Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.11.2006, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 27.11.2006, Qupperneq 18
fréttir og fróðleikur Leiðtogafundur NATO hefst í Riga í Lettlandi á morg- un. Togstreita um deilingu byrða, einkum og sér í lagi af hinu vandasama verkefni í Afganistan, og óeining um frekari stækkun bandalags- ins munu setja mark sitt á fundinn. Frá lokum kalda stríðsins fyrir hálfum öðrum áratug hefur Atl- antshafsbandalagið smám saman verið að finna sér nýjan tilveru- grundvöll. Hefur það einkum verið gert með því að opna raðir banda- lagsins fyrir nýjum aðildarríkjum og með því að það taki að sér verkefni utan marka hefðbundins athafnasvæðis þess og verkefna- sviðs. En nú þegar leiðtogar aðildar- ríkjanna, sem eru orðin 26, safnast saman í lettnesku höfuðborginni Riga, virðist stuðningur við hvort tveggja – stækkun og aðgerðir „utan svæðis“ – fara þverrandi. „Stækkunarþreyta“ virðist þess í stað vera komin í bandalagið og tekizt er hart á um deilingu byrð- anna af kostnaðar- og vandasöm- um, hættulegum aðgerðum eins og þeim sem í gangi eru í Afganistan. „Stækkunarmálin verða örugg- lega ekki efst á baugi á leiðtoga- fundinum í Riga,“ sagði James L. Jones, aðalhershöfðingi NATO í liðinni viku. Riga-fundurinn verður fyrsti leiðtogafundur NATO frá því Var- sjárbandalagið var leyst upp, þar sem engu landi í Mið- og Austur- Evrópu verður boðin aðild. Vorið 2004 fengu inngöngu sjö lönd, sem áður voru hluti af Aust- urblokkinni – Eistland, Lettland, Litháen, Slóvakía, Slóvenía, Rúm- enía og Búlgaría. Það var umfangs- mesta stækkunarlota bandalagsins frá upphafi, en árið 1999 gengu Pólland, Tékkland og Ungverjaland í bandalagið. Þau fyrrverandi Austurblokk- arlönd sem nú bíða þess að fá boð um NATO-aðild eru Albanía, Króatía og Makedónía, og fyrrver- andi Sovétlýðveldin Úkraína og Georgía. Þótt bandarískir ráðamenn hafi þrýst á um aðild síðarnefndu land- anna tveggja þykir ósennilegt að þeim verði gefin nein skuldbind- andi fyrirheit um aðild að banda- laginu. Ein ástæðan fyrir því er dvínandi áhrif Bandaríkjamanna á stefnumótun bandalagsins, sem rekja má til deilnanna um Íraks- stríðið og þeirrar stefnu núverandi Bandaríkjastjórnar að velja sér bandamenn eftir þörfum. Þessi stefna, sem Donald Rumsfeld, frá- farandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, orðaði svo: „The mission defines the coalition,“ hefur tvímælalaust grafið undan NATO og áhrifum Bandaríkja- manna á stefnumörkunina. Hvað Úkraínu varðar flækir það líka málin að síðan í marz á þessu ári er þar við völd ríkisstjórn sem er klofin í afstöðunni til þess hvort fýsilegt sé fyrir landið að stefna inn í NATO. Flokkur Viktors Janúkovítsj forsætisráðherra vill halda í náin tengsl við Rússland frekar en að nálgast NATO frekar. Hvað Georgíu varðar fara erind- rekar í höfuðstöðvum NATO í Brussel ekki í neinar grafgötur um að sú mikla spenna sem ríkir í sam- skiptum Kákasuslýðveldisins við Rússland geri að verkum að banda- lagið myndi hugsa sig tvisvar um áður en það byði því aðþrengda ríki aðild, vitandi að Rússar tækju það mjög óstinnt upp. Af öðrum ríkjum í biðröðinni er Króatía álitin eiga bezta mögu- leika. Hernaðarleg aðlögun að stöðlum NATO er þar langt á veg komin og pólitískur stöðugleiki ríkjandi. Makedónía kæmi næst þar á eftir og Albanía þarnæst. Lík- legt þykir að á fundinum í Riga verði í það minnsta einhverjum af þessum ríkjum veitt fyrirheit um að þau geti gert sér vonir um að fá inngöngu á árinu 2008. „Það er mjög mikilvægt að sýna að það sé engin stækkunarþreyta í bandalag- inu,“ hefur AP-fréttastofan eftir Jamie Shea, yfirmanni stefnumót- unarsviðs NATO. Hugmyndir um að teygja raðir NATO út fyrir landfræðileg mörk Evrópu og Norður-Ameríku eru hins vegar mun umdeildari. Bandaríkjastjórn áréttaði fyrir Riga-fundinn að hún væri því hlynnt því að NATO byði Japan, Suður-Kóreu og Ástralíu til náins samstarfs, auk Svíþjóðar og Finn- lands. „NATO verður að verða áfram Evró-Atlantshafsstofnun,“ sagði franski varnarmálaráðherr- ann Michele Alliot-Marie nýlega í grein í dagblaðinu Figaro. „Að breyta bandalaginu í hnattræna stofnun gæti ... grafið undan nátt- úrulegri samstöðu Evrópumanna og Norður-Ameríkumanna og útvatnað það,“ skrifaði Alliot- Marie. Jaap de Hoop Scheffer, fram- kvæmdastjóri NATO, hefur sagt að hugmyndin um NATO-aðild ríkja á borð við Japan og Ástralíu væri all fjarstæðukennd. En hugmyndin á sér áhrifamikla stuðningsmenn, líka í Evrópu. „Við verðum að breyta því hvernig litið er á bandalagið land- fræðilega og opna raðir þess fyrir þeim þjóðum sem deila gildum okkar, sem standa vörð um þau í reynd, og eru viljugar til að taka þátt í baráttunni gegn hugmynda- fræði „heilags stríðs“ herskárra múslima,“ skrifaði Jose Maria Aznar, fyrrverandi forsætisráð- herra Spánar, í marz síðastliðnum. Hann mælti því með því að NATO byði Japan, Ástralíu og Ísrael aðild að bandalaginu. Søren Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur, gagnrýndi önnur bandalagsríki um helgina fyrir að víkja sér undan því að taka á sig sinn skerf af byrðunum af verk- efni bandalagsins í Afganistan. 290 danskir hermenn eru í ISAF-fjöl- þjóðaherliðinu, sem NATO stýrir, í suðurhluta Afganistans þar sem það er stöðugt að lenda í bardögum við skæruliða talíbana. Áður hafa ráðamenn Bretlands og Kanada kvartað yfir því að Þjóðverjar, Ítal- ir, Spánverjar og Frakkar haldi sínum hermönnum í norður- og vesturhluta Afganistans, þar sem lítið hefur verið um vopnuð átök síðan innrásarlið undir forystu Bandaríkjamanna steypti talíbana- stjórninni í landinu síðla árs 2001. Kanadíski varnarmálaráðherrann Gordon O‘Connor sagði að her- menn þessara þjóða ættu framveg- is að „vera með hvar sem er í Afganistan“. Að sínu áliti verði þetta „aðalmálið í Riga“. Danir hafa samþykkt að verða við beiðni NATO um að senda liðs- auka til Afganistans, en „öll aðild- arríkin ættu að leggja sitt af mörk- um,“ sagði Gade í viðtali við dagblaðið Politiken á laugardaginn. Hik hinna við að heimila að þeirra hermenn sinni líka hættulegustu verkefnunum grefur undan trú- verðugleika NATO, að mati Gades. Angela Merkel, kanzlari Þýzka- lands, sagði á laugardag að Þjóð- verjar væru staðráðnir í að leggja sitt af mörkum til að tryggja að verkefni NATO í Afganistan tækist vel. Þátttaka þýzkra hermanna í Afganistanverkefninu, svo og öðrum verkefnum langt „utan svæðis“ NATO, er hins vegar við- kvæmt pólitískt deilumál í Þýzka- landi. Í þýzka vikuritinu Der Spi- egel var í síðustu viku þessi vandi orðaður þannig, að krafa NATO væri sú að Þjóðverjar „lærðu að drepa“. Eftir Ronald Neumann, sendiherra Bandaríkjanna í Afgan- istan, er haft að þýzkir hermenn ættu að taka þátt í bardögum í Suður-Afganistan og láta þar lífið, ef nauðsyn krefði. Þátttaka þýzkra hermanna í hernaðarverkefnum fjarri heimavelli er hins vegar nógu umdeild fyrir meðal þýzks almennings, þótt ekki bættist við að þeir stæðu í því jafnvel daglega „að drepa“ herskáa heimamenn í Hindukush-fjöllum. Líf og dauði rússnesks njósnara Verkir og hreyfihömlun Togstreita og stækkunarþreyta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.