Fréttablaðið - 27.11.2006, Síða 67
Enska úrvalsdeildin
Ítalska úrvalsdeildin
Spænska úrvalsdeildin
Hollenska úrvalsdeildin
Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar
Það var sannkallaður
stórleikur á Old Trafford í
Manchester í gær þegar efsta lið
ensku úrvalsdeildarinnar, Man.
Utd, tók á móti liðinu í öðru sæt-
inu, Chelsea, en þessi tvö lið eru
svo gott sem búin að stinga hin
liðin af í deildinni. Leikurinn var
fínasta skemmtun og endaði með
1-1 jafntefli. Louis Saha kom Man.
Utd yfir með góðu skoti utan teigs
en Ricardo Carvalho jafnaði metin
í síðari hálfleik.
United er því enn með þriggja
stiga forystu í deildinni. Sir Alex
Ferguson, stjóri Man. Utd, var
jákvæður eftir leikinn.
„Við sönnuðum að við getum
keppt á toppnum og þegar við
erum upp á okkar besta þá erum
við besta liðið í landinu. Næst á
dagskrá er að stíga annað skref
áfram og halda áfram að leggja
hin liðin að velli. Stöðugleiki er
það sem þarf til að vinna titla,“
sagði Sir Alex en hann var sam-
mála kollega sínum hjá Chelsea,
José Mourinho, að úrslitin væru
betri fyrir Chelsea en fyrir
United.
„Það var svekkjandi að missa
leikinn niður í jafntefli. Þeir voru
mikið með boltann en sköpuðu
lítið af færum. Við stóðum okkur
vel í skyndisóknunum og fengum
tvö frábær færi til að ganga frá
leiknum. Við vorum óheppnir og
maður þarf heppni í svona leikj-
um,“ sagði Ferguson en hann var
gríðarlega ánægður með Louis
Saha í leiknum en Saha klúðraði
dýrmætu víti gegn Celtic í Meist-
aradeildinni og var ólmur í að
bæta fyrir þau mistök.
„Ég óttaðist aldrei um hann.
Hann er þroskaður leikmaður og
hefur verið eins og villt dýr á
æfingum síðustu daga. Svo var
honum sleppt úr búrinu í dag og
þá sýndi hann styrk sinn.“
Saha skreið meiddur af velli
undir lokin sem og Cristiano
Ronaldo. United má ekki við frek-
ari framherjameiðslum þar sem
Ole Gunnar Solskjær er meiddur
og Alan Smith er ekki kominn í
mikið form eftir langa fjarveru
vegna meiðsla.
Jose Mourinho, stjóri Chelsea,
var mjög sáttur við sína menn þar
sem þeir komu til baka í leiknum
og sýndu karakter.
„Raunveruleikinn er sá að tíma-
bilið ræðst í mesta lagi af sex stig-
um. Það kom mér því mikið á óvart
hversu örugglega við unnum
deildina í fyrra. Ég tel lið mitt
vera klárt í slaginn aftur núna og
við getum hæglega farið alla leið.
Það sem ég er ánægðastur með er
karakterinn í strákunum. Við
komum hingað á erfiðan útivöll og
yfirgefum svæðið þegar munur-
inn á liðunum er sá sami. Mótið
hefði ekki verið búið þótt United
hefði náð sex stiga forystu. Engu
að síður er munur á þriggja eða
sex stiga forskoti,“ sagði Mourin-
ho en hann segist hafa rætt við
Ferguson eftir leikinn og þeir voru
sammála um að jafntefli væru
sanngjörn úrslit. Hann hrósaði
síðan Howard Webb dómara.
„Mér fannst hann standa sig
mjög vel og er greinilega efnileg-
ur dómari. Hann hefði getað brotn-
að í svona stórum leik en stóð
vaktina vel,“ sagði Mourinho.
Chelsea-strákarnir fóru sáttir heim til London eftir að hafa náð jafntefli gegn Manchester United á Old Traf-
ford í Manchester. Stjórar liðanna, Ferguson og Mourinho, voru sammála um að úrslitin væru sanngjörn.
Man. Utd heldur því þriggja stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni en United og Chelsea hafa nánast stungið af.
Fjölmargir leikir voru í
spænsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær en um helgina unnu
þrjú efstu liðin í deildinni sína
leiki. Barcelona vann Villarreal, 4-
0, á laugardagskvöldið og í gær
vann Real Madrid 1-0 sigur á Val-
encia en Sevilla vann Athletic
Bilbao á útivelli.
Sevilla hélt því öðru sætinu í
deildinni en Real komst þangað
um stundarsakir í gær eftir að
fyrirliðinn Raul hafði skorað eina
mark leiksins gegn öðru stórliði,
Valencia.
Leikmenn Valencia stjórnuðu
leiknum löngum stundum en fóru
illa að ráði sínu þegar kom að því
að klára sín færi. Madrídingar
fengu hins vegar fá færi en nýttu
þó sín betur. Þegar sjö mínútur
voru liðnar af síðari hálfleik skor-
aði Raul eftir fyrirgjöf Robertos
Carlos.
Leikmenn Valencia hafa átt í
miklum meiðslavandræðum og fór
til að mynda hinn skæði framherji
David Villa af velli eftir aðeins
fimmtán mínútur. Fernando Mori-
entes var á bekknum þar sem hann
er enn að jafna sig á meiðslum í
læri. Valencia hefur nú ekki unnið í
fimm leikjum í röð.
Real Zaragoza er í fjórða sæti
deildarinnar en gaf toppliðunum
ekkert eftir í gær er liðið gerði 1-1
jafntefli gegn Celta Vigo á útivelli.
Liðið er nú fjórum stigum á eftir
Real Madrid. Osasuna tókst að
lyfta sér af fallsvæðinu með sínum
fyrsta sigri í átta útileikjum á
tímabilinu er liðið fór illa með
Deportivo og vann, 4-1.
Raul tryggði Real sigur gegn Valencia
32-liða úrslitum
bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í
karlaflokki lauk í gær með átta
leikjum. Úrvalsdeildarlið
mættust innbyrðis í tveimur
leikjum í gær og vann Keflavík
útivallarsigur á Hetti og Grinda-
vík vann Snæfellinga á heima-
velli.
Steven Thomas skoraði 23 stig
fyrir Grindavík og Adam Darboe
18. Justin Shouse var stigahæstur
hjá Snæfelli með 28 stig og
Sigurður Þorvaldsson var með 17.
Grindavík vann
Snæfell