Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 21. nóvember 2006 7 Úrslitakeppni um titilinn „Sterkasti maður í heimi 2006“ fer fram á föstudag og laugar- dag í Reiðhöllinni í Víðidal. Tólf keppendur taka þátt í baráttu um ofangreindan titil, en áður höfðu 24 keppendur frá sextán löndum tekið þátt í forkeppni í álveri Alcan í Straumsvík. Þrír keppenda eru íslenskir, þeir Benedikt Magnússon, Stefán Sölvi Pétursson og Georg Ögmundsson. Keppnin er haldin til að heiðra minningu Jóns Páls Sigmarssonar, sem var frumkvöðull íþróttarinn- ar á Íslandi og hlaut á sínum tíma alls fjórum sinnum titilinn „Sterk- asti maður heims“. Úrslitin hefjast í Reiðhöllinni föstudaginn 24. nóvember kl. 18 þar sem kraftajötnar munu etja kappi hver við annan og loka- keppnin verður laugardaginn 25. nóvember kl. 15. - rve Sterkasti maðurinn Jón Páll Sigmarsson hlaut fjórum sinn- um titilinn „Sterkasti maður heims“. Öll sex ára börn landsins fá endurskinsborða frá skátum. Skátahreyfingin sendi nýlega öllum sex ára börnum í landinu endurskinsborða ásamt riti um öryggi barna í umferðinni. Þá fylgdu ritinu tveir endurskinslím- miðar til að líma á úlpur barnanna. Þetta er sextánda árið sem skát- arnir vinna þetta verkefni undir heitinu Látum ljós okkar skína og hafa þeir dreift um 75 þúsund end- urskinsborðum til barna í landinu. Áður var borða dreift sem brugðið var um öxl barnanna en í dag eru borðarnir útbúnir með frönskum rennilási sem gerir þá endingar- betri. Það er margsannað að það dregur verulega úr slysum gangandi veg- farenda ef fólk er með endurskins- merki í svartasta skammdeginu. Aðalstyrktaraðili er Vátrygginga- félag Íslands (VÍS), en jafnframt hafa fjölmörg fyrirtæki og stofn- anir styrkt verkefnið. Þá er sam- hliða verkefninu og því til stuðn- ings rekið bílnúmerahappdrætti á hverju ári þar sem öllum bifreiða- eigendum er sendur happdrættis- miði. Dregið er í happdrættinu 31. desember. Skátar láta ljós sitt skína Nauðsynlegt er að vera með endurskins- merki í svartasta skammdeginu. Læknum hættir til að sjást yfir mjólkurofnæmi barna sam- kvæmt nýlegri breskri rannsókn. Mikill meirihluti lækna sem tóku þátt í rannnsókninni taldi starfs- bræður sína rugla einkennum mjólkurofnæmis saman við aðra kvilla. Sérfræðingar segja að ástæð- una megi líklegast rekja til þess hversu algeng og óljós einkenni mjólkurofnæmis séu, það er að segja útbrot og niðurgangur. Stór hluti læknanna vissi ekki hvernig best væri að meðhöndla mjólkurofnæmið, sem getur haft alvarlegar afleiðingar og jafnvel valdið dauða. Einhverjir mæltu með því að nota tilbúna mjólk í stað kúamjólk- ur á meðan aðrir álitu soja-mjólk vænsta kostinn. Heilbrigðisyfir- völd töldu það hins vegar óráð, þar sem vitað er að sojamjólk getur valdið ófrjósemi hjá einstakling- um sem hafa drukkið hana í lengri tíma í barnæsku. Einnig eru líkur á því að börn með ofnæmi fyrir kúamjólk þoli heldur ekki soja- mjók. Ofnæmi fyrir kúamjólk er algengara en margur heldur og er talið að það hrjái allt að tíu þúsund bresk börn. Nú er verið að setja saman bækling um slíkt ofnæmi og er það vafalaust mörgum fagn- aðarefni. - rve Greina ekki mjólkurofnæmi Ofnæmi fyrir kúamjólk er algengara en margur heldur. Sex mikilvæg næringarefni NæriNgarefNi eru aNNað Og meira eN vítamíN, þótt Oft álíti fólk þau eiNN Og Sama hlutiNN. kolvetni, hvítuefni, fita, steinefni, vít- amín og vatn eru næringarefni og öll nauðsynleg góðri heilsu. Næringarefni eru nauðsynleg til að fullnægja orkuþörf, fyrir starfsemi líffæra, frumuvöxt og nýtingu matar. Heimild: Ný og betri bætiefnabiblía næringarefni } telpurS onuK r Staðurinn - Ræktin Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Við bjóðum fjölbreytta tíma í sal, margvísleg námskeið, tækjasal og leiðsögn Opna kerfið - Þinn tími er kominn! 1. Almenn þjálfun, þol, styrkur og liðleiki 2. Púltími, hressileg upphitun, ýmist á palli eða gólfi, styrktar- og liðleikaþjálfun 3. Pallatími, samsett spor, mikil brennsla 4. Lóðatími, upphitun ýmist á palli eða á gólfi, unnið með þyngd og mótstöðu, lóð, stangir, teygjur 5. Liðleikaþjálfun, upphitun, styrktar- og slökunarteygjur 6. Yoga 7. Bræðingur, líkamsrækt með dansívafi, salsa, mambo, samba, jazz, funk og stuð. 8. Sprengitími, 30 mínútna hádegispúl 9. Stöðvaþjálfun, fjölbreyttir vaxtamótunartímar Barnagæsla - Leikland JSB • TT 3 og 4 Taktu þér tak! Lokuð 5 vikna átaksnámskeið 3 x í viku fyrir stelpur16-20 og 21-30 ára • Rope Yoga Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi Lokuð 5 vikna námskeið 2 x í viku • 6o + Líkamsrækt fyrir konur 60 ára og eldri Lokuð 5 vikna námskeið 2 x í viku Glæsilegur nýr tækjasalur! Vertu velkomin í okkar hóp! Innritun hafin! Eftirtalin 5 vikna námskeið hefjast 27. nóvember: 25% jólaafsláttur af 4 mánaða kortum í opna kerfinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.