Fréttablaðið - 27.11.2006, Qupperneq 70
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Það er rétt að bandið er svolítið í
lausu lofti en við erum ekki
hættir,“ segir Egill Tómasson,
gítarleikari í hljómsveitinni Dr.
Mister & Mr. Handsome. Þrálát-
ur orðrómur hefur gengið að
undanförnu þess efnis að þessi
umdeilda hljómsveit hafi lagt
upp laupana.
Ívar Örn Kolbeinsson,
annar forsprakki sveit-
arinnar, hefur verið
mikið í fréttum undan-
farið vegna opinskárra
yfirlýsinga sinna um
eiturlyfjaneyslu og
rokklíferni sitt. Þær
sögur hafa gengið fjöll-
um hærra í Reykjavík
að Ívar sé kominn í
meðferð úti á landi og
muni í kjölfarið ætla að
flytjast til Danmerkur með móður
sinni. Ívar er sagður hafa ákveðið
að segja alfarið skilið við
hljómsveitina. Egill segir að
þessar sögur séu ekki alls
kostar réttar, Ívar sé í það
minnsta ekki að flytjast til
Danmerkur.
„Ívar er bara að
reyna að hugsa sinn
gang og er kominn í
afslöppun úti á landi.
Það var líka alveg
kominn tími á það,“
segir Egill. Hann
líkir hljómsveitinni Dr. Mister &
Mr. Handsome við unglingapartí
sem fer úr böndunum. „Fólk þekk-
ir þetta alveg, þetta er eins og í
gamla daga þegar einhver var einn
heima. Allt var í góðu til að byrja
með en svo kom einhver með landa
og þá varð fjandinn laus. Það var
mikið aksjón í hljómsveitinni og
partíið fór úr böndunum,“ segir
hann.
Egill segir að hinir meðlimir
Dr. Mister taki lífinu með ró um
þessar mundir og ætli svo að sjá til
hvað verður. „Við bíðum bara eftir
að Ívar sé búinn í jóganu, eða hvað
þetta er sem hann stundar þarna,
og slöppum af á meðan. Bandið er
allavega ekki opinberlega hætt. Þó
það hrikti aðeins í stoðunum þarf
þetta ekki að vera búið.“
„Þú hittir nú á mig þegar ég er ennþá alveg í
sæluvímu,“ sagði Kristinn Darri Röðulsson,
nýkrýndur Herra Ísland, þegar Fréttablaðið
náði tali af honum á föstudag. Hann var að
vonum hæstánægður og sagði keppnina hafa
verið skemmtilega í alla staði. „Þetta er búið að
vera svolítið strangt og erfitt ferli, en alveg
gjörsamlega þess virði,“ sagði Kristinn, en
hann hélt upp á sigurinn á fimmtudagskvöldið
í félagsskap hinna keppendanna.
Kristinn er búsettur á Akranesi en sækir
skóla í Reykjavík, og er því nokkurt flandur á
honum. „Ég er að læra kerfisfræði í Iðnskólan-
um, maður er svona smá tölvunörd,“ sagði
Kristinn. „Sem betur fer búa bæði bróðir minn
og einn af mínum bestu vinum í bænum svo ég
gisti hjá þeim þegar ég er alveg að gefast upp
á að keyra á milli,“ sagði Kristinn kátur. Utan
skóla á fótboltinn hug hans allan. „Ég æfi með
ÍA og er yfirleitt í fótboltanum alla daga, en ég
er meiddur núna,“ sagði Kristinn, sem er einn-
ig nýkominn úr sambandi og því einhleypur
sem stendur.
Kristinn var á leið á fund til að fá nánari
leiðbeiningar um hlutverk sitt sem Herra
Ísland, en annars mun hann einbeita sér að
undirbúningi fyrir jólapróf á næstu dögum.
„Svo verður maður að gera eitthvað fyrir vini
sína og fjölskyldu til að þakka allan stuðning-
inn, maður þarf að reyna að launa þeim þetta
einhvern veginn,“ bætti hann við.
„Myndin fjallar um afstöðu ungs
fólks á Austurlandi gagnvart
álverum og virkjanaframkvæmd-
um,“ segir menntaskólaneminn
Hákon Seljan um heimildarmynd
sem hann og félagi hans Garðar
Bachman eru nú að leggja loka-
höndina á.
Hákon er bróðir fjölmiðla-
mannsins Helga Seljan, sem nýlega
hóf störf í Kastljósi og hafði áður
starfað sem fréttamaður á NFS við
góðan orðstír. Hákon útskrifast um
jólin frá Menntaskólanum á Egils-
stöðum og hefur getið sér gott orð
sem skeleggur ræðumaður í
menntaskólanum. Í ár var það þó
vinnan við heimildarmyndina sem
aftraði honum frá því að taka þátt í
Mælsku- og rökræðukeppni fram-
haldsskóla Íslands. Félagarnir hafa
unnið að gerð myndarinnar frá því
í byrjun september og hefur starfið
gengið vel fyrir sig, þrátt fyrir tak-
markaða reynslu í kvikmyndagerð.
„Upphaflega stóð til að frum-
sýna myndina á laugardaginn var
en það náðist því miður ekki, það er
alveg greinilegt að svo verður
ekki,“ segir Hákon en lofar því að
myndin verði tilbúin fyrir áramót
en helst fyrr. „Það er Garðar sem
er leiðandi í gerð myndarinnar,
hann sér um allt kvikmynda-dótarí-
ið á meðan viðtölin eru á minni
könnu.“ Myndin verður frumsýnd á
Austurlandi, líklega í sýningarsal
Menntaskólans á Egilsstöðum, en
svo er ætlunin að koma henni í sjón-
varp. Eftir stúdentspróf stefnir svo
Hákon á að breyta um umhverfi,
„hvort sem það verður Reykjavík
eða Vestfirðir, bara prófa eitthað
nýtt.“ En um starf í fjölmiðlum
gefur hann engin loforð, segir
aðeins að það yrði gaman, „annars
eitthvað sem framtíðin þarf að bera
í skauti sér.“
Forvitnileg heimildarmynd að austan
Herra Ísland er í fótbolta og tölvunörd
...fær Árni Salómonsson fyrir að
kenna börnum að forðast hættur
heimilisins með skemmtilegum
hætti.
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
61.900 kr.
Sannkölluð menningarveisla sem enginn óperu-
unnandi má missa af. Ein þekktasta ópera
Wagners, Loehengrin, í leikstjórn Peter
Konwitschny, sýnd í Nýju Óperunni. Innifalið er
flug fram og tilbaka með sköttum, gisting í 3
nætur á Hótel Imperial Copenhagen, 4* hóteli í
hjarta borgarinnar, akstur til og frá flugvelli og
miði á Lohengrin í Nýju Óperunni. Fararstjóri er
Magnús Gíslason. Ferðin er í samstarfi við
Borgarleikhúsið.
ÓPERUFERÐ
TIL KÖBEN
12.–15. janúar
Verð á mann í tvíbýli:
49.900 kr.
Það verður fjör þegar Liverpool kemur í
heimsókn á Upton Park í janúar. Því ekki að
skella sér til London og sjá hið íslenska West
Ham mæta stórliði Liverpool í Ensku úrvals-
deildinni? Svo skemmir ekki fyrir að Eggert og
Björgólfur verða án efa í stúkunni á Upton
Park. Þetta verður ævintýri af bestu gerð.
WEST HAM–
LIVERPOOL
Verð á mann í tvíbýli:
30.–31. janúar