Fréttablaðið - 03.12.2006, Page 22

Fréttablaðið - 03.12.2006, Page 22
 3. desember 2006 SUNNUDAGUR22 É g var örkumla í heilt ár. Stöðugar blóðgjaf- ir. Átti erfitt með gang,“ sagði Nikolai Khokhlov, fyrrver- andi njósnari hjá KGB, í viðtali við rússneska dag- blaðið Novaya Gazeta sumarið 2004. Á árum seinni heimsstyrjaldar- innar var Khokhlov meðlimur í leynilegri hermdarverkasveit KGB en flúði til Bandaríkjanna árið 1953. Fjórum árum síðar, árið 1957, var eitrað fyrir honum með geislavirku þallíni í Frankfurt í Þýskalandi þar sem hann sótti ráð- stefnu á vegum andkommúnista. Hann lifði af, en segir að læknarnir sem hafi sinnt sér, fyrst í Þýska- landi og síðar í Bandaríkjunum, hafi ekkert botnað í því hvernig á því stæði. „Ég veiktist alvarlega vegna of mikillar geislunar með öllum ein- kennum sem því fylgja. Hárið féll af mér og ég logaði allur alls stað- ar, húðin flagnaði og blóðið vall úr henni. Höfuðið bólgnaði upp og blóðlituð mynd af mér sat eftir á koddanum. Í munninum flagnaði ég allur og til þess að geta drukkið þurftu læknarnir fyrst að deyfa mig.“ Anna Politkovskaja Blaðamaðurinn, sem tók viðtalið við Khokhlov, sem birtist í Novaya Gazeta í júlí árið 2004, var engin önnur en Anna Politkovskaja sem var harður gagnrýnandi Pútín- stjórnarinnar í Rússlandi, sakaði stjórnvöld hvað eftir annað um gróf mannréttindabrot, ofbeldis- verk og launráð. Aðeins tveimur mánuðum eftir að viðtalið við Khokhlov birtist, eða í september árið 2004, var gerð tilraun til þess að ráða hana af dögum. Þá var hún á leiðinni frá Moskvu áleiðis til Beslan til þess að fjalla um gíslatökuna í barna- skóla þar. Hún veiktist alvarlega eftir að hafa drukkið vatnsglas í flugvélinni skömmu fyrir lend- ingu og var um tíma tvísýnt um líf hennar. Talið er fullvíst að eitrað hafi verið fyrir henni. Hún náði sér í það skiptið en var myrt núna í október síðast- liðnum, skotin til bana í lyftunni í fjölbýlishúsinu þar sem hún bjó í Moskvu. Hún var í þann veginn að senda frá sér grein um pyntingar á föngum í Tsjetsjeníu, föngum sem rússnesk stjórnvöld halda þar í eins konar fangabúðum fyrir grunaða hryðjuverkamenn. Fyrrverandi njósnari Strax eftir morðið á Önnu Polit- kovskaju heyrðust raddir um að rússnesk stjórnvöld ættu þar hlut að máli, og einn þeirra sem hvað ákafast hélt því fram var Alexand- er Litvinenko, sem sjálfur var fyrrverandi njósnari hjá KGB, síðar FSB, og þekkti því vel til mála þar á bæ. Hann snerist gegn yfirboður- um sínum árið 1998, kom fram í sjónvarpi í Rússlandi ásamt félaga sínum þar sem þeir fullyrtu að þeir hefðu fengið skipanir um að myrða Boris Berezovsky, einn af auðkýfingunum sem voru í háveg- um hafðir þegar Boris Jeltsín var forseti Rússlands en voru ekki jafn vel liðnir af Vladimir Pútín. Litvinenko hafði reyndar um tíma haft það verkefni hjá FSB að vera lífvörður Berezovskys. Berezovsky flúði fljótlega til Englands og árið 2000 gerði Litvinenko slíkt hið sama og sótti þar um hæli. Hann fékk svo bresk- an ríkisborgararétt núna í október sl., en aðeins fáum vikum síðar, 23. nóvember síðastliðinn, lést hann á sjúkrahúsi í London eftir erfitt dauðastríð. Hann veiktist 1. nóvember og hafði þá verið á fullu við að rann- saka morðið á Önnu Politkovskaju, taldi sig jafnvel hafa fengið sann- anir fyrir því að rússnesk stjórn- völd stæðu á bak við það. Geislavirkt eitur Í fyrstu var talið að eitrað hefði verið fyrir Litvinenko með þung- málminum þallín, en síðar bentu einkenni hans til þess að geisla- virkt þallín hefði verið notað – sama efnið og notað var til að eitra fyrir Nikolaí Khokhlov árið 1957. Á endanum kom þó í ljós að notast hafði verið við pólón-210, geisla- virkt efni sem nánast eingöngu er hægt að nálgast á sérhæfðum kjarnorkurannsóknastöðvum þar sem það er framleitt í kjarnakljúf- um eða agnahröðlum. Vegna þess hve erfitt er að útvega pólón-21 og hve mikla sér- þekkingu þarf til að nota það þykir mörgum útilokað annað en að valdamiklar stofnanir hafi átt ein- hvern hlut að máli. Nú síðast gerðist svo það, dag- inn eftir að Litvinenko lést, að Jegor Gaídar, frjálslyndur stjórn- málamaður í Rússlandi, veiktist heiftarlega á Írlandi og liggur nú veikur á sjúkrahúsi í Moskvu. Talið er að eitrað hafi verið fyrir honum, og grunur leikur á að veik- indi hans tengist með einhverjum hætti morðunum á Litvinenko og Politkovskaju – þótt óljóst sé hvernig sú tenging gæti litið út. Regnhlífarmorðið í London Fjölmörg dæmi eru hins vegar til um morð á erfiðum stjórnar- andstæðingum frá fyrrum austan- tjaldslöndum, bæði fyrir og eftir fall járntjaldsins, þar sem ýmist er vitað með vissu eða sterkur grunur leikur á um að þau hafi þar haft hönd í bagga. Flest þeirra mála eru með einum eða öðrum hætti rakin til sovésku leyniþjónustunnar KGB eða arftaka hennar FSB. Frá fyrri tíð er til að mynda frægt morðið á búlgarska blaða- manninum Georgi Markov sem opinskátt hafði gagnrýnt komm- únistastjórnina þar í landi. Hinn 7. september árið 1978 beið Markov eftir strætó á Eitur í beinum óþægra Rússa Fyrir skömmu lést Alexander Litvinenko í London eftir þriggja vikna kvalastríð. Eitrað hafði verið fyrir honum. Lögreglan í Bretlandi hefur ekki viljað fullyrða neitt um sökudólga í máli Litvinenkos, en löng hefð er fyrir því að eitri sé beitt á óþægilega andstæðinga stjórnvalda í Rússlandi. Guðsteinn Bjarnason kynnti sér söguna. VLAdimíR Pútín oG skuGGi hAns Forseti Rússlands sætir víða hörðum ásökunum um að hann beri ábyrgð á æ fleiri launmorðum í anda KGB á andstæðingum sínum. FRéttaBlaðið/aFp Kenningarnar um andlátin Morðið á Önnu politskovskaju, hið dularfulla lát alexanders litvin- enkos, og nú síðast eitrun Jegors Gaídars, hafa vakið furðu. Miklar vangaveltur eru um hvort og þá hvernig þessi þrjú mál tengjast og böndin hafa verið fljót að berast að rússneskum ráðamönnum og jafnvel sjálfum forseta landsins. Rússnesk stjórnvöld harðneita því að hafa átt nokkurn að máli og breska lögreglan hefur enn ekki vilj- að fullyrða neitt um að litvinenko hafi yfirhöfuð verið myrtur. lát hans er enn rannsakað sem óútskýrt mannslát, og ein kenningin er sú að hann hafi hreinlega eitrað fyrir sér sjálfur til þess að koma höggi á pútín forseta. aðrar kenningar eru um að á bak við þessi morð standi önnur voldug öfl innan Rússlands, annaðhvort með rætur í KGB eða í skipulagðri glæpastarfsemi – nema hvort tveggja sé. Þaggað hafi verið niður í þeim politkovskaju og litvinenko vegna þess að þau hafi verið komin óþægilega nálægt því að afhjúpa skuggalega starfsemi, sem þau töldu tengjast pútín þótt svo þurfi ekki að vera. Einn möguleikinn enn er svo að andstæðingar pútíns vilji láta grun falla á hann, eða jafnvel að stuðn- ingsmenn pútíns, sem starfi án vit- undar eða vilja hans, reyni nú hvað þeir geta til að skapa þær aðstæður í Rússlandi að hann geti hreinlega ekki látið af völdum þegar kjörtíma- bil hans rennur út árið 2008. Waterloo-brúnni í London þegar maður gekk upp að honum rak regnhlífarodd í lærið á honum. Markov fann fyrir sárum sting, en hélt til vinnu sinnar á breska útvarpinu BBC. Um kvöldið fékk hann háan hita og lést þremur dögum síðar á sjúkrahúsi. Í regnhlífinni hafði verið örlítið málmhylki með eiturefninu sarín sem skotið var í læri Markovs með sérstökum útbúnaði, ættuðum frá KGB að því er síðar kom í ljós. danskur forngripasali Sarín er bráðeitrað efni sem skemmir taugakerfi líkamans. Þýskir nasistar létu á sínum tíma framleiða sarín en stilltu sig um að nota það í seinni heimsstyrjöld- inni, hugsanlega af ótta við að bandamenn myndu svara í sömu mynt. Japanski trúarsöfnuðurinn Aum Shinrikyo hikaði hins vegar ekki við að dreifa þessu eiturefni í neðanjarðarlestum Tókýóborgar árið 1995, með þeim afleiðingum að tólf manns létu lífið og þúsund- ir veiktust heiftarlega. Breska dagblaðið Times hélt því fram sumarið 2005, og studdist við upplýsingar úr skjölum frá leyniþjónustu Búlgaríu, að „regn- hlífarmorðinginn“ í London hafi verið danskur ríkisborgari, Franc- esco Giullino að nafni, af ítölskum uppruna, sem ferðaðist um Evr- ópu á húsbíl og þóttist vera forn- gripasali. Í raun og veru hafi hann þó starfað hjá búlgörsku leyni- þjónustunni DS og fengið skipanir þaðan um að myrða Markov. Nokkrar sérútbúnar regnhlífar munu hafa fundist á lager hjá leyniþjónustunni DS eftir fall kommúnistastjórnarinnar í Búlg- aríu árið 1989. Annar blaðamaður Frá síðustu árum má einnig nefna rússneska blaðamanninn, rithöf- undinn og þingmanninn Júrí Sjtsjekotsjikín, sem lést 3. júlí árið 2003 eftir að hafa skyndilega veikst af torkennilegum sjúkdómi, sem olli bæði hármissi og húð- bruna. Vjatsjeslav Izmaílov, blaða- maður á rússneska dagblaðinu Novaya Gazeta, sama blaðinu og Anna Politskovskaja starfaði hjá, fullyrti fyrir skemmstu í viðtali við AP-fréttastofuna að það væri þallíneitrun sem hefði orðið Sjtsje- kotsjikín að bana. Hann sagðist hafa fullnægjandi sannanir fyrir því frá rússneskum réttarmeina- fræðingum, þrátt fyrir að ættingj- ar Sjtsjekotsjikíns hafi aldrei fengið neinar opinberar skýringar frá læknum á banameini hans. Izmaílov fullyrti einnig að þall- ín hefði verið notað á tvo tsje- tsjenska uppreisnarmenn, Salman Radujev og Turpal-Ali Atgerijev, sem voru dæmdir í lífstíðarfang- elsi árið 2001 en létust báðir í fang- elsinu ári síðar. Sömuleiðis hafi þallín verið notað á Lecha Islamov, annan uppreisnarmann sem lést í fangelsi árið 2004. Opinbera skýringin var sú að Radujev hafi látist af völdum inn- vortis blæðinga en Atgerijev af völdum hvítblæðis. Þá sögðu stjórnvöld að bæði hjarta- og nýrnabilun hefði orðið Islamov að bana. Sjtsjekotsjikín var þingmaður frjálslynda flokksins Yabloko frá 1995, vann að því að rannsaka spillingarmál og skipulagða glæpa- starfsemi í Rússlandi og var harð- ur andstæðingur hernaðaraðgerða Rússa í Tsjetsjeníu. samsæriskenningar Hann sat einnig í þingnefnd sem hafði það verkefni að rannsaka ásakanir um að gassprengingar í íbúðarblokkum í Moskvu árið 1995 hafi í raun verið skipulagðar af leyniþjónustunni FSB í þeim til- gangi að geta kennt tsjetsjenskum uppreisnarmönnum um þær og fengið þar með ástæðu til að hefja stríð í Tsjetsjeníu. Bæði Anna Politskovskaja og Alexander Litvinenko höfðu rann- sakað þessar gassprengingar og komist að þeirri niðurstöðu að ábyrgðin væri ekki hjá Tsjetsjenum, eins og stjórnvöld héldu fram, heldur hjá leyniþjónustunni og þar með mætti rekja ábyrgðina beint til Pútíns forseta. Sumar yfirlýsingar Litvinenk- os um illsku rússneskra ráða- manna hafa reyndar þótt frekar ótrúverðugar á Vesturlöndum, eins og til dæmis að þeir hafi átt hlut að árásunum á Bandaríkin 11. september 2001. En hvað svo sem hæft er í öllum þessum ásökunum þá er greini- lega löng hefð fyrir því að menn, sem hafa reynst stjórnvöldum í Rússlandi og öðrum fyrrverandi austantjaldslöndum óþægur ljár í þúfu, láti lífið með voveiflegum hætti. Þau dæmi sem hér hafa verið talin upp eru aðeins brot af heildarfjöldanum, en eitur kemur þar furðu oft við sögu. n Hárið féll af mér og ég logaði allur alls staðar, húðin flagnaði og blóðið vall úr henni. Höfuðið bólgnaði upp og blóðlituð mynd af mér sat eftir á koddanum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.