Fréttablaðið - 03.12.2006, Side 80
44 3. desember 2006 SUNNUDAGUR
Ítalir kalla hann Canna. Í senn
stytting á nafni hans og tilvísun í
tvennt. Annars vegar sykurreyrs-
stafinn sem bognar en brotnar
ekki. Þykir lýsa ódrepandi bar-
áttugleði hans.
Hins vegar orðatiltækið „pov-
ero in canna“ sem merkir bláfá-
tækur og er vísun í uppruna hans í
hinni snauðu borg Napólí. Þegar
Fabio Cannavaro tók á móti verð-
launum sínum sem besti knatt-
spyrnumaður Evrópu í vikunni til-
einkaði hann þau fátækum börnum
Napólí með von um að aðstæður
þeirra bötnuðu.
Þótti lýsa hjartalagi landsliðs-
fyrirliðans sem alltaf hefur fyrst
og fremst litið á sig sem Napólí-
mann og margsinnis sagt að ekk-
ert annað komi til greina en að
ljúka ferlinum með Napólí. Helst
með bróður sinn Paolo sér við hlið
í vörninni og að sjálfsögðu verði
Napólí þá komið á sinn réttmæta
stað í deild hinna bestu, Serie A.
Varnarmenn vanmetnir
Fabios Cannavaro bíða sennilega
önnur verðlaun innan skamms,
verðlaunin sem FIFA veitir besta
leikmanni ársins. Þar etur hann
kappi við Zidane og Ronaldinho en
er laus við samkeppni landa síns
Buffons sem varð í öðru sæti á
eftir honum í vali France Foot-
ball.
Öll Ítalía því að baki hans en
menn skiptust í tvö nokkuð jöfn
horn í stuðningi sínum við Buffon
og Cannavaro þegar misvísandi
fréttir birtust um hvor þeirra
hefði verið valinn. Báðir enda
þjóðhetjur og að auki fannst mönn-
um tími til kominn að varnarmað-
ur eða markvörður yrði heiðrað-
ur.
Ítalir fárast mikið yfir því að
hvorki Paolo Maldini, Franco Bar-
esi né Dino Zoff hafi hlotið verð-
launin á glæstum ferli. En sóknar-
menn hafa alltaf dómínerað þetta
val. Lev Yashin eini markvörður-
inn og Josef Masopust, Franz
Beckenbauer og Mattias Sammer
einu varnarmennirnir sem valdir
hafa verið. Val Sammers þykir
Ítölum alltaf jafn kjánalegt enda
átti hann fá góð ár þótt hann hafi
grísað á flotta leiki með Evrópu-
meistaraliði Þjóðverja 1996.
Sloppinn úr syndinni
Það kann að hafa veitt Cannavaro
forskot umfram Buffon að hann er
farinn frá hinu synduga liði
Juventus. Því eftir mútuhneykslið
mikla vill enginn kannast við stór-
kostlegan leik félaganna í meist-
araliði síðasta vors. Vilja einblína
á HM.
Þar var Buffon frábær en
Cannavaro ef eitthvað er enn betri
auk þess að vera fyrirliðinn sem
tók á móti styttunni og fékk mynd-
irnar af sér á forsíður blaðanna
um allan heim. Jafnframt held ég
að það hafi hjálpað Cannavaro að
menn hafi hreinlega ekki gert sér
grein fyrir því almennilega á
alþjóðavetvangi fyrr en á HM
hversu stórkostlegur leikmaður
hann er á góðum degi.
Á meðan Buffon var undrabarn
sem var kominn í landsliðið 19 ára
og verið í sviðsljósinu síðan þurfti
Cannavaro að bíða síns tíma og
var orðinn 25 ára þegar hann lék
sinn fyrsta landsleik. Hann lék á
þeim árum með Parma
sem var ágætt lið en
ekki í miðpunkti fót-
boltaheimsins.
Þaðan fór hann til
Inter þar sem hann átti
tvö heldur slæm ár.
Svo léleg reyndar að
Inter lét hann
fara á
frjálsri
sölu til
Juventus
eftir að hafa greitt
Parma 32 milljónir
evra fyrir hann á sínum
tíma. Það var ein af
alspaugilegustu pæl-
ingunum sem komu
upp í calciopoli
hneykslinu að Canna-
varo hefði „leikið sig
lélegan“ undir sitt síðasta hjá Inter
til þess að losna úr prísundinni og
ná að auka möguleika sína á betri
samningi annars staðar með því að
fá frjálsa sölu.
Heilaköst á mörk-
um fáránleikans auð-
vitað en víst er að Inter-
vistin dró úr
trúverðugleika Canna-
varos sem leikmanns og
mörgum þótti þáverandi
áskrift hans að landsliðs-
sæti óverðskulduð. Leiktíð-
irnar tvær hjá Juventus voru
hins vegar svo glimrandi sem
og framganga hans á HM að
hann hefur tryggt sess sinn sem
einn besti varnarmaður Ítalíu-
sögunnar.
Cannavaro þykir drengur
góður, alþýðlegur og trúr upp-
runa sínum. Jafnframt einstakt
glæsimenni sem kynþokkinn
drýpur af. Hló ég mikið þegar ég
var að vinna þessa grein og sló
inn leitarorðið „Fabio Canna-
varo biography“ að efst kom
upp síðan www.mostbeautiful-
man.com með glæsilegum
graðhestamyndum af kappan-
um fáklæddum.
SunnudagSpenninn einar logi VigniSSon
Glæsimennið sem lék sig lélegan
R
akel Dögg Bragadótt-
ir ætti að vera flest-
um handboltaunn-
endum að góðu kunn.
Hún leikur handbolta
með Stjörnunni í
Garðabæ og er lykilmaður í liði
þeirra. Rakel Dögg er tvítug og
mjög áberandi á velli, en þessi
hávaxna og myndarlega stúlka ber
sig einkar tignarlega á vellinum
og vekur auk þess athygli hvar
sem hún kemur fyrir vinalega og
hlýlega framkomu.
Stjarnan hefur alltaf verið
félagið hennar Rakelar og hún hóf
ung að æfa handbolta með félag-
inu. „Ég var sjö ára þegar ég fór á
fyrstu æfinguna en ég byrjaði að
æfa þegar ég var níu ára. Við flutt-
um til Danmerkur þegar ég var
átta ára en þegar ég kom aftur
tæpu ári síðar voru allar stelpurn-
ar í bekknum byrjaðar að æfa og
þá byrjaði ég líka,“ sagði Rakel en
hún reyndi fyrir sér í mörgum
íþróttagreinum á sínum yngri
árum.
Var efnileg í skák
„Ég var lengi í fótbolta og svo hef
ég prófað fimleika, badminton og
skák. Ég veit reyndar ekki hvort
það telst íþrótt en ég var samt
efnileg í skák,“ sagði Rakel og hló.
„Svo hef ég prófað körfubolta og
sund líka en ekkert af neinu viti
þó.“
Rakel sagði að handboltinn hafi
einfaldlega átt best við sig. „Mér
fannst þetta bara svo skemmtilegt
og ég fann það eiginlega bara
strax. Frá því að ég byrjaði að æfa
með öllum stelpunum í bekknum
mínum þá hefur þetta legið svo
vel fyrir mér og fann það strax að
þetta var rétta íþróttin fyrir mig.
Þó að ég hafi alltaf verið í fótbolta
þá vissi ég alltaf að ég myndi velja
handbolta. Mér finnst þetta bara
svo skemmtileg og spennandi
íþrótt.“
Herdís Sigurbergsdóttir var
fyrsti þjálfari Rakelar og hún var
einnig helsta fyrirmynd Rakelar
þegar hún var að byrja í hand-
bolta. Rakel sagði einnig að hún
hafi alltaf litið upp til Hrafnhildar
Skúladóttur sem nú er samherji
hennar í landsliðinu.
Að leika með landsliðinu er
gamall draumur. „Ég hef alltaf
stefnt að þessu frá því ég byrjaði
og mig langaði alltaf að fara í A-
landsliðið. Ég var líka ótrúlega
ánægð þegar kallið kom. Mér
finnst þetta líka mikill heiður, að
spila fyrir hönd þjóðarinnar.
Maður lærir líka svo margt í þess-
um ferðum og sér svo marga ólíka
hluti. Maður lærir líka að meta
Ísland betur.
Það er líka gaman að kynnast
svona mörgum stelpum í kring-
um þetta allt saman. Eins og
þegar ég byrjaði í unglingalands-
liðinu á sínum tíma, þá var maður
allt í einu liðsfélagi stelpnanna
sem maður spilaði alltaf á móti.
Maður þoldi eiginlega ekki að
spila á móti þeim en svo voru
þetta bara skemmtilegar stelpur.
Ég hlakka líka alltaf rosalega til
að fara í þessar ferðir og það
heldur manni oft gangandi ef það
kemur einhver smá niðursveifla
hjá manni,“ sagði Rakel sem á
u.þ.b. 30 A-landsleiki að baki
fyrir Íslands hönd en hún var
ekki nema 17 ára gömul þegar
hún var fyrst valin í A-landslið
Íslands.
góður félagsskapur
Rakel bætti einnig við að hún hafi
eignast margar af sínum bestu
vinkonum í gegnum handboltann.
„Allar þær stelpur sem fóru með
mér í gegnum alla yngri flokkana
eru góðar vinkonur mínar,“ sagði
Rakel og eftir að hafa fylgst með
landsliðinu í Rúmeníu undanfarna
daga finnst undirrituðum augljóst
að Rakel og Eva Margrét Kristins-
dóttir, leikmaður Gróttu, nái mjög
vel saman utan vallar.
„Ég og Eva vorum saman í
yngri landsliðunum og náðum
strax vel saman. Við erum svipað-
ar persónur og erum kannski jafn
mikil fífl. Við erum alltaf að fíflast
eitthvað saman.“
Rakel sagðist eiga margar
góðar minningar frá landsliðs-
ferðum í gegnum árin. „Ferðin til
Makedóníu síðasta vor er t.d. mjög
eftirminnileg. Við spiluðum í stóru
íþróttahúsi og það voru eitthvað
um fjögur þúsund áhorfendur á
leiknum. Það voru þvílík læti á
leiknum, við þurftum lögreglu-
fylgd, það var verið að hrækja inn
á völlinn og maður var eiginlega
hálf hræddur.
Ferðin til Tékklands var líka
frábær upplifun, þegar við kom-
umst loksins á stórmót. Að sjá
úrslitaleikinn á milli Rússlands
og Noregs var ótrúlega mikil
upplifun. Þær eru svo góðar
þessar stelpur. Við vorum þarna
í tvær vikur og þarna var spilað-
ur heimsklassa handbolti.“
Rakel stundar nám í hagfræði
við Háskóla Íslands og er á öðru
ári í því námi, en auk þess að
vera í skóla þjálfar hún 4. flokk í
handbolta hjá Stjörnunni. „Hag-
fræði er svo sem ekkert sem ég
hef stefnt að lengi. Ég datt eigin-
lega bara inn á þetta af því að
fjölskyldan mín er svo mikið í
þessu. Bróðir minn, pabbi minn
og frænka mín eru öll í þessu. Ég
var alltaf ákveðin í að fara beint
í háskóla eftir stúdentsprófið og
þegar bróðir minn fór í þetta og
fór að tala um þetta þá fékk ég
áhuga á þessu.
Ég ætlaði alltaf að verða
læknir eða flugmaður eða eitt-
hvað því um líkt þegar ég var
lítil en ég valdi hagfræði. Ég er
líka mjög ánægð með það, þetta
á vel við mig og ég er mjög
ánægð í þessu námi,“ sagði Rakel
sem kláraði stúdentspróf frá
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
á þremur árum.
„Mig langar mikið að fara út
til Danmerkur eftir háskólann
og taka framhaldsnám þar. Mig
langar líka að spila handbolta
þar. Ég bjó þar um tíma og kann-
ast vel við mig. Svo fær maður
sér bara góða vinnu þegar þar að
kemur. Ég er ekkert að flýta mér
í þeim efnum,“ sagði Rakel en
hún er staðráðin í að klára námið
hér heima áður en hún fer til
Danmerkur að spila handbolta
eins og stefnan er hjá henni.
Yngst þriggja systkina
Rakel Dögg er yngst þriggja syst-
kina en hún á tvo eldri bræður.
„Yngsta prinsessan fékk mikla
vernd og mikla stríðni líka. Ég
fékk alveg að finna fyrir því og
það er kannski þess vegna sem ég
er svona hörð í dag,“ sagði Rakel
glöð í bragði og bætti við að hún
hafi fengið gott uppeldi.
„Ég er mjög ánægð með það.
Ég fékk ekki mjög strangt upp-
eldi. Foreldrar mínir treystu mér
alveg til þess að koma heim á rétt-
um tíma og ég held að það hafi í
rauninni gert mig miklu sam-
viskusamari og ábyrgðarfyllri. Ef
þau sýna mér mikið traust þá sýni
ég þeim að ég get staðið undir því
trausti. Bræður mínir áttu líka
alveg þátt í uppeldinu. Ég lít mikið
upp til foreldra minna og þau er
miklar fyrirmyndir í mínu lífi,“
sagði þessi einkar geðgóða stelpa
að lokum.
SUNNUDAGSviðtAlið rakel dögg bragadóttir
Stefnir á að spila handbolta í Danmörku
Rakel Dögg Bragadóttir er tvímælalaust ein efnilegasta handboltakona landsins en þessi tvítuga stelpa var fyrst valin í A-landslið
Íslands þegar hún var 17 ára gömul. Dagur Sveinn Dagbjartsson settist niður með Rakel Dögg í Rúmeníu þar sem íslenska landsliðið
leikur í undankeppni HM þessa dagana og ræddi við hana um handboltann, æskuárin, námið og fleira.
hreSS og kát Rakel sést hér á göngu í
Rúmeníu með vinkonu sinni, Elísabetu
Gunnarsdóttur. fRéttablaðið/daGuR
ákVeðin Rakel dögg brýst hér af harðfylgi í gegnum vörn Portúgals í öðrum leik íslenska liðsins í Rúmeníu. Sá leikur tapaðist því
miður og gerði út um möguleikana á að komast áfram. fRéttablaðið/tihi jovanovic