og Hf. Eim- skipafélagi Íslands. Þeir reyklausu þurfti bara að harka af sér. Annars áttu þeir á hættu að verða úthróp- aðir sem leiðindapúkar ef þeir voguðu sér að mótmæla þessu ofbeldi. Þann tíma sem ég vann við að reykja og skrá farmskýrslur var bara einn sem reyndi að æmta eitthvað mjórri röddu en var umsvifalaust púaður niður. Fleiri tóku málið ekki á dagskrá. Sá viðsnúningur sem orðið hefur í almennu viðhorfi til reykinga er algjör. Þeir sem núorðið híma norpandi úti á svölum eða í skjóli fyrir norðanáttinni upp við hús- vegg og reykja aleinir eða í pínu- litlum hópum eru í besta falli litnir vorkunnaraugum af hinum hei- lögu reyklausu – sjálfri mér og öðrum – en í versta falli horft á með fyrirlitningu. Enginn dáist lengur að hugrekki reykjandi pæja og gæja sem daglega hætta lífi og limum fyrir þetta áhugamál. HuGSANLEGA spilar eigin aldur eitthvað inn í þá tilfinningu mína að pólitísk rétthugsun varð- andi aðrar lífsvenjur fari sífellt vaxandi. Æ fleiri eru ekki bara hættir að reykja heldur ástunda ýmislegt sem færa á betri heilsu. FyRIR utan að stunda viðstöðu- lausa líkamsrækt, líta margir orðið á það sem mikilvæga skyldu að drekka tvo lítra af vatni á dag og fá móral ef magnið er minna. Allt sem flokkast undir sælgæti er líka synd nema hjá hinum þróuðu í hollustunni sem dettur bara harð- fiskur og söl í hug þegar minnst er á nammi. Sykur er nefnilega sukk og svínarí og líka hvítt hveiti. Þannig er bakarí er ekki sá sak- leysisstaður sem það lítur út fyrir að vera, með alla sína eitruðu snúða og vínarbrauð. Eldri hús- mæður sem steiktu hvaðeina upp úr smjörlíki hefðu hugsað sig um tvisvar með þá þekkingu á forhert- um dýrafitum sem hvert manns- barn kann skil á núorðið. FyRRI helmingur ævinnar fer í að koma sér upp ósiðum. Seinni helmingurinn fer svo í að losa sig við lestina. Kúnstin er kannski að gera það ofstækislaust, án sam- stæðu útivistarjakkanna og þess að verða miklu betri en annað fólk. Batnandi manni SIMPLY CLEVER SkodaOctavia Terno Vegna hagstæðra samninga við Skoda verk- smiðjurnar getum við núna boðið takmarkað magn Octavia Terno með álfelgum, ABS hemla- læsivörn, rafmagni í rúðum, ASR spólvörn, aksturstölvu, hita í speglum o.fl. á aðeins 1.730.000 kr. SkodaFabia Terno Eigum fyrirliggjandi nokkra Skoda Fabia Terno með sparneytinni bensínvél og ríkulegum staðalbúnaði, m.a. sóllúgu, 14” álfelgum, aksturstölvu, leðurstýri og þokuljósum. Og verðið er aldeilis frábært, aðeins 1.540.000 kr. RUGLVERÐ 1.730.000 kr. Takmarkað magn! Vetrardekk fylgja öllum seldum bílum og sumardekkin í skottinu. Debetkort með kreditheimild* – vaxtalaus og án nokkurs kostnaðar!AR G U S / 06 -0 55 2 Kynntu þér DMK Debetkort og aðra þjónustuþætti DMK á spron.is * skv. útlánareglum SPRON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.