Fréttablaðið - 27.11.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 27.11.2006, Blaðsíða 10
Kolfinna Dofra- dóttir, sjö ára nemandi í Foldaskóla í Grafarvogi, hefur nú beðið í fjór- tán vikur eftir plássi á frístunda- heimili og er hún ein þeirra 79 barna sem enn bíða eftir vistun á frístundaheimilum í Reykjavík. Nýleg könnun sem ÍTR lét gera á aðstæðum þeirra barna sem bíða eftir plássi á frístundaheimili sýnir að 31 prósent barna er eitt heima þegar skóladegi lýkur. Flest þess- ara barna eru sjö og átta ára gömul en könnunin náði til 114 barna. Könnunin sýnir að 21 prósent barna er hjá foreldrum sínum, átján pró- sent barna eru hjá afa, ömmu eða öðrum skyldmennum, átta prósent eru í pössun, sjö prósent hjá eldri systkinum, og fjögur prósent í vinnu með foreldrum sínum. Þá segja 62 prósent foreldra bið eftir plássi á frístundaheimili hafa mikla röskun í för með sér. Foreldrar Kolfinnu eru Dofri Hermannsson og Arndís Steinþórs- dóttir og segir Dofri þau vera heppnari en marga aðra í svipaðri stöðu þar sem foreldrar hans búi í húsinu. „Þá er Katrín, eldri dóttir okkar, stundum heima eftir skóla og getur litið eftir Kolfinnu þar til við komum heim en þetta er mikið púsluspil og streituvaldur,“ segir Dofri en bætir við að reddingarnar lendi mest á konu hans. „Við hjónin komum heim úr námi í haust og þegar vitað var að dóttir okkar fengi ekki heilsdags- vistun ákvað Arndís að taka að sér kennslu því henni fylgir ákveðinn sveigjanleiki. Það má því segja að staðan í vistunarmálum hafi ráðið til um núverandi starf Arndísar sem stundum tekur Kolfinnu með sér í vinnuna eða vinnuna með sér heim. Hver dagur gengur út á sífelldar reddingar og álag og það verður mikill léttir þegar Kolfinna kemst að á frístundaheimili.“ Dofri og Arndís hafa engin svör fengið um það hvenær Kolfinna kemst að en nú hafa fulltrúar Samfylkingarinnar í borgarstjórn komið með þá tillögu að kannað verði hvort börn geti deilt með sér plássi. Þessi tillaga kemur í kjölfar könnunar sem sýnir að margir for- eldrar þurfi ekki fulla vistun fyrir börn sín. Dofri segir að það myndi bjarga miklu ef Kolfinna fengi pláss á frí- stundaheimili tvo til þrjá daga í viku. „Bæði myndi það létta áhyggjum af okkur hjónum og stelpan fengi einnig fleiri tækifæri til að vera með jafnöldrum sínum.“ Dofri segist mjög ósáttur við framgöngu meirihlutans í málefn- um frístundaheimilanna og að vinna í málaflokknum hafi hafist of seint. „Björn Ingi Hrafnsson athafnastjórnmálamaður tók sér langt frí í sumar og haust í stað þess að ganga beint í mönnunarmál á frístundaheimilum en það var fyrirsjáanlegt að langan tíma tæki að manna stöðurnar og að það myndi leiða til biðlista.“ Dofri bendir á að í fyrra hafi þáverandi meirihluti gripið til þess ráðs að hækka laun starfsmanna á frístundaheimilum en ekkert slíkt hefði verið uppi á teningnum í haust. Biðin veldur röskun og reddingum Kolfinna Dofradóttir hefur beðið í 14 vikur eftir að komast að á frístundaheim- ili og ekki sér fyrir endann á biðinni. Nýleg könnun ÍTR sýnir að 62 prósent foreldra barna sem bíða segja biðina hafa haft mikla röskun í för með sér. Þrátt fyrir nægan snjó er útlit fyrir að skíðasvæði Ísfirðinga í Tungudal verði ekki opnað fyrr en eftir áramót vegna þess að reksturinn er þegar kominn umfram áætlun. Halldór Halldórsson bæjarstjóri segir að rekstur skíðasvæðisins sé kominn tveimur milljón- um fram úr áætlun fyrir árið og því verði að koma til aukafjárveiting eigi að opna svæðið fyrir áramót. Kostnaður bæjarfélagsins vegna reksturs skíðasvæðisins á þessu ári nemur 26,7 milljónum. „Tekjurnar voru einungis þrjár milljónir en það skýrist fyrst og fremst af því að mjög lítill snjór var á svæðinu síðasta vetur,“ segir Halldór. Halldór fundaði með fulltrúum Skíðafélagsins sem sögðust reiðubúnir til að leggja fram vinnu við opnun svæðisins og segist Halldór hafa lýst yfir vilja bæjarstjórnar til þess að stuðla að því að svo geti orðið. Að sögn Jóhanns Torfasonar, forstöðumanns skíðasvæðisins, væri hægt að opna svæðið innan fáeinna daga fengist til þess fjárveiting. Náttúrufræðing- ar, sem hafa verið í viðræðum við launanefnd sveitarfélaga, eru von- litlir um að gengið verði frá endur- skoðun kjarasamninga. Deilan hefur verið hjá ríkissáttasemjara í nokkra mánuði en engar viðræður eru í gangi. Ína Hjálmarsdóttir, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga, telur að náttúrufræðingar verði að sækja hækkanir með öðrum hætti en gegnum kjarasamning. „Það er alltaf möguleiki að semja betur í ráðningarsamningi en kjarasamn- ingar segja til um,“ segir hún. Kjarasamningur náttúrufræð- inga er frá 2001. Eitt og hálft ár er síðan endurskoðun hans átti að fara fram. Ína telur allar líkur á því að ekki verði gengið frá neinni endurskoðun á samningnum og þar með gildi gamli samningurinn áfram. Hún bendir á að náttúrufræð- ingar hafi ekki fengið neinar samn- ingstengdar kjarabætur í eitt og hálft ár og fái ekki meðan ekki hefur náðst samkomulag um end- urskoðunina. Tilboð hafi borist en „við getum ekki gengið frá samn- ingi sem þýðir skerðingu fyrir hluta af okkar félagsmönnum,“ segir hún. Fundur samninganefnda verð- ur líklegast boðaður fyrir jól. Vonlitlir um samkomulag Efnistaka úr Ingólfsfjalli verður leyfð áfram í samræmi við áður útgefið framkvæmdaleyfi sem sveitarfélagið Ölfus gaf út. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hefur hafnað kröfu Landverndar og Náttúru- samtaka Suðurlands um ógildingu á framkvæmdaleyfi til efnistöku úr fjallinu. Meginrök sveitarfélagsins fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis- ins er hugsanlegur efnahagslegur ávinningur af efnistökunni. Sveitarfélagið leggur áherslu á að reglum hafi verið fylgt og lögbundinna álita leitað áður en leyfið var gefið út. Áframhaldandi efnistaka leyfð Framlag til byggingar mislægra gatnamóta á mótum Vesturlandsvegar og Suðurlands- vegar verður fært til, samkvæmt nýju frumvarpi fjármálaráðherra, og verður fjárveitingu skipt á tvö ár; í stað 600 milljóna á næsta ári fari 400 milljónir í verkið á næsta ári og 200 milljónir á þarnæsta ári. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra segir að framkvæmdin við Nesbraut sé minna verkefni en áætlað hafi verið í upphafi. Fjárveiting til verksins hafi verið hærri samkvæmt samgönguáætlun en nú sé fyrirsjáanlegt að kostnað- urinn verði minni. Ef uppgjör verksins verði undir fjárveitingum fari afgangurinn í önnur verkefni á samgönguáætlun. Lægri kostnað- ur við Nesbraut Søren Gade, varnarmálaráðherra Dana, hefur gagnrýnt nokkur aðildarríki NATO fyrir að skorast undan ábyrgð í Afganistan, að sögn Politiken. Bretar og Kanadamenn hafa áður gagnrýnt Þjóðverja, Ítali og Spánverja fyrir að hafa sína hermenn einungis í norðvestur- hluta Afganistans, en hann er mun friðsælli en suðurhluti landsins. „Öll lönd ættu að leggja sitt af mörkum.“ segir Søren. Danskir hermenn í Suður-Afganistan eru 290 talsins og á að fjölga í þeirra röðum á næstunni. Alls eru 32.000 hermenn á vegum NATO í landinu og hafa 3.700 fallið í átökum á þessu ári, flestir þeirra afganskir þegnar. Gagnrýnir NATO-ríki Framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins hefur kynnt grænbókina sem ætlað er að auka umræður og skoðana- skipti um þróun evrópskrar vinnumarkaðslöggjafar í þá átt að tryggja sveigjanleika á markaði. Á vef Samtaka atvinnulífsins er sagt frá gagnrýni forseta Evrópusamtaka atvinnulífsins, sem segir að þrátt fyrir tilraunir í gagnstæða átt, einblíni græna skjalið of mikið á hvernig hægt sé að viðhalda núverandi störfum. Í staðinn ætti að leita leiða til þess að greiða fyrir sköpun nýrra starfa með auknum sveigjanleika á vinnumarkaði. Sveigjanleiki verði aukinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.