Fréttablaðið - 27.11.2006, Page 6
Motorlift
Ke›judrifnu Chamberlain Motorlift bílskúrshur›aopnararnir
eru öflugir og sterkbygg›ir og fást fyrir allar stær›ir og ger›ir
bílskúrshur›a. Motorlift er me› kröftugum en hljó›látum
mótor og flægilegri fjarst‡ringu sem au›veldar umgengni
um bílskúrinn e›a geymsluhúsnæ›i› í hva›a ve›ri sem er.
Motorlift fæst í byggingavöruverslunum um land allt.
bílskúrshur›aopnarar
Fí
to
n
/
S
ÍA
ME‹ ÍSLENSKUM LEI‹BEININGUM.
„Íbúar eru mjög
ósáttir. Þeim finnst eins og þessar
framkvæmdir hafi komið aftan að
þeim,“ segir Elísabet Gísladóttir,
formaður Íbúasamtaka Grafar-
vogs, um byggingarframkvæmdir
við Gufuneskirkjugarð.
Bygging starfsmannahúss fyrir
kirkjugarðinn er vel á veg komin.
Borgaryfirvöld hafa einnig sam-
þykkt líkbrennslu, líkhús, hús fyrir
erfidrykkjur og hús undir kapellu,
kirkju og bænahús.
Elísabet segir kynningu á fram-
kvæmdunum hafa verið sam-
kvæmt reglum en samt hafa farið
framhjá íbúunum enda aðeins
verið fólgin í litlum blaðaauglýs-
ingum.
Í bréfi þriggja íbúa við Vallar-
hús til borgarstjórans segir að hús
þeirra hafi fallið í verði vegna þess
að starfsmannahúsið hafi skert
sjávarútsýni. Og að ekki komi til
greina að sætta sig við nábýli við
líkbrennslu: „Svoleiðis starfsemi á
engan veginn heima hér í miðju
íbúðarhverfi, rétt við íþróttamann-
virki, skóla, leikskóla og dvalar-
heimili.“
Íbúasamtökin áttu fund með
kirkjugarðsyfirvöldum í síðustu
viku. Elísabet Gísladóttir segist
bjartsýn á að líkbrennslan verði
ekki reist við Gufuneskirkjugarð.
„Kirkjugarðsyfirvöld voru mjög
jákvæð með að endurskoða stað-
setningu fyrir líkbrennsluna,“
segir hún.
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri
Kirkjugarða Reykjavíkur, segir
hins vegar að engin ákvörðun hafi
verið tekin um staðsetningu lík-
brennslunnar. Hugsanlegt sé að
hún verði byggð annars staðar en
leyfi sé fengið fyrir staðsetningu
hennar í Gufuneskirkjugarði.
Íbúar í Grafarvogi hafi ekkert að
óttast því ný líkbrennslu verði ekki
byggð fyrr en eftir 15 ár. Þá muni
ströngustu kröfur fyrir starfsleyfi
verða uppfylltar. Næst á dag-
skránni í Grafarvogi sé að byggja
líkhús eftir þrjú eða fjögur ár.
Elísabet segir að þótt sagt sé að
engin lyktar- eða sjónmengun
myndi verða af líkbrennslunni þá
hafi íbúarnir ástæðu til efasemda.
Þess utan sé tilfinningalegt áreiti
alveg jafn mikilvægt.
„Það þarf ekki annað en að ein-
hver kveiki upp í arninum eða í
rusli til að einhver finni til óþæg-
inda, sérstaklega gamla fólkið sem
horfir yfir kirkjugarðinn. Aðgát
skal höfð í nærveru sálar,“ segir
Elísabet Gísladóttir.
Ólga í Grafarvogi
vegna líkbrennslu
Hörð andstaða Grafarvogsbúa dugir ekki til þess að hætt verði við líkbrennslu í
Gufuneskirkjugarði. Formaður íbúasamtakanna er bjartsýnn eftir fund með
kirkjugarðsyfirvöldum, sem á hinn bóginn segjast ekki hafa hætt við líkbrennsluna.
Yfir tuttugu þúsund
múslimar tóku þátt í stærstu mót-
mælum gegn ferð Benedikts páfa
XVI til Tyrklands í Istanbúl í gær,
en heimsóknin er sú fyrsta sem
páfi fer í til lands þar sem flestir
íbúanna eru íslamstrúar.
Í september olli ræða sem
Benedikt flutti í heimsókn sinni til
Þýskalands mikilli reiði hjá mús-
limum um allan heim. Í ræðunni
vitnaði Benedikt í Manuel II, krist-
inn keisara býsanska keisaraveld-
isins á fjórtándu öld, sem hélt því
fram að einu nýjungarnar sem
Múhameð spámaður hefði fært
heiminum væru illska og miskunnar-
leysi. Páfagarður lítur á ferðina til
Tyrklands sem tækifæri til að
sættast við múslimaheiminn, og
sagði Benedikt páfi á sunnudag að
ferðin sýndi virðingu hans og ein-
lægan vinskap gagnvart Tyrk-
landi.
Utanríkisráðherra Tyrklands,
Abdulah Gül, hefur reynt að gera
lítið úr mótmælunum. Hann sagði í
gær að hann vonaðist til þess að
heimsóknin myndi útrýma mis-
skilningi milli múslima og krist-
inna manna.
Öryggisgæsla í kringum heim-
sóknina verður öflug, en páfi mun
heimsækja höfuðborgina Ankara,
Istanbúl og svæðið sem talið er að
María mey hafi dvalist á.
Tugþúsundir mótmæltu
Tvenn hópslagsmál
urðu í Kópavogi aðfaranótt
sunnudags. Annað málið kom upp
í Engihjalla en hitt við Smáralind.
Í báðum tilfellum var um
ungmenni í kringum tvítugt að
ræða.
Í slagsmálunum við Engihjalla
voru fjórir færðir til fanga-
geymslu. Að sögn varðstjóra hjá
lögreglunni í Kópavogi létu þeir
ófriðlega og náðist ekki að koma
fyrir þá vitinu. Við Smáralind
náðist að leysa úr málum og var
enginn fluttur í fangageymslur.
Lögregluþjónar úr Hafnarfirði og
Reykjavík voru fengnir til
aðstoðar í báðum málum.
Hópslagsmál
í Kópavogi
Átt þú bókasafnskort?
Eiga íslensk stjórnvöld að biðj-
ast afsökunar á stuðningi við
innrásina í Írak?
Frumvarp um sameiningu Háskóla Íslands
og Kennaraháskóla Íslands hefur verið afgreitt af
þingflokki Sjálfstæðisflokks og bíður nú samþykkis
þingflokks Framsóknarflokks. Að því loknu verður
það lagt fyrir á þingi. Þetta segir Guðlaugur Þór
Þórðarson, varaformaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins.
Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins segir rétt að frumvarpið hafi verið lagt fyrir
í sínum þingflokki en það hafi ekki verið afgreitt enn.
„Frumvarpinu var dreift á seinasta þingflokks-
fundi, yfirleitt eru mál afgreidd á næsta fundi svo
menn hafi tíma til að fara yfir þau.“
Hann segist ekki hafa grandskoðað frumvarpið
efnislega en hann viti að vel hafi verið vandað til
þess. „Eftir því sem ég kemst næst er mikil sátt um
þetta meðal fagfólks og menn sjá að þessi samruni
muni styrkja báða skólana.“ Á seinasta ári setti
menntamálaráðherra á laggirnar nefnd um samein-
ingu skólanna. Álit nefndarinnar varðandi sameiningu
var jákvætt og er frumvarpið afrakstur þess.