Fréttablaðið - 27.11.2006, Side 66
DHL-deild karla
Þýska úrvalsdeildin
Skoska úrvalsdeildin
Royal League
HK heimsótti Fylki
heim í Árbæinn í gær en leikurinn
var skrautlegur í meira lagi og
endaði með eins marks sigri HK,
33-34. Það var Valdimar Þórsson
sem skoraði sigurmarkið úr glóru-
lausu vítakasti þegar leiktíminn
var liðinn en Valdimar fór á kost-
um í leiknum, skoraði 13 mörk og
þar af 6 síðustu mörk HK.
Fyrri hálfleikur fór ákaflega
rólega af stað. Sóknarleikur
beggja liða var ákaflega hægur og
hreinlega hlægilegur á köflum líkt
og dómgæslan sem var ekki boð-
leg. Blessunarlega hallaði jafnt á
bæði lið nánast allan leikinn en
dómaraparið var stressað og hafði
ekki snefil af sjálfstrausti.
Ástandið batnaði eftir því sem
á leið en heimamenn höfðu ávallt
frumkvæðið og leiddu mest með
þrem mörkum, 13-10, en einu
marki munaði á liðunum í leikhléi,
19-18. HK mætti geysilega grimmt
til síðari hálfleiks. Petkevicius
smellti í lás í markinu og HK var
fljótlega komið með þriggja marka
forystu, 20-23. Þá hættu Kópa-
vogsbúar að spila vörn og hið seiga
og þolinmóða Fylkislið laumaði
sér inn í leikinn aftur og tók for-
ystuna á ný.
Lokamínútur leiksins voru
spennuþrungnar. Tomislav Bros
jafnaði leikinn, 33-34, þegar tíu
sekúndur voru eftir. HK tók leik-
hlé, fór síðan í sókn og fékk dæmt
víti á einhvern óskiljanlegan hátt
þegar leiktíminn var að renna út.
Allt varð vitlaust í húsinu, vara-
mannabekkirnir tæmdust og Fylk-
ismenn gerðu aðsúg að grútlélegu
dómarapari leiksins.
Dómurunum var viss vorkunn
enda fengu þeir ekki frið til að
sinna sínu starfi frá upphafi leiks-
ins og þar fór fremstur í flokki
Sigurður Sveinsson, þjálfari Fylk-
is, en ömurlegt var að fylgjast
með tuðinu í honum og ljóst að
dómgæslan batnar ekki ef for-
ráðamenn félaganna gefa dómur-
unum aldrei frið og brjóta þá
stanslaust niður en það er því
miður raunin í allt of mörgum
leikjum.
Valdimar var annars yfirburða-
maður á vellinum og í raun sá eini
sem eitthvað gat hjá HK úti á vell-
inum en í markinu varði Petkevic-
ius vel.
Ásbjörn átti stórleik hjá Fylki,
Eymar var sterkur en Bros og
Duric mjög slakir og hreint ótrú-
lega hægir leikmenn.
HK fékk sigur á silfurfati frá dómurunum
Haukar unnu í gær
góðan sigur á botnliði ÍR í DHL-
deild karla í handbolta. Sigurinn
var ekki eins öruggur og hann
hefði getað verið en heimamenn
fengu mörg tækifæri til að gera út
um leikinn en hleyptu ÍR-ingum
jafn oft aftur inn í leikinn. Haukar
voru með þriggja marka forystu í
hálfleik og unnu að lokum, 31-29.
Árni Þór Sigtryggsson kom
Haukum í 3-0 með þremur þrumu-
fleygum í upphafi leiksins en ÍR-
ingum tókst að jafna metin í
stöðunni 10-10. Gestunum tókst
reyndar aldrei aftur að jafna
metin þrátt fyrir að komast nokkr-
um sinnum nærri. Það var reynd-
ar útlit fyrir að Haukarnir væru
svo gott sem stungnir af í stöðunni
26-21 um miðjan síðari hálfleik-
inn. ÍR-ingar komust aftur inn í
leikinn og löguðu stöðuna í 28-27.
En nær komust þeir ekki og upp-
skáru Haukar sigur.
„Eins og allir vita og hefur
verið rætt mikið um að við höfum
átt í bölvuðu basli og erum við að
reyna að vinna okkur úr því. Þessi
stig eru mikilvæg þó svo að ýmis-
legt hafi vantað upp á spila-
mennskuna hjá okkur í dag, sér í
lagi var varnarleikurinn ekki nógu
beittur. En sigur er sigur og ég er
fyrst og fremst ánægður með
það,“ sagði Páll Ólafsson, þjálfari
Hauka, eftir leikinn.
„Við komumst fimm mörkum
yfir í síðari hálfleik og þá fengum
við gott tækifæri til að gera end-
anlega út um leikinn en enn og
aftur slökuðum við of mikið á í
þessari stöðu og hleyptum þeim
inn í leikinn. En sem betur fer
náðum við að halda haus út allan
leikinn í þetta skiptið en það virð-
ist stundum vanta upp á að við
klárum allar sextíu mínúturnar.“
Þetta var aðeins annar sigur
Hauka í deildinni en liðið hefur oft
átt betra gengi að fagna.
„Það er búin að vera allt önnur
og betri stemning á æfingum hjá
okkur undanfarnar tvær vikur og
finnst mér að þetta sé allt á upp-
leið hjá okkur. Við þurftum virki-
lega á sigrinum að halda í dag til
að kynnast sigurtilfinningunni á
nýjan leik – menn voru kannski
búnir að gleyma henni,“ sagði
Páll.
Jón Heiðar Gunnarsson og
Brynar Steinarsson áttu frábæran
leik fyrir ÍR en framlag erlendu
leikmannanna í liðinu þarf að vera
miklu meira ætli liðið að bjarga
sér frá falli. Hjá Haukum var Árni
Þór Sigtryggsson öflugur á köfl-
um og Andri Stefan kom sterkur
inn í síðari hálfleik. Björn Ingi
Friðþjófsson átti einnig góðan leik
í seinni hálfleik í markinu.
Haukar hefndu ófaranna gegn ÍR-ingum
„Þetta er svekkjandi en
við vorum engan veginn nógu
góðir, gerðum alltof mörg mistök
og áttum ekki skilið að vinna þenn-
an leik,“ sagði Markús Máni
Michaelsson við Fréttablaðið eftir
tap Valsmanna á Akureyri í gær
og hafði hann hárrétt fyrir sér.
Mikil kátína ríkti hjá Akureyring-
um með þennan frábæra baráttu-
sigur en Valsmenn trónuðu á
toppnum fyrir leikinn.
Norðanmenn tóku undirtökin
um miðbik fyrri hálfleik eftir að
jafnræði hafði verið með liðunum
í upphafi. Valsmenn gerðu mörg
mistök í sóknarleik sínum og gátu
þakkað Ólafi Gíslasyni mark-
manni fyrir að vera ekki meira en
þremur mörkum undir í hálfleik,
14-11.
Valsmönnum tókst með harð-
fylgi að jafna metin í síðari hálf-
leik þar sem spennan var magn-
þrungin frá upphafi til enda.
Dómarar leiksins voru mikið í
sviðsljósinu og voru bæði lið ósátt
með parið sem rak hvern leik-
manninn út af á eftir öðrum og
missti öll tök á leiknum, sem kom
þó jafn mikið niður á báðum
liðum.
Akureyringar náðu að halda
forystu sinni undir lokin og þegar
Valsmenn gerðu hvað þeir gátu til
að jafna bættu Akureyringar við
og unnu að lokum þriggja marka
sigur, 25-22.
„Mistökin í sókninni voru okkur
dýrkeypt og við vorum nánast að
elta þá allan leikinn án þess að ná
tökum á leiknum. Við getum bara
sjálfum okkur um kennt. Við verð-
um að líta í eigin barm og ég get
ekki annað en óskað Akureyri til
hamingju með sigurinn,“ sagði
Markús.
„Ég held að þetta hafi verið
verðskuldaður sigur. Þetta var
frábær leikur og virkilega gaman
að vinna þetta. Við náðum að spila
góðan leik, heilt yfir, bæði í vörn
og sókn, þrátt fyrir að við getum
gert betur. Menn voru allir að
berjast, hver einn og einasti og
þegar stemningin er svona þá áttu
ekki að geta tapað leik,“ sagði
kampakátur Sævar Árnason, þjálf-
ari Akureyrar, eftir leikinn.
„Þetta gefur liðinu aukið sjálfs-
traust. Ég tel að við höfum tapað
tveimur síðustu leikjum vegna
þess að við vorum lélegir, ekki
vegna þess að andstæðingar okkar
hafi endilega verið mikið betri.
Þetta small í dag, við náðum að
sýna nánast okkar besta leik og þá
getum við unnið öll lið í deildinni,“
bætti Sævar við að lokum.
Topplið Vals reið ekki feitum hesti frá leik sínum á Akureyri í gær. Valsmenn
töpuðu fyrir Akureyri, 25-22, og misstu þar með toppsætið til HK. Valsmenn
kenna engu nema sjálfum sér um tapið.
Antoine Sibierski tryggði
Newcastle fyrsta sigur liðsins í
undanförnum níu leikjum þegar
hann skoraði eina mark leiksins
gegn Portsmouth á 69. mínútu.
Heimamenn í Newcastle voru
mun betri í leiknum og voru
óheppnir að mark Obafemi
Martins var dæmt ólöglegt vegna
rangstöðu í fyrri hálfleik. Var
þetta fyrsti sigur Newcastle á
heimavelli síðan í 1. umferð
deildarinnar og mark Sibierskis
var aðeins það níunda í haust.
Þá vann Tottenham 3-1 sigur á
Wigan eftir að hafa lent undir í
fyrri hálfleik. Tvö mörk á
tveimur mínútum undir lok
hálfleiksins kom Tottenham-
mönnum á rétta braut.
„Við erum með flest stig allra
liða í UEFA-bikarkeppninni, erum
komnir í fjórðungsúrslit í
deildarbikarnum og unnum góðan
sigur í dag. Við getum verið
nokkuð ánægðir með okkur í
dag,“ sagði Martin Jol, hinn
hollenski þjálfari Tottenham.
Loksins sigur
hjá Newcastle