Fréttablaðið - 27.11.2006, Page 24
Á veturna safnast oft litlir fugl-
ar í garða þar sem fóður er að
finna. Margir hafa ánægju af
því að setja upp aðstöðu fyrir
fuglana og fóðra þá, enda er
það gott fyrir þessa smáfugla
sem oft eiga erfitt uppdráttar í
kuldanum.
Það eru margir sem fóðra garð-
fuglana sína ár eftir ár og hafa
gaman að því þegar þeir koma í
mat á veturna. „Helstu garðfugl-
arnir eru skógarþrestir, tittlingar
og starrar sem koma reglulega í
garðinn hjá okkur,“ segir Einar Ó.
Þorleifsson, náttúrufræðingur hjá
Fuglavernd.
Fóðurbretti er hægt að fá í
ýmsum verslunum með búsáhöld
og byggingavörur, en síðan er líka
gaman að smíða sitt eigið fóður-
bretti með krökkunum. Brettið á
að vera 60 til 80 cm á lengd og 50
cm á breidd með köntum svo fóðr-
ið fjúki ekki burt. Síðan er það fest
á 1,5 m háa stöng, svo kisa nái ekki
til, og henni stungið ofan í jörðina.
„Fuglarnir vilja helst mjúkt
fæði, haframjöl, brauðmola, kart-
öflur. En líka matarafganga eins
og kjöt og fitu sem er hakkað og
stappað saman. Fuglarnir þurfa á
fitu að halda sem er besti orku-
gjafinn á veturna og þess vegna
gott að dýfa brauðinu í matarolíu
og blanda líka við annað fæði,“
segir Einar. Mörgum fuglum finnst
líka gott að fá epli og rúsínur en
það laðar líka að sjaldséða og
skrautlega fugla eins og silkitopp,
svartþresti og gráþresti. „Það er
mikilvægt að gefa þeim á hverjum
degi, svo þeir eyði ekki orku í að
bíða og leiti á staði þar sem þeim
er bara gefið af og til,“ segir
Einar.
Snjótittlingar og auðnutittling-
ar þurfa samt annars konar fóður.
„Snjótittlingarnir þurfa fíngerð
fræ og það er gott að gefa þeim á
bersvæði, úti á túni eða á bílskúrs-
þökum. Á meðan má fóðra auðnu-
tittlinga með fræjum úr þar til-
gerðum fóðrara,“ segir Einar.
Það er mikilvægt fyrir fuglana
að snyrta fjaðrirnar vel allan árs-
ins hring en á veturna er það sér-
staklega mikilvægt. „Til að fiðrið
haldi einangrunargildinu þarf það
að vera hreint. Þess vegna er gott
að þeir hafi fuglabað nokkra senti-
metra hátt sem alltaf þarf að vera
hreint og má ekki vera klístrað.
Þar geta þeir líka fengið sér að
drekka,“ segir Einar.
Fuglahús eru af öllum stærðum
og gerðum og þar verpa sumir
fuglar eggjum. Á vef fuglaverndar
má sjá nokkrar tegundir af húsum,
en einnig er hægt að búa þau til
heima. Svo þarf að muna að setja
bjöllu á kisu.
Upplýsingar um íslenska fugla
á vef námsgagnastofnunar: www.
nams.is/fuglar – Upplýsingavefur
Fuglaverndar:www.fuglavernd.is
Garðfuglarnir koma
aftur ár eftir ár
4thfloorhotel
Laugarvegur 101 • 4thfloorhotel.is
Vetrartilboð
1. nóvember - 1. maí
Útvegum miða á leiksýningar og jólahlaðborð
1 manns herbergi
2ja manna herbergi
Hópar 10+
Helgarferð
kr. 5.900
kr. 7.900
kr. 5.000 á mann
kr. 14.000 2 nætur í hjónaherbergi
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Mex - byggingavörur
Sími 567 1300 og 848 3215
www.byggingavorur.com
STIGAR OG HANDRIÐ
Við höfum lausnina, mælum,
teiknum, smíðum og setjum upp
Á lager :
Beinir stigar - Loftastigar
Handlistar - Stólpar - Pílárar