Fréttablaðið - 27.11.2006, Qupperneq 51
Presturinn Gunnar Jóhannesson skrifar í Lesbók Morgunblaðs-
ins 8. júlí sl. um trú og vísindi.
Ástæðan er viðtal við Richard
Dawkins í Kastljósinu 25. júní,
hann ásamt trúbræðrum sínum
kalla sig trúleysingja, hvernig
sem það má nú vera að trú (skoð-
un) þeirra á lífið og tilveruna sé
trúleysi, vegna þess eins að vís-
indin hafa ekki enn fundið gemsa-
númerið hjá „Guði“.
Vísindamenn hafa ekki alltaf
rétt fyrir sér, það er vísindalega
sannað, sá ég slegið fram nú fyrir
nokkru. „Vísindi án trúarbragða
eru lömuð, trúarbrögð án vísinda
eru blind“ er haft eftir A. Einstein,
hann sagði einnig, „Það óskiljan-
legasta við alheiminn er það, að
það er hægt að skilja hann“. Hann
lýtur sem sé að stjórn. Er þessi
stjórn ef til vill ekki það sem er í
daglegu tali kallað „Guð“?
Ef til vill sjáum við ekki það
augljósa, vegna þess að það er of
nálægt okkur, sjáum ekki skóginn
fyrir trjánum.
Grein Gunnars er nokkuð löng
og skilmerkileg, og nokkuð marg-
ir menn hafa gripið penna sér í
hönd og tjáð sig um málefnið.
Eitt er þó sammerkt með all-
flestum skrifum presta og ann-
arra guðfræðinga að þeir hafa
ekki að mínu viti getað skilgreint
hvað er þessi Guð, hann, hún eða
það sem gefur okkur frjálsan vilja,
setur okkur svo (Guðs)lög til að
fara eftir að viðlagðri refsingu.
Vil ég nú kalla eftir þessari
skilgreiningu.
Mig hefur um nokkurt skeið
langað að koma á framfæri nokkr-
um staðhæfingum er ég hef aflað
mér um hvað sé „Guð“.
Ég ætla að setja þetta upp eins
og „Guð“ væri að útskýra hvað
„hann“ er.
„Það sem drífur alheiminn
áfram og gerir tilvist hans „raun-
verulega“ er það sem þið fólkið
kallið sál eða áru sem er í kringum
alla hluti alheimsins, og sumt fólk
sér. Það er eingöngu til ein sál í
öllum alheiminum sem allt er hluti
af. Sál ykkar er einstaklingsmynd
þessa guðsanda sem er allt-sem-
er, og tjáir sig staðbundið og ein-
stök. Sálin er allsherjarlífsorkan,
einskorðuð og staðbundin og ólgar
á tiltekinni tíðni í tilteknu rúmi og
tíma. Orka er bylgjast á einstæðan
hátt og er einstætt-útstreymi-
alheimslífsins, og er kölluð sál og
styðst við orku alheimslífsins er
hún tilheyrir, sem er eitt af þrem-
ur úrræðum hennar til að móta til-
tekna upplifun, þessi orka er
stundum kölluð andi. Hin úrræðin
eru líkami og hugur. Sálin er þessi
raunverulegi „þú“, og „þú“ ert
ekki líkami þinn, sálin „þú“ notar
eingöngu líkamann og hugann til
að upplifa sig í ríki-hins-afstæða.
Sálin getur horfið úr líkamanum
um stund til að hressast og eflast,
það tímabil kallið þið svefn, hún
getur einnig runnið saman við
alheimsorkuna í mjög langan tíma,
það kallið þið dauða, en „dauði“ er
að sjálfsögðu ekki til, sálin
ummyndar einungis orku líkama
ykkar og huga er hún sameinast
aftur öllu-í-öllu (alheimsorkunni).
Þannig upplifir einstaklingssálin
sig aftur og aftur uns hún hefur
upplifað sig í öllum litrófum lífs-
ins og sameinast alheimssálinni að
lokum sem hreinn kærleikur.
Þessi orka hefur greind, eins og
þið kallið það. Hún er uppspretta
og geymsla allrar þekkingar og
vitundar, allra gagna og upplýs-
inga, skilnings og upplifunar. Þið
eruð þessi orka og þessi orka er
þið og það er ekkert sem skilur
ykkur að. Þið og allt eruð eitt með
þér, því að allt er fólgið í þessari
orku. Það táknar að þú
og allir aðrir í heimin-
um eruð eitt, ekki í
fræðilegum skilningi
heldur í afar bókstaf-
legum skilningi. Það
er enginn, engin mann-
leg vera neins staðar,
sem þú átt ekki hlut í
– eðlislægan og náinn
hlut.
Og því segi ég við
ykkur enn og aftur.
1. Guð hefur aldrei
hætt að tala við menn-
ina milliliðalaust, hann hefur talað
við og í gegnum menn frá fyrstu
tíð, og gerir enn.
2. Sérhver mannvera er eins sér-
stök og hver önnur sem nokkru
sinni hefur lifað eða
mun nokkru sinni lifa.
Þið eruð öll boðberar,
og berið boðskap lífsins
hverja stund.
3. Engin leið til Guðs er
beinni en önnur. Engin
trúarbrögð eru „hin
sönnu trúarbrögð“,
engin þjóð er „hin
útvalda þjóð“ og enginn
spámaður er „merkasti
spámaðurinn“.
4. Guð þarfnast einskis,
æskir einskis til að vera
ánægður því hann er ánægjan
sjálf. Þess vegna æskir hann ein-
skis af neinum eða neinu í alheim-
inum.
5. Guð er ekki einstök ofurvera
sem lifir einhversstaðar í alheim-
inum eða utan hans, og hefur ekki
sömu tilfinningaþarfir eða býr við
sama tilfinningarót og menn. Það-
sem-er-Guð verður ekki sært eða
skaddað á neinn veg og þarf því
ekki að leita hefnda eða refsa.
6. Allir hlutir eru eitt. Það er
aðeins eitt og allir hlutir eru hluti
af því-eina-sem-er.
7. Það er ekki til neitt sem er „rétt“
eða „rangt“. Eingöngu það-sem-
gefst-vel og það-sem-gefst-ekki-
vel, eftir því hvað það er sem þið
leitist við að vera, gera eða hafa.
8. Þið eruð ekki líkami ykkar. Það
sem þið eruð er takmarkalaust og
tekur engan endi.
9. Þið getið ekki dáið og þið verðið
aldrei dæmd til eilífrar útskúfun-
ar (í eldi helvítis).
Þessar staðhæfingar eru sann-
ar. Þessar opinberanir eru raun-
verulegar, og þið getið notað þær
sem grundvöll fyrir nýja umfjöll-
un andlegra efna.“
Hér líkur Guð máli sínu. Svo
mörg voru þau orð, og nú er það
hvers og eins að tjá sig. Það er að
sjálfsögðu hægt að hafa þetta
nokkuð yfirgripsmeira, en þá væri
ekkert annað efni í blaðinu í dag.
Með vinsemd og virðingu fyrir
öllum skoðunum, og von um lífleg-
ar og skemmtilegar umræður, og
munið að það ósennilega í dag er
raunveruleiki morgundagsins.
Höfundur er leigubifreiðastjóri í
Keflavík.
Trú, trúarbrögð og vísindi
HENRY BIRGIR GUNNARSSON - STEPHEN FOSTER
FÁNÝTUR FRÓÐLEIKUR
UM FÓTBOLTA
GAGNLEGAR OG GAGNSLAUSAR UPPLÝSINGAR UM FÓTBOLTAMENN LANDSINS OG
HEIMSINS. ALLT HIÐ SÖGULEGA, FYNDNA, SORGLEGA, STÓRKOSTLEGA OG FRÁBÆRA ...
OG AUÐVITAÐ MERKILEG HNEYKSLISMÁL!
Hver vissi að Tryggvi Guðmundsson
hefði kornungur rifið gula spjaldið
í miðjum leik? Eða að Guðjón
Þórðarson hefði hjólað á eftir
leikmönnum KR þegar þeir
skokkuðu á Nesinu?
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI