Fréttablaðið - 27.11.2006, Síða 26
Jæja Arkitektúr er nýtt
íslenskt fagrit sem kemur út
á hálfs árs fresti og hjálpar
lesendum að greina hismið frá
kjarnanum.
„Útgáfufyrirtækið SAGAZ vildi
gera vörutímaritið Inn enn veg-
legra með því að bæta við það sér-
stökum hluta helguðum arkitekt-
úr og fékk mig til að ritstýra
honum,“ segir Arnaldur Geir
Schram arkitekt um aðdragand-
ann að útgáfunni.
„Útkoman er því tvískipt tíma-
rit, annars vegar Inn og hins
vegar nýi hlutinn Jæja Arkitekt-
úr, og kemur það út á sex mánaða
fresti,“ heldur Arnaldur áfram.
„Hvert tölublað er síðan helgað
ákveðnu þema þannig að viðbúið
er að það taki ákveðnum breyting-
um þar sem gæði verða ávallt
höfð í fyrirrúmi.“
Arnaldur segir Jæja Arkitekt-
úr skera sig frá öðrum hönnunar-
tímaritum, meðal annars vegna
áherslu á gagnrýna umfjöllun og
uppfræðslu. „Alltof mörg tímarit
snúast um upphafningu einhverra
vörumerkja,“ segir Arnaldur.
„Markmið Jæja Arkitektúrs er að
hjálpa lesendum við að greina his-
mið frá kjarnanum svo þeir öðlist
meiri innsýn í heim hönnunar.“
Arnaldur telur þekkingu á arki-
tektúr og skipulagsmálum nokkuð
ábótavant á meðal almennings, en
sjálfur var hann við nám við
Southern California Institute of
Architecture í Los Angeles (SCI-
Arc). Hann segist þó ekki vera að
setja sig á háan hest gagnvart
samlöndum sínum, heldur vilji
hann einfaldlega miðla fróðleik.
„Ég er ekki alvitur í þessum
efnum en hef hins vegar fengið til
liðs við mig fagaðila, bæði til að
skrifa í tímaritið og sitja fyrir
svörum,“ segir Arnaldur. „Í því
samhengi er rétt að nefna að
sumar greinanna eru skrifaðar af
erlendu fagfólki og munu birtast
á ensku í tímaritinu í bland við
þær íslensku.“
Arnaldur segir að þótt Jæja
Arkitektúr sé að þessu sinni upp-
fullt af fróðleik um arkitektúr og
skipulag, sé það skemmtilegt og
auðvelt aflestrar enda löngu orðið
tímabært að Íslendingum standi
til boða tímarit sem uppfyllir slík
skilyrði.
Öðruvísi tímarit uppfullt
af fróðleik um arkitektúrFlottustu
teppin