Fréttablaðið - 27.11.2006, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 27.11.2006, Blaðsíða 58
Undirtektir á frumsýningu Nem- endaleikhússins á Blóðbrúðkaupi Lorca á föstudag voru heldur dauf- ar; klappliðið þó mætt, kennarar og starfsmenn, forkólfar og emb- ættismenn. Og gagnrýnendur. Sú var tíðin að nýliðun var svo hæg í íslenskum leikhúsum að sviðsetn- ingum Nemendaleikhússins var fagnað af ofsalegu dálæti á nýjum andlitum. Sannleikurinn er sá að það heyrir til undantekninga að sýningar nemenda haldi máli; stóran mun mátti sjá þegar nem- endahópurinn var settur inn í sam- hengi starfandi leikflokks í svið- setningu Benedikts Erlingssonar á Draumleik fyrir fáum misser- um. Blóðbrúðkaup er valið af dönsk- um leikstjóra sem hingað var val- inn af einum kennara skólans. Nemendurnir stærðu sig af því skömmu fyrir frumsýningu að textann hefðu þeir sullað saman úr tveimur íslenskum þýðingum og einni enskri. Það var það fyrsta sem stakk í eyrun á frumsýning- unni. Virðingarleysið fyrir töluðu máli og upphöfnum stíl skáldsins lýsti af textanum, þar ægði saman flötu máli og upphöfnu, leikendum gekk enda illa að fóta sig í ljóð- rænum stíl skáldsins. Og þegar leikari veit ekkert hvert hann er að fara með textanum kemur það niður á öllu fasi hans, svipbrigð- um og hreyfingu. Það er óskiljanleg ráðstöfun að kalla til erlendan leikstjóra að verkinu. Henni og samverkamönn- um er veitt tækifæri til að setja verkið upp á eina hringsviði lands- ins og sitja áhorfendur í þröngum helmingi áhorfendasvæðisins en leikið í djúpum botni, tveimur hliðarpöllum, baksviði og yfir því svölum. Það þarf ansi harðsnúinn leikhóp til að tengjast og varpa því til áhorfenda á svo bútuðu svæði. Leikstjórinn megnar ekki að upp- hefja hin ólíku svæði leiksins í eitt rými, hann þjónar atriðisskipting- unni með því að lesa leikleiðbein- ingar og útlistanir milli atriða sem í flestum tilvikum staðfesta hið augljósa. Sundurbútun hans á atriðum verksins tætir heild þessa harmasöngs sem verkið er. Sviðsetningin er öll í útliti höll undir fornan natúralisma, eins og það hafi þurft. Ljóðið er svo hreint í sínu einfalda táknkerfi að það kallar næstum á abstrakt leik- mynd. Ég kýs að nafngreina ekki flokkinn: utan Vigni Hrafn Val- þórsson sem er skrefi framar félögum sínum: þeir eru allir við- vaningslegir á sviði, fálmandi í óskýru konsepti leikstjóra síns. Mesta furðu vekur hvað sýn- ingin er öll er orkulítil, hvað í hana skortir kraft og hita. Það er áhyggjuefni. Leiklistardeild Lista- háskólans hefur um langan tíma verið heilög kýr: slök frammistaða deildarinnar í verkefni sem þessu dregur upp efasemdir um kenn- aralið skólans og tengsl hans við virkt leikhúslíf í landinu. Hann er helsjúkur af foragt af reynslu og þangað eru kallaðir einstaklingar sem hafa afar takmarkaða reynslu af praktísku starfi á sviði. Raunin hefur enda orðið sú að kraftar á íslenskum sviðum koma víðar að, úr erlendum skólum, jafnvel áhugamennsku. Flestir nemendur sem þaðan útskrifast ná áttum á sviðum landsins á tveimur leiktíð- um fái þeir vinnu. Hinir hverfa til annarra starfa. Þannig að það gerir máski ekki mikið til þó fjór- um árum kennara og nemenda sé fórnað fyrir jafn slakan árangur og þessi sýning er. Eða hvað? Tónlist Egils Guðmundssonar prýddi sýninguna sem á kafla virt- ist ætla að breytast í söngleik. Hún var áheyrileg og fallega spil- uð. Þannig að í einhverjum deild- um skólans eru reynsluríkt fólk að fleyta nemendum sínum til kunn- áttu á sínum listrænu meðulum. Blóðlítið nemendabrúðkaup Hjá Leikfélagi Akureyrar eru hafnar æfingar á leikritinu Svart- ur köttur (The Lieutenant of Inish- more) eftir Martin McDonagh. Leikritið er margverðlaunað og hefur víða vakið verðskuldaða athygli. Sömu sögu er að segja um mörg fyrri verka McDonaghs: Koddamanninn, Halta Billa og Fegurðardrottninguna frá Línakri sem öll hafa verið sýnd hérlendis. Frumsýning verður 20. janúar hjá LA í Samkomuhúsinu en þá eru liðin 100 ár frá fyrstu frumsýn- ingu í húsinu. Þetta hófst allt með því að dauð- ur köttur fannst á veginum – besti vinur Patreks í öllum heiminum. Hann leitar hefnda, Mairead leitar að ástinni, allir leita að Patreki nema Davey sem leitar að leið út úr klandrinu. Sagan er reyfara- kennd og fyndin, persónurnar vit- grannar en brjóstumkennanlegar, umfjöllunarefnið áleitið og húm- orinn flugbeittur. Svartur köttur var frumsýndur í Bretlandi fyrir fjórum árum og var valinn gaman- leikrit ársins af þarlendum gagn- rýnendum. Nú í vor var leikritið svo frumsýnt á Broadway þar sem leikhúsunnendur halda ekki vatni. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson. Filippía Elísdóttir hannar leikmynd og búninga en hún er með reyndustu og eftirsótt- ustu búningahönnuðum landsins en hefur ekki áður hannað leik- mynd fyrir leikhús. Þórður Orri Pétursson hannar lýsingu. Hljóm- sveitin SKE semur, útsetur og flyt- ur tónlist og þýðingu annaðist Hávar Sigurjónsson. Ragna Foss- berg hannar gervi. Leikarar eru: Guðjón Davíð Karlsson, Þráinn Karlsson, Ívar Örn Sverrisson, Ísgerður Gunnarsdóttir, Gísli Pétur Hinriksson, Ólafur Steinn Ingunnarson og Páll S. Pálsson. Svartur köttur við Pollinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.