Fréttablaðið - 03.12.2006, Page 74
3. desember 2006 SUNNUDAGUR38
Heimasíðan Youtube.com er
ein sú vinsælasta á netinu.
Fjöldinn allur af fólki hefur
hlaðið inn myndböndum
á síðuna og reyna margir
að vekja á sér eftirtekt og
vona að þannig verði þeir
uppgötvaðir með hjálp
síðunnar.
Milljónir manna heimsækja
heimasíðuna Youtube.com dag
hvern. Síðan er botnlaus gleði-
gjafi og inniheldur hátt í milljón
myndskeið, fólki til gagns og
gamans. Myndskeiðin eru jafn
mismunandi og þau eru mörg, en
notendur síðunnar geta hlaðið inn
eigin efni, hvort sem
það er viðurkennt
skemmtiefni eða
ómerkilegar
heimaupptökur.
Grínistinn Jud-
son Laipply á
Youtube
alla
sína velgengni að þakka en yfir 36
milljónir manna hafa skoðað sex
mínútna myndband af uppistandi
með honum, langvinsælasta mynd-
skeið Youtube frá upphafi. Síðan
að myndbandið sló í gegn á síð-
unni hefur ferill hans sem grínisti
blómstrað, en áður leit hann á
uppistandið sem áhugamál en ekki
tekjulind og feril. Leikstjórinn
Kevin Smith sem leikstýrði meðal
annars Clerks, Dogma, Mallrats
og nú síðast Clerks 2 heldur því
fram að youtube sé kjörinn stökk-
pallur til þess að koma hæfileika-
fólki framtíðarinnar á framfæri.
„Ef kvikmyndagerðarmenn
eiga erfitt með að fá fólk til að sjá
myndina sína, geta þeir skipt henni
upp í sex kafla og sett hana á
Youtube,“ segir leikstjórinn, en í
dag er mjög algengt að sjálfstæðir
kvikmyndagerðarmenn veki
athygli á verkum sínum þannig.
„Þegar svo yfirmenn kvikmynda-
veranna sjá myndina og hvort ein-
hverjir hæfileikar búi að baki geta
tilboðin hrannast inn,“ segir Smith
enn fremur, en hann segir að netið
sé eina leiðin til að koma sér áfram
í dag, eins og Myspace-síðan hefur
sýnt og sannað. En á Youtube skipt-
ir ekki máli hvort maður sé tónlist-
armaður, grínisti, leikstjóri eða
leikari, lögmálið er einfalt, ef það
er skemmtilegt og á ensku þá slær
það í gegn. Pottþétt.
dori@frettabladid.is
Stökkpallur fyrir hæfileikafólk
Kevin smith Segir að Youtube muni
hrista upp í Hollywood.
Judson LaippLy Yfir 36 milljón manns hafa skoðað
myndskeið hans á Youtube sem er það allra vinsælasta
frá upphafi.
Ef Íslandi er flett upp á síðunni
Youtube.com þá finnast yfir
3.000 myndskeið. Mörg hver
eru ómerkileg en inn á milli má
finna gullmola.
Íslenskt á
Youtube
„Er hann svangur? Ég er nefnilega að sjóða pylsur ef hann vill,“ segir
Steinþór Hróar Steinþórsson þegar blaðamaður segir honum að ljós-
myndari sé á leiðinni til hans. Steinþór hefur slegið í gegn meðal net-
verja með gamansemi sinni undanfarin misseri, en með aðstoð Myspace
og Youtube hefur hann dreift grínlögum og sketsum við góðar undir-
tektir.
„Vinir mínir voru flestir í tónlist, en á því sviði hef ég takmarkaða
hæfileika og áhuga. Svo á meðan þeir vinna að list sinni og reyna að
koma henni á framfæri, geri ég það sama með grínið mitt,“ segir Stein-
þór um hvernig gamanið hafi þróast og æxlast. Steinþór er 22 ára gam-
all, búsettur í Mosfellsbæ og hefur starfað við fjölmiðla síðastliðin ár.
Í sumar ritstýrði hann tímaritinu Flass og var einnig með útvarpsþátt
á samnefndri stöð. Í haust sagði hann skilið við útvarpsstöðina til þess
að starfa í kvikmynd Guð-
nýjar Halldórsdóttur,
Veðramót. „Kvikmynda-
gerðin heillar mig mikið og
er það sem ég vil læra.
Núna er ég að skrifa hand-
rit að stuttmynd samhliða
því að skrifa í bæjarblaðið
hér í Mosó,“ segir Steinþór
en um hríð gaf hann út sitt
eigið blað í Mosó.
Af íslensku gríni eru það
þeir Tvíhöfða-frændur sem
standa upp úr að mati
Steinda, en annars hlær
hann mest að vitleysunni í
félögum sínum. „Mér finnst
vanta meira af íslensku
gríni, við eigum alveg nóg
af skemmtilegu fólki,“ segir
hann alvarlegri en áður.
„Hei, ég verð að hætta,
pylsurnar eru farnar að
sjóða upp úr, illa séð sko,“
og þannig lýkur viðtalinu.
Þeim sem hafa áhuga er
bent á að fara á myspace.
com/steindijr eða fletta
nafninu upp á Youtube. - hal
Grasrótargrínistinn
steinþór hróar steinþórsson Vinnur að
gríninu sínu eins og aðrir listamenn að sinni
iðju.
Quentin taran-
tino á ára-
mótabrennu
Stutt myndskeið
þar sem Quentin
Tarantino sést á
áramótabrennu
í Vesturbæn-
um. Tekið með
myndavélarsíma.
evróvisJón eins og það Leggur
sig Á Youtube er hægt að finna öll
evróvisjón-atriði sem Íslendingar
hafa sent í keppnina síðan árið
1986, þegar HLH-flokkurinn braut
ísinn.
disney Lögin Hvert eitt og einasta Disney lag sem komið hefur út á íslensku
undanförnum 15 árum má finna á youtube. Í flestum tilvikum eru það Disney-óðir
Bandaríkjamenn sem hlaða upp myndskeiðunum.
XXX rottweiLer - sönn ísLensK
saKamáL Myndband hljómsveit-
arinnar sem var tilnefnt til íslensku
tónlistarverðlaunanna 2001, þrátt
fyrir að hafa aðeins verið í spilun í
nokkra daga. Myndbandið var bann-
að og hafa fáir fengið að njóta þess.
bJörK í sJón-
varpsþættin-
um mtv Cribs
Söngkonan Björk
sýndi heimili sitt
að Geirsgötu í
sjónvarpsþættin-
um MTV Cribs um
árið. Skemmtilegur
þáttur sem fór
framhjá mörgum, en
er hægt að sjá hér.
syKurmoLa-
tónLeiKarnir
í Laugar-
daLshöLL Alla
tónleikana, lag
fyrir lag, má
finna á síðunni,
en tónleikarnir
voru að sögn
viðstaddra alveg
stórkostlegir.
FaLL unnar
birnu Þó svo að
það sé bannað að
hlæja að óförum
annarra þá er ekki
annað hægt hér.
Unnur Birna dett-
ur beint á trýnið á
keppninni Ungfrú
Ísland 2006.
„Það var alveg rosalega skemmtilegt. Erfitt en
skemmtilegt,“ segir Sævar Guðmundsson leik-
stjóri en nýverið lauk tökum á nýrri þáttaröð af
gamanþáttunum Stelpurnar sem Sagafilm fram-
leiðir fyrir Stöð 2.
Þetta er í fyrsta skipti sem Sævar leikstýrir
Stelpunum en á liðnum árum hefur hann starfað
sem auglýsingaleikstjóri, auk þess að leikstýra
stuttmyndum og þáttunum um Venna Páer sem
er verið að sýna á Skjá einum. „Það er fyrst og
fremst frábær kjarni sem stendur á bak við
þessa þætti. Hópur sem gerir erfitt og annasamt
verk létt og skemmtilegt, eða léttara í það
minnsta,“ segir Sævar og er sáttur við afrakst-
urinn.
Eitthvað er þó um ný andlit í Stelpunum í
þessari nýju seríu þar sem Brynhildur Guðjóns-
dóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Nína Dögg Filipp-
usdóttir og Steinn Ármann Magnússon eru ekki
lengur með. Í þeirra stað eru komin Helga Braga
Jónsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og strák-
arnir Sveppi, Auddi og Pétur svo það er engin
vöntun á grínurum frekar en fyrr. Sævar tekur
fram að með viðbættum fyrri kjarna hafi þessi
hópur unnið einstaklega vel saman. „Í raun er
alveg sama hvaða vitleysingur er að leikstýra
þessum snillingum,“ segir Sævar í léttum tón. „Í
nýju seríunni er samt ekki mikið um að fyrri
karakterar snúi aftur, enda er alltaf lagt upp
með að gera nýja og ferska hluti. Engu að síður
vorum við að vinna með týpur og atriði í sama
anda, með sama húmor og hefur þegar fallið
svona vel í kramið hjá Íslendingum.“ Sævar er
nú sestur við að klippa þættina og hefur gaman
af. Stelpurnar fara í sýningu eftir áramót. - mg
Nýtt fólk og nýir karakterar í Stelpunum
töKum LoKið á steLpunum Sævar Guðmundsson
leikstjóri gerir allt klárt í næsta skot.
heimsmet benediKts magnús-
sonar Kraftakappinn Benedikt
Magnússon lyftir 410 kg í réttstöðu
sem ku vera heimsmet.
Vin
nin
ga
r v
er
ða
af
he
nd
ir h
já
BT
Sm
ár
ali
nd
. K
óp
av
og
i. M
eð
þv
í a
ð t
ak
a þ
át
t e
rtu
ko
m
inn
í S
M
S k
lúb
b.
14
9 k
r/s
ke
yt
ið.
9.
HVERVINNUR!
KEMUR Í
VERSLAN
IR
4. DES!
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK!
SENDU SMS BTC MDF
Á NÚMERIÐ 1900
Vinningar eru Met
allica the best of v
ideos • Aðrir DVD
með Metallica
Geislplötur með M
etallica • Aðrar ge
islaplötur • DVD m
yndir og margt fle
ira