Fréttablaðið - 27.11.2006, Side 8

Fréttablaðið - 27.11.2006, Side 8
 Litlu flokkarnir tveir, sem ásamt Verkamannaflokknum standa að norsku ríkisstjórninni, vilja að Noregur neiti að innleiða þjónustutilskipun Evrópusam- bandsins, sem EFTA-ríkin í EES, Ísland, Noregur og Liechtenstein, eru annars skuldbundin til að gera. Percy Westerlund, fastafulltrúi framkvæmdastjórnar ESB gagn- vart Íslandi og Noregi, varar við því að með því að hafna tilskipun- inni myndu Norðmenn hætta á að setja allan EES-samninginn í upp- nám. Norska fréttastofan NTB hafði eftir Westerlund fyrir helgi að bæði framkvæmdastjórn ESB og stjórnvöld í ESB-ríkjunum 25 myndu eiga erfitt með að sætta sig við að land eins og Noregur, sem stendur utan við sambandið, neiti að innleiða þungavigtarlög- gjöf sem tvímælalaust varðar gildissvið EES-samningsins. Ef til slíkrar höfnunar skyldi koma myndi ekki aðeins verða rætt um mótaðgerðir af hálfu ESB, heldur hugsanlega um sjálfa framtíð EES-samningsins í heild. „Alvarleg spurning sem upp mun koma er hvort ESB getur sætt sig við að land sem ekki er aðildar- ríki, sem tekur samt fullan þátt í innri markaðnum, á að fá að kom- ast upp með að taka sér forréttindi sem ESB-aðildarríkin sjálf fá ekki,“ er haft eftir Westerlund á fréttavef Aftenposten. Audun Lysbakken, varaformað- ur sósíalíska vinstriflokksins, SV, segir hins vegar að EES-samning- urinn „verði að þola að Noregur neiti að innleiða þjónustutilskip- unina“. Hann segir að sé ekki hægt að beita fyrirvara gegn innleið- ingu svo umdeildrar Evrópulög- gjafar, sé fyrirvararétturinn í EES bara fyrir hendi í orði en ekki á borði. Á landsstjórnarfundi SV var í gær samþykkt ályktun um að flokkurinn vilji að Noregur hafni innleiðingunni „nema við séum viss um að við munum geta barist gegn félagslegum undirboðum, varið grunnþjónustugreinar og haldið stjórnsýsluyfirráðum og neytendavernd“. Flokksstjórn norska Miðflokks- ins samþykkti helgina áður álykt- un þar sem áréttuð er gagnrýnin afstaða flokksins til þjónustutil- skipunarinnar. Evrópuþingið samþykkti end- anlega útgáfu tilskipunarinnar þann 15. nóvember og hún á að ganga í gildi í ársbyrjun 2010. Meginmarkmið hennar er að stuðla að aukinni samkeppni á sviði þjónustuviðskipta yfir innri landamæri Evrópska efnahags- svæðisins og ýta þar með undir hagræðingu og sköpun nýrra starfa í þjónustugreinum, sem 70 prósent allra launþega á EES- svæðinu starfa við. Gagnrýnend- ur tilskipunarinnar halda því fram að hún muni stuðla að félagslegum undirboðum og röskun á vinnu- markaði. Setti EES í uppnám Andstæðingar þjónustutilskipunar ESB innan norsku ríkisstjórnarinnar vilja hafna innleiðingu hennar. Talsmaður ESB segir það geta sett EES-samninginn í uppnám. Morgunverðarfundur á Hótel Nordica, þriðjudaginn 28. nóvember, frá kl. 8.30 - 9.45. Létt morgunverðarhlaðborð. Verð 2.500 kr. Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista og formaður Viðskiptaráðs Íslands, setur fundinn. Erindi: Jóhanna Waagfjörd, framkvæmda- stjóri Haga: Mikilvægi erlends vinnuafls fyrir atvinnulífið. Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, viðskiptalögfræðingur á skatta- og lögfræðisviði Deloitte: Dvalar- og atvinnuleyfi erlendra starfsmanna. Páll Jóhannesson, forstöðumaður skatta- og lögfræðisviðs Deloitte: Skattlagning erlendra starfsmanna. Fundarstjóri er Margrét Sanders, framkvæmdastjóri rekstrar Deloitte. Vinsamlegast tilkynnið skráningu á vefsíðu Deloitte, deloitte.is, eða sendið póst á skraning@deloitte.is. Jóhanna Waagfjörd Erlendur Hjaltason Þóra Margrét Þorgeirsdóttir Páll Jóhannesson Margrét Sanders P IP A R • S ÍA • 6 0 8 16 Sala sendiherrabústaðarins í Kaupmanna- höfn og kaup eða leiga á öðrum hentugri er meðal breytingartillagna meirihluta fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp næsta árs sem nú er til umræðu í Alþingi. Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri utanrík- isráðuneytisins, segir að verið sé að skoða hvort hægt sé að komast af með ódýrara húsnæði. „Við erum núna að skoða markaðinn út frá því hversu verðmikið húsið er og jafnframt hvort að ódýrara húsnæði gæti hugsanlega verið nær sendiráðsskrifstofunni.“ Sendiráðsbústaðurinn er í úthverfi Kaupmanna- hafnar og sendiráðsskrifstofan staðsett við miðbæ- inn. „Við erum búin að eiga húsið lengi og það er langur aksturstími inn í bæinn. Og nú er komið að viðhaldskostnaði á húsinu sem gæti kostað talsverð- ar fjárhæðir. Það er ekki alveg búið að ganga frá þessu en verið að kanna út frá hagræðingaratriðum.“ Grétar segir það samræmast stefnu ráðuneytisins að athuga húsnæði sem hafi fyrst og fremst það hlutverk að vera atvinnutæki. Aðspurður um hvort til þess gæti komið að keypt yrði dýrara húsnæði segir Grétar það ekki vera í skoðun. Ekki náðist í Svavar Gestsson sendiherra Íslands í Danmörku. Foreldrafélag leikskól- ans Gullborgar hefur sent Reykjavíkurborg bréf þar sem skorað er á yfirvöld að bæta úr starfsmannaeklu leikskóla. Segir í áskoruninni að það vanti alls 68 stöðugildi í 50 leikskóla borgarinn- ar. Hafi því þurft að senda börn fyrr heim eða jafnvel hafa þau heima einn dag í viku. Á sama tíma sé 50 milljónum eytt í stofnun nýs leikskólasviðs, en telur félagið að nær sé að eyða fénu í ráðningu starfsfólks. Foreldrafélag skorar á borgina Augusto Pinochet hefur lýst yfir að hann beri „pólitíska ábyrgð“ á valdatíð sinni frá árinu 1973 til 1990, þegar hann var einræðisherra í Chile. Yfirlýsingin var lesin upp af eiginkonu Pino- chets á 91 árs afmæli hans á laugardag. Einræðisherr- ann varði einnig hið blóðuga valdarán sitt, þegar Salvador Allende var komið frá völdum 1973. Pinochet telur að valdaránið og stjórn sín hafi gert Chile að „öflugu, nútímalegu og aðdáunarverðu landi“. Í valdatíð Pinochets voru mörg þúsund manna líflátin, pyntuð og fangelsuð. Viðurkennir pólitíska ábyrgð Bifreið lenti á ljósastaur á Reykjanesbraut fyrir ofan Grænás um sexleytið í gærmorg- un. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Meiðsli hans voru ekki talin alvarleg og fékk hann að fara heim að læknisskoðun lokinni. Bíllinn var töluvert skemmdur eftir áreksturinn og þurfti lögregla að kalla til dráttarbíl til þess að koma honum af vettvangi. Að sögn talsmanns lögreglunnar í Keflavík liggur enginn grunur á að um ölvunarakstur hafi verið að ræða heldur var hálka megin- orsök slyssins. Ók á staur á Reykjanesbraut Til greina kemur að bæta starfstengdri íslensku- kennslu fyrir erlenda starfsmenn í fiskvinnslu við námskeið Starfs- fræðslunefndar fiskvinnslunnar sem rekið er innan sjávarútvegs- ráðuneytisins. Þetta kom fram í máli Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra við setn- ingu 25. þings Sjómannasambands Íslands í gær. Einar er sannfærð- ur um að starfstengd íslensku- kennsla fyrir erlent fiskvinnslu- fólk yrði til hagsbóta fyrir fiskvinnsluna og byggðarlögin í landinu í heild sinni. Sjávarútvegsráðherra gerði veiðiráðgjöf og hafrannsóknir í víðum skilningi að umræðuefni sínu. Hann ræddi þar sérstaklega um þá umræðu sem á sér stað í alþjóðasamfélaginu um að banna botnvörpuveiði á úthöfunum. Íslensk stjórnvöld leggjast ein- dregið gegn slíku banni, „því yrði svona bann að veruleika er líkleg- ast að fylgjendur þess færðust í aukana og beindu spjótum sínum að botntrollsveiðum í lögsögu ríkja.“ Einar ítrekaði þá skoðun sína að hann leggst gegn banni einstakra veiðarfæra en hvetur til þess að þeim sé beitt þannig að skaðsemi þeirra í lífríkinu sé lág- mörkuð. Í þessu samhengi verða veiðarfærarannsóknir í miðstöð Hafrannsóknastofnunar á Ísafirði efldar og telur ráðherra þær rann- sóknir skipta miklu máli. Fiskvinnslufólk í íslenskunám Hvað heitir örninn sem var sleppt í gær? Hvað heitir ný göngudeild SÁÁ í Efstaleiti? Hvaða indjánar ætla að kæra Microsoft fyrir að stela tungumáli þeirra?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.