Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 1
mest lesna dagblað á íslandi
69,3%
38,5%
45,8%
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í september 2006.
Þriðjudagar
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
höfuðborgarsvæðið
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
40
30
50
20
60
70
80
Sími: 550 5000
Þriðjudagur
21. nóvember 2006 — 312. tölublað — 6. árgangur
Smáauglýsingasími550 5000
Auglýsingasími Allt550 5880
Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is
Ríkarður S. Ríkarðsson forstöðumaður á upplýsinga-
tæknisviði Landsbankans stundar líkamsrækt og
sund til að halda sér í formi.
„Þetta er lítið í samanburði við það sem áður var,“ segir
Ríkarður sem er enginn nýgræðingur í íþróttum og á glæst-
an sundferil að baki.Ríkarður fór að æfa sund 10 til 11 ára með sundfélagi
Helsingborgar, þar sem fjölskylda hans bjó í nokkur ár.
„Foreldrar mínir voru hvattir til að senda mig í sundið þar
sem ég þótti sýna góða takta og svo heppilega vildi til að ég
lenti hjá þjálfara, sem æfði síðar sænska landsliðið.“
Ríkarði voru kennd sundtökin á þessum tíma og var orð-
inn bráðefnilegur sundmaður þegar fjölskyldan flutti til
Íslands árið 1992. „Ég tók mér að vísu ársfrí frá sundinu
þegar hér var komið við sögu til að æfa skíði og fótbolta,“
segir hann en þess utan hafði Ríkarður einnig reynt fyrir
sér í tennis og skák.„Sumarið 1993 vaknaði áhuginn á ný, ég fór að einbeita
mér aftur að sundinu og lagði aðrar íþróttagreinar til hlið-
ar,“ heldur Ríkarður áfram. „Ég æfði með Ægi og var aftur
svo lánsamur að lenda hjá afbragðsgóðum þjálfara, sem
átti eftir að þjálfa landslið Finna.“ Á ferlinum setti Ríkarð-
ur mörg Íslandsmet, varð methafi og tvöfaldur meistari á
Smáþjóðaleikunum árið 1997 og tók þátt í Ólympíuleikun-
um árið 2000. Er þá fátt upptalið.„Nú hef ég hætt sundi á afreksstigi og tek þátt í einstaka
mótum,“ segir Ríkarður. „Varð reyndar Norðurlandameist-
ari á garpamótinu í október, þannig að ég er nú ekki dauður
úr öllum æðum,“ segir hann og hlær.
Glæstur
sundferill
Latibær
Íþróttahús heitir í höf-
uðið á Íþróttaálfinum
Magnús Scheving vinsæll í Bretlandi
FóLk 46
ríkarður S. ríkarðSSon
Heldur áfram
að synda
Heilsa
í miðju bLaðSinS
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24
alla daga
- Lifið heil
HÆgLÆTiSVEður Í dag verður
yfirleitt hæg norðaustlæg eða aust-
læg átt, en þó hvassari norðanátt
allra austast. Bjart veður syðra,
annars skýjað og úrkomulítið.
Þykknar upp suðvestan til í kvöld
með slyddu. Vægt frost.
VEður 4
��
�� ��
��
��
�
�
�
Stjörnuritstjóra
meinaður
aðgangur
Jefferson Hack var
vísað frá skemmti-
staðnum Rex fyrir
misskilning.
fóLk 46
Götulistamaður-
inn Súrkúla
Listin á ekk-
ert skylt við
skemmdar-
verk.
mEnning 30
Til hamingju með daginn!
„Margir samverkandi þættir
urðu til þess að Landssamband
framsóknarkvenna var stofnað og
konur voru mjög meðvitaðar um
stöðu sína á þessum tíma,“ segir
Bryndís Bjarnason.
í dag 22
uppLýSingamáL Hagsmunir
almennings af því að fá vitneskju
eða upplýsingar um hvernig opin-
berum eignum er varið vega
þyngra á metunum en viðskipta-
hagsmunir, sem eru grundvöllur
leyndarsamninga milli einkafyr-
irtækja og hins opinbera.
Þetta er niðurstaða úrskurðar-
nefndar um upplýsingamál vegna
kæru Hjörleifs Guttormssonar,
fyrrverandi þingmanns og ráð-
herra. Hjörleifur leitaði eftir
úrskurði nefndarinnar eftir að
bæjarráð Seyðisfjarðarkaupstað-
ar meinaði honum aðgang að upp-
lýsingum og gögnum um samn-
inga milli Seyðisfjarðarkaupstaðar
og Íslenskrar orkuvirkjunar ehf.
vegna fyrirhugaðra virkjanafram-
kvæmda í Fjarðará. Nefndin
úrskurðaði Hjörleifi í hag og var
Seyðisfjarðarkaupstað gert skylt
að veita Hjörleifi aðgang að samn-
ingum sem gerðir voru vegna
þessara framkvæmda.
Hjörleifur segir niðurstöðu
úrskurðarnefndarinnar athyglis-
verða og gefa vísbendingu um á
hvaða forsendum leyndin um
samninga milli Landsvirkjunar og
erlendra álfyrirtækja byggir.
„Eðli málsins samkvæmt hafa allir
úrskurðir þessarar nefndar for-
dæmisgildi þar sem þetta er æðsti
úrskurðaraðili innan stjórnsýsl-
unnar á þessum vettvangi. Málið
snýst um það, að einkafyrirtæki
og hið opinbera ætla sér að halda
fullri leynd yfir samningum á
grundvelli viðskiptahagsmuna. En
á það fellst nefndin ekki. Mér
finnst ekki óeðlilegt, á grundvelli
þessarar niðurstöðu, að það verði
látið á það reyna hvort sambæri-
legir samningar sem álfram-
leiðslufyrirtæki hafa gert við fyr-
irtæki í opinberri eigu, geti talist
löglegir á sömu forsendum.“
Í úrskurðarorðum nefndarinn-
ar er tekið fram að ekki sé „eðli-
legt að þessar upplýsingar fari
leynt“ einkum á „þeim ríku
almannahagsmunum sem eru
tengdir því að almenningur eigi
kost á að fá upplýsingar um ráð-
stöfun opinberra eigna“.
Atli Gíslson, lögmaður Hjör-
leifs, segir úrskurðinn vera merki-
legan fyrir margra hluta sakir.
„Kjarni málsins er sá að upplýs-
ingaskyldan er rík. Við búum í lýð-
ræðisþjóðfélagi. Meginreglan hlýt-
ur að eiga að vera sú að það sé
gegnsætt lýðræði í landinu og allar
upplýsingar séu uppi á borðinu.
Samkvæmt þessum úrskurði er
það alveg klárt, að viðskiptahags-
munir nægja ekki til þess að halda
leynd yfir samningum milli einka-
fyrirtækis og hins opinbera. Á
þeim forsendum finnst mér niður-
staðan athyglisverð.“ - mh / sjá síðu 4
Gert að létta
leynd af orku-
samningum
Seyðisfjarðarkaupstað og Íslenskum orkuvirkjunum
var gert að létta leyndinni af samningum vegna
virkjanaframkvæmda. Viðskiptahagsmunir nægja
ekki til þess að halda leynd á virkjanasamningum,
segir Atli Gíslason lögmaður.
Eggert kaupir West Ham
Búist er við að tilkynnt
verði í dag um kaup
Eggerts Magnússonar
og fjárfestahóps hans
á enska úrvalsdeildar-
félaginu West Ham.
íÞróTTir 40 & 43
veðrið í dag
STjórnmáL Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra sagðist á Alþingi í
gær telja að jafnræðisreglan gilti
fyrir dómstólum, hann hefði ekki
orðið var við annað.
Jóhanna Sigurðardóttir Sam-
fylkingunni spurði Björn um
traust hans til dómstólanna í
kjölfar nýlegrar greinar Arnars
Jenssonar aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns í Morgunblaðinu. Þar sagði
Arnar að ekki fengju allir sömu
réttlátu málsmeðferðina innan
réttarkerfisins. Baugsmálið
sýndi það. Lýsti Arnar eftir við-
brögðum yfirvalda.
Auk þess að segjast telja að
jafnræðisreglan gilti fyrir dóm-
stólunum kvaðst Björn vonast til
að geta síðar á þessu þingi lagt
fram frumvarp um meðferð saka-
mála og þá hlytu álitamál um rétt-
arfar að koma til skoðunar.
Jóhanna var ekki sátt við svör
ráðherrans og fannst hann skauta
fram hjá spurningum hennar.
„Er hann að lýsa trausti á dóms-
kerfið og dómstólana og ef hann
er að því þá er varla hægt að líta
fram hjá því að hann brigslar hátt-
settum lögreglumanni hjá emb-
ætti ríkislögreglustjóra að fara
með rangt mál,“ sagði Jóhanna.
Þessum vangaveltum svaraði
Björn með þeim orðum að skoð-
anafrelsi ríkti í landinu.
„Menn geta látið skoðanir sínar
í ljós án þess að ráðherrar þurfi að
tjá sig um þær hér í þingsalnum,“
sagði dómsmálaráðherrann. - bþs
Dómsmálaráðherra um skrif Arnars Jenssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns:
Björn treystir dómstólunum
björn bjarnaSon Segist ekki hafa
orðið var við annað en að jafnræðisregl-
an gildi fyrir íslenskum dómstólum.
FréttaBlaðið/GVa
Eðli málsins samkvæmt
hafa allir úrskurðir þess-
arar nefndar fordæmisgildi þar
sem þetta er æðsti úrskurðaraðili
innan stjórnsýslunnar á þessum
vettvangi.
HjörLeiFur guttormSSon
FyrrVerandi ÞinGMaður
íÞróTTir Keppnin um sterkasta
mann heims hófst í Reykjavík í
gær. Alls eru 24 þátttakendur
skráðir til leiks, þar af þrír
íslenskir aflraunamenn, þeir
Benedikt Magnússon, Georg
Ögmundsson og Stefán Sölvi
Pétursson. Síðasta keppni fór
fram í Kanada og þá fór Litháinn
Zydrunas Savickas með sigur af
hólmi.
Framleiddir verða sjónvarps-
þættir um keppnina sem sýndir
verða í 219 löndum og ná þeir til
350 milljón heimila. Úrslit
keppninnar fara fram á föstudag
og laugardag í Reiðhöllinni í
Víðidal. - shá
Sterkasti maður heims:
Minning Jóns Páls heiðruð
tekur á Honum Stóra Sínum Keppnin um sterkasta mann heims hófst í
álverinu í Straumsvík í gær. Átökin voru mikil eins og þessi mynd af Benedikt
Magnússyni ber með sér en hann er kominn í úrslitin sem fara fram um helgina.
FréttaBlaðið/VilHelM