Fréttablaðið - 27.11.2006, Page 65

Fréttablaðið - 27.11.2006, Page 65
 Keppnin um Meistara- bikar Evrópu fór fram í Köln um helgina en í úrslitum mættust Íslendingaliðin Ciudad Real og Gummersbach. Ólafur Stefáns- son leikur með Ciudad en með liði Gummersbach leika Guðjón Valur Sigurðsson, Róbert Gunn- arsson, Guðlaugur Arnarsson og Sverre Jakobsson. Þjálfari liðs- ins er landsliðsþjálfarinn Alfreð Gíslason. Fimmtán þúsund manns mættu til að horfa á úrslitaleik- inn í Kölnarena og þeir fengu eitthvað fyrir aurinn því leikur- inn var bráðskemmtilegur og vel leikinn. Meistaradeildarmeistar- ar Ciudad tóku frumkvæðið í upphafi og héldu því allt til loka. Þegar blásið var til leikhlés var staðan 18-13 fyrir spænska liðið og munurinn á liðunum var sá sami þegar leiktíminn var liðinn, 36-31. Ólafur var góður hjá Ciudad og skoraði fjögur mörk ásamt því að leika félaga sína uppi hvað eftir annað. Markahæstur hjá Ciudad var Króatinn Mirza Dzomba sem skoraði níu mörk. Þjálfarinn Tal- ant Dujshebaev var næstur með fimm mörk en þessi magnaði leik- maður tók skóna úr hillunni á nýjan leik fyrir skömmu síðan. Róbert Gunnarsson var öflug- ur á línunni hjá Gummersbach og skoraði sex mörk. Hann var markahæstur í liðinu ásamt Frakkanum Daniel Narcisse. Guðjón Valur skoraði fimm mörk að þessu sinni. Guðlaugur stóð síðan vaktina í vörninni en komst ekki á blað. Ciudad Real lagði Gummers- bach í skemmtilegum leik Eggert Magnússon, verðandi stjórnarformaður West Ham, sagði í samtali við BBC fréttastofuna í fyrradag að hann hygðist ræða við Peter Kenyon, framkvæmdastjóra Chelsea, um möguleg kaup á Shaun Wright- Phillips, leikmanni félagsins. „Ég þekki Peter Kenyon vel og ég held að við munum setjast niður og reyna að komast að réttu verði, hvað svo sem það kann að verða. Wright-Phillips hefur ekki spilað reglulega fyrir Chelsea en er góður leikmaður og á alla möguleika á að standa sig vel.“ Ætlar að ræða við Kenyon Eggert Magnússon, verðandi stjórnarformaður West Ham, segir í viðtali við BBC að draumur hans sé að færa heimavöll liðsins frá Upton Park á Ólympíuleikvanginn að loknum leikunum sem fram fara í Lundúnum árið 2012. Hefur hann þegar óskað eftir viðræðum við yfirvöld vegna þessa. „Við keyptum West Ham þar sem félagið er nú, á Boylen Ground (Upton Park). En hvað framtíðina varðar viljum við flytja á Ólympíuleikvanginn.“ Hlaupabraut verður á vellinum en Eggert segir að lítið mál sé að leggja sæti yfir brautina, eins og er gert til að mynda á Stade de France í París. Draumur Egg- erts að flytja Wayne Rooney skrifaði í gær undir nýjan samning við Manchester United sem gildir til ársins 2012 en Rooney er búinn að vera í herbúðum United í tvö ár eftir að hann var keyptur frá Everton á 27 milljónir punda. „Ég er glaður því ég vildi alltaf framlengja. Ég vil afreka mikið hjá þessu félagi og vonandi byrjar það á Englandsmeistara- titlinum í ár,“ sagði Rooney. Framlengir til ársins 2012 Argentínumaðurinn Carlos Tevez er í vondum málum eftir framkomu sína um helgina. Hann varð reiður er honum var skipt af velli gegn Sheff. Utd og þegar hann var búinn í sturtu hélt hann heim á leið án þess að kveðja nokkurn. „Ég er mjög svekktur með þessi viðbrögð,“ sagði Alan Pardew, stjóri West Ham. „Þetta er vanvirðing við mig, starfsfólk- ið og liðsfélaga hans. Ég mun hlusta á útskýringar hans áður en ég tek ákvörðun um framhaldið.“ Líklega refsað af West Ham

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.