Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 21. nóvember 2006 3 Alltof margir hunsa viðvörun- armerki um hjartaáfall, sem getur kostað þá lífið. Nýleg bresk rannsókn sýnir að allt að 42 prósent fólks sem finnur fyrir brjóstverkjum bíða með að hringja í neyðarlínuna í þeirri von að verkurinn líði hjá. Talið er að fólk sem finnur fyrir brjóstverkjum bíði að meðaltali í níutíu mínútur með að hringja á sjúkrabíl. Tveir þriðju þeirra sem tóku þátt í rannsókninni viður- kenndu að þeir létu fremur maka sinn, félaga, ættingja eða heimilis- lækni vita en að hringja beint í neyðarlínuna. Árlega fá um 250 þúsund manns hjartaáfall á Bretlandi. Þriðjung- ur þeirra deyr áður en á spítala er komið, vegna þess að þeir biðu með að hringja í neyðarlínuna. Heilbrigðisyfirvöld eru uggandi yfir niðurstöðum rannsóknarinnar og hafa hrundið af stað nýrri her- ferð, í þeirri von um að fleiri nýti sér þjónustu neyðarlínunnar. - rve Að hika er að tapa Þriðjungur þungana í Skotlandi hafa ekki verið ráðgerðar. Frá þessu er greint í nýjasta hefti tímaritsins The Lancet. Rannsókn- in fór fram á Edinborgarsjúkra- húsi og voru fjögur þúsund verð- andi mæður spurðar auk 907 kvenna sem sóttu um fóstureyð- ingu. Tíu prósent verðandi mæðra sögðu að þungunin hefði alls ekki verið ráðgerð og hefðu þær frekar kosið að hún hefði ekki átt sér stað. Flestar kvennanna sögðust þó ekki sjá eftir henni og flestar viður- kenndu að þó svo að þungunin hefði ekki verið ráðgerð hefði hún ekki komið á óvart. Níutíu prósent kvennanna sem sóttu fóstureyðingu sögðu þungun- ina ekki hafa verið ráðgerða. Óráðgerðar þunganir Svokölluð „slysabörn“ eru fjölmörg í Skotlandi. nordicphoto/getty imageS Trönuberjasafi inniheldur efni sem hindrar sýkingar, hefur góð áhrif á hjartað og virðist vinna gegn öldrun og krabba- meini. Efnið í trönuberjunum sem hindr- ar bakteríur frá því að setjast að í kroppnum heitir PAC. Þetta efni finnst líka í súkkulaði, vínberjum og tei en hefur þó ekki sömu eigin- leika og það hefur í trönuberjun- um. PAC-efnið kemur til dæmis í veg fyrir að þær bakteríur sem valda þvagfærasýkingum festist á veggjum þvagblöðrunnar og skol- ar þeim í staðinn út úr líkamanum. Þar sem 50-60 prósent kvenna á Vesturlöndum fá þvagfærasýk- ingu einhverntíma á ævinni minnk- ar það verulega sýklalyfjatöku ef þeim dugar að taka inn trönuberja- saft í staðinn. Trönuber hafa verið rannsökuð í áratugi og niðurstöður benda til að þau séu flestra meina bót. Sýnt hefur verið fram á að þau fækka magasáratilfellum og draga þar með úr hættu á magakrabbameini, einnig bæta þau kólesterólbúskap líkamans og eru álíka góð fyrir hjartað og rautt vín í hófi. Ein merkasta uppgötvunin var gerð fyrr á þessu ári við háskóla í Dart- mouth í Massachusetts er sýnt var fram á að PAC-efnið í trönuberjum drægi úr vexti æxla í lungum. Enn er haldið áfram rannsóknum og nú beinist athyglin að áhrifum berj- anna á veirur og sveppasýkingar. Sannur lífselexír trönuber virðast gera líkamanum mikið gagn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.