Fréttablaðið - 27.11.2006, Síða 2

Fréttablaðið - 27.11.2006, Síða 2
75.000 KR. GJAFABRÉF FRÁ SMÁRALIND FYLGIR NÚNA ÖLLUM BÍLUM Töluverð ölvun var í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og mikið um pústra. Undir morgun hafði lögreglunni verið tilkynnt um fjórar líkams- árásir. Dyraverðir skemmtistaða urðu fyrir tveimur árásanna. Einn var bitinn í brjóstið af sautján ára stúlku og annar var barinn af manni á þrítugsaldri. Tilefni beggja árásanna var að viðkom- andi gesti var ekki hleypt inn á staðinn. Ráðist var á tvo til viðbótar áður en nóttin var úti, en maður á þrítugsaldri nefbrotnaði í átökum við annan. Seinasta árásin varð þegar maður var laminn í höfuðið með flösku og skarst töluvert. Dyravörður bitinn í brjóst Bæði Skotar og Englendingar eru fylgj- andi sambandsslitum, og meirihluti beggja þjóða vill ekki vera lengur hluti af Bretlandi. Þetta kemur fram í niðurstöðum viðhorfskönnunar sem The Sunday Telegraph lét gera og birti í gær. 52 prósent Skota vilja sjálfstæði og 59 prósent Englendinga styðja einnig sjálfstæði Skotlands. 48 prósent Englendinga telja ennfremur að bæði Wales og Norður-Írland eigi að sigla sinn sjó. 68 prósent Englendinga vilja að hrein-enskt þing taki við af því breska. Spurningin um sjálfstæði Skotlands kemst á dagskrá breskra stjórnmála í maí í vor, þegar Skotar kjósa nýtt heimastjórnarþing, réttum 300 árum eftir að konungdæmi Skota og Englendinga sameinuðust. Skoski þjóðernisflokkurinn, SNP, krefst sam- bandsslita og stofnun sjálfstæðs ríkis Skota. Hann nýtur nú mikils fylgis meðal skoskra kjósenda. Nái flokkurinn hreinum meirihluta á skoska þinginu í Edinborg mun það ýta mjög undir sjálfstæðiskröf- una. Leiðtogi SNP, Alex Salmond, hefur lýst áhuga á að sjálfstætt Skotland taki sér Norðurlöndin til fyrirmyndar og efli tengsl við þau. Fimmtíu skæruliðar talíbana og einn hermaður NATO- herliðsins féllu í átökum í suðurhluta Afganistans á laugardag. Til átaka kom eftir að hópur uppreisnarmanna gerði árás á sameiginlegt herlið NATO og afganskra stjórnarhermanna nálægt Tarin Kowt. Herliðið svaraði skothríðinni og gerði loftárás á uppreisnarmennina. Sameiginlegt herlið NATO og afganskra hermanna varð einnig fyrir árás uppreisnarmanna í Kandahar á laugardag. Fimm skæruliðar féllu og þrír hermenn NATO særðust í átökunum. Tugir skæruliða felldir á vígvelli Kostun dagskrárliða Ríkisútvarpsins verður bönnuð, þak sett á heimildir þess til að selja auglýsingar og auglýsingar á vef þess bannaðar. Þetta er á meðal hugmynda um breytingar á frum- varpi um Ríkisútvarpið sem menntamálanefnd þingsins vinnur að. Breytingarnar, verði þær að veruleika, eru gerðar til þess að koma til móts við andstöðu gegn frumvarpinu. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður menntamálanefndar, segir engar breytingar hafa verið gerðar enn, en verið sé að vinna að hugmyndum um auglýsingar á vefnum, takmörkun eða bann á kostun þátta og takmarkanir á aug- lýsingum. „Ég vil skoða stöðu Ríkisút- varpsins á auglýsingamarkaði og minn vilji er að þessar breytingar verði gerðar. Ef það næst samstaða um þær, sem ég vona að verði, þá verður frumvarpið lagt fram með breytingunum,“ segir hann. Hann segist telja að með breyt- ingunum sé komið til móts við and- stöðu gegn frumvarpinu og býst ekki við að framsóknarmenn greiði atkvæði gegn því, verði af breyt- ingunum. „Miðað við samskipti mín við framsóknarmenn í nefndinni þá á ég ekki von á því að þeir setji sig upp á móti þessu.“ „Það eru þrjú meginatriði sem við viljum koma fram með þessum breytingum,“ segir Sæunn Stefáns- dóttir, þingmaður Framsóknar- flokksins sem á sæti í menntamála- nefnd. „Í fyrsta lagi þarf þjónustuhlutverk Ríkisútvarpsins sem almannaútvarps að vera gert skýrt, í öðru lagi þarf að viðhalda samkeppni á auglýsingamarkaðn- um og í þriðja lagi þarf að sjá til þess að starfsmenn haldi sínum réttindum.“ Hún segist gera ráð fyrir að þessar breytingar fari í gegn og breytt frumvarp fari úr mennta- málanefnd í vikunni. „Ef við skoð- um málið í heild sinni þá erum við að styrkja stöðu Ríkisútvarpsins, en það má ekki vera þannig að við gerum öðrum fjölmiðlum erfitt fyrir.“ Verði frumvarpinu breytt er það þriðja myndin sem það birtist í síðan vinna við það hófst fyrir þremur árum. Auglýsingaheimildir RÚV takmarkaðar Unnið er að breytingum á RÚV-frumvarpinu í menntamálanefnd. Meðal tillaga er að takmarka auglýsingaheimildir og banna kostun dagskrárliða. Fulltrúar flokka ríkisstjórnar í nefndinni telja að frumvarpið verði samþykkt, komi til breytinganna. „Tilfinningarnar bera mig ofurliði,“ sagði Silvio Berlusconi lágum rómi, rétt áður en hann fékk aðsvif í beinni sjónvarps- útsendingu á Ítalíu í gær. Hann hafði þá flutt fjörutíu mínútna langan reiðilestur gegn Romano Prodi, forsætisráðherra landsins. Einkalæknir Berlusconis og lífverðir studdu hann síðan af vettvangi. Læknir hans sagði að blóðþrýstingur Berlusconis hefði fallið skyndilega, en einnig að hitasvækja í salnum hefði angrað fyrrum forsætisráðherrann, sem mun vera á batavegi. Berlusconi er sjötugur að aldri og efnaðasti maður Ítalíu. Leið yfir Berlu- sconi í beinni Lögreglan í Bethnal Green í austurhluta Lundúna hand- tók í síðustu viku mann í tengslum við árásina á Harald Hannes Guðmundsson ljósmyndara. Mað- urinn var yfirheyrður en vegna skorts á sönnunargögnum þurfti lögreglan að sleppa honum úr haldi að henni lokinni. Hann er talinn viðriðinn málið. Robert Gurr, rannsóknar- lögreglumaður í Bethnal Green, segir engan mannanna þriggja hafa þekkst af upptökum öryggis- myndavéla. Hann telur líklegt, eftir samtölum við fólk í hverfinu að dæma, að mennirnir hafi ætlað að ræna Harald í ábataskyni. Hann útilokar þó ekki aðrar hugsanlegar orsakir, í ljósi þess hve óvenjulega fólskuleg árásin var. Að sögn vina Haraldar þykir samstarfsmönnum hans þar ytra vænt um þá miklu athygli sem árásin hefur fengið á Íslandi. Maja Justinianovic, eiginkona Haraldar, er komin út til Lundúna og vill koma á framfæri þakklæti til þeirra sem hafa stutt við bakið á þeim Haraldi í hremmingunum, en líðan hans er óbreytt og honum er enn haldið sofandi á sjúkrahúsi. Söfnunarreikningur Haraldi til stuðnings hefur verið opnaður í SPRON. Reikningur nr. 1150-26- 26600, kennitala 070970-4229. Einn maður handtekinn Manninum, sem féll niður fimmtíu metra á Kárahnjúkum á laugardagskvöld, er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæslu- deild Landspítalans. Hann má þakka það sterkum leðurgalla og snarræði félaga sinna og lækna á Austurlandi að ekki fór verr, segir sérfræðingur á slysadeild- inni, en læknarnir fylgdu manninum í sjúkrafluginu suður. Maðurinn var mikið slasaður við komuna á Landspítalann, með áverka á kviðar- og brjóstholi, en enga höfuðáverka. Hann fór beint í uppskurð og líðan hans er stöðug. Féll niður fimmtíu metra Guðrún, fer næsta málþing fram með SMS-sendingum?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.