Fréttablaðið - 03.12.2006, Page 62
3. desember 2006 SUNNUDAGUR20
Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona er farin að vinna aftur eftir fæðingarorlof og
þarf því oft að vinna á sunnudagskvöldum.
Best: „Það er bara svo æðislegt að vera í fríi og fjölskyldan er yfirleitt öll í fríi
og getur verið voða mikið saman. Mér finnst til dæmis mjög gaman að fara í
göngutúra á sunnudögum og vil þá helst hafa gott veður.“
Verst: „Eftir að hafa verið í þessu yndislega fríi og geta eytt tíma með fjölskyld-
unni er stundum verst að fara að vinna á sunnudagskvöldum og þurfa að yfir-
gefa fjölskylduna. En svo er náttúrulega alltaf voða gaman þegar ég er komin á
sviðið því það er svo skemmtilegt að leika.“
Sunnudagar
Verst að fara frá fjölskyldunni
Jóhönnu finnst best þegar allir geta verið saman í fríi.
FréttAblAðið/StEFán
að útlaginn Fjalla-Eyvindur fæddist
árið 1714 og er þekktasti útilegu-
maður Íslandssögunnar?
að Eyvindur var sonur Jóns Jónssonar
og ragnheiðar Eyvindsdóttur?
að hann fæddist í Hlíð í Hruna-
mannahreppi í árnessýslu?
að Eyvindur ólst upp hjá foreldrum
sínum í Hlíð?
að Eyvindur eignaðist barn með
stúlku af næsta bæ?
að hann fór fulltíða að traðarholti í
Flóa og varð þar fyrirvinna?
að hann varð þaðan að fara fyrir
þjófnað og óknytti?
að þar skildi hann eftir aðra barns-
móður sína?
að sú saga gekk að hann hafi
hnuplað osti úr poka förukerlingar
og hún hafi lagt það á hann að hann
skyldi aldrei verða óstelandi upp
frá því?
að þegar hún var beðin að taka orð
sín aftur gat hún það ekki en sagði
jafnframt að Eyvindur myndi aldrei
falla undir manna hendur?
að kona Eyvindar hét Halla?
að hann kynntist henni vestur á
fjörðum en hún var ekkja og átti
nokkur börn?
að Halla þótti bæði harðlynd og
hafði illt orð á sér?
að hún þótti blendin í trú og sótti
ekki kirkju?
að Eyvindur þótti hins vegar blíð-
lyndur?
að hann þótti sundmaður góður,
glímumaður og manna fráastur á
fæti?
að honum er lýst svo á Öxarárþingi
1765? „Hann er grannvaxinn, með
stærri mönnum, útlimastór, nær
glóbjartur á hár, sem er með liðum
að neðan, bólugrafinn, toginleitur,
nokkuð þykkari efri en neðri vör,
mjúkmáll og geðþýður, hirtinn
og hreinlátur, reykir mikið tóbak,
hæglátur í umgengni, blíðmæltur og
góður vinnumaður, hagur á tré og
járn, lítt lesandi, óskrifandi, raular
oft fyrir munni sér rímu-erindi, oftast
afbakað.”
að árið 1760 hverfa Halla og
Eyvindur frá búi sínu á Vestfjörðum
og leggjast út að því er talið er að
Eyvindarhóli í Jökulfjörðum?
að 1761 eru þau handtekin af Skag-
firðingum?
að Eyvindur sleppur og tekst að
frelsa Höllu?
að árið 1962 dvelja þau við Arnar-
fellsmúla sunnan Hofsjökuls?
að þaðan fara þau til Austfjarða þar
sem þau eru hrakin úr haganlega
gerðu hreysi?
að 1763 eru þau í fjalllendi Vest-
fjarða?
að 1764 fara þau frá Hveravöllum
og til Austurlands þar sem þau eru
undir verndarvæng Hans Wium
sýslumanns?
að þau eru á flótta næstu árin?
að þau flytja loks vestur í Jökulfirði?
að þau eru þá orðin aldurhnigin
og fjárlaust orðið á afréttum vegna
fjárkláða?
að Eyvindur er jarðsettur utangarðs á
Hrafnfjarðareyri árið 1783 eða 1785?
að árið 1792 er Halla jarðsett í Stað-
arkirkjugarði Grunnavík.
ViSSir þú...
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
4
10
4
Ævint‡ralegar fiskbú›irHamraborg 14a • Skipholti 70 • Höf›abakka 1 • Vegamótum (Nesvegi 100) • Sundlaugavegi 12 • Háaleitisbraut 58-60
jóma›urinn hugljúfi haf›i siglt um ví›a veröld í leit a› hamingjunni flegar hann uppgötva›i
a› hann haf›i aldrei komi› til Eskifjar›ar. Hann hélt flví raklei›is flanga› og viti menn,
flar haf›i ástin be›i› eftir honum allan flennan tíma. Sjóma›urinn
fær›i henni ‡su í so›i› og ba› hana a› sigla me› sér á vit
ævint‡ranna. Hún kva› já vi› og flau keyptu íbú› í blokk í
fjar›armynninu. fieim lei› alla tí› vel á Hafsbotni 4B og flegar flau
voru svöng réttu flau bara háfinn út um gluggann.
Hann sigldi um öll heimsins höf en
haf›i aldrei komi› til Eskifjar›ar